Alþýðublaðið - 28.01.1993, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 28. janúar 1993
3
Upphlaup Sturlunga
Taugaveiklun í kjölfar afhroðs í skoðanakönnun. Sturla Böðvarsson var settur hjá við upphaf
kjörtímabilsins. Minnir á sig fyrir vœntanleg uppskipti í ríkisstjórn
Sturla Böðvarsson þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins á Vesturlandi réðist
harkalega á Jóhönnu Sigurðardóttur fé-
lagsmálaraðherra í kjölfar fjárveitinga
úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Hann
sakaði hana um að sólunda opinberu fé
til að hygla pólitískum samherjum í
stjóm sveitarfélaga. Asakanir Sturlu
þóttu alvarlegar og þingmönnum Al-
þýðuflokksins gramdist mjög fyrir
ltönd félagsmálaráðherra.
Tilhæfulausar árásir
Tilefni árása Sturlu voru jöfnunar-
greiðslur til tekjulágra sveitarfélaga af
fjármunum sem sjóðurinn nýtti ekki í
fyrra. Á meðal þeirra sveitarfélaga sem
fengu greiðslur var Hafnarfjörður, þar
sem Alþýðuflokkurinn hefur hreinan
meirihluta í bæjarstjóm.
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins var
hinsvegar seinheppinn í árásum sínum;
hann leit nefnilega framhjá þeirri stað-
reynd að fleiri sveitarfélög fengu
greiðslur, þeirra á meðal Mosfellsbær,
sem lýtur stjóm hans eigin flokks. Ekki
nóg með það: Mosfellsbær sefn er með
lágar tekjur í samanburði við ýmis önn-
ur sveitarfélög fékk hlutfallslega hærra
framlag en Hafnarfjörður.
Einn elsti og reyndasti þingmaður
flokksins, Salome Þorkelsdóttir, sem
auk þess að vera forseti þingsins er
fyrrverandi bæjarfulltrúi Sjálfstæðis-
manna í Mosfellssveit, snupraði hins
vegar flokksbróðir sinn fyrir óábyrgan
Fréttaskýring: Hrafn Jökulsson
málflutnig í Alþýðublaðinu í
fyrradag. „Ég hef enga trú á að
félagsmálaráðherra hafi gert
þetta af flokkspólitískum ástæð-
um,“ sagði Salome. „Einsog Jó-
hanna hefur bent á, eru það ekki
bara sveitarfélög sem Alþýðu-
flokkurinn stjómar sem fá fram-
lag úr sjóðnum heldur einnig
sveitarfélög einsog Mosfells-
bær.“
Hótanir um úrsögn
Ymsum hefur þótt óeðlilegt
að sömu reglur gildi um öll
sveitarfélög varðandi jöfnunar-
greiðslur; meðal annars telja
margir að lítil sveitarfélög beri
skarðan hlut frá borði. Af þeim
sökum setti félagsmálaráðherra
á laggimar nefnd sem á að gera
tillögur um breyttar reglur.
Sturla Böðvarsson á sæti í
þeirri nefnd.
Eitt af ádeiluefnum Sturlu á hendur
Jóhönnu Sigurðardóttur var einmitt, að
ákvörðun hennar um útdeilingu fjárins
var tekin án samráðs við nefndina. í
viðtölum við fjölmiðla hefur komið
fram að Sturla Böðvarsson hefur af
þessu tilefni hótað að segja sig úr
nefndinni.
Gunnlaugur Stefánsson, alþingis-
Jóhanna Siguröardóttir félagsmálaráðherra
maður á einnig sæti í nefndinni, og f
viðtali við blaðið í gær kvað hann alveg
Ijóst, að verkefni nefndarinnar væri
einungis að móta nýjar reglur; það
hefði alls ekki verið í hennar verka-
hring að taka ákvörðun um útdeilingu
fjár frá sfðasta ári. „Mér kom því vem-
lega á óvart, að heyra kvartanir Sturlu í
fjölmiðlum, enda hefur hann ekki tekið
Sturla. Kveðinn í kútinn af Salome. Arni Mathiesen og Sigríður A. Þórðardóttir. Nýliðar á Alþingi cn fengu eigi að síður ábyrgðarstöður - en Sturla bar skarðan hlut frá borði.
| HEYRT, SÉf> & HLERAÐ |
„Svona eftir á að hyggja finnst mér nú að vafalaust
sé skynsamlegt fyrir menn að vera ekki alveg svona
lengi í staifi. “
- Jóhannes Nordal í viðtali við Morgunblaðið eftir
tilkynningu um að hann láti senn af störfum.
„ „ Við gerum okkur ekki leik að því að rukka látið
fólk en það er hugsanlegt að eitthvað hafi misfar-
ist.“
- Guömundur Ólafsson hjá
Pósti og síma
í viötali við DV um rukkun
sem stofnunin sendi manni
sem lést fyrir 11 árum.
