Alþýðublaðið - 02.10.1992, Síða 2
2
Föstudagur 2. október 1992
Mmiiiiiifinn
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Siguröur Tómas Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Leturval sf.
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverö kr. 1.200 á mánuði. Verö f lausasölu kr. 90
Pjóðin vill
fiskveiðigjald
Nýverið birti Gallup á íslandi niðurstöður úr skoðanakönnun
sem gerð var fyrir Fiskifréttir um afstöðu manna til veiðigjalds.
Niðurstöðumar voru ótvíræðar: 54% þjóðarinnar lýsti sig fylgj-
andi veiðigjaldi meðan 41% var á móti. Vilji þjóðarinnar er því
ljós: íslendingar vilja fiskveiðigjald í stað núverandi kvótakerf-
is.
Pessar niðurstöður er mikill sigur fyrir fylgjendur hugmynda
um veiðileyfagjald. Hingað til hefur aðeins einn stjómmála-
flokkur á Islandi, Alþýðuflokkurinn, haft veiðileyfagjald á
stefnuskrá sinni. Urslit skoðanakönnunarinnar eru því einnig
stórpólitískur sigur fyrir Alþýðuflokkinn og stefnu hans í sjávar-
útvegsmálum. Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðu-
flokksins sagði í viðtali við Alþýðublaðið þegar niðurstöður
skoðanakönnunarinnar voru birtar, að niðurstöðumar kæmu sér
ekki á óvart. Fólk væri í raun sammála um því sem segir í lögum
um fiskveiðar, að miðin umhverfis landið séu sameign þjóðar-
innar. Fonnaður Alþýðuflokksins sagði ennfremur, að fólk sé
andvígt því fyrirkomulagi þar sem einstaklingar og fyrirtæki
geti selt þessa sameign án þess að eigandi hennar fái nokkuð í
sinn hlut. Það endurspegli almenna réttlætiskennd þjóðarinnar.
Islenska þjóðin hefur einkum þurft að hlýða á rök útgerðar-
manna og talsmanna heildarsamtaka þeirra þegar fiskveiðigjald
er til umræðu. Þau rök hafa einhliða verið með kvótakerfinu sem
viðheldur eignaupptökunni á mestu auðlind þjóðarinnar. Við-
brögðin úr þessari átt við niðurstöðum skoðanakönnunar Gall-
ups á fískveiðigjaldi voru fremur dapurleg. Kristján Ragnarsson,
formaður LIU, sagði orðrétt við Fiskifréttir er niðurstöður skoð-
anakönnunarinnar voru birtar: „Það veldur mér vonbrigðum að
svona mikið fylgi skuli vera með þjóðinni við þessar hugmynd-
ir um veiðileyfagjald. Þeir sem eru meðmæltir slíkri gjaldtöku
hafa ekki velt fyrir sér afleiðingunum." A öðrum stað í viðtalinu
segir Kristján: „Við erum að keppa á erlendum mörkuðum við
stórlega ríkisstyrktan sjávarútveg nágrannalandanna, þar sem
veiðileyfi eru keypt af hinu opinbera og afhent einkaaðilum.“
Sannleikur málsins er sá, að þjóðin hefur skilið rökin gegn
kvótakerfinu og með veiðileyfagjaldi. Það sýnir og sannar skoð-
anakönnun Gallups fyrir Fiskifréttir. Staðreyndin er einnig sú,
að opinberir styrkir til sjávarútvegs eru alls staðar á undanhaldi
erlendis. Nýlegar fréttir um stórfelldan niðurskurð norska ríkis-
ins til sjávarútvegsins er aðeins eitt dæmi af mörgum. Samruna-
ferli EB - ríkjanna og samræming EB - og EFTA - ríkja í EES -
samningnum þýðir einnigjafnari samkeppnisstöðu framleiðslu -
og útflutningsgreina með stórminnkandi ríkisafskiptum. Það eru
þessar nýju staðreyndir sem menn verða að horfast í augu við í
stað þess að einblína á sérréttindi sægreifa kvótakerfísins. Það er
rétt hjá formanni Alþýðuflokksins, að það stríði gegn réttlætis-
kennd þjóðarinnar að einstakiingar og fyrirtæki geti selt sam-
eign þjóðarinnar án þess að þjóðin fái nokkuð í sinn hlut. Þess
vegna hefur þjóðin risið upp gegn kvótakóngunum. Þjóðin vill
fiskveiðigjald.
