Alþýðublaðið - 19.03.1993, Síða 3
Föstudagur 19. mars 1993
3
236 kvartanir vegna hundahalds í Reykjavík ífyrra
Kostar 6500 að
handsama hund
Hundaeftirlitið og lögregla komu 226 seppum undir lás og slá ífyrra
Hundaeftirlitsmenn og lögreglan í
Reykjavík höfðu í nógu að snúast vegna
kvartana og eltingaleikja við hunda á síðasta
ári. Alls bárust 236 kvartanir þar sem hund-
ar komu nærri. Þar af vom 101 kvörtun
vegna óskráðra hunda, 5 vegna illrar með-
ferðar, 11 vegna hundsbita, 67 vegna ónæð-
is og 52 vegna óþrifa frá ferfætlingunum.
Það getur verið dýrt spaug fyrir hundaeig-
endur ef gæludýr þeirra sleppa. Samkvæmt
2.gr. gjaldskrár þurfa þeir að greiða 6500
króna handsömunargjald og 1020 króna
geymslugjaid á dag ef hundar þeirra em
handsamaðir og færðir í dýflissu Dýraspítal-
ans í Víðidal. A síðasta ári vom 226 hundar
handsamaðir af hundaeftirlitinu og lögreglu,
og er það nokkur fjölgun hundaafbrota frá
árinu áður.
Samkvæmt nýrri gjaldskrá fyrir hunda-
hald kostar 8800 krónur þetta árið að halda
úti hundi í Reykjavík. Gjaldið er óbreytt frá
því í fyrra, enda stóð það þá undir kostnaði
vegna hundahalds í borginni. Nú em um
1000 hundar skráðir í Reykjavík, en sam-
kvæmt upplýsingum Heilbrigðiseftirlitsins
er talið að um 100 seppar til viðbótar séu í
felum - óskráðir og ólöglegir.
Hundurinn Skuggi kominn í bíl Hundaeftirlitsins eftir að hann var handsamaður í Skuggasundi
í gær. „Það er alveg lágmark að maður komist öðru hvoru á villt lóðarí“, sagði Skuggi í samtali
við Alþýðublaðið eftir handtökuna sem kostar eiganda hans minnst 6500 krónur.
✓
Safnáðarfélag Asprestakalls:
Kirkjudagur!
Árlegur kirkjudagur Safnaðarfélags Ásprestakalls verður
haldinn næstkomandi sunnudag, 21. mars. Um morguninn
klukkan 11 verður bamaguðsþjónusta í Áskirkju og síðan
hefðbundin guðsþjónusta klukkan 14. Svala Nielsen syngur
einsöng, sóknarprestur prédikar og Kirkjukór Áskirkju syngur
undir stjóm Kristjáns Sigtryggssonar organista.
Eftir guðsþjónustuna og fram eftir degi verður kaffísala og
glæsilegar veitingar í safnaðarheimilinu. Þar kemur síðan
Svala Nielsen fram og mun hún syngja nokkur kunn íslensk
sönglög.
Allur ágóði af kaffisölu þennan kirkjudag rennur til ffam-
kvæmda við kirkjuna og henni til prýðis. Þess ber að geta að
kirkjudagurinn hefur í fjöldamörg ár verið einn helsti fjáröfl-
unardagur Safttaðarfélagsins.
Miklu verki er þegar lokið við búnað kirkjuhússins. Nú er
stefrit að því að fá til Áskirkju nýtt orgel og hefur af því tilefni
verið samið við danska orgelsmiði um smíði vandaðs pípu-
orgels. Afrakstur kafftsölu kirkjudagsins mun þvf styrkja og
efla orgelsjóðinn.
Sannarlega indælisdagur framundan í Ásprestakalli því
ætla má að fjöldi sóknarbama og velunnara kirkjunnar leggi
leið sína þangað á sunnudaginn og málefnið er gott; Stuðning-
ur við starf safnaðarfélagsins.
Sóknarbörn athugiö! Bifreiö mun flytja íbúa dvalarheim-
ila og annarra stœrstu bygginga sóknarínnar til og frá
kirkju.
Heimir Steinsson, útvarpsstjóri,
um Maltauglýsingabannið
Bannið ekki
tilkomii vegna
ytra þrýstings
Ríkisútvarpið stöðvaði Hf. Ölgerðina Egill Skalla-
grímsson í áframhaldandi „þjóðlegum auglýsingu" eins
og þeim sem birtust fyrir skömmu og höfðu að geyma af-
bakaðar Heilræðavísur séra Hallgríms Péturssonar.
Heimir Steinsson, útvarpsstjóri, tjáði Alþýðublaðinu í
gær, að sú ákvörðun að stöðva þessa tegund auglýsinga,
væri ekki til komin vegna bréfs frá Biskupi Islands, eins
og lesa mátti í blaðinu í gær. Þessi ákvörðun nú væri al-
farið ákvörðun Ríkisútvarpsins, án nokkurs ytri þrýst-
ings.
Sagði útvarpsstjóri að sér hefði áður borist bréf bisk-
upsritara um þetta efni, en þá vildi svo til að Ölgerðin var
sjálf búin að ákveða að hætta birtingum afbakaðra Heil-
ræðavísa. Nú væri sú staða komin upp að Ölgerðin ætlaði
af stað með aðrar auglýsingar, sem taldar væm í svipuð-
um dúr. Allar afbakanir á bókmenntum okkar kæmu að
lokuðum dyrunt hjá Auglýsingadeild RÚV, sagði út-
varpsstjóri.
vefur hlýju og fegurð
(- Folduteppi er kjörgripur þar sem listileg hönnun,
Quðrúnar Qunnarsdóttur er samofin kostum íslensku ullarinnar.
Litafegurð teppanna og léttleiki fullkomnar
heildarmynd hvers heimilis og Ijœr því hlýlegan blœ.
Folduteppi er falleg íslensk ffámleiðsla, gjöfsem kemur sér vel.
Folda hf. • P.O.Box 100 • 602 Akureyri
Sími: 96-21900 "W
?AX 6Z 9144