Alþýðublaðið - 28.01.1993, Blaðsíða 4
Skreytingar við 'ó(í tcekifm.
Opið aíla daga tií kl- 22
STEFANSBLOM
SKIPHOLTI 50 B — SlMAR 610771 & 10771
MÞYÐUBMÐ19
Gœðaflísar
á góðu verði
I
m
Ekki látid fljóta -
heldur brwgðist við
✓
- sagði Guðmundur Arni Stefánsson, bœjarstjóri, um vandann í atvinnumálum
þegar fjárhagsáœtlun Hafnarfjarðar var lögð fram. Hér birtast kaflar úr ræðu
bœjarstjórans sem snúa að atvinnumálunum
„Eðlilega tekur sú fjárhagsáætlun
fyrir bæjarsjóð Hafnarfjarðar fyrir
árið 1993, sem hér er lögð fram, mið
af þeim aðstæðum sem nú eru í ís-
lensku þjóðfélagi. Samdráttur þjóð-
artekna með kreppu í atvinnulífí og
auknu atvinnuleysi, hlýtur eðli máls-
ins samkvæmt að sjást með einum
eða öðrum hætti í fjárhagsáætlun
sveitarfélags eins og Hafnarfjarðar.
í þessari fjárhagsáætlun er hins veg-
ar ekki látið fljóta í þeim farvegi sem
þróun mála hefur almennt verið í,
heldur er þvert á móti reynt eins og
- Fréttir í hnots1{urn
Átta s\ótarfá viður1{enningu
Menntamálaráðherra veitti á dögunum sérstakt viðurkenningarskjal til átta
skóla sem tóku þátt í norrænu verkefni til að finna nýjar leiðir í umhverfis-
fræðslu. Skólamir spanna hin ýmsu aldurssvið, allt frá leikskólanum í
Klettaborg upp í tvo framhaldsskóla, MR og Bændaskólann á Hvanneyri.
Auk áðurtalinna skóla voru 5 grunnskólar með í leiknum, Fossvogsskóli,
Árbæjarskóli, Æfingaskóli Kennaraháskólans, Laugargerðisskóli og Reyk-
holtsskóli: Fyrstu verðlaun runnu til þeirra í Reykholtsskóla og gefst skólan-
um kostur á að senda nemendur 10. bekkjar ásamt stjómendum verkefhisins
á námsstefnu í Bergen í vor. Laugagerðisskóli á Snæfellsnesi fékk önnur
verðlaun og fær að senda fimm nemendur og kennara til Bergen, og þriðju
verðlaun hlaut Bændaskólinn á Hvanneyri og senda sömuleiðis 5 nemendur
og kennara til Bergen.
Appetsín styður menninguna
Leikfélag Kópavogs og framleiðandi Egils appelsíns hafa gert með sér
samning um fjárhagsstuðning við uppfærslu LK á leikgerð Harðar Sigurð-
arsonar á Ottó nashymingi eftir samnefndri bamasögu eftir Ole Lund Kirk-
egaard, sem nú á að frumsýna í Kópavogi. ,,Þetta er kærkomið tækifæri til
að styðja við menningarstarf sem ætlað er að þjóna okkar yngri viðskipta-
vinum“, sagði Benedikt Hreinsson, markaðsstjóri Ölgerðar Egils Skalla-
gnmssonar við undirskrift samningsins.
Landfrœðingar rtcða dreifingu
byggðar
Félag landfræðinga gengst fyrir ráðstefnu um byggðamál í Norræna húsinu
5. febrúar næstkomandi. Rætt verður um ýmsar breytingar sem nú eru að
verða á dreifingu fslenskrar búsetu. Ráðstefnan hefst með ávarpi forsætis-
ráðherra, Davíðs Oddssonar. Síðan taka við einir þrettán fyrirlestrar um
margskonar byggðamál.
Bó1{sata í Morrama húsinu
Bókasafn Norræna hússins hefur verið opnað að nýju eftir ýmsar lagfæring-
ar. Bókakosturinn verður nú grisjaður nokkuð til að rýma fyrir nýrri bókum.
