Alþýðublaðið - 11.08.1992, Síða 5

Alþýðublaðið - 11.08.1992, Síða 5
Þriðjudagur 11. ágúst 1992 5 Það er skammt stórra högga í milli í íslenskri kvikmyndagerð nú um stundir og innan tíðar verður frumsýnd í Háskólabíói ný mynd Kristínar Jóhannesdóttur, Svo á jörðu sem á himni. Frumsýnd? Ekki alveg. Myndin hefur nefni- lega þegar verið sýnd í tveimur ágætum bæjum: Ólafsfirði og Can- nes. Þetta er ein viðamesta kvik- mynd sem gerð hefur verið hér- lendis, kostnaður nemur 134 millj- ónum. Myndin er fjármögnuð með íslenskum, norrænum og frönsk- um framlögum. Sýningar áttu að hefjast á morgun en þegar komið var fram yfir elleftu stundu tókst Þýskurum, sem áttu að búa til sýningareintökin, að klúðra því. „Auðvitað er þetta hrikalegt áfall, þegar allt er til reiðu og maður er að fara að klæða sig í sparifötin,“ sagði Kristín í gær. „En á maður ekki að reyna að eflast við mótlætið?" Tíu ár eru liðin síðan Kristín sendi frá sér frumraun sína, A hjara verald- ar, sem er eitt af fáum meistarastykkj- um fslenskrar kvikmyndalistar. I Svo á jörðu sem á himni er meðal annars stuðst við harmleikinn sem varð í Straumfirði á Mýmm árið 1936 þegar franska rannsóknarskipið Pourquoi Pas? fórst með um 40 mönnum - að- eins einn komst af. Foringi leiðang- ursins var dr. Jean Charcot, einn virt- asti vísindamaður heims um sfna daga. En myndin er ofin úr fleiri þráðum: Kristín styðst líka við ís- lenskar frásagnir frá 14. öld þegar bölvun var lögð á Straumfjörð af konu sem einmitt hafði misst mikið í fang Ægis. Þrjár sögur „Jú, í myndinni fer fram tveimur sögum; ef ekki þremur. Fyrst og fremst er þetta saga lítillar stúlku sem skynjar að eitthvað er yfirvofandi. Hún er næmari en gengur og gerist, kannski af því að hún sér lítið. Fjöl- skyldan lifir mjög einangruðu lífi og stúlkan hefur enga félaga að leika sér við og verður því að byggja á eigin hugarheimi. Til þess nýtir hún sögur sem sagðar eru á síðkvöldum og þannig upplifir hún atburði frá 14. öld sem tengjast staðnum og eru ástæða bölvunar sem á honum hvílir. Hún kemst að því að glæpur var framinn og þessi glæpur er ástæða bölvunar- innar sem allir eru að tala um. Stúlk- Va. ■Wvt^ vfvfv ■iCfh- JjCACA/t v M- ífi V'óA' ÁfA cMí, cX a. C^ 'pjC/VlHtM an setur fjölskyldu sína í hlutverk fólks á bænum á 14. öld; jafnframt því sem hún finnur að eitthvað er yf- irvofandi og verður tíðrætt um að ekki komi skip. Það er svo að tilstuðlan ungs manns á bænum að hún fer að tengj- ast Pourquoi pas? mikið. Hún hefur gffurlegan áhuga á þessu rannsóknar- skipi og þegar sagðar eru fréttir í út- varpinu af skipinu fer hún að tengja það á einhvem hátt við staðinn - og bölvunina. Ur þessu skapast mikil spenna: Hver var þessi glæpur og hvemig var hann framinn og til hvers leiddi hann svo endanlega? Annars finnst mér mjög erfitt að segja söguna. Ég var mjög lengi að finna kvikmyndalegar lausnir og þess vegna var gleðin mikil þegar ég sá við klippingu myndarinnar að þetta hafði heppnast. Óg yfir þeim sigri að segja sögu sem ekki er hægt að segja nema í kvikmynd; takast - að mér finnst - að skrifa spennandi sögu. Nú- tímasögu fyrir nútímafólk, þótt hún gerist 1936 og á 14. öld. Maður sér svo oft myndir um nútímaefni sem em hrikalega gamaldags. Og þá hlýt- ur náttúrlega að vera unnið fyrir gýg. Hin hliöin á harmleiknum „Ég komst eiginlega að því