Alþýðublaðið - 11.08.1992, Blaðsíða 6
6
Þriðjudagur 11. ágúst 1992
Nýnasistar Ijúga
um gyðingamorðin
í vaxandi mæli er því haldið fram
af talsmönnum nýnasista og nýfas-
ista vítt um heiminn að helförin, þeg-
ar nasistar myrtu 6-7 milljónir gyð-
inga í seinni heimsstvrjöldinni, hafí í
rauninni aldrei farið fram. Þeir eru
jafnvel til sem halda því fram að
heiftarlegur áróður gegn gyðingum
á meðan nasistar voru að brjótast til
valda áratuginn fyrir heimsstyrjöld-
ina hafí í rauninni aldrei verið annað
en orðin tóm, ætluð til að ná athygli
og fylgi þeirra, sem voru andsnúnir
gyðingum í Þýskalandi. Vissulega,
segja þessir fáguðu forsvarsmenn
nýju hægri hreyfínganna, dóu ein-
hverjir gyðingar í fangabúðum með-
an á stríðinu stóð. En það var þó
þrátt fyrir allt styrjöld í gangi, bæta
þeir við, og ekki hægt að koma í veg
fyrir dauðsföll einhverra óbreyttra
borgara. Fráleitt sé hins vegar að
halda því fram að nokkur skipuleg
helför gyðinga hafí átt sér stað.
Svo harðsvíraðir eru hinir nýju hug-
myndafræðilegu leiðtogar nýnasist-
anna, að þeir halda því sumir fullum
fetum fram, að jafnvel í Auschwitz hafi
verið sundlaug, danssalur og annar
búnaður til afþreyingar og skemmtunar
fyrir „gesti” fangabúðanna. Mið-
púnktur í blekkingavef hægri hreyfmg-
anna nýju er svo staðhæfingin um að
gasklefamir, sem Hitler lét byggja til
að drepa gyðinga og aðra sem voru
honum ekki að skapi, hafi aldrei verið
til. Þeir séu einungis seinni tíma upp-
spuni, upphaflega viðleitni sigurvegar-
anna í stríðinu til að sverta þjóð tapar-
anna enn frekar, og síðan hafi gyðingar
sjálfir tekið upp blekkinguna til að afla
sér samúðar.
Það er hins vegar söguleg staðreynd,
að helförin átti sér stað. Nýjar rann-
sóknir sýna líka, að hin opinbera tala
um fjölda gyðinga sem nasistar drápu,
sex milljónir, er að líkindum of lág. Nú
telja sagnfræðingar að nær lagi sé að
alls hafí sjö milljónir fómarlamba
Hitlers verið af gyðinglegum toga.
Þetta er sannað með svo rækilegum
hætti, að það verður einfaldlega ekki
dregið í efa. Ótrúlegur íjöldi vitnis-
burða vom skráðir í lok stríðsins af
munni fómarlamba sem lifðu af vistina
í fangabúðum nasista, og voru jafnvel
neyddir til að aðstoða við útrýminguna
á sínu eigin fólki. Kvikmyndir jafnt og
Ijósmyndir, teknar (fangabúðum þegar
bandamenn náðu þeim á sitt vald við
uppgjöf nasista, sanna þetta sömuleiðis
ótvírætt.
Skipuleg blekking
Þrátt fyrir hinar óræku sannanir fyrir
helförinni á hendur gyðingum virðist
nú víðs vegar í heiminum vera í gangi
skipuleg tilraun til að koma nýjum
kynslóðum í þá trú, að hún haft aldrei
átt sér stað. Einsog áður sagði hafi þar
upphaflega verið að verki ósvífnir sig-
urvegarar, og síðan hafi gyðingar sjálf-
ir tekið við og viðhaldið blekkingunni í
þeim tilgangi að afla sjálfum sér sam-
úðar. Tilgangur þeirra hafi ekki síst
verið sá að skapa vorkunn með sjálfum
sér og í krafti hennar fá stuðning sem
flestra þjóða með stofnun hins nýja
Israelsríkis, en það varð einmitt til árið
1948, með tilstyrk þeirra þjóða sem
sigruðu í seinni heimsstyrjöldinni. Þeir
em jafnvel til, sem em svo ósvífnir að
staðhæfa, að fyrir sumum gyðingum
hafi vakað það eitt að ná kyniíokknum
í geysilegar upphæðir f formi stríðs-
skaðabóta. Þetta viðhorf þeirra sem af-
neita helförinni, kristallast ef til vill
best í orðum bandaríska verkfræðings-
ins Arthur Butz, sem hefur haldið því
fram að Auschwitz sé „blekking aldar-
innar."
Hið hryggilega er, að skipuleg af-
neitun helfararinnar er ekki verk
einhverra mglaðra öfgamanna,
sem enginn hlustar á. Það em
ekki einu sinni nýnasistar og ný-
fasistar Evrópu sem hafa einka-
rétt á þessari sorglegu blekk-
ingariðju, þó vissulega hafi
þeir á allra síðustu ámm orðið
meira áberandi og skipulagðari
í málflutningi sínum. I hinum
nýfrjálsu ríkjum Austur Evr-
ópu er fjandsemi við gyðinga
aftur að stinga upp kolli og enn
á ný er hún notuð með dapurleg-
um hætti í pólitískum tilgangi.
