Alþýðublaðið - 18.02.1993, Page 2
Fimmtudagur 18. febrúar 1993
H ÞYIIIBUBllt
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Siguröur Tómas Björgvinsson
Fréttastjóri: Hrafn Jökulsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Hermóöur Sigurösson
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverö kr. 1.200 á mánuði. Verö í lausasölu kr. 90
Nauðganir sem vopn í stríði
I gær efndu konur um gervalla Evrópu til mótmæla gegn nauðgunum
og ofsóknum á hendur konum í stríðinu í fyrrum Júgóslavíu. Rann-
sóknamefnd Evrópubandalagsins hefur afhjúpað hroðalegar stað-
reyndir um kerfisbundna kynferðislega misnotkun í Bosníu-
Herzegóvinu. Nauðganimar eru þannig ekki fylgifiskur stríðsins;
heldur beinlínis einn þáttur þess.
Nefnd EB komst að þeirri niðurstöðu að líklega hefði um 20.000 kon-
um verið nauðgað. Þá er sagt í skýrslu nefndarinnar að sérstakar
„nauðgunarbúðir“ séu reknar víða í Bosníu. Þar er konum nauðgað
daglega þangað til þær verða vanfærar. Þær em síðan hafðar í haldi uns
of seint er að eyða fóstrinu.
Serbar bera höfuðábyrgð á stríðinu í lýðveldum íýmim Júgóslavíu og
þeir em sekir um verstu stríðsglæpina. Hinsvegar em hvorki Króatar
né múslímar saklausir af voðaverkum. Það eru engar hetjur í stríðinu á
Balkanskaga.
Engar líkur em á friði í fyrrum Júgóslavíu á næstunni. Það er ekki til
nokkur lausn sem allir aðilar geta sætt sig við. Allt bendir til að Króat-
ar ætli að hefja stórfelldan hemað á hendur Serbum í Krajnahéraði í
Króatíu. Árásir Króata síðustu vikur, í trássi við alla friðarsamninga,
em þeim til vansa. Það verður að setja þeim stólinn fyrir dymar, ella er
hætta á að allsherjarstríð hefjist í fyrmrn Júgóslavíu.
Nú eru tíu mánuðir síðan helför Bosníu hófst. Um 200.000 manns,
langflestir óbreyttir borgarar, liggja í valnum. Flóttamenn em á þriðju
milljón - í landi þarsem íbúafjöldinn var innan við hálfa fímmtu millj-
ón. Serbar hafa haldið mörg hundmð þúsund múslímum í herkví frá
stríðsbyrjun.
Stríðið í Bosníu-Herzegóvinu er smánarblettur á Evrópu, og sýnir
hversu þunnur hjúpur siðmenningarinnar er. Nauðganimar em sví-
virðilegur stríðsglæpur og mótmælum evrópskra kvenna verður að
fylgja eftir. Það verður að senda Serbum skýr skilaboð. Þeim á að út-
hýsa úr öllu félagi við umheiminn.
Frjálsari önglaveiðar
Skynsamlega rekin smábátaútgerð er ein traustasta stoðin undir hin-
um dreifðu sjávarbyggðum á íslandi. Síðustu daga hafa birst fregnir af
því að tvíhöfða nefndin svokallaða, sem á að móta tillögur að nýrri
fiskveiðistefnu, muni leggja til að hert verði að trilluútgerð. Þetta hef-
ur eðlilega valdið ólgu á meðal þeirra, sem eiga afkomu sína undir
krókaveiði.
Pað er hins vegar nauðsynlegt að árétta það, að innan stjómarliðsins
hafa engar ákvarðanir verið teknar um þetta. Málið er rétt að komast á
umræðustig í þingflokkunum. Formenn nefndarinnar hafa sömuleiðis
ítrekað, að þær hugmyndir, sem hafa verið í umfjöllun fjölmiðla, em
aðeins drög, og nefndin á eftir að taka lokaákvörðun.
