Alþýðublaðið - 03.12.1992, Blaðsíða 8
Skreijtingar vuf öll tæíqfœri.
Opið aíía daga tií fc[. 22
STEFANSBLOM
SKIPHOLTI 50 B - SlMAR 610771 & 10771
Fréttir í hnotskurn
ATVINNULEYSIOGINNRIMAÐUR: Fríkirkjan í Reykja-
vík ætlar að efna til þarfrar
umræðu, - um hið uggvæn-
lega ástand sem nú ríkir í at-
vinnumálum okkar og afleið-
ingar þess á einstaklinginn
sem fyrir því verður. Frum-
mælendur á fundinum verða
þau séra Cecil Harnldsson.
prestur Fríkirkjusafnaðarins,
Unnur Konráðsdóttir, ritari
Landssambands atvinnu-
lausra og Gunnar Klængur
Gunnarsson, félagsráðgjafi.
Fjallað verður um atvinnu-
lausa einstaklinga, viðbrögð
sem unnt er að grípa til og við-
brögð sem rétt er að forðast,
leitáð svara sem komið geta
að haldi og ráða sem grípa má
til f baráttunni við þær nei-
kvæðu hugsanir og kenndir
sem gjaman fylgja í kjölfar
þess að missa vinnuna. Þetta
er opinn fundur og öllum
frjálst að mæta. Fundurinn er
haldinn á laugardaginn kemur
og hefst kl. 13.30 í safnaðar-
heimili kirkjunnar að Laufás-
vegi 13.
JÓLATRÉ í KRINGLUNNI: Kveikt verður á stóra jólatrénu í
Kringlunni klukkan hálfsex í dag, myndarlegur tjallaþinur úr Hallorms-
staðarskógi, sem BYKO hefur gefið. Böm úr Isaksskóla verða við athöfnina
og tendra Ijósin á trénu. Þá mun Skólakór Kársness syngja við jólatréð und-
ir stjóm Þórunnar Björnsdóttur. Við þetta tækifæri verður fulltrúum
Bamaspítala Hringsins afhent peningaupphæð, afrakstur af smámynt sem
viðskiptavinir hafa kastað í gosbrunna hússins á þessu ári.
FRETTAÞJOFNAÐIR : Blaðamenn og útgefendur minni blaða og
tímarita hafa þungar áhyggjur af sífelldum „fréttaþjófnuðum" stærri fjöl-
miðlanna. Hvað eftir annað eru minni blöðin fyrst með stórar og merkar
fréttir. Þær em sfðan lesnar upp í ljósvakafjölmiðlum og birtar á síðum stær-
ri blaðanna, án þess að viðkomandi fjölmiðils sé í einu eða neinu getið.
Morgunblaðið og Ríkisútvarpið standa sig fjölmiðla best í þessu efni, oftast,
aðrir em mun slakari. Bylgjan og Stöð 2 stela miskunnarlaust, og geta nán-
ast aldrei um fjölmiðilinn, sem fréttin er fengin frá. Nú síðast flutti Sunn-
lenska fréttablaðið frétt á fimmtudag um óróann á vinnumarkaði á Stokks-
eyri. I ellefufréttum sjónvarps var vitnað í blaðið. Utvarpið daginn eftir gat
blaðsins hinsvegar í engu. Blaðamannafélag Islands hélt fund um þetta
málefni fyrir rúmum 2 ámm, og kom þá fram að blaðamenn telja rétt og skylt
að vitna ævinlega í fjölmiðil sem hefur „skúbbað".
ALÍSLENK TÍSKUSÝNING: ístex vinnur ötullega að því að
skapa nýja, íslenska tísku, vörur framleiddar úr íslenskri ull. Verðlaunasam-
keppni er lokið og bámst hvorki meira né minna en rúmlega 200 hugmynd-
ir að nýjum peysum. Verðlaunaafhending og tískusýning verður á vegum fs-
tex í dag kl. 16 í Súlnasal Hótel Sögu. Viðstaddir verða m.a. forseti Islands,
iðnaðarráðherra, þátttakendur í samkeppninni og erlendir umboðsaðilar.
