Alþýðublaðið - 11.02.1993, Side 4

Alþýðublaðið - 11.02.1993, Side 4
Skreytingar við oíí tæíqfæri. Öpið a(ía laga til £(, 22 STEFANSBLOM SKIPHOLTI 50 B — SlMAH 610771 & 10771 MMBLMO Gœöaflísar á góðu verði Wm Stúrhöfða 17, viO (íullinhru - simi 67 4« 44 „Hver skíthællinn upp al öðrum við stjórnina" - segir Lárus Einarsson, byggingameistari, sem kœrði SH- verktaka - hann segir SH-verktaka hafa stundað óeðlilega viðskiptahœtti við gerð ferjulægis Herjólfs „Hér var um að ræða hreinan þjófnað, þeir stálu frá mér nærri 6 milljónum króna“, sagði Lárus Ein- arsson, byggingameistari í Mosfells- bæ, þegar Alþýðublaðið ræddi við hann í gær um viðskipti hans við SH- verktaka. Hann segir að Vita- og hafnamálaskrifstofan hafi í góðri trú afhent fulltrúa SH-verktaka 6 millj- ón króna ávísun vegna stálþils sem hann hafi alfarið annast um að kaupa og setja upp í Þorlákshöfn við ferjulægi Herjólfs á síðasta sumri. Lárus Einarsson segir að fyrirtæki hans hafi tekið að sér í janúar á síðasta ári ásamt SH-verktökum og Sveinbirni Runólfssyni, byggingameistara, að annast framkvæmdir við aðstöðu Her- jólfs í Þorlákshöfn og í Eyjum og var það verk unnið á síðasta sumri og því skilað á tilsettum tíma. Þannig æxlaðist til að fulltrúar SH- verktaka önnuðust um að mæta á hönn- unarfundum vegna verksins hjá fulltrú- um Vita- og hafnamálaskrifstofunnar. Upp kom sú staða að í skyndingu varð að fá stálþil til Þorlákshafnar þar sem ekki reyndist unnt að steypa hluta brú- arstæðisins vegna legu klapparinnar. Þetta tók Lárus Einarsson að sér og tókst að fá þilið með hraðafgreiðslu frá Lúxembúrg í gegnum Sindrastál. ,,Eg annaðist um allt þetta verk, flutninga, greiðslu til framleiðandans, og rak sjálfur niður stálþilið. Verkið kostaði 6 milljónir króna og reyndar gott betur“, segir Lárus. Ekki stóð á greiðslu frá Vita- og hafnamálum, hún var afhent fulltrúa SH-verktaka, sem menn litu á sem einskonar „sponsor" eða aðalverktaka fyrir verkið. Lárus segir hinsvegar að verulegar breytingar haft átt sér stað á verktímanum á hlutdeild hvers verk- taka fyrir sig, þannig hafi hann tekið að sér stálþilið sem ekki var inni í mynd- inni í upphafi verks. Þar átti að koma steypt þil sem SH-verktakar áttu að annast um. Vonlítið reyndist fyrir Lárus að inn- heimta útlagðan kosmað sinn fyrir stál- þilið. Hann kom að lokuðum dyrum hjá SH-verktökum, sem lagt höfðu ávísunina inn á sína bankareikninga. Lárus segir að SH-verktakar hafi jafn- vel nýtt sér innskatt Virðisaukaskatts- ins, sem honum bar þó að fá. „Það er alveg Ijóst að á þessum tíma Samningur kúabœnda og slátuiieyfishafa Útflutningur til að halda uppi verði hér á landi vissu þeir hjá SH- verktökum að þeir gátu um mitt ár í fyrra sýnt fram á góða voru að fara á hausinn. Hvemig þeir stöðu er flestum hulin ráðgáta og hljóta Vel veðsettur byggingakrani 11,4 millión króna veð - á tæki sem selst kannski á milljón Þessi bílkrani af Choles-gerð er ein af eignum þrotabús SH-verktaka. Hann stendur nú við nýbyggingu Hampiðjunnar hf. við Bíldshöfða í Reykjavík, verki sem SH-verktök- um auðnaðist ekki að Ijúka við. Þetta er að sjálfsögðu hið besta tæki. En varla ber það 5,7 milljón króna