Alþýðublaðið - 19.03.1993, Blaðsíða 2
0?Ö4tccdaycct 19. vnan& ‘93
H WÐIIMIIIIH
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Siguröur Tómas Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Hermóöur Sigurðsson
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverö kr. 1.200 á mánuöf. Verö i lausasölu kr. 90
Atburðir dagsins
721 fkr. Babýlóníumenn gera fyrstu þekktu skrásetninguna á sól-
myrkva.
1791 Frönskumælandi íbúum Kanada veitt jafnrétti á við hina
enskumælandi.
1920 Bandaríska öldungadeildin kýs að ganga ekki í þjóðabanda-
lagið.
1930 Arthur Balfour, fyrrum forsætisráðherra Breta (1902-6) deyr.
1931 Meltingameðalið Alka - Seltzer er sett á markað í Bandaríkj-
unum.
1976 Margrét prinsessa, systir Elfsabetar Englandsdrottningar, skil-
ur við eiginmann sinn Snowdon lávarð eftir 15 ára hjónaband.
Afmœlisdagar
Dr. David Livingstone, 1813: Skoskur trúboði og landkönnuður
og fyrsti hvíti maðurinn sem uppgötvaði Viktoríufossa í Zambíu -
Zimbabwe
Wyatt Earp, 1848: Bandarískur löggæslumaður. Kom á röð og
reglu í bænum Legsteini í Arizona.
Adolf Eichmann, 1906: Ofursti í SS sveitum Hitlers og einn af höf-
undum „Lokalausnar á Gyðingavandamálinu."
Ursula Andress, 1936: Svissnesk leikkona.
Verndun villtra dýra
✓
Islendingar hafa að mörgu leyti verið eftirbátar annarra þjóða hvað
varðar löggjöf um vemd náttúninnar og dýralífs. Veiðimannahefðin er
rík á meðal þjóðarinnar, og fram á hin síðari ár hefur mönnum þótt lítil
þörf á að setja reglur um veiðar villtra dýra á grundvelli upplýsinga um
stofnstærð þeirra. Lög, sem taka til veiða og vemdunar dýra hafa til
þessa einkennst af nokkm virðingarleysi gagnvart tilverurétti sumra teg-
unda, og miðað við eyðingu þeirra og jafhvel útrýmingu, ef frá em tald-
ir selir og hreindýr.
Eigi að síður hafa íslendingar talið sig í orði kveðnu vera vemdarsinna.
Þess sjást þó ekki mikil merki í ríkjandi löggjöf þjóðarinnar. Þannig er
athyglisvert, að íslendingar, sem búa við fjölbreyttara fuglalíf en flestar
aðrar þjóðir, og em stoltir af því, hafa ekki tekið upp aðild að Alþjóða-
fuglavemdarráðinu til þessa. Sömuleiðis em lagaákvæði, sem varða
fdðun fágætra tegunda, alls ekki nógu sterk.
Núverandi umhverfisráðherra hefur góðu heilli beitt sér skörulega fyr-
ir bómm á lögum sém varða umhverfisvemd, og á þeim skamma tíma
sem Eiður Guðnason hefur gegnt því embætti hefur hann haft fmm-
kvæði að fjölmörgum nýjum lögum, sem renna styrkari stoðum undir
vemdun náttúm og dýralífs á íslandi. LFm þessar mundir hefur Alþingi
til meðferðar fmmvarp frá honum um vemdun og veiðar villtra dýra,
sem jafnt veiðimenn sem vemdarsinnar hljóta að taka opnum örmum.
s
I fmmvarpi umhverfísráðherra er sú jákvæða gmndvallarregla mótuð,
að næstum öll dýr skuli njóta vemdar. Hinsvegar séu veiðar heimilar, ef
viðkomandi stofn er talinn þola veiðar, eða tii þess að koma í veg fyrir
skaða af völdum hans. Með þessu er hagsmuna allra aðila gætt: Veiði-
mönnum er heimilað að nytja stofna, upp að því marki sem tegundin
þolir. Viðkoma stofnsins verður að vera nægileg til að vega upp á móti
veiðunum. Um þetta hlýtur að nást góð sátt, því enginn veiðimaður með
snefil af sjálfsvirðingu getur ætlast til þess að slakað sé á heimildum til
veiða á stofnum sem eru í hættu.
Mál af þessu tagi em ævinlega viðkvæm. Þessvegna er það sérstakt
fagnaðarefni, að ráðherrann hefur tekið tillit til ábendinga forystumanna
skotmanna í þeim mæli, að þeir hafa lýst ánægju með meginatriði fmm-
varpsins. Það er að vonum, enda hefur það sem betur fer verið aðall ís-
lenskra veiðimanna að fara með nærgætni að viðkvæmum stofnum, og
ólíkt því sem gerist víða erlendis, þá heyra ólögmætar veiðar á friðuðum
tegundum nánast til undantekninga hér á landi.
Það atriði, sem hefur verið umdeildast í fmmvarpinu varðar útgáfu
veiðikorta, en þar er lagt til, að skotmenn þurfí árlega að afla sér veiði-
leyfís, og án þess mega þeir ekki stunda veiðar. Á leyfishafa hvílir jafn-
framt sú kvöð, að áður en hann fær árlega endumýjun á leyfinu, þarf
hann að skila inn skýrslu um veiðamar.
