Alþýðublaðið - 05.11.1992, Síða 3
Fimmtudagur 5. nóvember1992
3
Gamansögur úr sveitinni
Sögur úr sveitinni
Platanov - Vanja frœndi
Höfundur: Anton Tsjékov
Leikstjórn: Kjartan Ragnarsson
Leikmynd: Axel Hallkell Jóhannes-
son
Búningar: Stefanía Adolfsdóttir
Tónlistarumsjón: Egill Olafsson
Lýsing: Ögmundur Þór Jóhannesson
Þýðing á Vanja frœnda: Ingibjörg
Haraldsdóttir
Þýðing á Platanov: Árni Bergmann
Leikgerð á Platanov: Pétur Einars-
son
Það er djarfleg og áhugaverð ný-
breytni hjá Borgarleikhúsinu að bjóða
leikhúsunnendum upp á fullorðinn
pakka af Tsjékov. Æskuverkið Plat-
anov og hið þroskaða verk Vanja fræn-
di, á einum og sama deginum með
klukkutíma matarhléi gerið þið svo vel.
Sami leikstjóri, sami leikhópur, sama
leikmynd o.s.frv. Tsjékov, einn af ris-
um leikbókmenntanna, hefur verið við-
fangsefni leikhúsmanna um allan hinn
vestræna heim í heila öld eða svo. Allt-
af uppspretta nýrra hugmynda, nýrra
leiða, ögrun, er hvetur menn til að
leggja sig alla fram. Sjálfur var hann
fámáll um verk sín og lítt fáanlegur til
að tjá sig um innihald þeirra. Þó mun
hann einhvemtíma liafa gloprað út úr
sér að þetta væru gamanleikir og sér
kæmi spánskt fyrir sjónir hve menn
væru fúsir að nota meðul harmleiksins
í túlkun þeirra.
Þessir þankar sækja á þegar horft er
á þessi tvö verk. Platanov er léttúðugt
og galsafengið æskuverk þó þegar séu
komin til sögunnar helstu höfundarein-
kenni Tsjékov: Skarpur skilningur og
innsæi í mannlegar tilfinningar. Text-
inn er lipur og einfaldur en um leið
margræður. Læknirinn hans er mættur;
umræðumar um veðrið eru til staðar og
lífsfirrtar persónur sem virðast leik-
soppar eigin tilfmninga og hvata fylla
sviðið. Undir í rökkrinu, eins og við-
kvæmur titrandi tenórsöngur úr fjarska,
hvílir sársaukinn. Vanja er þroskaðra
verk og djúpstæðara. Skilningur hans á
mannskepnunni hefur aukist og sam-
úðin með persónunum vaxið. En fánýl-
ishyggja og kaldhæðið viðhorf lians til
hnignandi borgarastéttar hefur vaxið.
Kjartan Ragnarsson velur þá leið í
uppsetningu sinni á Platanov að undir-
strika galsann og láta lönd og leið raun-
sæislegan leikstíl. Aftur og aftur beitir
hann með góðum árangri leikbrögðum
farsans. Sýningin er þétt; uppbrotuni
og hraðabreytingum er beitt á rnark-
vissan og agaðan hátt og leikhópurinn
Itefur greinilega jtaman af þvf, sem
hann er að gera. Utkoman hreint alveg
glimrandi gott leikhús.
Guðrún S. Gísladóttir leikur Önnu
Petrovnu, unga ekkju, sem er nýkomin
til sumardvalar á sveitasetri sínu. Hún
er fögur, daðrandi og karlmenn hins fá-
breytta samfélags hópast að henni eins
og bimir að hunangi. Guðrún skilar
þessari lífsleiðu konu, sem drepur tím-
ann og liftr af að vefja karlmönnum um
fingur sér á óaðftnnanlegan hátt. Leik-
ur hennar einkennist af einlægni og lát-
leysi og hún leikur sér að því að láta
mann t' senn fyllast fyrirlitningu og
samúð með persónunni.
Ef þú vilt vera stór fiskur linndu þér
þá lítið vatn var einhvemtíma sagt. Það
á svo sannarlega við um Platanov.
Þröstur Leó Gunnarsson leikur þennan
lísflóttamann, sem valið hefur sér þetta
litla samfélag til dvalar. Þar sem kon-
umar falla honum til fóta í fullkominni
uppgjöf og karlamir umgangast hann
af lotningarfullri öfund. Þröstur hefur
þroskast gífurlega sem leikari á fáum
ámm og sköpun hans í þessu titilhlut-
verki er glæsilegt og heilsteypt verk.
