Alþýðublaðið - 22.10.1991, Page 4
Laugardaga 10-17
Sunnudaga 14-17
TM-HUSGOGN
SÍÐUMÚLA 30 SÍMÍ 686822
MÞBUBLJiBlD
Fréttir í hnotskurn
RAÐISTISTORVIRKI: í síðustu viku tók formaður Flugvirkjafé-
lags íslands, Geir Hauksson, fyrstu skóflustungu að mestu byggingu
sem íslendingar hafa til þessa reist, flugskýli og viðhaldsstöð Flugleiða
hf. á Keflavíkurflugvelli. Alþýðublaðið hefur áður lýst þessu stórhýsi,
sem rísa mun af ótrúlegum hraða og kostar einn lítinn milljarð króna.
Nýja byggingin boðar margt gott, skýli fyrir nýjar og dýrar þotur Flug-
leiða, og aukin verkefni flugvirkja við eftirlit og skoðanir. A myndinni
er Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskips og formaður stjórnar
Flugleiða, að ávarpa gesti sem viðstaddir voru skóflustunguna.
VISITOLUR ! Hagstofa íslands hefur reiknað út launavísitöluna fyr-
ir októbermánuð miðað við meðallaunin í mánuðinum á undan. Vísi-
talan er 129,3 stig, eða 0,1% hærri en í september. Samsvarandi launa-
vísitala, sem gildir við útreikning greiðslumarks fasteignaveðlána, tek-
ur sömu hækkun og er því 2.828 stig í nóvembermánuði. Ennfremur
hefur Hagstofan reiknað vísitölu byggingarkostnaðar. Hún hreyfðist
lítt, hækkaði um 0,2% milli mánaða, er nú 187,3 stig. Byggingarvísital-
an hefur hækkað um 8,1% síðustu 12 mánuði, síðustu 3 mánuði um
0,5%, sem samsvarar 2,2% árshækkun.
3.500.000. GESTURINN: húu
Elísabet Haraldsdóttir varð
óvænt gestur númer 3.500.000 í
Þjóðleikhúsinu. Hún kom að sjá
Gleðispilið eftir Kjartan Ragn-
arsson á laugardagskvöldið og
var þá tekið á móti henni af sjálf-
um Þjóðleikhússtjóranum, Stefáni
Baldurssyni. Færði hann Elísabetu
blómvönd, minningarpening leik-
hússins og gjafakort fyrir tvo á all-
ar sýningar hússins í vetur.
TÍSKUBLAÐ SÆVARS KARLS: Tólf þúsund viðskiptavinir Sæv-
ars Karls fá um þessar mundir sent tískutímarit, Yfirlit Sævars
Karls, myndarlegt blað. í blaðinu er ekki aðeins hugað að fallegum og
vel hönnuðum klæðnaði, heldur einnig bókmenntum, ýmsum nautn-
um og myndlist; einnig bílum, skóm og skógerð. í blaðinu segir frá Ól-
afi Jóhanni Ólafssyni, Sony-forstjóra á alþjóðavísu sem jafnframt er
spennandi rithöfundur, sem gefur út bók hjá Vöku-Helgafelli í haust.
Haft er eftir ráðgjafa sem fékk að lesa handritið að hér sé á ferðinni
metnaðarfullt verk. „Bókin verður trúlega talin eitt af stórvirkjum síð-
ustu ára í íslenskri skáldsagnagerð," er haft eftir þessum nafnlausa les-
ara.
KVENSJÚKDÓMALÆKNAR MÓTMÆLA: Fundur í Félagi ís-
lenskra kvensjúkdómafræðinga mótmælti nýlega áformum um að
draga úr þjónustu við sjúklinga með því minnka fjárveitingar og loka
Fæðingarheimili Reykjavíkur og breyta St. Jósefsspítala í Hafnarfirði
i elliheimili. Fundurinn bendir á nauðsyn þess að sjúklingar eigi val um
hvar þeir fá þjónustuna.