veð, - og það tvöfalt! Málið er það að Sjóvá-Almennar hf. eiga veð í tæki þessu, og það furðulega, einhver annar aðili, við vitum ekki hver, hefur einnig eignast veð í þessari sömu vinnuvél. Verktakar sem blaðið ræddi við í gær sögðu það af og frá að meta Choles- kranann á 5,7 milljónir eins og gert hcfur verið. Hann mundi ekki seljast á markaðnum í dag fyrir meira en eina milljón króna. A-mynd E. Ol. þar að koma til einhverjar sjónhverf- ingar endurskoðenda. Það var erfitt að verjast þessu, maður vissi ekki hvemig í pottinn var búið hjá fyrirtækinu. Þannig stendur á því að svo margir glata stórfé á þessu fyrirtæki, þar sem hver skíthællinn upp af öðrum var við stjómina". Lárus segist geta nefnt mörg dæmi um óvönduð vinnubrögð SH-verktaka. Til dæmis var ákveðið að setja upp á ferjulæginu svokallaðar Rússapulsur, eða stuðpúða til að taka við hnykknum þegar skipið leggst að. Þetta segir Lár- us að haíi ekki þýtt neinn kostnaðar- auka við verkið. Samt tókst SH-verk- tökum að kría út 600 þúsund krónur frá Vita- og hafnamálum til viðbótar við samninginn. Allt það fé settu SH-verk- takar inn á reikninga sína. „Þessi fjársvik SH-verktaka valda mér að sjálfsögðu miklum erfiðleikum, það er ekkert gamanmál að hafa verið hlunnfarinn eins og ég var í þessu til- felli. Eg veit að margir hafa ljóta sögu að segja af viðskiptum við þetta fyrirtæki. Jafnvel virtar stofnanir eins og Vega- gerð ríkisins greiddi 10% af verði væntanlegrar brúargerðar yfir Elliðaár, 6 milljónir, þegar við samning við þennan verktaka, sem menn áttu að vita að var að fara í gjaldþrot þegar sá samningur var gerður í október eða nóvember á síðasta ári“, sagði Lárus Einarsson. Láms sagði að hann hefði kært SH- verktaka fyrir héraðsdómi í Reykja- nesi. Hann sagði að hann væri nú einn af hundruðum aðila sem ætti kröfur á þrotabú SH-verktaka. „Enn er eftir að lýsa eftir kröfum í búið, og þá mun þeim ijölga sem eiga um sárt að binda. Það kæmi ekki á óvart að þetta yrði gjaldþrot upp á 500 milljónir króna“, sagði Láms að lokum. Lakara nautakjöti og ódýrara fleygt á haugana eða svo gott sem gefið úr landi -um 15% verð- hœkkun almennt á nautahakki frá síðasta ári „Það er aðalatriði málsins að þeir vilja selja þetta ódýra kjöt úr landi eða jafnvel fleygja því á haugana til að halda uppi háu verði hér innan- lands“, sagði Guðjón Sveinsson, deildarstjóri hjá Fjarðarkaupum, um samning Landssambands kúa- bænda og Landssamtaka sláturleyf- ishafa. Þar er gert ráð fyrir útflutningi á 350 tonnum af nautakjöti auk þess sem ákveðnu kjöti í lakari gæðaflokkum verði eytt. Þar er um að ræða m.a. kýr- kjöt sem og svokallað vinnslukjöt. Það hefur m.a. verið notað í nautahakk. Guðjón segir að meðalverð á nauta- hakki á síðasta ári hafi verið um 660 kr. og hafi undir lok ársins farið undir 500 kr. á tilboðsverði en það sé nú almennt komið upp í 770 kr. kg sem er 15% meðaltalshækkun frá síðasta ári. Guðmundur Lámsson, formaður Landssambands kúabænda, segir að þessi útflutningur á nautakjöti sé fyrst og fremst til kominn vegna 5% sam- dráttar í mjólkurframleiðslu sem leiði til niðurskurðar sem nemi um 270 tonnum. Hann telur ekki óeðlilegt að tekið sé