Alþýðublaðið - 01.11.1991, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 01.11.1991, Blaðsíða 4
mHi Laugardaga 10-17 Sunnudaga 14-17 TM-HUSGÖGN SÍÐUMÚLA 30 SÍMÍ 686822 ÍLMIUBLMII Fréttir í hnotskurn FISKAÐ UPPI í KÁLGÖRÐUM: „á meðan eigum við að taka upp fyrri fiskveiðistefnu — eða stefnuleysi — og veiða fisk þar sem til hans næst, líka „uppi í kálgörðum". Við þurfum ekki mikið að óttast þá stefnu, því það verður alltaf til fiskur til að hrygna og vaxtarskilyrðin batna ef ekki er of mikil þröng á hrygningarog uppvaxtarslóðum. En ef mönnum finnst öruggara að hafa einhvern hemil á veiðinni má gjarnan setja hámark á ársaflann, t.d. 430.000 tonn eins og meðalafl- inn var frá 1950 til 1975,“ segir Sigurjón Valdimarsson, ritstjóri Vík- ingsins, málgagns Farmannaog fiskimannasambands ísiands, í snarpri grein í nýjasta blaði sínu. SNAKK - EINKARETTUR: Davíð Scheving Thorsteinsson segir að orðið snakk sé lögverndað vörumerki Smjörlíkis hf. Fyrir- tækið hafi einkarétt á notkun þessa enska slanguryrðis, og notkun orðsins, hvort heldur sem er í rituðu máli, auglýsingum eða á annan hátt, sé einungis leyfileg Smjörlíki hf. „Heimildarlaus munnleg notkun orðsins er einnig bönnuð lögum samkvæmt," segir Davíð. Blöðunum er bent á að fella niður orðið SNAKK í auglýsingum annarra aðila. En hvað þýðir annars orðið snakk? Við flettum upp í íslenskri orðabók. Þar segir að þetta orð þýði: málæði, innihaldslaus orð, kjaftæði. Hjá Smjörlíki hf. er það notað um fislétta skyndibita úr kornvöru, sem dýft er í sósur og maulaðir — aðallega með bjór eða víni. ALÞJÓÐLEG UNGMENNASKIPTI: Alþjóðleg ungmenna- skipti — AUS, hafa nú starfað í 30 ár. Haldið verður upp á afmælið í Safnaðarheimili Bústaðakirkju á morgun, laugardag, kl. 15. Þar munu mæta fyrrum skiptinemar, skiptinemar sem nú dvelja hér og aðrir sem starfað hafa að þessum málum. Ungmenni á vegum AUS hafa farið víða um veröldinaog nú er t.d. lögð mikil áhersla á riki þriðja heimsins, Afríku, S-Ameríku og Asíu. í ár skiptu samtökin í fyrsta sinn við Lett- land. Nemendur sem fara utan á vegum AUS, og þeir útlendingar sem hingað koma, sækja ekki skóla, en vinna ýmsa algenga vinnu. RÓSASÝNINGÍ BLÓMAVAU: Rósabændur sýna hvað í þeim býr í Blómavali við Sigtún um helgina. Þar verður sýndur blóminn í rósarækt. Islensk rósarækt stendur fyllilega jafnfætis því besta sem gerist erlendis og afbrigðin sem ræktuð eru skipta tugum. Nú er hægt að rækta rósir allan ársins hring, þökk sé nýrri ljósatækni, svokallaðri gjörlýsingu. Gestir í Blómavali munu kjósa „Rós ársins 1991“. . PRESTSVIGSLA: Biskup íslands, herra Ólafur Skúlason, mun vígja Jón Hagbarð Knútsson guðfræðing á sunnudag, en hann hefur verið kallaður til þjónustu á Raufarhöfn. Vígslan hefst kl. 10.30 og er að sjálfsögðu öllum opin. SKÁTAR DANSA Á T0RGINU: Skátar halda sinn árlega skáta- dagá morgun, laugardag. Meðal þesssem þeir gerasértil skemmtunar er að dansa á Lækjartorgi. Fjölbreytt hátíð skátanna hefst á torginu kl. 11.30 á morgun. Farið verður í ýmsa leiki, grillveisla verður í Hljóm- skálagarðinum ogkl. 16 fjölmennaskátar í Laugardalshöll og taka þátt í hápunkti Vináttu ’91. FAGNA UPPSÖGN Á EINU EINTAKI: Samtök bæjar- og hér- aðsfréttablaða héldu aðalfund sinn í Eyjum á dögunum. Þar var sam- þykkt ályktun þarsem lýst er yfir ánægju með þá (stórhuga) ákvörðun Friðriks Sophussonar fjármálaráðherra að segja upp því eina ein- taki af hverju aðildarblaða samtakanna, sem keypt hafði verið áður. Hvetur fundurinn stjórnvöld til að segja upp öllum fjölmiðlaáskriftum og afnema alla flokkspólitíska útgáfustyrki. Allir fjölmiðlar eigi að sitja við sama borð. Eigi að síður telur aðalfundurinn að hið opinbera „mætti í mun ríkari mæli en gert er, nýta sér j>á þjónustu sem blöðin bjóða upp á“. SVIKULIR SUNNANMENN: í utanbæjarblöðum er stundum sagt frá ýmsum þjófnuðum, óknyttum og sviksemi. Oftar en ekki eru þetta utanbæjarmenn, sérstaklega á Akureyri. Dagur segir t.d. frá því fyrir helgi að „sunnanmenn" hafi farið í bílasölu Þórshamars og valið sér farartæki og ekið því, ófrjálsri hendi, út úr sýningarsalnum. Það var ekki fyrr en upp úr hádegi á miðvikudag að starfsmenn uppgötvuðu að nýjan Daihatsu-bíl vantaði í salinn! Skarpskyggnir rannsóknarlög- reglumenn sáu þegar í hendi sér að hér mundu sunnanmenn að verki. Var