Ein sér þess virði að fara á sýninguna
og njóta. Tríletskí læknir er í uinsjá
Guðmundar Ólafssonar. Hann dregur
þennan drykkfellda og kaldhæðna
lækni skýrum dráttum og skapar grín-
agtuga en trúverðuga persónu.
Glagóléf landeigandi er í höndum
Péturs Einarssonar. Pétur skilar þess-
um ódannaða, miðaldra aurapúka afar
vel. Leikurinn er stórskorinn og farsa-
kenndur án þess að fara þó nokkm
sinni yfir mörkin; og manni þykir hálf-
partinn vænt um karlinn því Pétur nær
allan tímann að láta glitta í hið særða
stolt persónunnar, - og þarf nokkuð til.
Sergei, stjúpson Önnu, leikur Ari
Matthfasson. Ari skapar bamslega, ein-
læga og hrekklausa persónu sem er
heilsteypt út í gegn.
Sigrún Edda Bjömsdóttir, Helga
Braga Jónsdóttir, Erla Rut Harðardótt-
ir, Theódór Júlíusson og Egill Ólafsson
skila öll hlutverkum sínum með mestu
prýði. Raunar er það svo, að þróttmik-
ill og agaður leikur er burðarstólpi
þessarar sýningar.
L-eikgerð Péturs Einarssonar er mjög
vel heppnuð: þétt, hröð og kemur vel til
skila kjama verksins. Þýðing Ama
Bergmann er áheyrileg og kom vel til
skila karaktereinkennum persónanna.
Leikmynd Axels Hallkels Jóhannes-
sonar nýtir rýmið skemmtilega og
þjónar sýningunni fullkomlega; nær að
skila þeim andblæ hnignunar og spill-
ingar sem þetta fólk lifir og hrærist í.
Leikmyndin speglar vel hve líf þess er
ofið úr lélegum dúk.
Búningar Stefaníu Adolfsdóttur eru
einfaldir og styðja sýninguna og vinnu
leikaranna svo sem vera ber. Lýsing
Ögmundar Þórs Jóhannessonar er lát-
laust verk og faglega unnið. Hið sama
má segja um förðun og hárgreiðslu.
Niðurstaða: Leikhúsperla sköpuð
af markvissri leikstjórn og frábær-
um leik.
Guðrún S. Gísladóttir leikur einnig í
Vanja frænda unga og kynþokkafulla
konu, sem hefur þau áhrif á karlmenn-
ina umhverfis sig að þeim verður verka
vant og stara upp á hana í ástsjúkri þrá.
Guðrún skilar hlutverkinu vel en ein-
hvemveginn fannst mér hún njóta sín
betur sem Anna í Platanov.
Vanja frændi er í höndum Theódórs
Júlíussonar, og í stuttu máli sagt, hefi
ég aldrei séð Theódór gera betur. Leik-
ur hans er hófstilltur og agaður, og gef-
ur fýrirheit um að framundan sé nýtt
þroskatímabil í list Theódórs.
Guðmundur Ólafsson leikur Vafla;
þessi umkomulausi einstæðingur verð-
ur í sköpun Guðmundar ein skemmti-
legasta og heilsteyptasta persóna sýn-
ingarinnar. Leikur hans liggur á mörk-
um farsans, og fyrst í stað virtist sem
Guðmundur ætlaði að skjóta yfir mark-
ið en þegar frá leið varð Vaíla sífelldur
gleðitónn í annars frekar döpru um-
hverfi.
Sigrún Edda leikur Soffíu af fádæma
öryggi. Leikur hennar er einlægur, til-
finningaríkur og hrífur áhorfandann
þegar með sér; og lætur hann sveiflast
með í gleði og sorg. Smart vinna.
Punktur.
Alexander Vladimfrovits er leikinn
af Pétri Einarssyni, og einhvemveginn
var einsog Pétur fyndi ekki réttan tón í
persónusköpun sinni þrátt fyrir ágæta
spretti inn á milli.
Egill Ólafsson leikur lækninn í þessu
verki og skilar með sóma þessum kald-
hæðna og meðvitaða karakter. I leik
Egils var meiri hvíld og þungi en oftast
áður, og skilaði sér í blæbrigðartkari
persónusköpun og sterkari nærvem á
sviðinu.
Erla Rut og Helga Braga þurfa að
leika allmjög uppfyrir sig í sýningunni
og hefur leikstjórinn valið þá leið að
láta sköpun leikaranna bera þungann af
því, en treysta minna á förðun og gervi.