Um helgina verða eldri bækur seldar á vægu verði til þeirra sem áhuga hafa.
Er þama mikið um fræðirit hverskonar, en auk þess skáldrit og bamabækur
eftir norræna rithöfunda. Þá verða til sölu sýningarskrár og plaköt frá sýn-
ingum sem haldnar hafa verið í húsinu. Bóksalan er á laugardag og stendur
frákl. lOtil 18.
Aulfinn hiti * minna vatnsmagn
Ekki sitja allir landsrnenn við sama borð hvað varðar hagstæða orkureikn-
inga. í Skagablaðinu segir frá raunum manna á Skaganum og raunar á
orkuveitusvæði Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar. Margt er reynt til að
lækka orkureikninga, - og þá jafnvel gripið til róttækra og ólöglegra aðferða,
til dæmis að setja sterka segla á orkumælana. Sigmar Jónsson að Laugar-
braut 5 tók rétta ákvörðun, hann fékk menn frá Húsaeinangrun hf. á staðinn
og lét blása steinull ofan á loftplötuna. „Það hitnaði strax inni hjá okkur þrátt
fyrir aukið frost úti fyrir í kjölfarið og jafhframt hefur vatnsnotkunin minnk-
að frá því sem var“, sagði Sigmar í samtali við Skagablaðið. Segir Sigmar
að þessi aðgerð hafi þýtt 20% spamað í notkun heita vatnsins.
unnt er að bregðast við þessum
vanda með ýmsum hætti.
Það sem mestum áhyggjum veldur,
er sú mikla aukning atvinnuleysis sem
orðið hefur á landinu öllu og við hér í
Hafnarfirði höfum eðlilega ekki farið
varhluta af. Það er skoðun mín, að við
slíkar aðstæður sé nauðsynlegt fyrir
opinbera aðila eins og Hafnarfjarðarbæ
að reyna eftir því sem kostur er að flýta
eigin framkvæmdum, hvetja aðra aðila
í atvinnulífi til fjárfestinga og umsvifa
eins og kostur er, og fá þannig í sam-
einingu hjól atvinnulífsins á fullan
gang á nýjan Ieik. Að sjálfsögðu dugir
ffamtak bæjarfélagsins eitt og sér ekki í
þessum efnum. Framlag Hafharfjarðar-
bæjar í þessa vem er aðeins lóð á
vogarskálamar.
Misræmi í stefnu
opinberra aðila
Því er alls ekki að leyna, að sú niður-
skurðarstefna sem haldið er fast við í
ríkisgeiranum, þar sem hægt er á allri
uppbyggingu og þjónustu, uppsagnir
em tíðar, allt til að ná niður viðvarandi
fjárlagahalla, gengur að vemlegu leyti
á móti þeim viðhorfum, sem þessi fjár-
hagsáætlun byggir á. Þetta misræmi í
stefnu opinberra aðila er auðvitað
vandamál sem á verður að taka.
Staðreyndin er, að það er ekki ein-
göngu Hafnarfjarðarbær meðal sveitar-
félaga í landinu sem aðhyllast sömu
stefnu og hér hefur lýst; það er að reyna
að haida úti og draga ekki úr eðlilegri
þjónustu og skapa almennar aðstæður
Stúrhöfða 17. við (iullinbrú - simi 67 48 44
til sóknar á þeim samdráttartímum sem
nú em. Enda er það svo, að sveitarfé-
lögin og forsvarsmenn þeirra em í
slíkri nálægð við fjárhagslega og fé-
lagslega fylgikvilla stóraukins atvinnu-
leysis, að áhrifa þeirra gætir mun fyrr á
alhliða rekstri sveitarfélaga heldur en á
þróun mála í ríkisbúskapnum. Þannig
er því til að mynda háttað að félags-
þjónusta er á hendi sveitarfélaga og
hinar félagslegu og fjárhagslegu afleið-
ingar atvinnuleysisins koma beinustu
leið inn á borð stjómenda sveitarfé-
laga.“
Þjónusta áfram efld og styrkt
„Auk þess beina átaks í atvinnumál-
um tiltekinna hópa á síðasta ári var að
sjálfsögðu unnið áfram að alhliða
styrkingu og eflingu ýmis konar þjón-
ustuþátta í starfsemi bæjarfélagsins.