um daginn að svarið við spumingunni hvers vegna ég valdi þetta efni á sjálf- sagt rætur að rekja til þess að ég var alin upp á Ólafsfirði. Þar var það nær- tæk staðreynd að missa menn í sjó- inn; ég ólst upp við sögur um menn úr þessu litla bæjarfélagi sem höfðu far- ist. Sögur sem á mjög ákveðinn hátt mótuðu þetta samfélag. Ég man ég lifði mig svo inn í sögumar af mönn- um sem höfðu farist í brimgarðinum, fyrir augunum á fólki, að þegar ég var fimm ára óð ég út og flengdi sjóinn - þótt ég vissi ekki af þessari frægu fyr- irmynd! [Agli Skallagrímssyni] Þetta gat ég svo notað sem atriði í mynd- inni. En ég fór að gramsa í þessari gömlu sögu af Pourquoi pas? og sá þessa frægu fréttamynd í Öldinni okkar. Ein mynd tengdi aðra og ég fór á staðinn og uppgötvaði aðra hlið á harmleiknum - Straumfjörðinn. Ég komst að því að staðurinn var for- dæmdur síðan á 14. öld. Síðan þá hafa verið gerðar ótal tilraunir til að koma upp kaupstað á þessum slóðum en þær hafa allar mistekist hrapalega: síðast reyndi það faðir Asgeirs As- geirssonar forseta. Ástæða bölvunarinnar? Á 14. öld bjó þama kynngimagnaður kven- maður, Straumfjarðar-Halla, sem margar sögur fara af og má meðal annars af þeim ráða að hún þótti við- sjárverð í viðskiptum. Hún missti tvo syni þegar þeir vom að lóðsa út skip. Harmi lostin lagði hún þá bölvun á staðinn að þar þrifist aldrei byggð. Það stóð lengi til að taka myndina upp í Straumfirði en það þótti mjög erfitt vegna aðflutninga. Mér létti í rauninni þegar við hurfum frá því að taka myndina upp þama, kannski fyrst og fremst af því að ég slapp þá við raunsönnu mynd sem umhverfið þama skapaði. Ég fór að sjá ýmsa hluti í nýju ljósi þegar ég komst burt frá staðnum. Það er undarlegt - ég var alltaf bú- in að sjá fyrir mér ákveðinn stað og ákveðið hús. Ég leitaði lengi, þangað til ég sá ljósmynd eftir Pál Stefánsson af bænum Homi austur á Homafirði: nákvæmlega eins og ég hafði hugsað mér aðstæður. Þar með var tökustað- ur ákveðinn og ég lét ekki telja mér hughvarf þegar tefla átti fram spam- aðarsjónarmiðum! Mitterrand les kvikmyndahandrit „Nei, þetta er nú ekki viðamesta ís- lenska kvikmynd sem gerð hefur ver- ið. Hrafnamir og Hvíti víkingurinn vom stærri í sniðum, held ég. En það var ákveðið á sínum tíma að myndin yrði framlag Islands til samnorræns kvikmyndaárs; þá var veittur styrkur til gerðar einnar rnyndar í hverju landi. Þannig að Norðurlöndin fjögur eru eignaraðilar og við fengum fram- lög ffá EURIMAGES [kvikmynda- sjóður Evrópuráðsins] og menningar- málaráðuneyti Frakklands. Mitterr- and tilkynnti um framlag Frakka í ræðu sem hann hélt á íslandi í heim- sókn sinni hingað: það kom mjög á óvart því enginn vissi þetta fyrir, ekki einu sinni frönsku ráðuneytismenn- imir. Lang menningarmáiaráðherra sagði að þetta hefði verið persónuleg ákvörðun þeirra Mitterrands. Hann sagði að þeir hefðu báðir lesið hand- ritið og Lang vissi allavega mikið um myndina þegar við töluðum saman. Erlend eignaraðild og framlag frá Kvikmyndasjóði nemur samtals 118 milljónum en kostnaðaráætlun - sem stóðst! - var upp á 134 milljónir. Per- sónulegar ábyrgðir eru því gífurlegar. Framleiðslukostnaðurinn er hins veg- ar lítill, í Frakklandi trúir því enginn sem hefur séð myndina að hún hafi kostað svona lítið. Þar segja rnenn að svona mynd hefði kostað að minnsta kosti 