Alþýðublaðið - 06.11.1991, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 06.11.1991, Blaðsíða 4
Laugardaga 10-17 Sunnudaga 14-17 TM-HUSGÖGN SÍÐUMÚLA 30 SÍMÍ 686822 MÞYBVBLMB Fréttir í hnotskurn ÍSLENSKUR BJÓR VINSÆLL: Kins í öOrum löndum viröast íslendingar hallast aö heimageröum björ. Nýjar sölutölur Á'I'VK henda aö minnsta kosti í þá átt. Egils Gull hefur aukiö hlutdeild sína á mark- aönum jafnt og þétt, og sama má segja um Egils Silfur. Aö sögn þeirra hjá Olgerðinni Agli Skallagrímssyni hefur sala á gullinu aukist um 78,4% frá í fyrra og 83,3% á silfurbjórnum. Markaöshlutdeild Kgils á ölmarkaöi er komin í 10,4% og er fyrirtækiö þriöji stærsti aöilinn á markaönum. Boöiö er upp á Kgilsbjór á margnota glerflöskum, sem vissulega er gott mál umhverfislega séö. Myndin: Lárus Berg Sigur- bergsson framkvæmdastjóri og Guðlaugur Guðlaugsson sölustjóri meö gæöaverölaun fyrir Koyal Crown Cola, þriöja áriö i röö. íslenska vatniö er sagt grunnurinn aö góöum gosdrykk, og gosiö selst á mark- aöi hér sem aldrei fyrr, þrátt fyrir bjórinn. PRESTUM LETTIR: Prestar landsins eru ánægöir meö manna- nafnalistann sem Mannanafnanefnd hefur gefiö út, svo ófullkominn sem hann þó er, j)ví þar vantar inn gamalgróin nöfn eins og Friðrik. I’restar hafa oft og einatt þurft aö standa í „stríöi" viö foreldra vegna nafngifta. Nú geta þeir flett upp leyfilegum nöfnum og skotiö ágrein- ingsefnum til nefndarinnar. Prestar áttu á sínum tíma aö fá í hendur lista yfir ólögleg nöfn, en fengu hann aldrei í hendur. VÖRUSÝNING Á HÚSAVÍK: Kaupfélag Þingeyinga, elsta kaup- félag landsins. heldur mikla vörusýningu í Barnaskólanum á Húsavík um helgina. Par veröur kynnt ýmislegt þaö í starfsemi kaupfélagsins sem snýr aö neytendum; fjölbreytt framleiösluvara, kjötvara. mjólkur- vörur, brauö, kökur, efnageröarvörur og margt fleira. MÓNA LÍSA VAR EKKIMEÐ TANNPÍNU: Hiö virta tölvutíma- rit Computertvorld hefur kveöiö upp dóm sinn; Móna Lísa var ekki meö tannpínu þegar hún sat fyrir hjá Leonardo da Vinci foröum. Pessi tannpínukenning var komin upp meöal sérfræðinga, lækna og tannlækna. Blaöamenn þessa blaös nýttu sér tölvutæknina til hins ýtr- asta og komust aö þessari niöurstööu, sem þeir rökstvöja meö flóknum útskýringum í blaöi sínu. Pá vitum viö þaö. BÚSTJÓRAR ERU VERKTAKAR: Ragnar Hall borgarfógeti hef- ur gert athugasemdir viö frétt í fréttabréfi ASI, sem Alþýöublaöiö greindi frá nýlega. Hann tekur fram aö skiptasljiirar |)rotabúa starfi sem verktakar og beri sem slíkir ábyrgö á þeim skuldbindingum sem þeir stofna til. Margir lögmenn vátryggi sig fyrir mistökum sem þeir kunni aö gera og leitt geti til bótaskyldu. Kíkiö beri ekki beina ábyrgö á launagreiöslum til þeirra sem starfa fyrir þrotabú eftir aö uppsagnar- fresti er lokiö. Hinsvegar hljóti ábyrgö ríkisins aö veröa virk ef sá sem á aö greiöa launin veröur gjaldþrota. segir Kagnar Hall og telur aö þaö skipti því ekki máli hvort unniö er í þágu þrotabús eöa ekki. ARANGUR OG FRAMTÍÐARÁFORM: Halldór Blöndal land- búnaöarráöherra heldur opinn kynningarfund i Borgartúni (> á fimmtudaginn um gródurvernd og landgrædslu. Á fundinum munu meira en 20aöilar kynna á ýmsan hátt störfin viö gróöurvernd og land- græðslu, segja frá árangri af starfinu og aö hverju er