Alþýðublaðið - 19.03.1993, Síða 6
6
Föstudagur 19. mars 1993
R A AUGLYSIt <1 G A R
Heilsugæslusamlag
Hvammstangaumdæmis
Útboð2
Endurinnrétting
Sjúkrahúss Hvammstanga
Forval verktaka
Heilsugæslusamlag Hvammstangaumdæmis auglýsir hér
meö forval verktaka til aö bjóða í endurinnréttingu
Sjúkrahúss Hvammstanga, sem er tveggja hæöa hús,
samtals 709 m2.
Lýsing:
Vegna skipulagsbreytinga er nánast allt tréverk fjarlægt úr
byggingunni, söguö ný göt í steypta eöa hlaðna veggi, þar
sem þess þarf með, en hlaðið upp í óþörf eldri göt og síðan
innréttað upp á nýtt. Raflögn og lágspennulagnir eru mikið
til endurnýjaðar, svo og frárennslislagnir, hitakerfi er
lagfært og nýtt loftræstikerfi er sett í húsið. Húsið er allt
málað upp á nýtt, öll gólfefni endurnýjuð svo og innréttingar
og innihurðir.Tillit skal tekið til þess við framkvæmd
verksins að húsið verður í fullum rekstri og skal verkið
unnið á virkum dögum á tímabilinu frá 8.00 til 19.00.
Fjöldi bjóðenda
Fjöldi bjóðenda verður takmarkaður við fjóra.
Greiðslur
Þeir verktakar sem valdir verða til að taka þátt í útboðinu
eftir forval, en hljóta ekki verkið, fá greitt fyrir tilboðsgerð
sína kr. 50.000,—.
Eftirfarandi uppiýsinga er óskað um væntanlega
bjóðendur
1. Nafn, heimilisfang og kennitala verktaka.
2. Nafn, heimilisfang og kennitala undirverktaka.
3. Lýsing starfsferils verktaka og undirverktaka.
4. Ársuppgjör fyrir starfsemi verktaka og undirverktaka sl.
þrjú ár.
5. Aðrar upplýsingar sem verktaki telur að gagni koma við
val á verktaka.
Frestur til að skila forvalsgögnum
Forvalsgögnum skal skila á skrifstofu framkvæmdastjóra
Sjúkrahúss Hvammstanga, Spítalastíg 2, 530
Hvammstanga, fyrir kl. 12.00 á hádegi miðvikudaginn 24.
mars1993.
Á sama stað eru allar nánari upplýsingar veittar í síma
(95)—.12348, en á kvöldin hjá Guðmundi H. Sigurðssyni í
síma (95)-i12393.
Hvammstanga 15. mars 1993.
F.h. framkvæmdanefndar,
Guðmundur H. Sigurðsson.
W Utboð
Landgræðsla á Austurlandi 1993
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í landgræðslu á
Austurlandi árið 1993.
Helstu magntölur: Nýsáning 130 hektarar og áburðardreif-
ing 29 hektarar.
Verki skal lokið 15. júlí 1993.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
Reyðarfirði og í Borgartúni 5, Reykjavík (aðalgjaldkera) frá
og með 22. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 5.
apríl 1993.
Vegamálastjóri
Útboð
Útboð
Markarfljót, varnargarðar við Tjarnir
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í gerð varnargarða við
Tjarnir fyrir hönd Landgræðslu ríkisins.
Helstu magntölur: Ýting í varnargarða 91.800 m3 og rof-
varnir 8.700 m3.
Verki skal lokið 1. júlí 1993.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Selfossi
og í Borgartúni 5, Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 22.
þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 5.
apríl. 1993.
Vegamálastjóri
„NÝJAR ÁHERSLUR
í VELFERÐAR-
MÁLUM”
Vinnuhópur Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur í velferðarmál-
um kemur saman til næsta fundar mánudaginn 22. mars kl.
17.30.
Fundurinn verður í skrifstofu flokksins í Alþýðuhúsinu.
Sérstakt umræðuefni verður:
Atvinnuleysisbætur og heilbrigðismál.
Félagar eru hvattir til að mæta vel og stundvíslega.
Velkomin til
Bandaríkjanna
Sérstakt tilboð ríkisstjórnar Bandaríkjanna gefur þér nú
tækifæri til að flytjast til Bandaríkjanna með innflytjenda-
leyfi til frambúðar samkvæmt AA-1 kerfinu, verðir þú fyrir
valinu.
Þú getur fengið tækifæri til að lifa og starfa í Bandaríkjun-
um með fast aðsetur (handhafi Græna kortsins).
Síðasti frestur til að sækja um rennur út 31. mars 1993.
Þú þarft því að bregðast við tímanlega til að vera réttu
megin við umsóknarfrestinn. Þú eða annað hvort foreldra
þinna verður að hafa fæðst á íslandi/Bretlandi/írlandi til að
eiga möguleika.
Sendið póstávísun upp á $45 fyrir hvern umsækjanda
sem óskar eftir skjótri skráningarþjónustu ásamt eftirfar-
andi upplýsingum, sem skrifa þarf skýrt og greinilega á
ensku:
Nafn umsækjanda, heimilisfang, fæðingardagur og ár,
fæðingarstaður, nafn maka, ef umsækjandi er í hjóna-
bandi, og nöfn og heimilisföng barna yngri en 21 árs, séu
þau ekki í hjónabandi.
Sendið póstávísun upp á 45 Bandaríkjadali fyrir
hvern umsækjanda, sem stílaður er á: Visa USA, P.O.
Box no. 822211, Dallas, Texas 75382, U.S.A.
TRYGGINGASTOFNUN
RÍKISINS
Samningur milli íslands og
Lúxemborgar um félagslegt öryggi
Af gefnu tilefni tilkynnist að gagnkvæmur samningur um
félagslegt öryggi milli íslands og Lúxemborgar öðlaðist gildi 1.
janúar 1992 í báðum löndunum. Hann gildir þar til samningurinn
um EES tekur gildi.
Þær bætur Tryggingastofnunar ríkisins sem samningurinn
gildir um eru:
- sjúkratryggingar,
- bætur í fæðingarorlofi,
- slysatryggingar,
- elli- og örorkulífeyrir, ásamt makabótum og barnalifeyri,
- barnalífeyrir, ekkju/ekkilsbætur og ekkjulífeyrir (bætur til eftir-
lifenda),
- atvinnuleysisbætur
Þær bætur í Lúxemborg sem samningurinn gildir um eru:
- sjúkra- og fæðingartryggingar,
- vinnuslysa- og atvinnusjúkdómatryggingar,
- elli-ö og örorkulífeyrir og lífeyrir eftirlifandi maka,
- atvinnuleysisbætur
Samningurinn tekur til þeirra sem heyra eða hafa heyrt undir lög-
gjöf íslands og Lúxemborgar, og þeirra sem rekja rétt sinn til
þeirra aðila.
Tryggingastofnun ríkisins.
G.M. Bilaverkstæðið ItV
Fossbálisl 2U - Súni Í7227Í.
Nýtt verkstæði sérhæft í viðgerðum á GM, OPEL og ISUZU bifreiðum.
Kynntu þérþjónustu okkar, verkstæðið verður opið í dag milii 14 og 16.
Líttu við, kaffi er á könnunni og eitthvað fyrir börnin líka.
Þjónusta
ÁRSHÁTÍÐ
Alþýðuflokksfélögin í Reykjavík
halda sameiginlega árshátíð
2. a p r í I
Takið kvöldið frá svo þið missið ekki af
eftirminnilegri skemmtun.
Dagskrá og nánari tilhögun auglýst
síðar.
Skemmtinefndirt