Hafist var handa við framkvæmdir,
sem að haldið verður áfram með á yfir-
standandi ári. Sumum þeirra er að ljúka
og starfsemi að hefjast í viðkomandi
mannvirkjum. í öðmm tilfellum verður
framkvæmdum fram haldið og tilætl-
uðum áföngum mannvirkjagerðar náð
á því ári sem nú er að nýhafið.
I fyrra tilfellinu má nefna til sögu
upphaf ffamkvæmda við leikskóla á
s.l. ári að Hlíðarbergi, sem er fjögurra
deilda leikskóli. Þar munu milli 130-
140 böm eiga sér skjól.
{ sfðara tilfellinu má nefha upphaf
framkvæmda við byggingu fyrir tón-
listarskóla og safnaðarheimili. Þar er
um viðamikla framkvæmd að ræða,
sem að standa sameiginlega Hafnar-
fjarðarbær annars vegar og sóknar-
nefnd Hafnarfjarðarkirkju hins vegar.
Fyrsta verkþætti þessa mannvirkis
verður lokið um n.k. áramót og verður
þá húsinu fulllokið að utan ásamt lóð,
en tilbúið undir tréverk að innan. Þá
munu hinar sameiginlegu framkvæmd-
ir aðila verða á enda runnar og hvor
byggingaraðili um sig sjá um innri gerð
síns eigin húsnæðis en skipting mann-
virkisins er á þann veg, að Hafnarfjarð-
arbær er með rétt 55,1% en söfnuður-
inn aftur á móti með um 44,9%.“
Starfsemi bæjarins aflvaki
í atvinnulíflnu
„Hafnarfjarðarbær er langstærsti
einstaki vinnuveitandinn í bænum.
Eins og hér verður nánar gerð grein
fyrir í kaflanum um mannahald, eru
þeir sem að koma nærri starfsemi bæj-
arins með beinum hætti sem launþegar
á þriðja þúsund talsins. Vissulega er
þar um að ræða stóran hóp fólks sem er
aðeins um skamma hríð á ári hverju við
störf á bæjarins vegum, svo sem ungt
fólk í sumarstörfum.
Engu að síður er það fyrirliggjandi
og ljóst að Hafnarfjarðarkaupstaður er
mjög veigaþungur og mikilvægur at-
vinnuveitandi hér. Það birtist enn og
aftur í þeirri staðreynd að útgreidd laun
bæjarsjóðs til launafólks, þ.e.a.s. laun
greidd starfsmönnum bæjarins, voru
um 765 milljónir króna á síðasta ári.
Þessu til viðbótar greiðir Hafnarfjarð-
arbær fjölmörgum seljendum þjónustu
fyrir þeirra vinnuframlag. Má þar
nefna verktaka fjölmarga, bygginga-
menn, iðnaðarmenn af ýmsum toga og
óhætt er að fullyrða að jafn umfangs-
mikil starfsemi og bærinn heldur úti er
mikill aflvaki í bæjarlífinu hvað at-
vinnumöguleika fólks snertir. Þessu til
viðbótar koma öflugar stofnanir bæjar-
ins, s.s. Rafveita og Hafnarsjóður."
HÁSKÓLI ÍSLANDS
ENDURMENNTUNARSTOFNUN
HEIMSPEKIDEILD
Kvöldnámskeið fyrir almenning
JÓNAS HALLGRÍMSSON: Líf, Ijóð og áhrif í ís-
lenskum bókmenntum.
Leiðbeinandi: Guðmundur Andri Thorsson, auk gesta-
fyrirlesara.
Fimmtudagskvöld, 18. febrúar-25. mars, kl. 20.00-22.00.
Þátttökugjald er kr. 6.800,-.
NJÁLA OG NÚTÍMINN
Leiðbeinandi: Jón Karl Helgason bókmenntafræðingur,
auk gestafyrirlesara.