stefnt. GRAFARVOGUR - NÝTT VIKUBLAÐ: Peir eru framfarasinn- aðir, Grafarvogsbúar, og láta ekki vandamál blaöaútgáfunnar hindra sig. Blaö þeirra, Grafarvogur eöa GV eins og þaö heitir í styttri útgáfu orðsins, er nú oröiö vikublaö, en hefur til þessa komiö út mánaöarlega eöa svo. Útgáfuþjónustan, fyrirtæki Guðmundar Sæmundssonar, gefur blaöiö út í samvinnu viö ótalmörg félög og samtök íbúanna í Grafarvogshverfum. Handboltamenn í Kjölni annast þaö aö selja blaö- ið í hvert hússtrax og þaö kemur glóövolgt úr pressum l)V, sem prentar blaðið. ALÞÝÐUBANDALAGIÐ JAFNAÐARMANNAFLOKKUR! Mikill njálgur er í þeim allaböllum þessa stundina, þegar þeir lifa utan ríkisstjórnar. Kjördæmisráö Alþýöubandalagsins í Keykjaneskjördæmi hefur sent út ályktun sína þar sem segir að Alþýöubandalagiö sé eini raunverulegijafnaðarmannaflokkurlandsins! Álþýöuflokkurinn hafi á ótrúlega skömmum tíma gert nafniö „jafnaöarmannaflokkur íslands" aö háösmerki. Segja þeir þúsundir alþýöuflokksmanna hafa gengiö til liös viö Alþýöubandalagiö í Keykjaneskjördæmi. Sœnskir lœknar géfa út viövörun AIDS getur smitast með kossum Kossar geta smitað fólk af al- næmi, segja sænskir læknar. Lars Moberg við Roslagst- ulls-sjúkrahúsið í Stokkhólmi segir að langir og ástríðufullir kossar geti leitt til smitunar. Gagnrýnir hann hreyfingu homma og lesbía sem hafa mót- mælt viðvörunum læknanna. „Ég þekki tvö tilfelli þar sem sjúk- lingarnir hafa greinilega smitast með kossum. Kinnig þekki ég tilfelli þar sem sjúklingur smitaðist af því aö fá sæði í augu," segir Moberg og jafnframt að lesbískar konur geti smitað hvor aðra af alnæmi. Læknirinn segir að smitleiöin fyr-i ir þennan illvíga sjúkdóm sé um slímhimnu og berist með líkams-, vökvum. Munnurinn sé einn af hættulegu stöðunum. BESTA SJÓNVARPSEFNIÐ Aöstandendur úthlutunar Kvr- ópuverölaunanna fyrir besta sjón- varpsefni ársins ræddu viö blaða- menn i gærdag um keppnina, sem fram fór í gærkvöldi. Sjónvarpsdag- skrá ársins var kjörin The Orange Man frá sænska sjónvarpinu. Sér- stök verðlaun hlaut myndin A Small Dance frá Thames Television í Kng-: landi. Sérstök meðmæli dómnefnd- ar hlutu myndin A Land of Dreams frá BBC, A Cemetery for Foreigners frá tékkneska sjónvarpinu og Ostkr- Davið til ítaliu Forsietisráðherra. Davíð Odds- son. nýkominn frá Noregi, er nú far- inn enn eina utanlandsferðina. til Italíu. Par situr ráðherrann leiðtoga- (und aðildarríkja Atlantshafsbanda- lagsins dagana 7.-8. nóvember. í för með forsætisráöherra eru eigin- kona hans. Ástríöur Thorarensen. Hreinn Loftsson. aöstoöarmaöur hans. og Albert Jónsson. fram- kvæmdastjciri Oryggismálanefndar. euz frá suður-þýska sjónvarpinu. Myndin er frá blaðamannafundin- um þar sem verðlaunaveitingin var tilkynnt fréttamönnum, — með lof- orði um að greina engum frá úrslit- um fyrr en seint í gærkvöldi. Fram- lag íslands til keppninnar var sjón- varpsóperan Vikivaki byggð á sögu Gunnars Gunnarssonar við tónlist Atla Heimis Sveinssonar. HAMRABORG FÉLAGSMIÐSTÖÐ JAFNAÐARMANNA HAMRABORG 14A KÓPAVOG HádegisSundur verður haldinn laugardaginn 9. nóvember kl. 12.00. Gestur fundarins verður Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra. Fundurinn er öllum opinn. Alþýðufiokkurinn

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.