Alþýðublaðið - 30.01.1992, Qupperneq 4
Hættir i starfi
flugmálastióra
Pétur Einarsson flugmála-
stjóri hefur sent samgönguráð-
herra uppsagnarbréf sitt og ósk-
ar eftir að iosna frá starfi sínu 1.
júni næstkomandi. Pétur kveðst
kjósa að skipta um starfsvett-
vang nú, en hann hefur gegnt
starfi flugmálastjóra í 9 ár.
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra sagðist í gær hafa orðið við
þessari beiðni flugmálastjórans, en
að jafnframt hefði orðið að sam-
komulagi þeirra í millum að Pétur
tæki að sér sérfræðiverkefni fyrir
samgönguráðuneytið, þar á meðal
endurskoðun laga sem lúta að flug-
málum.
PÉTUR — hættir sem flugmálastjóri.
Fréttir í hnotskurn
EFTIRSPURN EFTIR LÁNUM: Þrátt fyrir að atvinnulífið hafi ver-
ið í lægð á síðasta ári var eftirspurn eftir langtímalánum hjá Iðnþróun-
arsjóði svipuð og árið á undan. Ástæðuna telja þeir hjá sjóðnum að
sé að finna í því að fyrirtækin í landinu eru enn að endurskipuleggja
sig og treysta fjárhag sinn með því að breyta skammtímalánum í lang-
tímalán og má gera ráð fyrir að þessi þróun haldi áfram á þessu ári.
Heildareftirspurn eftir lánum hjá Iðnþróunarsjóði á síðasta ári nam um
2,4 milljörðum króna, en veitt lán um 1,5 milljörðum, eða 500 milljón-
um meira en 1990.
Athygli vekur að ekki nema 10% veittra lána fóru til skuldbreytinga
á eldri lánum í fyrra, miðað við 40% árið 1990. Stærstur hluti lánveit-
inga fór fram í erlendum gjaldmiðli, einkum dollurum og ECU-tengd-
um gjaldmiðlum, enda háir vextir af verðtryggðum lánum í ísienskum
krónum.
K0M, SÁ 0G SIGRAÐI: Lesandi hafði sam-
band við blaðið og sagði að það væri almennt
álit fólks á fjölmennum vinnustöðum að Jón
Baldvin hefði komið, séð og sigrað á fundum
með bændum. Lesandinn sagðist starfs síns
vegna hafa farið á þrjá fjölmenna vinnustaði í
síðustu viku. Alls staðar var rætt yfir kaffibollan-
um um bændafundina. Sama niðurstaða fékkst
alls staðar; að Jón Baldvin hefði sýnt þrek og
þor að koma til bænda og kynna málefnalega
GATT-samkomulagsdrögin. Hann hefði haldið
vel á málum, en annað mætti segja um marga þá bændur sem í ræðu-
stólinn stigu.
TÆKNIN SKEMMIR KRÍTARKORTIN: Komið hefur í Ijós að raf-
tæknin við afgreiðslukassa verslana getur eyðilagt segulrönd á krítar-
kortum og gert notkun þeirra í kortaskönnum og öðrum rafrænum af-
greiðslutækjum ómögulega. Búnaður til afseglunar á merkimiðum,
liður í þjófavörn, er afar mismunandi að gerð og styrkleika segul-
magns. Sum tækin hafa svo sterkt segulsvið að það þurrkar út upplýs-
ingarnar á segulrönd kortanna, komi þau of nærri. Uppiýsingarnar á
kortunum geta líka glatast komi þau of nærri sterkum hátalara í heima-
húsum. Hinsvegar þykir fullsannað að vopnaleitartæki á flugvöllum
geri kortunum ekkert ógagn. Skemmist kort af þessum sökum fæst
það endurnýjað, korthafa að kostnaðarlausu.
ÞEYTINGUR EFTIR PAPPÍRUM: Á 30 ára afmæli Tollvöru-
geymslunnar hf. eru að verða miklar breytingar á starfseminni. Þeyt-
ingur eftir alls kyns pappírum út og suður vegna innflutnings verður
úr sögunni — allt á einum stað í Laugarnesinu. Tollstjóri setur upp úti-
bú í Tollvörugeymslunni, útibú Landsbankans stækkar við sig, — og
Flugfrakt Flugieiða flytur um þessar mundir í Tollvörugeymsluna
með alla sína starfsemi. Þá má nefna að nú er beðið eftir leyfisveitingu
frá fjármálaráðuneytinu fyrir frísvæði á athafnasvæðinu.
ÍÞRÓTTASAMBANDIÐ ÁTTRÆTT: Öflugustu samtök landsins,
íþróttasamband íslands, áttu 80 ára afmæli á þriðjudaginn var. Inn-
an sambandsins eru 346 íþróttafélög, en auk þess 28 héraðssambönd
pg íþróttabandalög og 20 sérsambönd hinna ýmsu íþróttagreina.
íþróttaiðkendur innan ISÍ eru taldir um 100 þúsund. Helsti hvatamaður
að stofnun íþróttasambandsins var Sigurjón Pétursson á Álafossi,
en núverandi forseti er Ellert B. Schram, sem tók við af Sveini
Björnssyni, sem lést á síðasta ári eftir að hafa stjórnað sambandinu
af mikilli framsýni í meira en áratug. Afmælisins verður minnst á til-
hlýðilegan hátt á þessu ári með ýmsu móti.
ENDURKRÖFUR VEGNA ÖLVUNARAKSTURS: Endur-
kröfunefnd tryggingafélaganna afgreiddi á síðasta ári 155 erindi sem
til nefndarinnar komu. Urh er að ræða mál þegar tryggingafélagið á
endurkröfurétt á ökumann vegna tjóns sem hann hefur valdið öðrum
vegna stórkostlegs gáleysis eða af ásetningi. í þessum málum hefur
nefndin samþykkt endurkröfur að öllu leyti eða að hluta í 147 málum.
Um er að ræða greiðslur frá ökumönnum upp á 28,8 milljónir króna.
Sá ökumaður sem greiða þarf mest fyrir gáleysi sitt þarf að punga út
með 2,1 miiljón króna. Langoftast er um að ræða endurkröfu vegna
ölvunaraksturs, eða í 127 atvikum. Athygli vekur að af 147, sem rukk-
aðir verða vegna aulaháttar í umferðinni, eru aðeins 20 konur!
AUGLYSING
UM INNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐFIA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00
1984-1.fl. 01.02.92-01.08.92 kr. 55.908,38
*)lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, janúar 1992.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
GYSBRIBLR
Á SÖGISLÓDIM
TOPPARNIR ILANDSLIÐINU
Sigurður Sigurjónsson, Orn Arnason, Þórhallur
Sigurðsson og Karl Ágúst Úlfsson
þenja hláturtaugar gesta.
Tónlistarflutningur: Jónas Þórir
Leikstjórn: Egill Eðvarðsson
LAUGARD AGSKVÖLD
♦ *»*
Stórkostleg skemmtun, þrírétta veislukvöldverður (val á réttum)
og dansleikur Verft kr. 4.800
Opinn dansleikur
frákl 23.30 til 3.00
Hljómsveitin EINSDÆMI
Hinn sívinsæli stórsöngvari
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON
Vetrarverð á gistingu. Pantanir í síma 29900. Grænt númer 996099
- lofargóðu!