Mánudagskvöld, 8. febrúar-29. mars, kl. 20.00-22.00.
Þátttökugjald er kr. 7.800,-.
DÝRGRIPIR ÚR SÝNIS3ÓK TÓNLISTARINNAR
Leiðbeinandi: Ingólfúr Guðbrandsson, söngstjóri og
forstjóri Heimsklúbbs Ingólfs.
Á mánudagskvöldum 8. fcbrúar-26. apríl, kl. 20.00-
22.00 (8 kvöld). Þátttökugjald er kr. 7.800,-.
JAPAN — LAND SÓLARUPPRÁSARINNAR:
Kynning á mannlffí og menningu.
Leiðbeinandi: Ragnar Baidursson, Asíufræðingur og rit-
höfúndur, auk gestafyrirlesara: Thor Vilhjálmsson, Jón
Ormur Halldórsson, Baldur Hjaltason o.fl.
Miðvikudagskvöld, 10. febrúar-31. mars, kl. 20.00-
22.00. Þátttökugjald er kr. 7.800,-.
HIN HVIKULA JÖRÐ: Jarðfræði íslands og lan-
drekskenningin.
Leiðbeinandi: Ari Trausti Guðmundsson, cand. mag. í
jarðfræði.
Þriðjudagskvöld, 16. febrúar-23. mars, kl. 20.00-22.00.
Þátttökugjald er kr. 6.800,-.
EGILS SAGA
haldið í samstarfí við Tómstundaskólann.
Leiðbeinandi: Jón Böðvarsson íslenskufiæðingur, ritstj.
Iðnsögu íslendinga.
Fimmtudagskvöld, 11. febrúar-29. apríl, kl. 20.00-22.00.
Þátttökugjald er kr. 8.800,-, auk kostnaðar við ferð á
söguslóðir.
ENDURREISNARTÍMINN Á ÍTALÍU 1400- 1600
— Listasaga, hugmyndasaga og samfélagsgerð.
Leiðbeinandi: Ólafur Gíslason, blaðamaður og listgagn-
rýnandi.
Miðvikudagskvöld, 17. febrúar-31. mars, kl. 20.00-
22.00. Þátttökugjald er kr. 7.800,-.
í ráði er að bjóða upp á viku listskoðunarferð til Flórens
um páskana, ef næg þátttaka fæst.
HEIMSPEKI TRÚARBRAGÐA:
Þekking, sannleikur, rök og trú.
Leiðbeinandi: Mikael M. Karlsson, dósent í heimspeki
við H.f.
Fimmtudagskvöld, 11. febrúar-1. apríl, kl. 20.00-22.00.
Þátttökugjald er kr. 8.200,-.
„NUOVO CINEMA SENZA PARADISO"
HIN NÝJA KVIKMYND ÁN PARADÍSAR.
Leiðbeinandi: Roberto Tartaglione, Studio di Italiano í
Róm. Kennt á ítölsku.
Þriðjudags- og fimmtudagskvöld, 23. febrúar-11. mars,
kl. 20.00-22.00. Verð kr. 7.200,-.
FRAMHALDSNÁMSKEIÐ
í ÍSLENSKU FYRIR ÚTLENDINGA
1. febrúar-7. maí, mánudaga, miðvikudaga og fimmtu-
daga, kl. 17.15-19.30. Verð kr. 35.000,-.
ÍTALSKA — 22. febrúar til 13. mars.
Leiðbeinandi: Roberto Tartaglione, sendikennari frá
Studio di ltaliano, Róm. Hámarksfjöldi þátttakenda er 20
manns.
Byrjendanámskeið:
Síðdegis, alls 45 kennslustundir.
Þátttökugjald er kr. 15.500,-.
Framhald II.
Mánudaga og miðvikudaga, kl. 20.00- 22.45 og laugar-
daga kl. 13.00-16.00, alls 27 kennslustundir. Þátttöku-
gjalderkr. 10.500.
Skráning i síma 694940 og nánri upplýsingar
ísimum 694923, 694924 og 694925.
i