Alþýðublaðið - 07.05.1992, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 7. maí 1992
3
RÖSE-jundur
embœttismanna í
Helsinki
Ofbeldi
sam-
bands-
hersins
mótmælt
Full þátttaka Bosníu-Her-
segóvínu var samþykkt
samhljóða á fundi í nefnd
háttsettra embættismanna
RÖSE - ráðstefnunnar um ör-
yggi og samvinnu í Evrópu, sem
haldinn var í Helsinki í Iok síð-
ustu viku. Fulltrúar íslands á
fundinum voru þeir Gunnar
Gunnarsson, skrifstofustjóri og
Helgi Gíslason, sendifulltrúi.
Efni fundarins var umræða um
ástandið í Bosníu-Hersegóvínu.
Öll ríkin, nema Júgóslavía, sam-
þykktu yfirlýsingu þess efnis að
beiting hervalds var fordæmd og
skorað á alla aðila, einkum júgó-
slavneska sambandsherinn, að
stöðva átökin og virða samkomu-
lag um vopnahlé. Þegar hafa átt sér
stað alvarleg brot á skuldbinding-
um gagnvart RÖSE, t.d. hefur sam-
bandsherinn farið með ofbeldi
gegn lögmætum stjórnvöldum Bo-
snfu-Hersegóvínu.
Þá samþykktu öll ríkin í RÖSE,
utan nýja sambandslýðveldið, þeg-
ar ályktað var um arftöku milli sex
lýðvelda fymtm Júgóslavíu, að það
væri verkefni friðarráðstefnunnar í
Bmssel.
Slíkt samkomulag myndi
ákvarða hverjir kæmu fram fyrir
hönd Júgóslavíu á alþjóðlegum
vettvangi á hinum ýmsu sviðum í
framtíðinni.
ALÞÝÐUUFLOKKURINN
A VESTURLANDI
Fundur kjördæmaráðs Alþýðuflokksins á Vesturlandi
verður haldinn á hótelinu í Borgarnesi mánudaginn
11. maí kl. 20.30.
Dagskrá:
Jón Baldvin
Hannibalsson
og Eiður
Guðnason.
Stjórnmála-
viðhorfið og
væntanlegt
flokksþing.
Kosning fulltrúa í flokksstjórn.
Önnur mál. Stjórn kjördæmaráðs
KONUR - KONUR!
Fundur verður haldinn í Félagsheimili Alþýðuflokks-
ins, Hamraborg 14a Kópavogi, miðvikudaginn
13. maí n.k. kl. 20.30.
Gestur fund-
arins verður
Einar Ingi
Magnússon
sálfræðingur.
Hann flytur
erindi um
börn og
streitu.
Fundarstjóri Valgerður Guðmundsdóttir, formaður
S.A.
Mætum vel og stundvíslega - Tökum með okkur
9estl! Stjórn S.A.
46. FLOKKSMNG
ALÞÝDUFLOKKSINS
verður haldið 11. til 14. júní 1992
í íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi
Með vísan til 29. og 30. gr.
flokkslaga Alþýðuflokksins er hér
með boðað til 46. flokksþings
Alþýðuflokksins, sem skv. ákvörðun
flokksstjórnar verður haldið dagana
11. til 14. júní 1992.
Með vísan til 16.-19. gr.
flokksiaga er því hér með beint til
stjórna allra Alþýðuflokksfélaga að
láta fara fram kosningu aðal- og
varafulltrúa á flokksþing, svo sem
nánar er mælt fyrir í flokkslögum.
Með vísan til 18. gr. flokkslaga er
því beint til aðildarfélaga að
kosningar fari fram í maímánuði og
verði lokið eigi síðar en 1. júní
næstkomandi.
Félagsstjórnum er skylt að
tilkynna kjör fulltrúa að kosningum
loknum til skrifstofu Alþýðuflokksins
(s: 29244), sem veitir allar nánari
upplýsingar.
