Alþýðublaðið - 11.02.1993, Blaðsíða 1
sex milljónum
- segir Lárus Einarsson byggingameistari sem hefur kœrt
SH- verktaka fyrir svik í viðskiptum. Segir SH-verktaka hafa
stundað óeðlilega viðskiptahœtti við gerð ferjulœgis Herjólfs
„Hér var um að ræða hreinan þjófn-
að, þeir stálu frá mér 6 milljónum
króna,“ sagði Lárus Einarsson bygg-
ingameistari í Mosfellsbæ í samtali við
Alþýðublaðið í gær.
Hann segir að Vita- og hafnamála-
skrifstofan hafi í góðri trú afhent full-
trúa SH-verktaka 6 milljón króna ávís-
un vegna stálþils sem hann hafi alfarið
annast um að kaupa og setja upp í Þor-
lákshöfn við ferjulægi Herjólfs á síðasta
sumri.
Sjá viðtal og frétt á baksíðu:
„Hver skíthællinn upp af öðrum við
stjórnina“
✓
Utboðið áfatapakka einkennisklœddra ríkisstaifsmanna - sparnaður upp á 15
milljónir, segir Innkaupastofnun
Klædast biöfar
senn löqguiokkum?
- eigandi hönnunarinnar gœti hugsanlega hafið framleiðslu á löggujökkum
fyrir almennan markað
í lok vikunnar verða undirritað-
ir samningar um kaup á einkennis-
fatnaði fyrir lögreglumenn, sýslu-
menn, fangaverði, presta. Að sögn
Asgeirs Jóhannessonar, forstjóra
Innkaupastofnunar ríkisins, voru
kaup þessi síðast boðin út árið 1989
og námu kaup einkennisfata á
grundvelli þeirra tilboða 55 millj-
ónum króna á síðasta ári. Alþýðu-
blaðið hefur eftir góðum heimild-
um að eftirmál kunni að verða
vegna löggujakkanna, - hönnun
þeirra og vöruþróun tilheyri Max
hf., og ekki þyki það sjálfsagt mál
að nota vinnu þess fyrirtækis í út-
boðinu, eins og gert hefur verið.
Ásgeir segir að 18 tilboð hafi bor-
ist. Búið er að ákveða hvaða tilboðum
verður tekið að fengnum tillögum frá
hlutaðeigandi ríkisstofhunum og að
höfðu samráði við þær. Fatapakkinn
að þessu sinni kostar aðeins 40 millj-
ónir króna, og er gerður samningur til
þriggja ára með heimild til framleng-
ingar um eitt ár.
Þessi samningur lækkar árleg út-
gjöld ríkisins á sambærilegu magni
um 15 milljónir króna eða um 26%
frá fyrra ári“, segir Ásgeir. Hann seg-
ir ennfremur að stærsti hluti fram-
leiðslunnar eigi sér stað hér á landi.
Ein tegund einkennisfatnaðar er að
hluta til framleidd erlendis og er að
verðmæti 2,2 milljónir króna eða um
5,5% af heildarkaupunum. Lægsta
innlenda tilboðið í þá tegund var 4
milljónir króna og er verðmunur því
80%, segja þeir hjá Innkaupastofnun.
Lögreglubúningar, eða hluti þess
búnings, em langstærsti hluti samn-
ingsins og um sölu á þeim hefur verið
bitist hart. Þar kemur til innflutningur
Hexa hf. ffá Litháen, og mun nokkuð
ljóst að tilboði þess fyrirtækis verður
tekið að hluta, þ.e. á sumarúlpum lög-
reglumanna, en hinsvegar að Sólin í
Kópavogi fái að sauma kuldaúlpum-
ar.
Úlpur löggæslumanna em hannað-
ar og þróaðar af Max hf. og hafa ver-
ið framleiddar þar undanfarin ár. Sig-
mundur M. Andrésson, forstjóri,
sagðist ekki vilja segja neitt um út-
boðið að sinni. Hann viðurkenndi
hinsvegar aðspurður að ekkert væri
því til fyrirstöðu að hefja ffamleiðslu
á löggujökkum fyrir almennan mark-
að. Því gætu þjófar allt eins klæðst
löggujökkum í framtíðinni!
Guðlaugur Bergmann í Sólinni
sagði að samkvæmt útboðinu væri
honum uppálagt að sauma flíkur sem
væm nákvæmlega eins og þær sem
Max hefur þróað. Hann sagðist vel
geta skilið að þeir hjá Max væm
kannski ekkert yfir sig ánægðir með
það. Þetta væri hinsvegar ekki hans
mál, hann gæti framleitt hvað sem
væri.
