Alþýðublaðið - 06.01.1993, Qupperneq 2
2
Miðvikudagur 6. janúar 1993
fmiiiiiimnii
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Siguröur Tómas Björgvinsson
Fréttastjóri: Hrafn Jökulsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Leturval
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverö kr. 1.200 á mánuöi. Verö f lausasölu kr. 90
Filibuster
Þjóðin hefur fylgst agndofa með málþófí stjómarandstöðunnar í um-
ræðum um hinn mikilvæga EES-samning á Alþingi. Öll sjónarmið í
málinu em löngu komin fram; sérhver blæbrigðamunur í skoðunum
innan allra flokka stjómarandstöðunnar er ræddur út í hörgul. Engu að
síður halda þingmenn stjómarandstöðunnar áfram að eyða dýrmætum
tíma þingsins í ófijóar og staglkenndar umræður um mál, sem er kann-
að og þekkt til hlítar. Það er nú ljóst, að hluti stjómarandstöðunnar hef-
ur ákveðið að beita ofbeldi málþófsins til að hindra löglega kjörinn
meirihluta þingsins í að ná fram stefnu sinni.
IVÍálfrelsi þingmanna er dýrmætur þáttur þingræðisins. En það er
brothætt og viðkvæmt. Aldagamlar hefðir liggja að baki starfsháttum
íslenska þingsins, sem um margt er frábmgðið þingum ffændþjóð-
anna. Afgerandi einkenni alþingis er sú hefð - sem ekki er til fullnustu
varin með ákvæðum þingskapalaga - að þingmenn geta nánast talað
eins lengi og þeir vilja um mikilvæg mál. Þessu er öðm vísi farið í
flestum öðram þingum, þar sem þingforseti getur ákveðið hversu lengi
umræða skal standa, og hvenær henni skal lokið.
Málfrelsishefðir alþingis gefa rúm færi á að beita málþófí til að tefja
framgang mála, sem minnihlutinn er á móti. En það er vandmeðfarið
vopn - og afar umdeilt. Þær kringumstæður geta eigi að síður skapast
sem réttlæta málþóf. Þegar harðdrægur meirihluti hyggst beita lítinn
minnihluta ofríki og knýja í gegn mál sem stjómarandstaða telur bein-
línis í andstöðu við vilja og hagsmuni þjóðarinnar, þá er málþóf rétt-
lætanleg nauðvöm. En sagan og samtíðin réttlæta ekki notkun þess
nema í ítrastu neyð; misbeiting ófyrirleitins minnihluta á hinu um-
deilda vopni málþófsins hlýtur að leiða til að eggjar þess verði slævð-
ar með breyttum lögum um þingsköp. Það er sú ábyrgð sem hvflir á
herðum þeirrar óþroskuðu stjómarandstöðu, sem í dag misbýður lýð-
ræðinu með óréttlætanlegu málþófi. Hún er að kalla á breytt lög, og
þannig að knýja fram lokun á leið, sem við sérstakar en afar sjaldgæf-
ar aðstæður er þrautalending stjómarandstöðu, sem beitt er ofríki.
Það er hins vegar ekki sneffll af ástæðu fyrir því að beita málþófi í af-
greiðslu samningsins um EES. Málið er að sönnu umdeilt, en það hef-
ur langan aðdraganda. Það var yfirlýstur vilji beggja stjómarflokkanna
fyrir síðustu þingkosningar að ljúka samningagerð um EES. Málið
fékk mikla umfjöllun í kosningabaráttunni, og formaður stærsta flokks
núverandi stjómarandstöðu kaus á lokadögum hennar að gera það að
stærsta máli baráttunnar. Þjóðin vissi því að hverju hún gekk, þegar
hún veitti núverandi stjómarflokkum umboð til að taka að sér lands-
stjómina. Sömuleiðis hafa öll mikilvægustu samtök atvinnulífsins
hvatt alþingi til að samþykkja aðildina sem allra fyrst.
Að auki hefur þingið þegar eytt mjög miklum tíma í umræður um
EES. Þegar þingmenn héldu í jólahlé höfðu þeir notað lengri tíma í
ræðuhöld um EES en 1500 þingmenn EFTA ríkjanna þurftu samtals til
að afgreiða samninginn í sínum þingum, og þó var alþingi ekki nema
rétt hálfnað. Vinnubrögð af þessu tagi rýra virðingu alþingis; þau
minna á lélegan farsa sem í upphafí er hægt að brosa að, en verður síð-
an langdreginn og leiðinlegur, og snýst að lokum upp í tragikomedíu.
Þetta er það sem stjómarandstaðan hefur staðið fyrir síðustu vikur.
A erlendum tungum er málþóf sama og filibuster. En í orðabókum
merkir það líka hið sama og að beita yfirgangi. Nákvæmlega það er að
gerast á alþingi Islendinga; ábyrgðarlaus stjómarandstaða er að beita
lýðræðislega kjörinn meirihluta yfirgangi. Menn hljóta að læra af
reynslunni og spyrja sjálfa sig, hvort ekki sé kominn tími til að breyta
lögum um ótakmarkað ræðufrelsi á alþingi?
