Alþýðublaðið - 06.11.1991, Blaðsíða 3
Miðvikudaqur 6. nóvember 1991
3
/ leikhúsi — eftir Jón Birgi Pétursson
Gaman og alvara
Af gamanleik að vera, eins og
Þjóðleikhúsið kynnir leikrit
Pauis Osborne, „Himneskt er að
lifa“, var furðu iítið hlegið í leik-
húsinu á frumsýningarkvöldið.
Leikritið tekur í raun til umfjöll-
unar grundvallarspurningar-
innar: Hvar er ég? sem léttklikk-
aður Davíð, eini maðurinn með
menntun í þessu lokaða samfé-
lagi fjölskyldna fjögurra systra,
veltir mjög fyrir sér, og á þar að-
eins einn viðmælanda sem hann
metur, svila sinn.
Systurnar fjórar búa nánast á
sömu torfunni. Umgangur utan
hópsins er nánast enginn, og svo
virðist sem erfitt sé að komast út úr
þessum lokaða hring. Að minnsta
kosti hefur ,,ungi maðurinn", sonur
einnar systurinnar, verið trúlofaður
í 12 ár, en ekki séðástæðu til mikilla
samskipta við kærustuna, sem hann
óttast að vera í einrúmi með. Ein
systirin hefur líka lokast inni í þessu
samfélagi sem vonlaus piparjómfrú.
Já, þetta er skritin familía, smá-
borgaraleg, en elskuleg á sinn ein-
falda hátt. Hver og einn á við sitt böl
að stríða. Húsasmiðurinn, sem átti
sér þá hugsjón að verða tannlæknir
á yngri árum, fær „tilfelli" annað
slagið. Einn eiginmaður hefur farið
systravillt í svefnherberginu. Unga
manninum, sem reyndar er orðinn
fertugur, veitist það ekkert létt verk
að fara úr litla herberginu sínu og
setjast að í íbúð sem bíður hans og
væntanlegrar eiginkonu, sem farin
er að ókýrrast eftir 12 ár í festum,
enda „er allt dótið hans í herberg-
inu“.
Vissulega var margt spaugilegt í
þessu leikriti, og það var gaman að
horfa á það. Var leikurum, leik-
stjóra, þýðanda ogöðrum, sem hlut
áttu að máli, forkunnarvel tekið í
lok sýningarinnar. Frumsýningar-
gestir skemmtu sér sýnilpga vel og
ekki er ótrúlegt að þetta leikrit eigi
eftir að ganga bærilega.
Skemmtilegt var að sjá á sviði
margar stórar stjörnur leiklistar-
heimsins okkar, gamla og gróna
leikara, sem áttu létt með að túlka
þetta skrítilega smábæjarfólk. Þau
Róbert Arnfinnsson, Herdís Þor-
valdsdóttir og Baldvin Halldórsson
skiluðu sínu af stakri prýði og skör-
uðu nokkuð fram úr öðrum á svið-
inu. Gunnar Eyjólfsson, Þóra Frið-
riksdóttir og Guðrún Stephensen
léku líka vel, einsog við mátti búast
af svo reyndum kröftum. „Unga
fólkið", Homer og Myrta, var leikið
af Jóhanni Sigurðarsyni og Eddu
Heiðrúnu Backman. Daman orðin
vel pipruð, óörugg og hástemmd,
þegar hún loks var kynnt í samfé-
lagi systranna fjögurra, en „piltur-
inn" fremur óásjálegur lurkur, dauð-
hræddur við lífið utan öryggis
systraveldisins.
Leikstjórn er í höndum Sigrúnar
Valbergsdóttur og hefur það vænt-
anlega verið létt verk að vinna með
svo reyndum leikurum. Þýðinguna
gerði Flosi Ólafsson, lipurlega eins
og vænta mátti, leikmynd og bún-
ingar voru í höndum Messíönnu
Tómasdóttur, búningar sannfærandi
en leikmyndin sýndi ekki þann
veruleika sem hún hefði þurft að
sýna. Lýsingu annaðist Ásmundur
Karlsson.
Þetta var ágætissýning, og óhætt
að mæla með því að fólk drífi sig.
Það ætti þó að hafa í huga að hér er
ekki um að ræða farsa, — það er tek-
ið á grundvallarspurningu, en
glettnin er ævinlega stutt undan.
ÉAIþýöuflokkurinn
auglýsir laust starf
framkvæmdastjóra
þingflokks og
flokksskrifstofu.
Framkvgemdastjórinn verður ábyrgur fyrir almennu
flokksstarfi og rekstri. Hann situr þingflokksfundi og
skipuleggur starf þingmanna úti í kjördæmunum.
Umsóknarfresturertil 18. nóvembernk.
Laun samkvæmt samkomulagi.
Skriflegar umsóknir berist formanni framkvæmdastjórnar,
Guðmundi Oddssyni, Hverfisgötu 8-10, 101 Reykjavík.
Farið verður méð allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Formaður framkvæmdastjórnar
Alþýðuflokksins —
Jafnaðarmannaflokks íslands
EÍðUP
Guðnason
umhverfisráðherra
verður með viðtalstíma á skrifstofu
Alþýðuflokksins, Hverfisgötu 8-10 í
Reykjavík, fimmtudaginn 6. nóvember
frákl. 17,00-19.00.
