Alþýðublaðið - 28.01.1993, Síða 1
I
Fjárhagsáœtlun
Hafnaifjarðar
Boðið upp
ú heils-
dagsskóla
í haust
„Meðal nýjunga má
nefna að ákveðið hefur
verið að bjóða upp á heils-
dagsskóla í grunnskólum
bæjarins frá og með haust-
inu. Okkar keppikefli er að
efla og bæta þá þjónustu
sem íbúum bæjarins er
boðið upp á“, sagði Guð-
mundur Arni Stefánsson,
bæjarstjóri Hafnfirðinga,
um fjárhagsáætiun bæjar-
ins sem lögð var fram í vik-
unni.
í fjárhagsáætluninni er
gert ráð fyrir að heildarvelta
Hafnarfjarðarbæjar á þessu
ári verði um 3 milljarðar
króna. Til reksturs bæjarins
er áætlað að fari rúmlega 1,8
milljarðar króna eða um
61% af tekjum. Til fram-
kvæmda em áætlaðar yfir
900 milljónir króna.
Af einstökum stómm
fhunkvæmdum sagði Guð-
mundur Ámi, að 109 millj-
ónir króna væm ætlaðar til
að ljúka Setbergsskóla, tæp-
ar 150 milljónir fæm til nýja
tónlistarskólans og 66 millj-
ónir króna færa til nýna leik-
skólabygginga.
Annars settu atvinnumálin
mjög svip sinn á ræðu bæjar-
stjóra þegar hann gerði grein
fyrir fjárhagsáætlun Hafnar-
fjarðar en við birtum brot úr
ræðu hans á bls. 3.
A tímum stórfellds niðurskurðar íhfilbrigðiskeifinu er Landspítalinn að
KAIIPA TOLVUKERFI
FYRIR TU6IMILUONA
Nýtt tölvukerfi kostar að minnsta kosti 80 milljónir. Pétur Jónsson
jramkvæmdastjóri hjá Ríkisspítölum: „Kannski erþessi upplýsingabylgja
gerviþörf. Það er akademísk spurning. “
Uppá síðkastið hefur stað-
ið yfir allsherjar tölvuvæð-
ing ríkisspítalanna og skipt-
ir kostnaðurinn tugum
milljóna króna. Pétur Jóns-
son framkvæmdastjóri hjá
ríkisspítölum sagði í samtali
við Alþýðublaðið að þegar
hefði verið fjárfest fyrir um
40 milljónir og ráðgert væri
að kaupa tölvur fyrir að
minnsta kosti 30-40 milljón-
ir króna til viðbótar.
Pétur sagði að meðal annars
væri um að ræða vakta- og
launakerfi. Þá gerði nýja
tölvukerfíð starfsfólki kleift að
senda niðurstöður rannsókna
milli deilda og ef menn
gleymdu að stimpla sig inn
væri hægt að bæta úr því í
tölvunum. Hann sagði nauð-
synlegt að hafa viðamikið
vakta- og launakerfi þarsem
samningar opinberra starfs-
manna yrðu æ flóknari.
Aðspurður um hvort það
væri ekki bmðl á tímum stór-
fellds niðurskurðar í heil-
brigðiskerfinu að fjárfesta í
tölvukerfi fyrir tugi milljóna,
sagði Pétur: „Kannski er þessi
upplýsingabylgja gerviþörf.
Það er akademísk spuming."
Fjármálaráðherra hýrudregur sjúkraliða vegna aðgerða þeirra í desember:
Tyrknesk* réftqrfqr
• - segir Gunnar Gunnarsson starfsmaður Sjúkraliðafélagsins. Laun dregin af sjúkraliðum sem voru ífríi
„Þetta er ekkert annað en
þjófnaður og eignaupptaka,“
sagði Gunnar Gunnarsson
starfsmaður Sjúkraliðafé-
lagsins um þá ákvörðun Frið-
riks Sophussonar að draga
tæp 10% af launum sjúkra-
liða hinn 1. febrúar næstkom-
andi. Ákvörðun Friðriks
kemur í kjölfar kjaradóms
sem úrskurðaði að aðgerðir
sjúkraliða í desember hefðu
verið ólögmætar.
Gunnar sagði að um 600
sjúkraliðar hefðu tekið þátt í að-
gerðunum en gera mætti ráð
fyrir að þriðjungur þeirra hefði
verið í frii þegar aðgerðimar
stóðu yfir. Ekkert tillit væri tek-
ið til þess.
„Sönnunarbyrðinni er snúið
við,“ sagði Gunnar, „miðað við
það sem eðlilegt hefur talist: nú
þurfa sjúkraliðar að sækja rétt
sinn og sanna að þeir eigi rétt á
launum fyrir þessa tvo daga.
Þetta er tyrkneskt réttarfar."
Mikil reiði er meðal sjúkra-
liða vegna ákvörðunar Friðriks
enda almennt talið að sam-
komulag væri um að ekki yrðu
eftirmál af aðgerðum þeirra í
desember eftir að sættir tókust.
„Þessu var ekki bætandi á
ástandið á sjúkrahúsunum. Þar
var allt logandi fyrir,“ sagði
Gunnar. Hann sagði að sjúkra-
liðar myndu leita réttar síns
vegna ákvörðunar Friðriks Sop-
hussonar.
■BQIl ÖFLUGRI • FJÖLHÆFARI • ÓDÝRARI -en nokkru sinni fyrr