hringt í Borgarneslögguna, sem stöðvaði sunnanmennina á akstri sínum suður og færði þá til yfirheyrslu. EES-samningarnir hornsteinn að bœttum tekjum almennings, segir Jón Sigurðsson, viðskipta- og iðnaðarráðherra Brúarsporðs- hlutverk íslands „Samningurinn um evrópskt efnahagssvæði er mikilvægasti samningur lýðveldisins," sagði Jón Sigurðsson, viðskipta- og iðnaðarráðherra, á geysifjöl- mennum fundi í félagsheimilinu Stapa á þriðjudagskvöldið. Sagði ráðherrann það mat sitt að samningurinn tryggði okkur næg tengsl við þróunina í Evr- ópu og þannig fullan aðgang að sterkasta markaðssvæði verald- ar. Taldi Jón að samningurinn gæti haft úrslitaþýðingu fyrir framtíðaruppbyggingu orku- freks iðnaðar hér á landi, auk þess sem hann gæti eflt almenn- an iðnað sem og sjávarútveg og fjármagnsaðgengi. Framsóknarmenn í Mývatns- sveit lýsa yfir furðu sinni á því sem þeir kalla aðför Náttúru- verndarráðs og fleiri aðila að Kísiliðjunni. Tehir fundur fram- sóknarmanna nyrðra að nefnd- arálit sérfræðinganefndar um Mývatnsrannsóknir gefi ekki til- efni til annars en að Kísiliðjunni verði tryggt eðlilegt framhald námaleyfis. Framsóknarmenn í sveitinni telja raunar að ef eitt- hvað er, þá sé kísilgúrvinnslan núttúruverndandi frekar en hitt. Bent er á að dælingarsvæðið á Ytriflóa, sem var orðið lélegasta veiðisvæði Mývatns áður en dæling úr kísilgúrnámunni í vatninu hófst, er í dag eitt besta veiðisvæði vatns- ins. Einnig er athygli á því vakin að síðastliðin tvö ár hefur lífríki vatns- ins verið í uppsveiflu. Rykmý var í sumar með þvi mesta sem verið hef- ur í áratugi, einkum við Ytriflóa, og mergð andarunga komst upp. Þá segir í ályktun framsóknar- manna að fiskifræðingar telji góðan árgang ungbleikju í uppvexti í vatn- inu, sem muni væntanlega koma fram í betri veiði í vatninu á næsta ári. Loks er bent á að með dýpkun í ræðu sinni minntist Jón Sigurðs- son á samningana um Atlantshafs- bandalagið, EFTA og Bókun 6 í samningnum við Evrópubandalag- ið. Allt væru þetta samþjóðlegar leikreglur, sem íslendingar tækju þátt í. Hann raeddi sérákvæði EES-samningsins um útflutning á ferskfiskflökum, saltsíldarflökum og á saltfiski. Benti ráðherrann á þá miklu möguleika sem samningur- inn innibæri til verðmætasköpunar og eflingar útflutningstekna. Jón Sigurðsson var bjartsýnn á at- vinnuþróun á Reykjanesi, sagði ís- land spila „brúarsporðshlutverk" milli heimsáifanna. Keflavíkurflug- völlur yrði þar æ mikilvægari. „Við breytum nauðsyn í dyggð," sagði vatnsins sé í raun verið að lengja líf- tíma þess, ella stefni í að umtals- verðir hlutar vatnsins verði orðnir að mýrlendi á næstu öldum. Fyrir- hugað dælingarsvæði í Strandarbol- um sé meðal grvnnri svæða vatns- ins og ástand þar farið að minna á það sem var áður en Ytriflói var dýpkaður. Jón Sigurðsson á fundinum í Stapa, — EES og álverið á Keilisnesi horn- steinar ríkisstjórnarinnar í gjaldeyris- öflun og aukningu almennra tekna. Fyrri hornsteinnirm hefur verið lagð- ur, hinn verður lagður á næsta ári, og þá hefjast stórframkvæmdir við virkjanir og álver. A-mynd: GTK. ráðherrann. Ekki kannaðist ráðherrann við það að á íslandi væri tvöfalt gengi, þrátt fyrir verðjöfnunarsjóð, og und- irstrikaði það enn frekar að verkefni lýðveldisins framundan væru aukin gjaldeyrisöflun og meiri tekjur fyrir almenning. Til j>ess hefði ríkis- stjórnin verið mynduð, — og við það mundi hún standa. — GTK Hafnarfjörður Grunnskólakennarar Vegna forfalla vantar nú þegar kennara í Setbergs- skóla í Hafnarfiröi. Um er aö ræöa heila stööu í samfélagsfræði og tungumálakennslu. Upplýsingar gefa skólastjóri eða yfirkennari í síma 651011. Skólafulltrúinn í Hafnarfirði. Framsóknarmenn í Mývatnssveit Kísilgúrvinnsla er núttúruvernd Við gefum orðinu „einkatölva“ nýja merkingu! Með Macintosh PowerBook verður enn auðveldara að vinna frábær störf, því þær má taka með sér hvert sem er. Þær vega aðeins 2,3 til 3,1 kg og rafhlaðan endist í allt að 4 klst. PowerBook-tölvurnar geta notað öll Macintosh- forritin, eru tengjanlegar við aðrar töhoir, hafa möguleika á faxmótaldi og fást með allt að 40 Mb innb. harðdiski. Síðustu forvöð á þessu ári að panta Macintosh- tölvubúnað samkvæmt Ríkissamningnum eru Apple-umboðið n Skipholti 21, sími (91) 624 800 V Aj)

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.