Pað má hins vegar minna á, að á flokksþingi Alþýðuflokksins síðasta
sumar var ítarlega rætt um sjávarútvegsmál, og mikil skoðanaskipti
áttu sér stað um smábátaútgerð. Niðurstaða þingsins var dregin saman
í eftirfarandi setningum:
„Sérstaklega þarf að bæta hlut smábátaútgerðar í fiskveiðunum, svo
kostir hennar fái að njóta sín. Því er nauðsynlegt að gera samanburð á
þjóðhagslegri hagkvæmni önglaveiða og annarra veiða, þar sem með-
al annars erlendur tilkostnaður er metinn. Á gmndvelli þess mats verði
svo tekin ákvörðun um hversu langt skuli ganga í að gera önglaveiðar
frjálsari.“
URKLIPPUSAFNID
Garri spáir í borgarspilin
Garri Tímans spáir miklum
„skrautsýningum“ í borgarstjómar-
kosningunum á næsta ári og ekki
færri en átta framboðum. Garri spáir
því ennfremur að til klofnings komi á
einum bæ, og færir þessi rök meðal
annars að því:
„Þetta má meðal annars ráða af yf-
irlýsingum þess fólks, sem skipaði
efstu sætin hjá framboði Nýs vett-
vangs fyrir síðustu kosningar. I við-
tali við Tímann í gær lýsa þær báðar,
Olína Þorvarðardóttir og Ragnheiður
Davíðsdóttir úr Nýjum vettvangi, því
yfir að hreinsanir á vinstri-krötum
útúr Alþýðuflokknum muni efla þá
viðleitni þessara krata til að bjóða á
ný fram lista undir merkjum Nýs
vettvangs. Nýr vettvangur er sem
kunnugt er samkrull fólks úr Alþýðu-
flokki og Alþýðubandalagi, en móð-
urflokkamir virðast fyrir þessar kosn-
ingar báðir ætla að bjóða frant í eigin
nafni. Þannig mun ástæða hreinsana í
Alþýðuflokki meðal annars vera sú
að þannig megi auðvelda ómengað
Alþýðuflokksframboð. Fastlega
verður að gera ráð fyrir að Alþýðu-
bandalagið bjóði fram í eigin nafni
nú einsog síðast, þó einhver hluti
flokksmanna muni áfram fylkja sér
undir merki Nýs vettvangs. Þannig
má búast við þremur framboðum frá
A-flokkunum: Alþýðuflokksfram-
boði, Alþýðubandalagsframboði og
svo klofningsframboði úr báðum
þessum flokkum undir merki Nýs
vettvangs.“
Átta framboð?
Garri veltir líka upp þeim mögu-
leika að sjálfstæðismenn gangi til
kosninga í tvennu lagi; með því að
margir búast við að Albert Guð-
mundsson hasli sér völl á nýjan leik í
pólitíkinni. Þá segir hann að af
göntlu flokkunum sé það „aðeins
Framsókn sem virðist korna óskipt til
leiks á næsta ári“.
Garri reiknar einnig með þátttöku
Kvennó og græningja í kosningunum
og þarmeð er heildartala framboða
komin upp í átta.
I lokin gerist félagi Garri svo eink-
ar spámannlegur: „Albertsmenn
munu sjá til þess að allt óánægjufylgi
Sjálfstæðisflokksins hafi valkost sem
það getur unað við. Alþýðuflokkur-
inn - eftir sína hundahreinsun - er
vart greinanlegur frá Sjálfstæðis-
flokki og mun gjalda samstarfsins
við hann.
Það er því fyllsta ástæða til að
hlakka til kosninganna á næsta ári,
því þá verða vatnaskil í borgarstjóm-
armálum."
