Alþýðublaðið - 06.01.1993, Síða 6

Alþýðublaðið - 06.01.1993, Síða 6
6 Miðvikudagur 6. janúar 1993 LÍÚ er ekki í takti vid aðra í þessu þ|óðfélagi Það verður að teljast einkennilegt með LIU hvað helstu forsvarsmenn samtakanna virðist gersamlega óf'ærir um að meðtaka ríkjandi stefnur og strauma í íslensku þjóð- félagi. Það sést best á málflutningi þeirra í hinum ýmsu málum líðandi stundar, sem varða sjávarútveginn beint eða óbeint. Það er orðið þannig að svo virðist sem þaðan sé einskis að vænta nema hroka og skætings og hugmynda, sem ganga þvert á sjón- armið flestra annarra í þessu þjóð- félagi. Það hafa fáir eða engir aðilar barist jafn hatrammlega gegn öllum hug- myndum um upptöku veiðileyfagjalda í sjávarútvegi og hefur engu breytt mjög vaxandi stuðningur við þær hug- myndir, jafnt meðal almennings sem og ýmissa forsvarsmanna í greininni sjálfri. LÍÚ hefur ekki hlustað á nein rök í þessu máli né heldur hin siðferðilegu sjónarmið, sem öll hníga í átt til veiðileyfagjalda. Gengisfellingu og afskriftir!!! I þessum farvegi einnig hefur málflutningur landssambandsins í um- ræðunni um aðgerðir í efnahagsmálum Ganga þvert á umhvernssjónarmiðin Nærtækasta dæmið um falska tóninn í kór LÍÚ er skoðun þeirra á banni við sökkvun skipa í sjó. I Fiskifréttum, skömmu fyrir áramót, lýsa þeir bann- inu sem algeru rugli þvf það hafí ekkert nema aukinn kostnað í för með sér fyrir verið. í langan tíma hefur LÍÚ barist fyrir því að afkomu sjávarútvegsins verði bætt aflaleysi undanfarinna ára með gengisfellingu og ekki síst með stórfelldum afskriftum á skuldum. Kjami málsins í þeirra hugum er að þeir eigi að vera fullkomlega frjáls- ir hvað varðar fjárfestingar í grein- inni, en að öðru leyti jafn fullkom- lega án ábyrgðar þegar illa fer. Þegar til kastanna komi eigi almenningur að borga brúsann. Þetta eru einu úrræðin, sem LÍÚ virðist koma auga á í aðgerðum til að bjarga greininni. Forsvarsmenn annarra atvinnu- greina og ekki síst almenningur treystir á að sem mestur stöðugleiki níci í verðlagi hér á landi. Stöðugt gengi hefur þar mjög mikið að segja. Þess vegna ganga gengisfellingarkröfur LIÚ nær þvert á þau markmið stjóm- valda að tryggja það. Allar aðrar atvinnugreinar, nema LIÚ, mæla mjög gegn gengisfellingum sem aðferð til að efla iðnað og atvinnu. LÍÚ: Segja bannið við sökkvun skipa í sjó algjört rugl! Bolli Runólfur Valgarðsson,for- maður Félags ungra jafnaðar- manna, skrifar útgerðina. LÍÚ stendur algerlega á sama um öll umhverfissjónarmið, sem sífellt skipa stærri sess á öllum sviðum í hinum vestræna heimi. íslendingar hafa mikilla hagsmuna að gæta í þessum málum og hafa látið mjög á sér bera á alþjóðlegum vett- vangi á sviði umhverfismála. Það skiptir verulegu máli að vera sjálfum sér samkvæmur í þeirri umræðu; að vera ekki að húðskamma aðra fyrir slæpingjahátt og vera svo engu betri sjálftr. Is- lendingar hafa mjög bar- ist gegn losun geisla- virks úrgangs í sjó og orðið mjög ágengt. íslendingar eru að- ilar að samkomulagi, sem m. a. bannar úreldingu LÍÚ: Hafa barist lengi fyrirþví að af- koma sjávarútvegsins verði bætt með gengisfellingu. skipa með sökkvun í sjó. Þær þjóðir, sem einnig eru aðilar að samkomulag- inu, leggja mikla áherslu á að staðið sé við ákvæði samn- ingsins því þær verða að lúta mjög ströngum skil- yrðum heima fyrir. Allir sjá að Islendingar geta ekki staðið áfram í fremstu víglínu í þeirri umræðu og vera svo sjálfir með flest allt niður um sig. LOKAÐ Skrifstofur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur lokaöar eftir hádegi í dag frá kl. 12.00 vegna jarðarfarar Helga E. Guðbrandssonar. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur KOPAVOGUR Svæðisstjórn málefna fatlaðra á Reykjanessvæði leitar eftir kaupum á hentugu húsnæði fyrir sambýli í Kópa- vogi. Um er að ræða einbýlis- eða raðhús, 150-220 m2 að stærð að meðtalinni bílgeymslu, helst í vesturbæn- um. Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, byggingaár og - efni, herbergjafjölda, brunabóta- og fasteignamat, af- hendingartíma og söluverð, sendist eignadeild fjármála- ráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir 14. janú- ar 1993. Auglýsing ráðuneytisins, dags. 18. desember s.l., sama efni, er hér með afturkölluð. Fjármálaráöuneytið, 30. desember 1992. um *-* mim Hafnargata 90, Keflavík Tilboð óskast í innréttingu á hæfingarstöð fyrir fatlaða að Hafnargötu 90, Keflavík. Stærð húsnæðisins er 270 m2. V'erktími ertil 1. maí 1993. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borgartúni 7, Reykjavík frá og með mánudeginum 4. janúar til og með fimmtudeginum 14. janúar gegn 10.000,- kr. skilatrygg- ingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Innkaupastofnunar ríkisins Borgartúni 7, þriðjudaginn 19. janúar 1993 kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI 7 - 105 REYKJAVÍK

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.