Alþýðublaðið - 08.07.1992, Side 1
Lögfrœðinganefndin:
EES SAMRÆMIST
STJÓRNARSKRÁNNI
Jón Sigurðsson: Niðurstaðan er skýr og afdráttarlaus og staðfestir þá skoðun sem
Alþýðuflokkurinn hefur jafnanfylgt í málinu
„Ég fagna því að fram er
komið þetta vandaða álit lög-
fræðinganefndarinnar,“
sagði Jón Sigurðsson, starf-
andi utanríkisráðherra, í
samtali við Alþýðublaðið.
Nefndin var sett á laggirnar
af utanríkisráðherra um
miðjan apríl til þess að meta
hvort EES-samningurinn
bryti í bága við íslensk stjórn-
skipunarlög.
„Niðurstaða nefndarinnar er
skýr og afdráttarlaussagði Jón
Sigurðsson. „Hún erþessi: EES
samningurinn fer ekki í bága
við stjómarskrá íslenska lýð-
veldisins hvort sem litið er á
löggjafarvald, framkvæmda-
vald eða dómsvald og hvort
sem skoðuð eru einstök ákvæði
eða þegar allt er tekið saman.
Það er mjög mikilsvert að
hinir færustu lögfræðingar,
bæði í íslenskum stjómlagarétti
og Evrópurétti, skuli vera sam-
mála um þetta.“
Jón Sigurðsson kvað niður-
stöðu nefndarinnar vega þungt
Jón Sigurðsson, - öllum vafa hefur nú verið eytt.
Kvennalistinn sam-
mála Kjaradémi
„Sú leið sent ríkisstjórnin
valdi með því að setja bráða-
birgðalög um Kjaradóm er
kolómöguleg að okkar mati.
Það átti að kalla saman þing
og taka uinræðu um róttæk-
ar breytingar á launakerf-
inu meðan það er hiti í
mönnum,“ sagði Anna Ól-
afsdóttir Björnsson þing-
maður Kvennalistans í sam-
tali við Alþýðublaðið.
Morgunblaðið auglýsti í
forystugrein í gær eftir afstöðu
Kvennalistans til niðurstöðu
Kjaradóms. Þingflokkur
Kvennalistans sendi í síðustu
viku frá sér yftrlýsingu vegna
málsins en þeim Morgun-
blaðsmönnum veittist örðugt
að lesa úr henni ótvíræða af-
stöðu til Kjaradóms. Anna var
spurð hvort Kvennalistinn
væri í grundvallaratriðum
sammála þeirri viðleitni til
breytinga á launakerfmu sem
fram kom í niðurstöðum
Kjaradóms. Hún sagði: >rJá,
við erum sammála því að það
þurfi að taka upp launajöfnun.
Það er ljóst að þarf að stok-
ka allt kerfið upp og gera þarf
leiðréttingar."
Sjá ennfremur Rökstóla,
bls.2
Keldusvín hætt að verpa
Frá því geirfuglinn dó út
árið 1844 hafa engir fuglar
týnst úr lífríki íslands svo vit-
að sé. Nú eru hins vegar tvær
inerkar tcgundir, haftyrðill
og keldusvín, í mikilli hættu
hér á landi.
Báðum tegundum hefur
fækkað stórlega, og líklega er
keldusvínið hætt að verpa hér á
landi.
Þrjár aðrar tegundir eru líka
taldar afar viðkvæmar, skeið-
önd, þórshani og haföm.
Af sérhverri þeirra eru innan
við hundrað verpandi pör. Haf-
amarstofninn að minnsta kosti
er þó á uppleið, um 30-40 pör
em þekkt, þó langt sé í land að
stofnstærð síðustu aldar náist,
en þá voru um 150 amarpör í
landinu.
Flórgoða, sent einkum heldur
Keldusvín
til á Mývatni, hefur líka fækkað
ískyggilega á síðustu áratugum.
Af honum og gulönd, sem fer
einnig fækkandi, eru nú innan
við þúsund verpandi pör í land-
inu.
Haftyrðill
og staðfesta þá skoðun sem Al-
þýðuflokkurinn hefði jafnan
fylgt í málinu. „Nú er ekkert því
til fyrirstöðu að Alþingi geti
lögfest EES-samninginn sam-
kvæmt þeirri áætlun sem ríkis-
stjómin náði samkomulagi um
við stjómarandstöðuna í vor.
Stjómarandstæðingar sumir
hverjir hafa reynt að víkja sér
undan umræðunni um efnis-
þætti EES-samningsins og ekki
síst hafa þeir drepið á dreif aug-
Ijósum jákvæðum áhrifum hans
á íslenskt efnahagslíf með full-
yrðingum um að hann samrým-
ist ekki stjómarskránni. Nú
komast þeir ekki lengur upp
með það.
Allt tal um það að við getum
einhliða ákveðið þær reglur sem
EES hefur í för með sér er
markleysa því að þannig fáum
við engan rétt inn á EES-svæð-
inu og enga aðild að hinum
sameiginlegu stofnunum sem
að sjálfsögðu eru í reynd mikil-
vægastar fyrir fámennar þjóð-
ir.“
Jón sagði að nauðsynlegt
hefði verið að eyða öllum vafa
um það hvort EES-samningur-
inn færi á einhvem hátt í bága
við íslensku stjómarskrána.
„Það hefur nú verið gert,“ sagði
Jón Sigurðsson að lokunt.
Þessi litla blómarós, sem svamlaöi um sundlaugina í Kópavogi, brá upp sumarbrosi fyrir Ijós-
myndara Alþýðublaðsins. Sumarið lœtur að öðru leyti lítið fyrir sér fara þessa dagana og lítil
von tilþess að úr rœtist samkvœmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Norðanmemt gœtu jafnvel
þurft að draga fram skjólfötin aftur, eftir að Itafa notið nokkurra sólríkra daga.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - Hverfisgötu 8-10, 101 Reykjuvík - Sími 62-55-66 - FAX-númer 62-92-44