IM
FÖSTUDAGSGREIN GUÐMUNDAR EINARSSONAR
TÆKNA-
VÆÐINC
N ú eru röntgentæknar og
meinatæknar að hóta verkfalli og
helmingurinn af veðurtæknunum bú-
inn að segja upp á Veðurstofunni. Af
hverju er þessi órói? Eg spurði heim-
ilistækninn sem ég er kvæntur að
þessu í morgun og hún sagði að or-
sökin væri hjá Alþingistæknunum.
Hér hefði einfaldlega ekki tekist að
hafa lífskjörin nægilega góð.
Er þetta svona einfalt? spurði ég.
Er ekki einhver sök hjá verkalýðs-
tæknunum og atvinnutæknunum
sem semja um launin? Hvað með út-
gerðartækni eins og Kristján Ragn-
arsson eða fiskvinnslutækni eins og
Magnús Gunnarsson? Ráða þeir ekki
miklu um lífskjörin?
J ú, jú, hún sagðist ekki geta neit-
að því. Hún varð auðvitað að viður-
kenna líka að líðan fólks í landinu
mótaðist sömuleiðis af því hvemig
blaða- og fréttatæknar matreiddu
hlutina.
En svo lifum við ekki bara á
brauðinu einu saman. Menningin
skiptir máli. Hún skilgreinir okkur
sem þjóð. En nú eru allir listatækn-
amir að mótmæla lfka. Bókmennta-
tæknamir krefjast þess að sleppa við
skatta á sinni framleiðslu og blaða-
og fjölmiðlatæknar hafa rekið upp
ramakvein.
það er ekki á neitt að treysta,
hélt fjölskyldutæknirinn sem giftist
mér, áfram. Meira að segja trúar-
tæknamir rífast út af kirkjubygging-
um og kaupinu sínu. Og ofan á allt
saman em traustir sveitarstjómar-
tæknar búnir að glata stillingu sinni
og hóta vinslitum við ríkisvaldið.
En það þýðir ekki að velta sér
endalaust upp úr erftðleikunum. Þá
endar maður í meðferð hjá heila-
tæknum.
taðreyndin er auðvitað sú að við
eigum mikla möguleika. Ef kúa- og
kindatæknar lækka landbúnaðarvör-
umar lagast lífskjörin hjá okkur. Ef
þorsktæknamir fara að selja út til-
búna rétti í raspi og fíneríi lagast lífs-
kjörin. Og ef ferðatæknarnir laða
hingað fleiri ríka Ameríkana lagast
líka lífskjörin.
á er bara að fínna bjartsýnis-
tækna og drífa í þessu.
H ún klykkti út með því að ráð-
tæknamir í ríkisstjóm yrðu að reyna
að vekja björtu vonimar. Til þess
væm stjómmálatæknar yfirleitt.
Sambandsþing ungra jafnaðarmanna
verður haldið í Munaöarnesi, Borgarfirði,
6.- 8. nóvember nk.
Rétt til þátttöku hafa allir fullgildir meðlimir í félögum ungra jafnaðarmanna sem
hafa verið félagar í tvo mánuði áður en þingið hefst, enda séu þeir skuldlausir
við félög sín.
Félagar skulu tilkynna þátttöku á sambandsþingi til stjórnar viðkomandi félags
tveimur vikum áður en þingið hefst.
Stjórn hvers aðildarfélags SUJ skal síðan senda lista yfir þá fulltrúa, sem svo
skrá sig, til sambandsstjórnar tíu dögum fyrir þingið. Teljast þeir vera fulltrúar
viðkomandi félags.
Sambandsstjórn getur einnig heimilað þeim félögum í Alþýðuflokknum, sem búa
á svæðum þar sem ekki starfar félag ungra jafnaðarmanna, þátttöku á þinginu,
enda fullnægi þeir að öðru leyti sömu skilyrðum og aðrir þingfulltrúar og sæki um
þátttökurétt eigi síðar en tveimur vikum áður en þing hefst.
F.h. framkvæmdastjórnar SUJ,
Sigurður Pétursson.
FLOKKSSTJÓRNARFUNDUR
ALÞÝÐUFLOKKURINN -
JAFNAÐARMANNAFLOKKUR ÍSLANDS
boöar til flokksstjórnarfundar
laugardaginn 3. október
frá kl.10.00 til 16.00 í Borgartúni 6.
Dagskrá:
1. Stjórnmálaviöhorfiö — Jón Baldvin Hannibalsson
2. Önnur mál.
Sveitarstjórnarfulltrúar Alþýöuflokksins eru sérstaklega hvattir til þess aö
mæta vegna fundar sveitarstjórnarráðs sem haldinn veröur eftir
flokksstjórnarfundinn.
Formaöur.