Meö vísan til 21. gr. flokkslaga
skulu kjördæmisráð Alþýðuflokksins
í öllum kjördæmum hafa lokið
kosningu fulltrúa sinna í flokksstjórn
fyrir reglulegt flokksþing.
Með vísan til 24. og 25. gr.
flokkslaga skulu stjórnir allra
félaga hafa sent flokksstjórn skýrslu
um starfsemi félagsins á
kjörtímabilinu, félagaskrá m.v.
áramót og greiðslu félagsgjalda skv.
þeirri skrá.
Dagskrá flokksþingsins verður
auglýst síðar.
Jón Baldvin Hannibalsson
formaður
Gatnamálastjórinn í Reykjavík
TILKYNNING FRÁ GATNAMÁLA-
STJÓRA UM HREINSUNARDAGA í
REYKJAVÍK VORIÐ 1992
Sérstakir hreinsunardagar verða laugardagarnir 9. og 16. maí
og verða ruslapokar afhentir í hverfastöðvum gatnamálastjóra.
Eftir hreinsunardagana munu starfsmenn Reykjavíkurborgar
fara um hverfi borgarinnar og hirða upp poka og rusl.
Til að auðvelda fólki að losna við rusl eru gámar á eftirtöldum
stöðum:
Ánanaust móts við Mýrargötu.
Sléttuveg í Fossvogi.
Sævarhöfða móts við Malbikunarstöð.
Gylfaflöt austan Gufunesvegar.
Jafnasel í Breiðholti.
Gatnamálastjórinn í Reykjavík
Hreinsunardeild
Alþýðuflokksfélag Reykjovikur
0PINN FUNDUR
Miðvikudaginn 13. maí verður opinn
fundur kl. 20.00, í Rósinni, Hverfisgötu
8-10.
ÁDAGSKRÁ
Málefni flokksþings og kjör í
starfshópa.
Fjölmennið og takið þátt í undirbúningi
fyrir flokksþing.
Stjórnin
FUJ REYKJAVÍK
Almennur félagsfundur FUJ í Reykjavík verður haldinn í
Rósinni, Hverfisgötu 8-10, mánudaginn 11. maí n.k., kl.
20.30.
FUNDAREFNI:
1. Sambandsþing
2. Flokksþing
3. Önnur mál
Þeir félagar sem áhuga hafa á að sitja sambandsþing
SUJ dagana 29. og 30. maí tilkynni þátttöku sína til skrif-
stofu (Dóru s. 29244), eigi síðar en 12. maí n.k.
Stjórn FUJ í Reykjavík
AUKAÞING
SAMBANDS UNGRA JAFNAÐARWANNA
verður haldið í Hafnarfirði dagana 29. og 30. maí næstkomandi.
Rétt til þátttöku hafa allir fullgildir meðlimir í félögum ungra jafn-
aðarmanna sem hafa verið félagar í tvo mánuði áður en þingið
hefst, nema félagið sé þeim mun yngra, enda séu þeir skuld-
lausir við félög sín.
Félagar skulu tilkynna þátttöku á sambandsþingi til stjórnar við-
komandi félags tveimur vikum áður en þingið hefst.
Stjórn hvers aðildarfélags SUJ skal síðan senda lista yfir þá full-
trúa, sem svo skrá sig, til sambandsstjórnar tíu dögum fyrir þing-
ið. Teljast þeir vera fulltrúar viðkomandi félags.
Sambandsstjórn getur einnig heimilað þeim félögum í Alþýðu-
flokknum, sem búa á svæðum þar sem ekki starfar félag ungra
jafnaðarmanna, þátttöku á þinginu, enda fullnægi þeir að öðru
leyti sömu skilyrðum og aðrir þingfulltrúar og sæki um þátttöku-
rétt eigi síðar en tveimur vikum áður en þing hefst.
F.h. framkvæmdastjórnar SUJ,
Sigurður Pétursson.