HÖRÐUR KJÖRINN HEIÐ-
URSFELAGI: í tilefni sjötugsaf-
mælis Harðar Agústssonar, listmálara,
fýrr á þessu ári, var Hörður kjörinn heið-
ursfélagi í Arkitektafélagi íslands á síð-
asta aðalfundi. Fræðistörf Harðar um ís-
lenska byggingarlist eru yfirgripsmikil
síðustu 30 árin, eins og kunnugt er, auk
þess sem hann hefur starfað að myndlist.
Auk þess hefur Hörður ævinlega staðið í
fararbroddi íslenskrar húsvemdar.
Fríkirkjan í Re.vkjavík efnir til þarfrar um-
ræðu í safnaðarheimili sínu á laugardag-
inn. Safnaðarheimilið er skammt fvrir ofan
kirkjuna við Tjörnina og sést á þessari
mynd.
NÝTT ÚTLIT HAFNARFJARÐAR:
Blaðið Hamar í Hafnaifirði birtir þessa mynd af nýju útliti bæjarins, séð frá
höfninni. í stórhýsinu verða m.a. verslanir, hótel, skrifstofur og þjónustufyr-
irtæki af ýmsum toga. Sannarlega glæsilegar framkvæmdir á ferðinni.
Iðnnemar mótmœla
Fiandsamleg afstaða
fulltrúa ríkis í LÍN
„Ef skólagjöld verða ineð þeim
hætti sem sértekjur skólanna gera
ráð fyrir er Ijóst að ríkisstjórnin hef-
ur stigið enn eitt skrefíð í þá átt að
menntun verði gerð að forréttindum
þeirra efnameiri“, segja iðnnemar í
ályktun sem gerð var fyrir nokkrum
dögum á baráttufundi Iðnnemasam-
bands íslands. Þar var ennfremur
mótmælt „fjandsamlegri afstöðu
ríkisstjórnarfulltrúanna í stjórn
Lánasjóðs íslenskra námsmanna í
garð iðn- og verknámsnemenda og
sífellt lakari kennsluaðstöðu í iðn- og
verknámi.
„Iðnnemar krefjast þess af mennta-
málaráðherra að hann sjái til þess að
fulltrúar ríkisstjómarinnar í stjóm LÍN
láti af þeim fjandskap sem þeir hafa að
undanfömu sýnt í verki gagnvart iðn-
og vemámsnemendum", segir í álykt-
uninni.
Iðnnemar segjast ekki sætta sig við
að fulltrúar ríkisins í LIN komist upp
með að gera kröfur um að nemendur í
Iðnskólanum í Reykjavík skili eininga-
íjölda sem þeim er ekki mögulegt sök-
um þess að skólinn hefur sett þak á há-
markseiningafjölda sem nemendum er
heimilt að taka. Þetta þak sé afleiðing
af niðurskurði sem menntamálaráðu-
McDonalds í stað Volvo
við Suðurlandsbraut
„Boðar
vonandi nýtt
og betra sið-
gæðismat"
s
- segir Olína Þorvarð-
ardóttir, borgarfulltrúi
Nýs vettvangs
„Ég er ekki í vafa um að þarna sáu
borgaryfirvöld sér leik á borði að
finna góða lóð handa hamborgara-
keðjunni McDonalds. Hitt er annað
mál að batnandi mönnum er best að
lifa, það þarf að taka á lóðabraskinu
í borginni og vonandi er þetta upp-
hafið að því“, sagði Olína Þorvarð-
ardóttir, borgarfulltrúi Nýs vett-
vangs um sviptingu borgaryfirvalda
á lóð Brimborgar hf„ Volvo-um-
boðsins, að Suðurlandsbraut 56.
„í þessu tilfelli virðist tilgangurinn
þó helga meðalið,. Ráðamenn borgar-
innar virðast hafa ætlað McDonalds
þessa lóð, og því látið Brimborg víkja.
Það er ekki langt síðan að það var látið
óátalið að kjörinn borgarfulltrúi stóð í
lóðabraski við Lágmúla. Þá var refsi-
vendinum ekki beitt. Þetta boðar von-
andi nýtt og betra siðgæðismat og er
það vel“, ságði Olína.