Tímapantanir á skrifstofu flokksins í
síma 91-29244 frá kl. 10.00-16.00.
Skrifstofa Alþýðuflokksins
t
Móðir okkar
Brynhildur Snædal Jósefsdóttir
kennari frá Létrum i Aðalvík
síðast til heimilis að Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík,
lést 3. nóvember si.
Fyrir hönd vandamanna.
Guðrun Karlsdóttir
Ástríður Karlsdóttir
Guðmundur Stefán Karlsson
Hrafnhildur Snædal Ólafsdóttir
Hanna Ólafsdóttir Forrest
Þröstur Ólafsson
Guðmundur Páll Ólafsson.
iMfi.i (i.nsfvr.iK
Menntamálaráðuneytið
Laus staða
Styrkur til handritarannsókna
í Kaupmannahöfn
í framhaldi af lyktum handritamálsins ákváðu
dönsk stjórnvöld að veita íslenskum fræðimanni
styrk til handritarannsókna við Stofnun Árna Magn-
ússonar (Det arnamagnæanske Institut) í Kaup-
mannahöfn. Styrkurinn veitist til allt að tólf mánaða
dvalar og nemur nú um 16.100 dönskum krónum á
mánuði, auk ferðakostnaðar.
Styrkur Árna Magnússonar
(Det Arnamagnæanske Legat)
Með sameiningu eftirtalinna sjóða, Det Arnamagn-
æanske Legat (frá 1760), Konrad Gíslasons Fond
(frá 1891) og Bogi Th. Melsteds Historikerfond (frá
1926) hefur verið stofnaður einn sjóður, Det Arna-
magnæanske Legat. Verkefni hins nýja sjóðs er að
veita íslenskum ríkisborgurum styrki til rannsókna
í Árnasafni eða í öðrum söfnum í Kaupmannahöfn.
Styrkir veröa veittir námsmönnum og kandidötum,
sem hafa sýnt svo mikla þekkingu á sviöi norrænn-
ar eöa íslenskrar tungu, sögu eða bókmennta, aö
vænta megi aö þeir muni inna af hendi verk í þess-
um greinum, sem þættu skara fram úr.
Umsóknarfrestur um ofangreinda styrki er til 25.
nóvember nk., en umsóknir ber að stíla til Árna-
nefndar (Den Arnamagnæanske Kommission) í
Kaupmannahöfn. Nánari upplýsingar um styrkinn
og tilhögun umsókna fást í menntamálaráðuneyt-
inu, Stofnun Árna Magnússonar á íslandi og skrif-
stofu heimspekideildar Háskóla íslands.
Menntamálaráðuneytið, 4. nóvember 1991.
Kynningarfundur
Miövikudaginn 6. nóvember kl. 17.15 mun hr. Luis
Olivares, starfsmannastjóri Alþjóðabankans í Evr-
ópu, halda kynningarerindi í stofu 101, Lögbergi,
Háskóla íslands um stefnu Alþjóðabankans í starfs-
mannamálum. Jafnframt gefur hann yfirlit yfir
helstu verkefni bankans og starfssviö.
Öllum er áhuga hafa á að kynna sér starfsemi og
störf á vegum Alþjóöabankans er hér með bent á að
koma til þessa kynningarfundar. Fundurinn er öll-
um opinn.
Viðskiptaráðuneytið, 4. nóvember 1991.
Verkfræðingar
Miðvikudaginn 6. nóvember kl. 10.30 mun hr. Luis
Olivares, starfsmannastjóri Alþjóöabankans í Evr-
ópu, halda kynningarerindi í Borgartúni 6, Reykjavík
um stefnu Alþjóðabankans varöandi ráðningu verk-
fræöinga til sérstakra verkefna á vegum bankans.
Fundurinn er opinn öllum starfandi verkfræöing-
um.
Viðskiptaráðuneytið, 4. nóvember 1991.
Sundrung eða samstarf?
Félag ungra jafnaðar-
manna í Reykjavík, FUJ,
boðar til fundar allra Al-
þýðuflokksfélaganna í
Reykjavík, fimmtudags-
kvöldið 7. nóvember nk.
kl. 20.30 í Rósinni, Hverf-
isgötu 8—10.
Fundarefni:
Sundrung eða samstarf Alþýðuflokksfélaganna í
Reykjavík?
Frummæiendur:
Guðmundur Einarsson, aðstoðarmaður iðnaðar-
ráðherra og Margrét Björnsdóttir, endurmenntun-
arstjóri Háskóla íslands.
Léttar veitingar.
Stjórnin
Bæjarmálaráð
Alþýðuflokksins í Hafnarfirði
Fundur bæjarmálaráðs verður haldinn mánudaginn
11. nóvember nk. kl. 20.30 í Alþýðuhúsinu, Strand-
götu 32.
Fundarefni:
Hafnarmál.
Framsaga:
Eyjólfur
Sæmundsson,
formaður
hafnarnefndar.
Fundarstjóri:
Jóna Ósk Guðjónsdóttir.
Allt nefndarfólk Alþýðuflokksins í Hafnarfirði og
annað stuðningsfólk er hvatt til að mæta vel og
stundvíslega.
Bæjarmálaráð