ALNÆMIBREIÐIST UT: Enn fjölgar þeim einstaklingum sem smit-
ast hafa af völdum HIV, — eða alnæmis. Alls 66 íslendingar hafa greinst
með smit, þar af 7 á þessu ári. Alls 20 hafa greinst með alnæmi, lokastig
sjúkdómsins, og eru 11 þeirra dánir. Sem fyrr er sjúkdómurinn mest
áberandi meðal homma/tvíkynhneigðra, 43, og fíkniefnaneytenda
sem taka eiturlyf í æð, 7 alls, auk tveggja tilfella þar sem viðkomandi
er hommi og eiturlyfjasjúklingur. Gagnkynhneigðir með HlV-smit eftir
kynmök eru 6 talsins, þrír karlar og þrjár konur. Fjórar konur hafa
smitast við blóðgjöf og tvö tilfelli eru óþekkt. Af sjúklingunum eru 56
karlar og 10 konur, langflestir á aldrinum 20—40 ára.
ALNÆMI BREIÐIST HRATT ÚT: Enda þótt fjölmiðlar veiti al-
næmisplágunni minna rými nú en áður breiðist sjúkdómurinn hratt út
að sögn talsmanna Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í Genf.
Skýrslur greina frá um hálfri milljón manna sem hafa sjúkdóminn á
lokastigi — talsmenn WHO segjast álíta að raunveruleg tala sé þrefalt
hærri og að þriðjungur sjúkra sé börn. I Bandaríkjunum einum er 191
þúsund tilfelli, en á eftir koma Úganda og Brasilía. I Evrópu eru alnæm-
istilfellin flest í Frakklandi, rúmlega 15 þúsund talsins.
FRÍVERSLUN VIÐ TYRKLAND: fsland eygir möguleika á að
komast inn á 50 milljón manna markað í Tyrklandi með fiskafurðir.
Jafnframt er ekki ólíklegt að ávextir frá Tyrklandi muni sjást í verslun-
um hér. Tyrkir og EFTA-ríkin hafa gert með sér fríverslunarsamning,
eða drög að slíkum. Fullri fríverslun með fisk á að koma á fót á fjórum
árum í Tyrklandi og tollar þá að verða felldir úr gildi. Aðlögunartíminn
er sá sami og með iðnaðarvörur. Meginhluti samningsins varðar iðnað-
arvörur og er byggður á fríverslunarsamningum við lönd Evrópu-
bandalagsins frá 1972. Fulltrúi íslands í þessum viðræðum var Kjartan
Jóhannsson sendiherra.
Ungir íslenskir, grœnlenskir og fœreyskir jafnadarmenn álykta
Aukið samstarf á sviði
umhverfis og auðlinda
Ráðstefna ungra jafnaðar-
manna frá Islandi, Færeyjum og
Grænlandi um efnið Atlantshaf
um aldamót ályktaði í gær að
stórauka þurfi samstarf íslend-
inga, Færeyinga og Grænlend-
inga á öllum sviðum umhverfis
og auðlinda. Ályktunin fer hér á
eftir:
„Hagsmunir og örlög þjóðanna
við Norður-Atlantshaf eru sam-
tvinnuð. Allar byggja þær afkomu
sína á endurnýjanlegum auðlindum
náttúrunnar; fiskveiðum og -
vinnslu. Því er lífsnauðsynlegt að
þessar þjóðir standi saman að
verndun umhverfis og beiti sér fyrir
samningum milli þjóða um bann við
losun úrgangsefna í hafið, og tak-
mörkun eða bann við flutningi
hættulegra efna um úthöfin.
Stjórnvöld þessara þriggja landa
þurfa að koma á víðtækara sam-
starfi á sviði rannsókna á lífríki hafs-
ins og nýtingu fiskistofna. Hægt er
að auka samstarf milli stjórnarstofn-
ana, rannsóknaraðila, háskóla, at-
vinnufyrirtækja og almannasam-
taka til að auka skilning og efla áhrif
þessara þjóða í alþjóðlegu tilliti.