Inn í fatakaupadæmið kemur enn
ein óvænt hlið, sú að lögreglumenn
hafa talið fatakaupin vera kjaramál.
Þeir skipta ekki unt búninga á hverju
ári, en hafa getað tekið annan fatnað
til persónulegra nota út á einkennis-
fataávísanir sínar til þessa.
Sjálfstœðismenn í Hafnaifirði
BullandS
ágreiningur
Jóhanns og Þorgils Otta
Prófkjörsslagur í uppsiglingu
Til hvassra orðaskipta koni millum tveggja bæj-
arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, Jó-
hanns Bergþórssonar og Þorgils Óttars Mathiesens,
á fundi bæjarstjórnar í fyrrakvöld.
I umræðum um uppbyggingu í miðbænum áréttaði
Jóhann þá skoðun sína að rétt væri að ráðast sem fyrst í
framkvæmdir. Hann gagnrýndi þá harðlega sem hafa
lagst gegn framkvæmdunum og talaði um þá sem „nið-
urrifsmenrí' sem stæðu úrbótum í atvinnumálum fyrir
þrifum.
Þorgils Óttar svaraði fyrir sig og sagði Jóhann „ómál-
efnalegan“ og líkti honum Guðmund Áma Stefánsson
bæjarstjóra í þeim efhum.
Heimildamaður Alþýðublaðsins úr röðum sjálfstæð-
ismanna í Hafnarfirði sagði að deila Jóhanns og Þorgils
Óttars væri undanfari prófkjörsbaráttu þeirra íyrir næstu
bæjarstjómarkosningar. Jóhann var í fyrsta sæti listans
1990.
í samtölum við Alþýðublaðið kváðust bæði Jóhann
og Þorgils ætla að gefa kost á sér aftur. Jóhann sagði að
afstaða hans í miðbæjarmálinu helgaðist fráleitt af því
að hann væri byrjaður í prófkjörsslag. Þorgils Óttar vildi
ekki útiloka að hann að myndi stefna á efsta sætið.
Þingvallavatn
Ránbleikjur éta 21
milljón hornsíla á
ári. Alls 50 tonn af
hornsílum í vatninu.
Fjöldi hornsfla í Þingvallavatni er
talinn vera um 85 milljónir. Þá er ein-
ungis miðað við þau sfli sem verða að
minnsta kosti eins árs, en ungsflin ó-
talin. Samanlögð þyngd hornsflanna í
vatninu er áætluð um 50 tonn. Líf
þeirra er hins vegar ekki dans á rós-
um; árlega bíður 21 milljón síla bana í
skoltum sísoltinna sílableikja, sem
stundum eru kallaðar ránbleikjur, en
þær eru eins konar stærri útgáfa af
Þingvaliamurtunni frægu. Þetta kem-
ur fram í grein í Þingvallabókinni,
sem kom út á síðasta ári, en höfundur
greinarinnar er Sigurður Snorrason,
líffræðingur, ásamt tveimur erlendum
fræðimönnum.
Aðferðimar sem þeir notuðu vom
einkar hugvitsamlegar. Veiðitilraunir
gerðu kleift að meta, hversu mikið af
sflableikju væri árlega framleitt í vatninu
og jafnframt vissu þeir, að homsfli væm
- einsog naíhið gefúr til kynna - uppi-
staðan í næringu sflableikjanna. Miðað
við að tilteknum hluta af orkuþörf bleikj-
anna væri fullnægt með því að éta hom-
sfli, og að 7 grömm af homsflum þyrfti
til að framleiða 1 gramm af bleikju, þá
reiknuðu vísindamennimir út, að árlega
ætu ránbleikjumar 24 tonn af homsflum.
En meðalþyngd homsflis er 1,14
grömm, þannig að alls veiddu bleikjum-
ar 21 milljón sfla á ári. Þeir áætluðu jafn-
framt að um helmingur fullorðnu sflanna
yrði ár hvert bleikjunum að bráð, þannig
að heildarfjöldi þeirra væri tvöfalt meiri,
eða 42 milljónir.
A grundvelli reynslu má hins vegar
ætla, að fullorðnu sflin séu aðeins helm-
ingur af öllum homsflunum sem ná eins
árs aldri, þannig að samanlagður fjöldi
homsfla sem lifir eins árs afmælið er um
85 milljón talsins!