Alþýðublaðið - 30.01.1992, Blaðsíða 1
HAGSTÆÐARA EN
FLESTA GRUNAÐI
- dökka hliðin er hins vegar ofmikil eyðslusemi þjóðarinnar, stóraukinn viðskiptahalli og
lántökur á erlendum peningamarkaði
Árið 1991, sem nú er nýliðið,
var um margt hagstætt ár í efna-
hagslegu tilliti, segir í Frétta-
bréfi um verðbréfaviðskipti,
sem Verðbréfaviðskipti Sam-
vinnubankans gefa út. Því til
stuðnings er bent á að lands-
framleiðsla jókst um 1,2%, þjóð-
artekjur enn meira, eða um
nærri því 2% vegna batnandi
viðskiptakjara, meðan bagvöxt-
ur í löndum OECD-landanna var
aðeins um 1,1%, en var 1,2% hér
á landi.
Svo hatdið sé áfram að nefna
nokkrar hagstærðir hér og í
OECD-löndum var verðbólga hér á
landi 6,8% en 4,2% í OECD-löndum.
Síðan hefur verðbólga hér á landi
hjaðnað til muna og mun vera lægri
en í mörgum löndum OECD. Loks er
að nefna atvinnuleysi, það var 1,5%
af mannaflanum hér á landi á síð-
asta ári, en 7,4% í OECD-löndum.
Þessi síðastnefnda tala kann að fara
upp á við á þessu ári.
Dökka hliðin á árinu 1991 var sú
íslensk
hljómplötuútgáfa
Sálin og
Todmobile
koma út í
8 löndum
„Við erum búnir að vinna lengi
að útflutningi á íslenskri tónlist
og látum þá hvorki drauma né
óskhyggju ráða ferðinni," sagði
Steinar Berg ísleifsson, fram-
kvæmdastjóri Steina hf., í gær-
dag. Plötur Steina hf. með Sál-
inni hans Jóns míns og Todmo-
bile koma út í átta löndum á
næstunni, á Norðurlöndunum,
Frakklandi, Belgíu, Hollandi og
víðar.
,,Ég á von á þvi að þetta ár verði
blómleg útgáfa á íslenskri tónlist er-
lendis. Eg er nýkominn af stórri ráð-
stefnu í Frakklandi þar sem ég hitti
marga hinna stærri manna í hljóm-
plötuútgáfunni. Það er greinilegt að
margt af því sem við höfum að
bjóða í tónlist er fyllilega sambæri-
legt við það sem best gerist nú í öðr-
um löndum. Ég er bjartsýnn á fram-
haldið, við höfum upp á margar
góðar hljómsveitir að bjóða og vinn-
um að því að afla þeim stærri mark-
aðar en fæst hér á landi," sagði
Steinar.
að fslendingar eyddu um efni fram
og viðskiptahallinn nær tvöfaldað-
ist, fór úr 2,7% í 4,9% af landsfram-
leiðslu. Þjóðin tók líka erlend lán
upp á 17 milljarða króna.
„Þótt árið 1991 hafi þannig í raun
verið hagstæðara en líklegt er að
flestir hafi í huga sér bendir vissu-
lega margt til að þetta ár verði erf-
itt“ segir í hugleiðingunum um
efnahagsstefnuna. Er bent á minnk-
andi fiskafla, enda þótt vísbending-
ar hafi nú komið fram um minni
samdrátt afla en áður hafði verið
búist við. Einnig að sú staðreynd að
landsmenn eyddu um efni fram á
síðasta ári þýðir einfaldlega að nú er
knýjandi nauðsyn á að draga meira
úr útgjöldum þjóðarinnar en sem
tekjusamdrættinum nemur.
Harðsnúnir samnintjar framundan
„Hér eru engin stórtíðindi þessa dagana, við vinnum í nefndum, ræðum meðal annars atvinnuástandið. Mér sýnist að
komandi samningar verði harðsnúnir", sagði Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar í gær, þegar blaðið hitti hann að máli. Á myndinni eru þeir að störfum, Guðmundur J. og Snær Karlsson.
A-mynd E.ÓI.
Janúar var enginn metmánuður í hlýindum - sem hafa sínar alvarlegu hliðar
Gróður
„Gróður er víða farinn að láta
á sjá, þetta er vont mál, ef veðrið
verður þetta hlýtt eitthvað
áfram,“ sagði Theódór Halldórs-
son í skrúðgarði borgarinnar í
Laugardal í samtali við Alþýðu-
blaðið í gær. Hann sagði að á
trjárunnum mætti nú sjá opnast
blöð, trjágróðurinn gæti kalið
í hættu
illa ef svo héldi áfram. Frá rit-
stjórn Alþýðublaðsins blasir nú
við iðjagrænn Arnarhóilinn líkt
og í sumarbyrjun.
En janúar 1992, sem nú er senn
liðinn, er ekkert sérstakt fyrirbæri,
aðeins 7. hlýjasti janúarmánuður
frá því mælingar hófust að sögn
Magnúsar Jónssonar veðurfræð-
> ógæftir
ings. Seinnihluta mánaðarins, allt
frá 11. janúar, hefur verið hlýtt, en
fyrstu dagana gerði allmiklar hörk-
ur víða. Hitamet hafa verið slegin,
mestur varð hitinn á Dalatanga,
rúm 18 stig eitt vetrarkvöldið.
„Menn eru ekki á einu máli um
hversu góður þessi mánuður var,“
sagði Magnús, „að minnsta kosti eru
til sjós
skíðamenn og þeir sem fylgjast með
gróðri ekkert kátir, og sjómenn
kvarta, því gæftir hafa verið með la-
kasta móti vegna þess hversu rysjótt
veðrið hefur verið."
Hlýindin sem umvefja okkur
þessa stundina eru ættuð frá suð-
lægum löndum, koma hingað úr átt
frá Azoreyjum.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - Hverfisgötu 8-10, 101 Reykjavik - Simi 62-55-66 - FAX-númer 62-92-44