Mikilvægt er að þjóðirnar sem
byggja Norður-Atlantshafið nýti sér
sameiginlegan vettvang, svo sem
Norðurlandaráð og Vestnorrænu
þingmannanefndina, til að vinna að
sameiginlegum hagsmunum, og
auka skilning annarra þjóða á lífs-
háttum og menningu þessara þjóða.
Þá viljum við benda á mikilvægi
þess að ungt fólk í þessum löndum
kynnist hvert öðru, aðstæðum og
skoðunum hvert annars, til að efla
sameiginlega vitund og skilning á
sameiginlegum aðstæðum, úrlausn-
arefnum og sameiginlegri framtíð,"
segir í ályktuninni.
Grænlenskir, færeyskir og íslenskir fulltruar, á ráðstefnu FUJ í Hafnarfirði um
helgina. A-mynd: E.ÓI.
Norskur höfundur skrifaði bók á íslandi
Konurnar sem vissu ekki
að þær voru fráskildar
- einkennileg lög stríðsáranna heimiluðu
norskum körlum á erlendri grund að stofna
til nýs hjónabands
Norska skáldkonan Kim
Smáge,sat við bókarskriftir á ís-
landi í sumar og er nú tilbúin
með fimmtu bók sína, Lex-lögin
eða Lex Love, eins og hún heitir
á norsku. í bókinni fjallar höf-
undurinn um lög, sem sett voru á
stríðstímum í Noregi, svokölluð
„tvíkvænislög", sem oft hafa
verið kennd við Lex Nygaards-
vold. Þessi lög heimiluðu norsk-
um körlum sem voru á erlendri
grund í stríðinu að ganga að eiga
nýja konu, meðan norska eigin-
konan sat heima án þess að vita
að hún væri skilinl
Þessi efniviður, segir Kim Smáge,
hefur lengi freistað hennar sem
Fréttastoffu-
ruglingur
í fréttum af hugmyndinni um nýtt
og öflugt dagblað, sem birtist í Al-
þýðublaðinu á föstudaginn, fórum
við deildavillt hjá Ríkisútvarpinu.
Það var ekki sjónvarpið sem flutti
þau „tíðindi" að Alþýðublaðinu
væri dreift í rúmum 170 eintökum
út á land. Það var hin ágæta frétta-
stofa útvarpsins, sem flutti þessa
frétt, — alls ekki fréttastofa sjón-
varps. Þetta leiðréttist hérmeð.
bókarefni. Fyrst hafði hún í huga
heimildabók, en sneri frá því og
skrifaði skáldsögu um efnið.
Að sögn skáldkonunnar urðu
margar norskar konur fyrir því á
stríðsárunum að skilja við eigin-
KIM SMAGE — skritar um kynsystur
sínar sem máttu þola þaö að karl
þeirra grftist annarri, án þess að fá
vitneskju um það.
manninn — án þess að vita það.
„Engin þeirra hefur viljað koma
fram og segja sögu sína. Skömmin
og niðurlægingin var of mikil. En
þetta upplifðu margar, upp undir
þúsund konur," segir Kim Smáge.
Hún segir líka að sem betur fer hafi
þessi undarlegu lög verið numin úr
gildi 1946 að frumkvæði þingkonu
hægri flokksins, Ragnhild Vambo.
„Það er uggvænlegt til þess að
hugsa," segir Kim Smáge, „að engin
þessara kvenna fékk neina leiðrétt-
ingu á málum sínum."
Vinningstölur
laugardaginn
FJÖLDI
VINNINGSHAFA
UPPHÆÐ Á HVERN
VINNINGSHAFA
2.636.532
114.628
3.
134
5.902
4.
4.128
447
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.731.128
upplýsingar:símsvari91 -681511 lukkul!na991002