Veiðikort fyrir skotmenn em mjög til bóta. Með þeim gefst tækifæri til
að meta sókn í stofnana, en íslendingar hafa til þessa verið eftirbátar
annarra þjóða hvað varðar eftirlit og söfnun upplýsinga um veiðar villtra
dýra. Rjúpan er lýsandi dæmi; hún hefur áratugum saman verið tilefni
deilna um áhrif veiða á stofninn, en upplýsingar um árlega rjúpnaveiði
og fjölda veiðimanna hafa verið svo takmarkaðar, að engin leið hefur
verið að meta þau. Það má jafnframt vekja athygli á því, að flestar þjóð-
ir hafa svipað kerfi nú er lagt til að Islendingar taki upp. Ein mesta
veiðiþjóð í nágrenni Islands, Grænlendingar, áforma til dæmist að taka
upp veiðileyfi með mjög strangri skýrslugjöf veiðimanna.
Tillögur umhverfisráðherra er þörf nýbreytni, sem styrkir mjög vemd
villtra dýra, án þess að athafnafrelsi veiðimanna sé takmarkað umfram
skynsamleg mörk. Með því er stigið stórt spor til bættrar umgengni við
lífríki, sem er að mörgu leyti veikburða, og þarf að hafa stuðning af
skynsamlegri vemdarstefnu hins opinbera.
*&<ictaanctaacci 20.
Atburðir dagsins
1413 Hinrik IV. Englandskonungur deyr.
1653 Oliver Cromwell, hæstráðandi Englands leysir upp þingið.
1792 Franska þingið samþykkir fallöxina sem aftökutól byltingar-
innar
1793 Her konungssinnaðra bænda sigrar heri lýðræðisstjómarinnar
í Vendée héraði í Frakklandi.
1934 Ratsjá er reynd í fyrsta skipti í höfninni í Kiel í Þýskalandi.
1969 Bítillinn Jón Lennon giftist Jókó Ónó.
1974 Skotið á Önnu prinsessu, dóttur Englandsdrottningar í tilraun
til að ræna henni á götu í London.
1815 Napóleon Bonaparte ríður inn í Parísarborg eftir árs útlegð á
eynni Elbu. fjórum mínútum.
1990 Imelda Marcos, eiginkona fyrrum einræðisherra á Filippseyj-
um, er leidd fyrir rétt í New York fyrir svik.
\
Afmælisdagar
Ovid, 43 f.kr.: Rómverskt skáld, best þekktur fyrir rit sitt Ham-
skiptin.
Sir Isaac Newton, 1727: Enskur vísindamaður, uppgötvaði þyngd-
arlögmálið.
Henrik Ibsen, 1823: Norskt leikskáld.
Beniamino Gigli, 1890: ítalskur tenór sem debútteraði á Scala í
Mefístófelesi eftir Boito.
Sir Michael Redgrave, 1908: Breskur leikari.
Scccutccdaýcvt 21. mevtb ‘93
Atburðir dagsins
1556 Fyrsti mótmælaendabiskup Bretlandseyja brenndur á báli af
Maríu Skotadrotthingú.
1788 Eldur geysar í New Orleans.
1871 Kommúna er stofnuð í frönsku borginni Lyon.
1871 Kanslarinn Otto von Bismarck setur fyrsta þing hins nýstofn-
aða þýska ríkis.
1908 Franski flugmaðurinn Henri Farman flýgur yfír París með
fyrsta flugfarþegann.
1933 Fyrsta þing Þýskalands nasismans, með Adolf Hitler sem
kanslara, er sett í herkirkjunni í Potsdam.
Afmœlisdagar
Johann Sebastian Bach 1685: Þýskt tónskáld og organisti.
Benito Pablo Juarez, 1801: Forseti Mexíkó, sem bauð Frökkum
og Bretum byrginn.
Paul Tortelier, 1914: Franskur Sellóleikari.
Peter Brook, 1925: Breskur leikstjóri.
‘THáctudaycvt 22. ‘93
Atburðir dagsins
1622 Þrjúhundruð og fimmtíu amerískir landnemar
drepnir af indíánum við James River. Þetta var fyrsta
indíánaárásin í mörg herrans ár.
1687 Franska tónskáldið Jean Baptiste Lully deyr úr
ígerð í fæti.
1824 Breska þingið samþykkir að kaupa 38 málverk
til að koma upp þjóðlistasafni.
1888 Knattspymusamband Englands var stofnað í
Lundúnum.
1903 Niagara fossamir verða vatnslausir vegna
þurrka.
1904 “Daily Illustrated Mirror", birtir fyrstu lit-
myndina í dagblaði í Bandaríkjunum.
1907 Fyrstu gjaldmælamir settir í leigubíla í Lund-
únum.
1942 BBC byrjar að senda út skilaboð á morse lykli
til frönsku andspyrnunnar.
1945 Jórdanía fær sjálfstæði.
Afmœlisdagar
Sir Anthony van Dyck, 1599: Flæmskur listmálari
sem varð hirðmálari Englandskonungs, sem aðlaði
hann fyrir vikið.
Nicholas Monsarrat 1910: Breskur rithöfundur.
Marcel Marceau 1923: Franskur látbragðsleikari.
Andrew Lloyd Webber, 1948: Breskt söngleikja-
skáld.
Aðalfundur
M8ÍSTEX.
ÍSLENSKUR TEXTILIÐNAÐUR HF.
Aöalfundur ÍSTEX hf. veröur haldinn lau-
gardaginn 3. apríl, kl. 14 í Bændahöllinni/Hótel
Sögu, 3. hæö í sal Framleiðsluráðs.
Dagskrá:
1. Almenn aðalfundarstörf samkv. 16. grein sam-
þykkta félagsins.
2. Aukning hlutafjár samkv. tillögum stjórnar fél-
agsins.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Mosfellsbæ 18. mars, 1993
Stjórn ÍSTEX hf.