Ólína sagði að talsvert hefði borið á
því að aðilar fengju úthlutað lóðum
undir stórhýsi í borginni. Lóðarhafar
semdu síðan við byggingaverktaka,
sem byggðu húsið, eignuðust það að
stórum hluta, en létu lóðarhafa fá ein-
hvem hluta hússins.
Forráðamenn Brimborgar hf. héldu
að sama lögmál gilti um þá og þeirra
lóð og annarra fram að þessu. Svo
reyndist ekki vera. Borgaryfirvöld
stigu á bremsuna, og sáu sér leik á
borði að finna alheimshamborgurunum
rými á góðum stað, sem fyrirtækið
sættir sig við.
neytið hefur gert kröfu um til skólans.
Krefjast iðnnemar að LIN viðurkenni
skipulag skóla og að hámarkseiningar
sem nemendum við Iðnskólann er
heimilt að taka og verði viðurkennt
sem 100% hámarksárangur hjá Lána-
sjóðnum.
„Það er ekki hægt að hegna nemend-
um fyrir hvemig skólastjóm kýs að
standa að niðurskurði sem mennta-
málaráðuneytið gerir kröfu um eins og
ríkisstjómarfulltrúamir hjá LIN vilja
gera. Iðnnemar krefjast þess jafnframt
að stjómarformaður LIN fari tafarlaust
að ítrekuðum fyrirmælum mennta-
málaráðherra um að Iðnnemasamband
Islands fái að skipa áheymarfulltrúa í
stjóm Lánasjóðsins, ef hann verður
ekki við því, þá verði hann settur af‘,
segja iðnnemar.
Þá gagnrýna þeir mjög aðstöðu iðn-
skólanna. sem oft sé svo ófullkomin að
það sé flokkað sem heilsuspillandi af
Vinnueftirliti ríkisins. Þá séu náms-
gögn í mörgum tilvikum úrelt og tak-
mörkuð þannig að einungis hluti nem-
endanna geti vænst þess að fá almenni-
lega tilsögn.
„Þegar svo er búið að iðn- og verk-
menntun þá er ekki hægt að gera ráð
fyrir að íslenskt samfélag geti átt
möguleika í þeirri miklu samkeppni
sem mun koma til með Evrópska efna-
hagssvæðinu. Islendingar munu þá
tapa mest af sinni verkþekkingu úr
landi á stuttum tíma. Auk þess er tómt
mál að tala um eflingu íslensks iðnað-
ar, nýsköpun og stóreflingu í rannsókn-
unt og hátækni þegar ekki er til staðar
vel verkmenntað fólk“, segja iðnnentar
og skora á mennta- fjármála-
og iðnaðarráðherra að heimsækja
Iðnskólann í Reykjavík og kynnast því
af eigin raun hvemig komið er fyrir
stærsta iðn- og verkmenntaskóla lands-
ins.
Hluthafafundur
Hluthafafundur í Eignarhaldsfélaginu
Iðnaðarbankinn h.f. verður haldinn í
Súlnasal Hótels Sögu, Reykjavík,
föstudaginn 11. desember n.k.
og hefst hann kl. 16:00.
/
A fundinum verður samrunasamningur félags-
ins við Islandsbanka h.f. kynntur og borinn upp til
samþykktar, en á aðalfundi 1. aprfl s.l. var stjóm
félagsins heimilað að undirbúa samruna þess við
Islandsbanka h.f.
Dagskrá
1. Tillaga stjórnar félagsins um
samruna við íslandsbanka h.f.
2. Önnurmál, löglega upp borin.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
hluthöfum og umboðsmönnum þeirra í íslands-
banka h.f., Bankastræti 5 (4. hæð), Reykjavík,
dagana 8. og 9. og 10. desember n.k., svo og á
fundardegi.
Samrunasamningur við íslandsbanka h.f. ásamt
fylgiskjölum og tillögum þeim, sem fyrir fundinum
liggja, verða hluthöfum til sýnis á sama stað frá
4. desember n.k.
Reykjavík, 1. desember 1992
Stjórn Eignarhaldsfélagsins
Iðnaðarbankinn hf