Lakkrísverksmiðjan í Kína
Deilt um hver
á verksmidjuna
Allt er í uppnámi vegna íslensku eigendur Sjónvals hf. telja sig vera
lakkrísverksmiðjunnar í Kanton í eigendur verksmiðjunnar sem Uni-
Kína. Kínverjar viðurkenna ekki mark á Akureyri keypti og á auk
aðra eigendur að lakkrísgerðinni en Stefáns Jóhannssonar sem áður
gjaldþrotafyrirtækið Sjónval sf. en starfaði hjá Handsali hf.
✓
Islensk heilbrigðisyfirvöld
Sflyðja Letfla á
heilbrigðissviðinu
Heilbrigðisráðherra og Land-
læknisembættið færðu heilbrigðisyf-
irvöldum í Lettlandi 5.000 dollara að
gjöf til kaupa á bóluefni. Landlækn-
ir afhenti gjöfina á fundi fyrir sköm-
mu sem Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunin í Kaupmannahöfn og heii-
brigðisyfirvöld í Eystrasaltsríkjun-
um stóðu fyrir.
A fundinum var rætt um aðstoð við
Eystrasaltsríkin á sviði bólusetninga og
farsótta og var landlækni boðið á fund-
inn ásamt nokkrum fulltrúum frá Norð-
ur-Evrópu. Finnar veita Eistlendingum
verulegan stuðning og Danir Litháum.
Þá var rætt um áframhaldandi stuðning
Norðmanna við Letta.
Undirtektir við þessa aðstoð voru
góðar á fundinum og hefur Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunin tekið upp
málið við Alþjóðabankann en hann
hefur sýnt því mikinn áhuga.
Málið hefur verið allt hið undarleg-
asta frá byrjun. Frumhvatamenn að því
að reisa verksmiðjuna voru þeir Guð-
mundur Viðar Friðriksson sem nú
dvelst í Kína, Birgir Halldórsson og Er-
lingur Þorsteinsson sem gerðu með sér
samning í upphafi að þeir þrír skyldu
deila jafnt á milli sín eignarhlut í vænt-
anlegri verksmiðju. Þá hefur komið að
málinu síðan Stefán Jóhannsson við-
skiptafræðingur sem áður vann hjá
Handsali. Erlingur sakar hann um að
reyna að sölsa undir sig eignarhlut í
verksmiðjunni m.a. með skjalafalsi
sem kært verði til Rannsóknarlögreglu
ríkisins.
Að sögn Erlings liggur fyrir tilboð í
lakkrísverksmiðjuna af hálfu kínversks
stórfyrirtækis sem myndi gera mun
betur en að borga allar kröfur sem eru í
þrotabú Sjónvals sf. Hins vegar hafi
bústjóri Sjónvals sf. ekki tekið mark á
því og telur ekki að það sé lögmætur
eigandi verksmiðjunnar. Hins vegar
voru samningar við Kínverja í upphafi
gerðir við Sjónval sf. og hafa Kínvetjar
ekki fallist á að aðrir tækju við þeim
samningum.
Norðurlönd
Aukinn gagnkvæmur gjaldeyrisstuðningur
Seðlabankar Norðurlanda hafa
ákveðið að efla verulega samninga
sín á milli um gjaldeyrislán til
skamms tíma en miklar sviptingar
áttu sér stað í gjaldeyrismálum á
Norðurlöndum á síðasta ári. Samn-
ingurinn á sér langa sögu eða til
ársins 1962 en hann var endur-
skoðaður árin 1976 og 1984.
Hinn nýendurskoðaði samningur
gekk í gildi um áramótin og er ætlað
að gilda um ótakmarkaðan tíma.
Samkvæmt samningnum geta seðla-
bankar Danmerkur, Finnlands, Sví-
þjóðar og Noregs hver um sig fengið
gjaldeyrislán að jafnvirði allt að
tveimur milljörðum ECU og Seðla-
banki íslands að 200 milljónum ECU.
Bankamir skuldbinda sig til að geta
reitt fram helming þess fjár sem þeir
eiga kost á.
Samkvæmt samningnum skulu
seðlabankamir fjalla með jákvæðum
hætti um beiðnir um gjaldeyrislán
umfram ofangreindar fjárhæðir. Skil-
yrði íyrir lánveitingu er að áður en
lánsfé er notað hafi lántökuland gert
ráðstafanir á gjaldeyrismarkaði og
gripið til viðeigandi aðgerða í pen-
ingamálum. Lánstími þessara lána er
þrír mánuðir en hann má framlengja.
Yölsungar frægir í Evrópu
Ættartaflan sem hollensku listamennirnir tveir mál-
uðu í Jökulsárgljúfrum gæti endað sem eitt frægasta
listaverk landsins.
Stórblaðið The European birtir flennirstórar litmyndir á
baksíðu af ættartöflunni undir yfirfyrirsögninni „Fjöl-
skyldumynd vikunnar“.
Þar segir að orðstír tveggja hollenskra listamanna sé nú
mjög í hættu eftir að risastóra ættartaflan varð lýðum ljós,
og að umhverfisráðuneytið fliugi rnálsókn. Þá er og greint
vel og skilmerkilega frá Völsungum þeim sem Hollending-
amir máluðu á bjargið.
Höfundur greinarinnar er Bima Helgadóttir en hún hefur
verið blaðamaður á The European í nokkur ntisseri og get-
ið sér afar gott orð. Óhætt er að fullyrða að ekkert evrópskt
stórblað birti jafn oft greinar og myndir frá íslandi.