„Því miður Bill, þér varð
á fmgurbrjótur í utanrík-
ismálum nokkrum sek-
úndum eftir að þú tókst
við embœtti. “
- Breska stórblaðiö The Inde-
pendent um þau ummæli
Bills Clintons í setningarræðu
sinni að Bandaríkin séu elsta
lýðræöisríki heims. Fingur-
brjótur Bills var sá
að gleyma að elsta þing heims
er á Islandi.
Vissir þú að í þjóðfélag-
inu er í gangi samsœri,
þaulskipulagt samsœri
beint gegn sjálfstœðri hugsun hins almenna borg-
- Lesendabréf í Velvakanda frá Sigurði Harðarsyni.
ara'
l>etta er símsvarinn hjá Slobodan Milosovic... Vinsamlega
komiö hinum innihaldslausu hótunum ykkar á framfæri eft-
ir að hljóðmerki heyrist...
vdlwe mcveotve
AMSweRihJ6AMatlÓECF
SLCfcCvWMILOÉÉdlC'"
FteASe LFAVÉ 'rfeUR
IDLf THPEATý AFlEP
THÉBfEp.
þetta upp í nefndinni. Mér
finnst það heldur ekki boða gott
í stjómarsamstarfinu að mæt-
ustu menn skuli með þessum
hætti beita hótunum opinber-
lega áður en málið hefur verið
rætt í þaula innan stjómarliðs-
ins.“
Sturla minnir á sig
Menn hafa leitt ýmsum get-
um að því, hvað haft vakað fyr-
ir Sturlu með árásunum á fé-
lagsmálaráðherra. Það vekur at-
hygli, að þær koma fram í kjöl-
far skoðanakönnunar, þar sem
Alþýðuflokkurinn hélt sínu en
Sjálfstæðisflokkurinn galt af-
hroð. Sú skoðun var sett fram
opinberlega af þekktum mark-
aðsráðgjöfum að skýringin á
fylgishmni Sjálfstæðismanna
væri meðal annars, að ráðherrar
flokksins hefðu ekki náð að
koma stefnu sinni skýrt til þjóðarinnar.
I leiðara DV tók Jónas Kristjánsson
dýpra í árinni og taldi að staða Sjálf-
stæðisflokksins væri ekki síst slæm
vegna þess hversu lélegir ráðherrar
flokksins væm.
Þessar vangaveltur og deilur á ráð-
herra Sjálfstæðisflokksins hafa ýtt und-
ir hugmyndir um uppstokkun í ráð-
herraliði stjómarinnar. En bæði Jón
Baldvin Hannibalsson og Davíð Odds-
son hafa oft og einatt gefið til kynna að
slíkrar uppstokkunnar væri að vænta á
kjörtímabilinu.
Sú skýring hefur því verið sett fram
á upphlaupi Sturlu, að hann sé að
minna á sig með tilliti til væntanlegrar
uppstokkunár í ráðherraliðinu. En
Sturla hefur farið varhluta af vegtyllum
innan Sjálfstæðisflokksins; hann er
fyrsti þingmaður Vestlendinga, er þar
að auki með mikla reynslu úr starfí
flokksins og af vettvangi sveitarstjóm-
armála og hefði því getað vænst þess
að fá ábyrgðarstöður í þinginu í sinn
hlut.
Það vakti hinsvegar eftirtekt, að
Sturla var ekki einu sinni gerður að for-
manni þingnefndar meðan aðrir þing-
menn, yngri og reynsluminni, hafa
fengið formennsku í mikilvægum
nefndum. Þar má nefna Áma M. Mat-
hiesen, sem var fonnaður samgöngu-
nefndar, og Sigríði Önnu Þórðardóttur,
sem veitir menntamálanefnd þingsins
forstöðu.
Sá munur var að vísu á þeim tveim-
ur og Sturlu, að þau fylgdu Davíð
Oddssyni að málum í erfíðu uppgjöri á
landsfundi, þar sem sitjandi formanni
var velt, en Sturla hefur ævinlega verið
talinn einna dyggastur í sveit Þorsteins
Pálssonar.
Margir telja því, að Sturla sé með
árásum sínum á Jóhönnu Sigurðardótt-
ur að minna á sig fyrir væntanlega upp-
stokkun í ríkisstjóm Davíðs Odds-
sonar.
ERLENDAR
FJÁRFESTINGAR
IÍSLENSKUM
SJÁVARÚTVEGI
Ráðstefna á vegum Félags ungra jafn-
aðarmanna í Reykjavík í samvinnu við
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur.
í dag - 28. janúar - kl. 17:30
Komhlöðuloftið við Bankastræti 2
í Reykjavík.
F ramsögumenn:
Einar Oddur Kristjánsson - framkvæmdastjóri
HJÁLMS á Flateyri
Logi Þormóðsson - framkvæmdastjóri TROS
í Keflavík
Pétur Bjarnason - framkvæmdastjóri
Fél. rækju- og hörpudiskframleiðenda
Pétur Reimarsson - framkvæmdastjóri
ÁRNESS í Þorlákshöfn
Fundarstjóri: Össur Skarphéðinsson,
form. þingflokks Alþýðuflokksins
RÁÐSTEFNAN ER ÖLLUM OPIN
JAFNAÐARMENN - FJÖLMENNUM!