verðjöfnunargjald til að standa undir þeim útflutningi. Heimildarmenn Alþýðublaðsins telja að umræddur útflutningur sé nán- ast á gjafverði eða um 20 kr. á kílói, sem standi ekki einu sinni undir flutn- ingskostnaði. Þegar sé farið að safna birgðum í frystigeymslur, ódým kjöti sem fara á til útflutnings. Til að standa undir þeim útflutningi er tekið 5% verðjöfnunargjald af öllu nautgripainn- leggi til sláturleyfishafa auk hluta sér- staks fóðurgjalds. í umræddum samningi sláturleyfis- hafa og kúabænda segir m.a: „Slátur- leyfishafar vinna sameiginlega að því að draga úr og samræma afslætti í heildsölu.“ Guðmundur Lámsson telur að hér sé ekki um óeðlileg samráð að ræða þar sem um opinbera verðlagn- ingu sé að ræða auk þess sem afslættir hafi ekki skilað sér í verði til neytenda. Þessu þvemeitar Guðjón Sveinsson og bendir máli sínu til stuðnings á verð- hækkun á nautakjöti almennt upp á síð- kastið. Það er samt ljóst að bændur og slát- urleyfíshöfum finnst betra að henda kjöti eða svo gott sem gefa það til út- landa frckar en láta íslenska neytendur njóta góðs af lágu vöruverði. Guðjón Sveinsson segir að þegar megi merkja samdrátt í sölu nautakjöts eftir að það hækkaði og fólk leiti meira í önnur og ódýrari matvæli. Störf tvíhöfðanefndarinnar Berqmál á skoð- unum sægreifanna - og gjörsamlega úr tengslum við þjóðina - eforðrómur um að hún leggi til að settur verði kvóti á smábátaútgerð reynist sannur, segir í ályktun Smábátafélagsins Reykjanes Smábátafélagiö Reykjanes skor- ar á Tvíhofðancfndina „að hún leggi eindregið til að krókaleyfi smábáta og tvöföldun línuveiða verði varanlega fest í sessi...“ Það gerir félagið í ljósi þess að því hafa borist óstaðfestar fréttir um að nefndin ætli að leggja það til að kvótasetja eigi alla krókaleyfisbáta og jafnframt því að afnema tvö- földun línuveiða sem gilt hefur í fjóra mánuði á ári. Þótt tvíhöfðanefndin svokallaða, sem vinnur að endurskoðun fisk- veiðistefnunnar fyrir ríkisstjómina, hafi enn sem komið er ekkert látið frá sér fara, er þegar farið að kvisast út hvaða tillögur hún er að vinna með. Þá fer smábátafélagið fram á leiðrétt- ingu til handa 6-10 tonna báta en þeir hafi sætt skerðingu á kvóta umfram önnur skip. Þá segir í ályktun frá félaginu um málið: „Ef satt er, lýsir félagið furðu sinni á þessum orðrómi og telur það sýna berlega hversu þeir sem að end- urskipulagningu sjávarútvegsins star- fa eru gjörsamlega úr tengslum við þjóðina og em tillögur þeirra nánast bergmál á skoðunum sægreifanna sem hafa sankað að sér kvóta sem þeir síðan geta ekki klárað, en braska með í óþökk þjóðarinnar og í nefnd- inni sitja nokkrir fulltrúar stórútgerð- ar á íslandi og eiga að gera tillögur um það hvort tilluútgerð lifir eða deyr.“ Þá bendir Smábátafélagið Reykja- nes á samþykkt Ríó- ráðstefnunnar um skyldur ríkja gagnvart smábáta- veiðum og rétt íbúa til að stunda hefð- bundna lifnaðarhætti. Jafnframt bendir félagið á að 32 bæjar- og sveit- arstjómir, fiskiþing '92, verkalýðsfé- lög og önnur hagsmunafélög hafi krafist þess að krókaleyfi smábáta og tvöföldun línuveiða verði varanlega fest í sessi.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.