300-400 ■ milljónir - og vilja helst ráða framleiðandann í vinnu til sín! Það er dýrt að gera myndir um stóra atburði en það verður líka að vera hægt að gera slíkar myndir á Is- landi ef við ætlum að halda uppi fjöl- breyttri kvikmyndagerð. Velviljinn og veggurinn „Það kom fjörkippur í fslenska kvikmyndagerð í kjöífar þess að ýms- ir erlendir sjóðir komu til og auðveld- uðu okkur að leita út fyrir landsstein- ana. Vonandi verður framhald á því. Ef við ætlum að reka alvöru kvik- myndagerð, skiptir stöðugleikinn mestu. Það er erfitt fyrir leikstjóra að þróa sig áfram ef hann gerir bara eina mynd á tíu ára fresti. Og við eignumst ekki heldur alvöru kvikmyndalist nema gerðar séu þrjár til fjórar mynd- ir á ári. Jú, það eru komnir fram nýir og efnilegir kvikmyndagerðarmenn, en mér finnst ég satt að segja ekki vera af einhverri „eldri kynslóð". Ég fann að minnsta kosti ekki fyrir miklum aldursmun þegar ég var að vinna með Júlíusi Kemp í Kvikmyndaklúbbi ís- lands. Það er áræðið og djarft að gera myndir fyrir mjög litla peninga - en það gera menn varla nema einu sinni. Á hjara veraldar var á sínum tíma framleidd fyrir svipaða upphæð og Veggfóður; og naut mikils velvilja allsstaðar. En það er einlaldlega ekki hægt að reka íslenska kvikmynda- gerð á einum saman velvilja: menn reka sig alltaf á vegg einn daginn. Það þarf að leita allra leiða til að halda áfram að finna lausnir til að fjármagna íslenskar kvikmyndir og gera fjölbreyttar myndir svo íslenska kvikmyndin falli ekki í þá gtyfju að verða einhæf patentlausn. I þessu skyni þarf að efla markaði erlendis, við erum og verðum háð erlendum mörkuðum og fjármagni. Eitthvað hefur gerst Jú, nú leggst Svo á jörðu sem á himni í mikinn víking. Það er búið að falast eftir myndinni á fjöldann allan af hátíðum. Það má þakka góðum viðtökum í Cannes, þegar myndin var sýnd þar í vor. Þar komumst við í kynni við söluaðila sem vill taka að sér heimsdreifingu og sölu; það er mikil atorkukona sem heitir Seawell. Mér fannst nafnið lofa góðu og það var líka hún sem uppgötvaði ástralska kvikmyndagerð. Hún þótti klikkuð á sínum tfma, þegar hún tók áströlsku myndimar upp á sína arma, en hún kom leikstjórum eins og Peter Weir áfram. Mér þótti það ekki verra að hún sagðist ekki hafa orðið fyrir eins mikilli upplifun af nokkurri mynd síðan hún sá Picnic at Hanging Rock. Hún er tilbúin í mikla sókn - og hver veit nema íslenskar kvikmyndir verði komnar í svipaða stöðu og ástr- alskar eftir einhvem tíma. Og svo? Ég vona bara að ég fái að gera aðra mynd áður en 10 ár líða. Það fer sjálfsagt mikið eftir því hvemig nýja myndin gengur. Von- andi taka Reykvíkingar myndinni eins vel og Ólafsfirðingar, þeir voru alveg rífandi glaðir. Ég er með handrit sem sækir mjög á mig og sem ég vil fara fljótlega í ef ég mögulega get. Þessi háa sjálfs- morðstíðni unglinga hefur sótt óskap- lega á mig og mig langar að leita að samhenginu. Mig langar að reyna að tengja eigin unglingsár og upplifanir við hugsun og tilfinningar unglinga f dag - sem ég er handviss um að em ekki ólíkar. Unglingar em alltaf eins, á öllum tímum. Þetta eru án efa erfiðustu og sársaukafyllstu árin sem við lifum. En það hefur eitthvað hrikalegt gerst síðan ég var unglingur. Ég veit ekki hvað það er. En mig langar að leita að því.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.