Alþýðublaðið - 11.08.1992, Side 4

Alþýðublaðið - 11.08.1992, Side 4
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA Þriðjudagur 11. agust 1992 DUBLINRR! 5l.S00-22.700 KR! 4 DAGAR (3 NÆTUR) Haustferðir Samvinnuferða - Landsýnar til Dublinar hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár enda hafa þær afdráttarlausa sérstöðu meðal „sambærilegra“ ferða. í verði felst gisting á fyrsta flokks hóteli, íslensk fararstjórn og nú bjóðast farþegum okkar sérstök vildarkjör í vinsælustu verslununum. Boðið er upp á skoðunarferðir og af nógu er að taka í menningarlífinu. Og síðast en ekki síst - verðið er ótrúlega lágt! slenskir fararstjórar - öllum hnútum kunnugir Þegar lent er í Dublin taka íslenskir fararstjórar á móti mannskapnum og ekið er á hótelið. Fararstjórarnir verða með fasta viðtalstíma á hótelunum, þar sem þeir svara því sem þú þarft að vita um helstu verslunargöturnar, hagstæðustu kaupin, bestu pöbbana, næturlífið, menninguna, matsölustaðina og allt hitt sem gerir slíka ferð vel heppnaða og ævintýri líkasta. yrsta flokks hótel - ótrúlegt verð! Burlington hótelið er staðsett í hverfi veitingahúsa og skemmtistaða skammt frá aðalverslunarhverfinu. Á hótelinu er einn vinsælasti bar í Dublin, góðir veitingastaðir og fjölsóttur næturklúbbur sem farþegar SL fá ókeypis aðgang að. Öll herbergin eru með baði, síma og sjónvarpi. Staðgreiðsluverð miðað við tvíbýli aðeins: 22.700...........,23.940 kr. fyrir 4 nætur. Gresham hótelið er eitt virðulegasta hótel borgarinnar. Það stendur við aðalgötu borgarinnar í helsta verslunarhverfinu. Allt hótelið hefur nýlega verið endurnýjað og þar eru góðir veitingastaðir og barir. Öll herbergin eru með baði, síma og sjónvarpi. Staðgreiðsluverð miðað við tvíbýli aðeins: 21.500 kW3„ætUr 22.500 kr. fyrir 4 nætur. 'lnnifalið í verði: Flug, akstur til og frá hóteli erlendis, gisting með írskum morgunverði og íslensk fararstjórn. *Ekki innifalið: íslenskur og erlendur flugvallarskattur - 2.350 kr. og forfallagjald -1.200 kr. jörugar skoðunarferðir Þeir sem vilja, eiga þess kost að fara í skoðunarferðir um Dublin og nágrenni. Má hér nefna ferð í brugghús sem framleiðir hið heimskunna írska viskí - með tilheyrandi smakki að sjálfsögðu, kráarrölt með viðeigandi söng og gleði, kynnisferð um Dublin og skoðunarferð um nágrenni Dublinar. érstök vildarkjör í verslunum Dublin er þekkt fyrir afar lágt verðlag. Farþegar Samvinnuferða - Landsýnar munu þó geta gert enn hagstæðari innkaup en gengur þar og gerist, því þeim bjóðast sérstök vildarkjör í nokkrum af helstu verslunum borgarinnar! jölbreytt menningarlíf f Dublin er þróttmikið og fjölbreytt menningarlíf, fjöldi leikhúsa og tónlistarsala, safna, sýningarsala og menningarsetra, enda sjálfsagt engin tilviljun að þrír Nóbelsverðlaunahafar í bókmenntum eru fæddir í Dublin. í Dublin rekur hvern listviðburðinn annan og stöðugt stíga þar á svið eða sýna verk sín heimsfrægir listamenn og skemmtikraftar. Hafðu samband við okkur og við athugum fyrir þig hvað er helst á döfinni þá helgi sem þú verður í Dublin og sjáum um að panta miða fyrir þig ef þú óskar. yrsta ferðin 2. október Ferðimar hefjast 2. október og verður farið reglulega til Dublinar fram í desember. FARKORT i'ý&Aí'ö/s Jh Sami/iiwiiferiiir-Laiiilsiiii Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 91 - 69 10 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 69 10 70 • Símbréf 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241 Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Símbréf 91 - 62 24 60 Akureyri: Skipagötu 14 • S. 96 - 27 200 • Símbréf 96 - 2 40 87

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.