Hreinsanir í DV
í DV í gær er leitað álits þeirra
Ragnheiðar Davíðsdóttur og Þor-
Afogfrá
„Nei, ég tel
þaö af og frá
að einhverjar
hreinsanir
eigi sér síað í
Alþýðu-
flokkniuB.
Hitt er annað
aö í Alþýðu-
flokknuffi er
fólfe sem er
ósátt við Njj-
Þortðkur Heisason
an wttvsno «<*»■-* - **
nokfenuni ot,
tel þœr haía
I byvjaö
\ Virottrekstn
I mtaum v*
Ekki
tíxfœr f mMsr skrxutsyrúngar
í hxasbobsmShim iytir taesSa
bo«gars46nudaMaínður í Reyfóa
vacÓÖa*rfyriradíramboó*ii*tar
vcrfti flcrri en od&ni tírœi fyrr og
nozmnjptr fsocta vwot rq’a n\at3cr
Þetia má ou rífta af y&rtýsing-
um þess fúðu, sxsn fjpfpaÁj cfstu
œtm hji fmxásoAi Sýs vettvanjgs
fylir X&KJStu { VÍÖtaíl VÍA
Tfaaa t tmt tfca þw Mlar Óím»
tXKvaxtaráMr og Ki)<nhtVi«r
iMMttir úr lyjjuœ
jnsyftr aft hmnsanír S vbutritknK-
um úí úr AlþýSufloUauici
Sxfi&Ntk mmii rtU [v. vw'.U’iíni
Nuan fcnt> til aft btfði í n# fcam
mr*
mfrnMMot
c« momsniOSm-
A n,.-XI-JJ-.f.-, n-fcu-A Curt
/UBv®«)WCSmtínW«. rnucp
verdur tb $tr* rib fyrix ad AJþýöo
bfóöí fmn í eiátn nafnt
nú dn* og ííöast. þö eánhwer hhrfj
ttnðír Nýn
raá buw.1 vfó \ssvtxmr fastáx&um
*-* a r*. t *. ..-.. »«iL.ii-m . rt _«„» ....
M rupyOJujOKKS*
_ r a .. ««
(aommgsmraeoot ur
Kihssm íktóasffl layBr
og Óðteai^r 5jáíístacötvmsms cm
unnberfór ura aö K»hi mm>|
tffmfa $ér wS f bnrjmtjMnm,
«ida befur Afctrl stálte gefiö {
gicyfi aö haan jctS sér að jjaa slðta
hinri i isknskn pótítík í fnxotfr
mni. Spvcmkt^n tx ab íkstra ttóml
aöems um fced bvort Atbcrt býdttr
fmn uncSr merfóum Sjðfstsiib-
ðofóss, Jms- PP hvwt um
s£á&&*&tut Bst» vvrdur ab rae&a.
óvínwd rfldss^ónún og innbyrói*
í umdurfyTuli h*>rgaifuHtritít Sjátf-
tte&wfiokks h*h rnm tfl þm aö
ASmtÍBás&totik&mögtáda
íainí góóum irmgrí i borgxr-
miídrav tóofrtmí* i þcim raöum.
Mh g&tu bvs. wdíó iíta fesm-
hob tem berAuat um iwctbí 15 i
horgentjótxu eða nkok^&
iwafflw ryrur nvcr tvo latu i ncerg-
»Oj6rmtmL «cm þó vir&st
acÖa a& vct&a iamff^eríríat vx>
s borgarsöómErkmniiigar. er
ebki drtvöróungu ab
vtröí fieiri to nokkru sinni fwr,
hddur bcnák aM tfi aft awtfiur
aa-tu oriift njcht « iixtr htfur
þelte. ÓviœaeWIr
thAbri.. {
vmtktgt bí nrAvúJitjin sjáífeíaeá-
inmMMitm, ihA þfM tem &od~
sö&iowntfyrías&mfkikkxintí
bt/rginni er iiru&io tS jtrucaa. AÍ*
berttmeon munu stíi tii besa að a£&
láks Helgasonar á ásökunum Ólínu
Þorvarðardóttur um „hreinsanir í
Alþýðuflokknum".
