Alþýðublaðið - 11.08.1992, Síða 4
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA
Þriðjudagur 11. agust 1992
DUBLINRR!
5l.S00-22.700
KR!
4 DAGAR (3 NÆTUR)
Haustferðir Samvinnuferða - Landsýnar til Dublinar hafa notið mikilla
vinsælda undanfarin ár enda hafa þær afdráttarlausa sérstöðu meðal
„sambærilegra“ ferða. í verði felst gisting á fyrsta flokks hóteli, íslensk
fararstjórn og nú bjóðast farþegum okkar sérstök vildarkjör í vinsælustu
verslununum. Boðið er upp á skoðunarferðir og af nógu er að taka í
menningarlífinu. Og síðast en ekki síst - verðið er ótrúlega lágt!
slenskir fararstjórar - öllum hnútum kunnugir
Þegar lent er í Dublin taka íslenskir fararstjórar á móti mannskapnum og ekið
er á hótelið. Fararstjórarnir verða með fasta viðtalstíma á hótelunum, þar sem
þeir svara því sem þú þarft að vita um helstu verslunargöturnar, hagstæðustu
kaupin, bestu pöbbana, næturlífið, menninguna, matsölustaðina og allt hitt
sem gerir slíka ferð vel heppnaða og ævintýri líkasta.
yrsta flokks hótel - ótrúlegt verð!
Burlington hótelið er staðsett í hverfi veitingahúsa og skemmtistaða skammt
frá aðalverslunarhverfinu. Á hótelinu er einn vinsælasti bar í Dublin, góðir
veitingastaðir og fjölsóttur næturklúbbur sem farþegar SL fá ókeypis aðgang
að. Öll herbergin eru með baði, síma og sjónvarpi.
Staðgreiðsluverð miðað við tvíbýli aðeins:
22.700...........,23.940
kr. fyrir 4 nætur.
Gresham hótelið er eitt virðulegasta hótel borgarinnar. Það stendur við
aðalgötu borgarinnar í helsta verslunarhverfinu. Allt hótelið hefur nýlega
verið endurnýjað og þar eru góðir veitingastaðir og barir. Öll herbergin eru
með baði, síma og sjónvarpi.
Staðgreiðsluverð miðað við tvíbýli aðeins:
21.500 kW3„ætUr 22.500
kr. fyrir 4 nætur.
'lnnifalið í verði: Flug, akstur til og frá hóteli erlendis, gisting með írskum morgunverði og
íslensk fararstjórn.
*Ekki innifalið: íslenskur og erlendur flugvallarskattur - 2.350 kr. og forfallagjald -1.200 kr.
jörugar skoðunarferðir
Þeir sem vilja, eiga þess kost að fara í skoðunarferðir
um Dublin og nágrenni. Má hér nefna ferð í brugghús
sem framleiðir hið heimskunna írska viskí - með
tilheyrandi smakki að sjálfsögðu, kráarrölt með
viðeigandi söng og gleði, kynnisferð um Dublin og
skoðunarferð um nágrenni Dublinar.
érstök vildarkjör í verslunum
Dublin er þekkt fyrir afar lágt verðlag. Farþegar
Samvinnuferða - Landsýnar munu þó geta gert enn
hagstæðari innkaup en gengur þar og gerist, því þeim
bjóðast sérstök vildarkjör í nokkrum af helstu
verslunum borgarinnar!
jölbreytt menningarlíf
f Dublin er þróttmikið og fjölbreytt menningarlíf, fjöldi
leikhúsa og tónlistarsala, safna, sýningarsala og
menningarsetra, enda sjálfsagt engin tilviljun að þrír
Nóbelsverðlaunahafar í bókmenntum eru fæddir í Dublin.
í Dublin rekur hvern listviðburðinn annan og stöðugt stíga
þar á svið eða sýna verk sín heimsfrægir listamenn og
skemmtikraftar. Hafðu samband við okkur og við athugum
fyrir þig hvað er helst á döfinni þá helgi sem þú verður í
Dublin og sjáum um að panta miða fyrir þig ef þú óskar.
yrsta ferðin 2. október
Ferðimar hefjast 2. október og verður farið reglulega til
Dublinar fram í desember.
FARKORT
i'ý&Aí'ö/s Jh
Sami/iiwiiferiiir-Laiiilsiiii
Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 91 - 69 10 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 69 10 70 • Símbréf 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241
Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Símbréf 91 - 62 24 60 Akureyri: Skipagötu 14 • S. 96 - 27 200 • Símbréf 96 - 2 40 87