Þetta hefur síðasta áratuginn kom-
ið sterklega fram í Póllandi. Fyrir
stríðið bjuggu hvergi jafn margir
gyðingar í Evrópu og einmitt í Pól-
landi, þar sem merkileg sérpólsk gyð-
ingamenning hafði þróast og dafnað
um nokkurra alda skeið. En ekkert
samfélag gyðinga varð jafn grimmúð-
lega fyrir barðinu á helför nasista og
hið pólska. Það stappar nærri að því
hafi algerlega verið útrýmt, og sagan
um andóf ungu gyðinganna í gettóinu í
Varsjá gegn nasistum mun lengi lifa.
Gyðingahatur í Póllandi
Þrátt fyrir þessa hroðalegu útreið
pólskra gyðinga er þó enn verið að
virkja gyðingahatur til framdráttar
vafasömum pólitískum málstað. Arin
1980-1981. þegar verkalýðs- og ffels-
issamtökin Samstaða voru að ná há-
tindi valda sinna áður en kommúnism-
inn hrundi, var reynt að skapa mótbyr
við samtökin meðal pólskrar alþýðu
með því að halda fram, að þau væru
undir áhrifum frá gyðingum. KDR,
pólitísk samtök andófsmanna í Pól-
landi, sem studdu Samstöðu með ráð-
um og dáð og lögðu henni til marga
hugmyndasmiði, voru sömuleiðis sök-
uð um að starfa fyrst og
fremst til fram-
dráttar gyð-
ingum í
P ó 1 - '' •
✓ •
landi (sem voru þó nánast útdauðir eft-
ir helför seinni heimsstyrjaldarinnar).
Flugritum var dreift af ríkisstjóm
kommúnista, sem héldu því líka ffam,
að hinn þekkti skoðanaleiðtogi innan
Samstöðu, Bronislaw Giermek, væri
gyðingur og til að undirstrika það voru
í flugritunum skopmyndir af Giermek
klæddum sem gyðing af hasidíska
skólanum (þeir eru strangtrúaðir, hafa
slöngulokka og klæðast fötum sem
ekki hafa breyst frá því á 17du öldinni).
Þess er sömuleiðis skemmst að
minnast að í kosningunum 199ö var
forsætisráðherrann Taddeus Mazowi-
ecki, frjálslyndur kaþólikki, ásakaður
um að vera laumugyðingur og ráðherr-
ar hans sömuleiðis um að vera ekki
„sannir" pólverjar heldur gyðingar.
Svipað er uppi á teningnum í hinum
hrundu Sovétríkjum. Þar er í örum
vexti þjóðemishreyfmgin „Pamyat." í
henni er að fínna ntjög áberandi fasíska
þætti. Hreyftngin telur sig standa fyrst
og fremst fyrir varðveislu þjóðlegra
einkenna, bæði á sviði
menningar og
stjórnmála,
og hefur
Þ v í
Nýir hœgri-
flokkar dreifa
þeirri blekkingu að
helförin sé uppspuni gyðinga.
Auschwitz og Belsen hafi
verið þœgilegar „gestabúðir"
með sundlaugum og dans-
sölum. Gasklefarnir hafi
aldrei verið
ráðist gegn öllu því sem hún telur ó-
þjóðlegt. Á meðal þess eru að sjálf-
sögðu boðberar erlendra áhrifa og al-
þjóðasinnar, og einsog oft áður þegar
þjóðemishreyfmgar ganga út í öfgar
em það gyðingamir sem verða tákn
hinna alþjóðlegu áhrifa sem þjóðem-
isöfgamenn taka upp baráttu gegn. í
Rússlandi hefur það því miður gerst
líka, að upplýstir menntamenn sem
börðust gegn kommúnismanum hafa
villst í raðir Pamyat og þannig gefið
hreyfingunni mun þyngri og virðulegri
blæ en hún annars á skilið. Dæmi um
hvert þessi nýja þjóðemishreyfing
Rússa er að þróast birtist í janúar 1990,
þegar félagar í Pamyat þyrptust að Rit-
höfundaklúbbnum í Moskvu og hróp-
uðu slagorð á borð við: „Þið skítugu
júðahundar, þið emð ekki rithöfundar.
Burt með ykkur til ísrael."
Grafir saurgaðar
Vaxandi gyðingahaturs gætir líka í
Vestur Evrópu. Sprengja, sem talið var
að nýnasistar hefðu komið fyrir, var
sprengd fyrir framan guðshús gyðinga,
sýnagógu, árið 1980 á breiðstræti í Par-
ís. I kjölfarið fylgdu svo árásir á fleiri
sýnagógur, skóla gyðinga og aðrar
stofnanir á þeirra vegum. Skoðana-
könnun um svipað leyti leiddi enn-
fremur í ljós, að helmingur þeirra sem
svaraði töldu að gyðingahatur hefði á
nýjan leik fest rætur í Frakklandi og
væri á uppleið. Allan síðasta áratug
birtust staðfestingar á þessu. Árás-
ir á gyðinga og ekki síst skemmd-
arverk á kirkjugörðum þeirra og
gröfum látinna.
Árið 1990 vom þannig 34
grafir skemmdar og á einum
stað var lík grafið upp og van-
helgað. I kjölfar þessarar
hroðalegu meðferðar fylgdu
fleiri árásir á kirkjugarða og
guðshús gyðinga, þannig að
engum blandaðist hugur um að
hér var um skipulegar aðgerðir
að ræða. I framhaldinu fóm gyð-
ingar í mótmælagöngu í París,
þar sem vakin var athygli á vax-
andi ofbeldi á hendur þeim. Bæði
múslimar og kristnir menn tóku þátt
í aðgerðum gyðinganna og samtök
þeirra studdu þær opinberlega.