Alþýðublaðið - 07.05.1992, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 07.05.1992, Blaðsíða 1
Málsmeðferð EES-samningsins Sýnist allbærileqar líkur á samkomulagi - segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra „Það var staðfest að öll EFTA-ríkin ganga út frá því sem gefnu að samningarnir um EES verði formlega stað- festir af þjóðþingum vei fyrir lok þessa árs“, sagði Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra um fund sem ráðherra EFTA- ríkjanna áttu samhliða undirskrift EES-samningsins í Oportó. Hann sagði jafnframt að einkum hefðu verið uppi efa- semdir varðandi Sviss sem væri það EFTA-ríki sem byggi við mesta sérstöðu vegna ákvæða stjómarskrár um þjóðarat- kvæði. „Þau ákvæði eru svo ströng bæði um tímaffesti og um tilskilinn meirihluta, ekki aðeins þjóðarinnar, heldur einn- ig fylkjanna sem mynda svissneska sambandsrík- ið, að tafimar sem orðið hafa á undirritun samn- ingsins hafa leitt þá í sér- staka tfmaþröng. Engu að síður fullvissaði utanríkis- ráðherra Sviss okkur um að þeir myndu gera allt sem í þeirra valdi stæði til þess að Sviss gætí lokið staðfestingunni fyrir ára- mót. Nú væm yfirstand- andi samningar við forseta beggja deilda svissneska þingsins um að hraða staðfestingunni í þinginu þannig að þeir gætu náð tilskyldum fjögurra mán- aða aðdraganda að þjóðar- atkvæðagreiðslunni, Skýrsla um mjólkurframleiðslu Hanncs Hafstein sendiherra, Bryndís Schram og Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra fagna undirritun EES-samningsins í Alhambra-sal kauphallarinnar í Oportó. A-mynd G.T.K. Hngræðing vinni upp minni frnmleiðslu og lægra verð til bæncra Minni framleiðsla mjólkur og Iægra verð til bænda, ásamt minni tilfærslum á milli mjólkurbúa og afnám einkaréttar til sölu eru megin- atriðin í tillögum Sjömanna- nefndar í áfangaskýrslu sinni um mjólkurframleiðslu. Samt er gert ráð fyrir að núverandi verðlagningarkerfi haldi sér til ársloka 1994. Á blaðamannafundi í gær kynnti Sjömannanefnd áfanga- skýrslu sína unt mjólkurfram- leiðslu að viðstöddum Halldóri Blöndal landbúnaðarráðherra. Hann tók undir þær tillögur sem fram komu í skýrslunni og sagði þær skynsamlegar. Lagt er til að í stað niðurgreiðslna til afurða- stöðva komi beinar greiðslur til bænda. Gert er ráð fyrir að raun- verðslækkun til bænda fyrir mjólk verði til ársloka 1994 sem nemur 6%. Lækki um 1 % síðari hluta þessa árs og um 2,5% árin 1993 og 1994, hvort ár. Núver- andi verðlagningarkerfi verði hins vegar við haldið út þann tíma og það endurskoðað. Þá er gert ráð fyrir að verð á neyslu- mjólk verði það sama um allt land en breytilegt á vinnsluvör- um úr mjólk sem nú er bundið. Fram kom að virkur fullvirðis- réttur til mjólkurframleiðslu væri á þessu verðlagsári 104,5 milljónir lítra auk þess sem 3 milljónir lítra væru bundnir j leigu hjá Framleiðnisjóði. I haust þarf hins vegar að færa fullvirðisréttinn niður í 100 milljónir lítra eða niður um tæp- lega 5 milljónir lítra. Nefndin leggur til að fullvirð- isréttur allra mjólkurframleið- enda verði færður niður sem því nemur eða að bændum verði greiddar 50 kr. fyrir lítirinn, þó þannig að heildarupphæðin fari ekki yftr 250 milljónir kr. Greiðslur til að standa undir þessu komi úr verðmiðlunar- sjóði mjólkur en gert er ráð fyr- ir að áfram verði innheimt verð- miðlunargjald fram á mitt ár 1994. Á sama tíma verði aftur á móti verulega dregið úr verð- jöfnunargjöldum sem greidd hafa verið tíl afurðastöðva. Eins er gert ráð fyrir að mjólkur- bændum verði boðið að bregða búi. Hafi þeir sótt unt styrk úr úr- eldingarsjóði fyrir 1. júní 1993 er lagt til að þeim verði greitt 90% af bókfærðu verði fast- eigna og véla og 80% næstu 12 mánuðina þar á eftir eða til 1. júní 1994 en ekkert þar eftir. Með þessu vonast nefndin til að mjólkurframleiðslan fari á færri hendur og leggi þar með grunn- inn að aukinni hagræðingu í mjólkurframleiðslu. Lagðar er til breytingar á rekstrarumhverfi mjólkurbú- anna þannig að afnumin verði skipting landsins í sölusvæði, einkaréttur til sölu felldur niður og ábyrgð á vöruframboði af- numin. Verðábyrgð ríkissjóðs á framleiðslu og birgðunt rnjólk- urafurða sörnu leiðis. Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra ásanit Ásmundi Stefánssyni frá ASÍ, Birni Arnórssyni frá BSRB og Þórami V. Þórarinssyni frá VSÍ. A-mynd E.Ól. þannig að hún gæti farið fram í desember. Gangi þetta eftir, þá munu trúlega öll ríkin ljúka staðfestingunni íyrir áramót. Það er kannski einna helst hér á landi sem óvissa er um málið þar sem ekki hefur tekist sam- komulag við stjómarandstöð- una um tímaáætlanir og vinnu- brögð,“ sagði Jón Baldvin við Alþýðublaðið. Hann sagði að nú stæðu við- ræður yfir milli fulltrúa stjómar og stjómarandstöðu um það mál. „Það hefur gætt margvís- legs misskilning í því sem ég von að fari að skýrast. En aðal- atriði málsins em þessi. Við höfum gert ráð fyrir að samn- ingurinn verði lagður fram ásamt fylgiskjölum nú í lok þings á þessu vori. Menn hafa nefnt 13 til 18 maí til þess að ljúka fyrstu umræðu um samn- inginn. Að því loknu færi síðan samningurinn ásamt fylgiskjöl- urn og hin undirrituðu erinda- skipti um tvíhliða samninginn, um skipti á gagnkvæmum veiðiheimildum, til utanríkis- málanefndar sem og innbyrðis samningar EFTA-ríkjanna um framkvæmdina. Þ.e.a.s. eftirlitsstofnunina, dómstól- inn og fastanefndina. Þá höfúm við rætt að efnt verði til sumarsþings upp úr 20 júní. Tilgangurinn með því er sá að þingfesta þessi mál ljúka fyrstu umræðu og vísa málinu því næst til nefnda. Þar hafa menn rætt unt að æskilegt væri að kjósa sérstaka sémefnd sem væri verkstjómar- og umsjónar- aðili af þingsins hálfu. Hún myndi síðan vísa hveiju frum- varpi til fastanefnda þingsins sem við á fyrir utan þau mál sem fara til utanríkismálanefnd- ar eins og ég greindi áður frá. Gangi þetta eftir og ef sam- komulag er um að vísa helstu málum til nefnda án umræðu, eins og tíðkast í mörgum þjóð- þingum, þá þyrfti þetta sumar- þing ekki að taka langan tfma. Auk þess óskum við eindregið eftir því að þingið komi saman aftur með fyrra fallinu, t.d. upp úr 10. ágúst. Það getur hugsan- lega verið í því formi að 116. löggjafarþing sé hvatt saman fyrr en ella og þá að því stefnt að ljúka þar annarri umræðu um samninganna og fylgifrumvörp- in þannig að staðfestingarferlin- um verði lokið á haustinu. Um þetta hefur enn ekki tekist sam- komulag en mér sýnist af þeim viðræðum sem fram hafa farið að líkur á því séu allbærilegar. Þess ber að geta að stjómarand- staðan hefur sameiginlega sett fram kröfuna um þjóðarat- kvæðagreiðslu. Það lítum við á sem sérstakt mál. Við vekjum athygli á því að alls staðar ann- ars staðar á Norðurlöndum, sem búa við svipaðar stjómskipun- arreglur og hefðir og við, þá er litið svo á að hér sé um að ræða milliríkjasamning sem staðfest- ur er af þjóðþingum, og þar fara ekki fram þjóðaratkvæða- greiðslur. Ágreiningur um það á ekki að þurfa að koma í veg fyr- ir að menn geti náð samkomu- lagi um vinnubrögð í þinginu, þvf að fyrst og fremst verður þingið að afgreiða þetta. Spum- ingunni um hvort samningurinn bryti hugsanlega í bág við stjómarskránna hefur verið komið í eðlilegan farveg þar sem þeir aðilar íslenskir sem helst em bærir af íjalla um það á hlutlægan máta hafa verið skip- aðir í nefnd og munu skila nið- urstöðum sínum fyrir lok júní,“ sagði Jón Baldvin að lokum. Líta á þetta sem frágenginn hlut Það var tómlegt um að litast í salar- kynnum Verslunarmannafélags Reykjavíkur, langstærsta vcrka- lýðsfclags landsins, í gær þegar við tókum þessa mynd af kjörstaðn- um - cnginn að kjósa og sallamlcgt hjá starísfólkinu. Á sjöunda tím- anum í gær voru 1.100 félagar búnir að kjósa, rétt um 10%. At- kvæðin verða talin í dag, cn útkoman skiptir ekki máli, það þarf 20% félagsmanna til að taka afstöðu. Ástæðan fyrir svo lítilli þátt- töku hjá VR og öðrum verkalýðsfélögum? „Ætli mcnn líti ekki á þctta sem frágenginn hlut“, svaraði Guðmundur B. Ólafsson hjá VR þeirri spurningu. - A-mynd E. Ól. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - Hverfisgötu 8-10, 101 Reykjavík - Sími 62-55-66 - FAX-númer 62-92-44

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.