Húskarl og einkaþjón leika Þröstur og
Ari og gera það af trúmennsku.
Kjartan velur talsvert frábmgðna
leið í uppsetningu sinni á Vanja; leikur-
inn er raunsæislegri, tilfinningaþmngn-
ari og verkar því ekki eins ferskur og
Platanov. Auðvitað er Vanja frændi
þroskaðra verk og þyngra en eigi að
síður hlýtur jafn reyndur og agaður
leikstjóri og Kjartan að hafa hugleitt
þann möguleika að vinna gegn textan-
um. Það er helst í Vafla sem maður sér
tilraun til þess. Samt sem áður er vinna
Kjartans hið ágætasta verk, og ein-
kennist af kunnáttu, vandvirkni og aga.
Ingibjörg Haraldsdóttir, sem er trú-
lega hefur fslenskað fleiri rússnesk
bókmenntaverk en nokkur annar, skilar
talmáli persónanna af stakri prýði án
þess að textinn glati í nokkm bók-
menntalegu gildi sínu.
Tónlist Egils Ólafssonar við báðar
sýningamar, hvort heldur hún er fmm-
samin eða valin, á stóran þátt í að gera
þær jafn hugstæðar og raun ber vitni.
Sú aðferð að láta tónlistina teygja sig
inn í leikin atriði gefst vel. Upphafsat-
riðið í' Platanov er skýrt dæmi um
ógleymanlegt og Ijóðrænt leikhús-
augnablik.
Niðurstaða: Gott leikhúsverk,
borið uppi af agaðri lcikstjórn og
vönduðum leik en geldur nokkuð
nálægðar sinnar við Platanov.
E.s.: Að horfa á sýningamar, hvora á
eftir annarri, býður ekki aðeins upp á
að kynnast Tsjékov, heldur er einnig
um að ræða einstakt tækifæri til að fá
innsýn í vinnu leikarans.
Arnór Benónýsson
Alþýðuflokksfélag
Akraness
heldur aöalfund sunnudaginn 8. nóvember
næstkomandi.
Fundurinn veröur haldinn í Félagsheimilinu Röst og
hefstkl. 15.
Á dagskrá veröa venjuleg aöalfundarstörf og önnur
mál.
Kaffiveitingar.
Mætiö vel og stundvíslega.
Stjórnin
Alþýðuflokksfólk í
Reykjaneskjördæmi
Við minnum á skemmtunina á
Glóðinni í Keflavík, föstudaginn 6.
nóvember kl. 20.00
Skemmtunin er fyrir alla sem gegna trúnaöarstörfum
fyrir flokkinn í kjördæminu og maka þeirra og er einnig
aö sjálfsögðu opin öllu áhugasömu Alþýöuflokksfólki.
Á boðstólum veröur matur, músík og sérstök skemmti-
atriöi á flokksvísu, ásamt dansi og söng, allt fyrir
aöeins kr. 1.700 á mann.
Fólk er beðið um aö tryggja sér miöa meö því aö hafa
samband viö formenn flokksfélaganna á sínum stööum
fyrir fimmtudag.
Skemmtinefndin
NORÐURLAND
EYSTRA!
STJÓRN KVENFÉLAGS ALÞÝÐU-
FLOKKSINS Á AKUREYRI OG STJÓRN
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAGS AKUREYRAR
BOÐA HÉR MEÐ TIL STOFNFUNDAR
JAFNAÐARMANNAFÉLAGS
EYJAFJARÐAR.
Fundurinn veröur haldinn miövikudaginn
11. nóvember kl. 20.30
í nýju húsnæöi Alþýðuflokksins aö Gránufélagsgötu 4,
(JMJ-húsinu) á annari hæö.
Fundarstjóri veröur Siguröur E. Arnórsson.
DAGSKRÁ:
1. Forsaga og undirbúningur aö stofnun félagsins -
erindi.
2. Tillaga aö lögum félagsins lögö fram til afgreiðslu.
3. Kosning formanns og stjórnar.
4. Kosning endurskoöenda.
5. Kosning laganefndar.
6. Erindi - Sigbjörn Gunnarsson alþingismaöur.
7. Önnur mál.
ÞAÐ ER ÁRÍÐANDI AÐ SEM FLESTIR MÆTIOG
EINNIG UPPLAGT TÆKIFÆRl TIL AÐ KQMA AÐ
SJÁ HIN NÝJU HÚSAKYNNI.
Kaffiveitingar.
Stjórnir Alþýöuflokksfélaganna á Akureyri