Ragnheiður Davíðsdóttir er afar
stóryrt, og segir það „kjaftæði" í Jóni
Baldvin Hannibalssvni að Alþýðu-
flokkurinn „innihaldi breiðan hóp
fólks með ólíkar skoðanir". Hún seg-
ir að „hið besta fólk í flokknum hefur
látið berja sig til hlýðni.“
Afleiðingamar eru þær, segir
Ragnheiður, að margt fólk hefur
hrakist úr flokknum og á ekkert fast
land í pólitík. Þetta fólk lítur nú von-
araugum til Nýs vettvangs, segir
Ragnheiður.
Þorlákur Helgason kveður það „af
og frá að einhverjar hreinsanir eigi
sér stað í Alþýðuflokknum. Hitt er
annað að í Alþýðuflokknum er fólk
sem er ósátt við Nýjan vettvang og
það fylkir sér eitthvað sarnan í kosn-
ingum. Eg get ómögulega kallað það
hreinsanir þótt uppi séu átök innan
stjórnmálaflokka. Ég þekki ekki þann
stjórnmálaflokk þarsem ekki eru ein-
hver átök um menn í stjómir og ráð
án þess að menn kalli það hreinsan-
ir.“
/o •
Atburðir dagsins
1478 Georg, hertoga af Clarence, er drekkt í ölámu í Tower
of London.
1546 Marteinn Luther, mestur siðbótarmaður allra tíma,
deyr; 63 ára að aldri í fæðingarbæ sínum, Eisleben í Þýska-
landi. 22 ára að aldri varð elding honum næstum að bana, og
hann gekk í klaustur. Árið 1511 varð hann prófessor í
Wittenberg. Hann lenti í deilum við Páfagarð vegna skoðana
sinna og var bannfærður; Friðrik III af Saxlandi neitaði að
senda hann til Rómar þarsem átti að taka hann af lífi. Siðbót
Luthers fólst meðal annars í því að leggja niður klaustur;
hann leyfði prestum að kvænast og afnam skriftir. Hann
færði alþýðunni biblíuna; og lifði þá tíma að sjá næstum ger-
valla Norður- Evrópu segja skilið við
Vatíkanið.
1564 Michelangelo, einn höfuðsnillingur
endurreisnarinnar, deyr.
1855 Nikulás I Rússakeisari deyr.
1876 Skeytasendingar hefjast millum
Bretlands og Nýja- Sjálands.
1930 Níunda reikistjaman kemur í leitim-
ar; Plútó, köld, dimm og lífvana.
1948 Fianna Fail, flokkur Eamon de Val-
era, tapar kosningunum á Irlandi.
1967 Faðir atómsprengjunnar, Róbert
Oppenheimur, deyr.
1990 Mótmælendur krefjast afsagnar Ion
Ilescu, forseta Rúmeníu, og Petre Roman
forsætisráðherra.
Afmœlisbörn dagsins
María Tudor 1517: ensk drottning, kölluð „Blóð-María“
vegna ofsókna hennar á hendur mótmælendum.
Niccolo Paganini 1784: ítalskur tónsmiður sem hafði um-
talsverð áhrif á Franz Liszt og Róbert Schumann.
Milos Forman 1932: tékkneskur kvikmyndaleikstjóri,
kunnastur fyrir Gaukshreiðrið, þarsem Jack Nicholson fór á
kostum.
John Travolta 1954: bandarískur leikari sem sló í gegn í
myndunum Saturday Night Fever og Grease; sfðan hefur sól
hans lækkað mjög.
Yoko Ono 1933: japönsk fjöllistakona, seinni eiginkona
John Lennon.
1991 Bandarísku herskipin Tripoli og
Princeton verða fyrir sprengjum í
Persaflóastríðinu.