Alþýðublaðið - 30.03.1993, Qupperneq 2
2
Föstudagur 26. mars 1993
H liVlllilim
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Sigurður Tómas Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Hermóður Sigurðsson
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverð kr. 1.200 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 90
Mikilvægur sparnaður í
heilbrigðiskerfinu
Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra hefur á köflum sætt mikilli
gagnrýni fyrir spamaðaraðgerðir í heilbrigðismálum. Sú gagnrýni hefur
komið úr ólíklegustu áttum, - meðal annars ítrekað úr röðum samstarfs-
flokksins í ríkisstjóm. Þessa gagnrýni hefur ráðherrann staðið af sér.
Hann hefur neitað að lúta í auðmýkt fyrir úrtölumönnum, og haldið
ótrauður áfram frekari spamaði, þegar minni menn hefðu hörfað af leið
til að kaupa sér frið og vinsældir. Nú er hins vegar smám saman að
koma í ljós, að aðgerðir Sighvats Björgvinssonar hafa fyllilega skilað
því sem að var stefnt: drjúgum spamaði og hagræðingu án þess að draga
úr þjónustu við sjúklinga.
Breytingar, sem heilbrigðisráðherra gerði í byrjun ársins á greiðslu fyr-
ir lyf og þjónustu leiddu til þess að hann var átalinn sérstaklega fyrir að
hafa þrengt að krabbameinssjúklingum. Formaður BSRB var til dæmis
sérlega harðorður fyrir þeirra hönd. Bent var á, að þó krabbalyf og bein
stoðlyf væm að vísu endurgjaldslaus, þá hefðu breytingamar leitt til
þess að kostnaður vegna annarra lyfja gæti í sumum tilvikum reynst
krabbasjúklingum illkleifur. En andlegt og líkamlegt álag vegna sjúk-
dómsins sjálfs - og ekki síður meðferðarinnar - veikir því miður ónæm-
iskerfíð og gerir krabbasjúklinga næmari fyrir sýkingum. Þeir þurfa því
stundum á dýmm sýklalyfjum að halda, sem ekki teljast þó bein stoðlyf.
Þetta, sögðu gagnrýnendur ráðherrans, gat gert sjúklingana fjárhagslega
öreiga.
Þctta reyndist rangt við skoðun, því reglugerðarbreytingin frá því í árs-
byrjun fól einmitt í sér öryggisnet fyrir tilvik af þessu tagi. Gagnrýnin á
ráðherrann var því óréttmæt, einsog læknar krabbameinssjúklinga geta
staðfest.
A síðasta ári beitti heilbrigðisráðherra sér fyrir umdeildri uppstokkun í
sjúkrahúsmálum á höfuðborgarsvæðinu. Fæðingarstofnanir vom sam-
einaðar, og bráðamóttaka var flutt frá Landakoti yfir á Borgarspítalann.
Seinni þátturinn var sérstaklega gagnrýndur; margur smákóngur innan
sjúkrahússgeirans reis upp á afturfætumar og andæfði harkalega. Innan
Sjálfstæðisflokksins vom efasemdir um breytinguna, og hún var gagn-
rýnd sérstaklega á þeim forsendum, að kostnaðurinn við breytinguna
sjálfa væri stórlega vanmetin og þegar upp yrði staðið, kæmi í ljós að
spamaðurinn yrði ef til vill enginn.
Þessi gagnrýni hefur nú fallið um sjálfa sig. Hún reyndist út í hött. Rík-
isendurskoðun var falið sem hlutlausum aðila að fara rækilega ofan í
saumana á breytingunni, og niðurstaðan er sú, að árangurinn varð meiri
en menn þorðu upphaflega að vona. Miðað við árið 1991 skiluðu að-
gerðimar spamaði upp á liðlega 560 milljónir króna, eða raunlækkun á
rekstrarkostnaði milli ára upp á næstum 5 af hundraði. Þennan spamað
rekur Ríkisendurskoðun að verulegu leyti til þess spamaðarþáttar sem
umdeildastur var; tilfærslu bráðavakta frá Landakoti til Borgarspítala.
/
I skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur einnig fram, að þrátt fyrir þennan
mikla spamað hafi legudögum ekki fækkað nema lítilsháttar, eða um l ,5
af hundraði, en biðlistar hafi þvert á móti styst í sumum tilvikum. I árs-
lok 1991 biðu þannig 70 manns eftir hjartaaðgerðum, en þeim hafði
fækkað í 48 í árslok 1992.
Þrátt fyrir harða gagnrýni liggur því fyrir svart á hvítu, að aðhaldsað-
gerðir heilbrigðisráðherra hafa skilað sér að fullu, án þess að þjónusta
við sjúklinga hafi minnkað. Atlaga ráðherrans gegn sjálftökuliði sér-
fræðinganna og tillögur hans um aukið frelsi í lyfjasölu munu enn frek-
ar lækka kostnað skattborgaranna við heilbrigðiskerfið, og þannig
treysta undirstöður þess að mun.
Þegar litið er yfir sviðið, þá kemur í ljós að enginn ráðherra í núverandi
ríkisstjóm hefur náð svipuðum árangri og Sighvatur Björgvinsson. Eng-
inn.
PALLBORÐIÐ
Björn Baldvinsson,formaðurLandssambandsfiskeldis- og hafbeitarstöðva
Við skulum snúa
vörn í sókn!
Auðvitað eigum við að horfa til fram-
tíðar í þessari ungu atvinnugrein og við
eigum meira að segja að viðurkenna, að
allur sá kostnaður og öll sú fyrirhöfn og
fórnir, sem við höfum þurft að færa hver
á sínu sviði, megi verða okkur gott vega-
nesti inn í framtíð fiskeldis á Islandi. Við
skulum snúa vörn í sókn. Við skulum
koma okkur niður á jörðina. Við skulum
í samvinnu við opinbera aðila varðveita
þau miklu verðmæti sem nú eru fólgin í
fjárfestingum vegna fiskeldis og sjá til
þess að nú liggi vegurinn upp á við en
ekki áfram niður.
Dýrmæt reynsla
Ég sem af flestum hef verið talinn bjart-
sýnismaður verð að viðurkenna að stundum
hef ég farið alla leið á bjartsýninni einni
saman. En það er liðin tíð. Ég og margir
fleiri, hafa hinsvegar öðlast dýrmæta
reynslu í gegnum þennan rekstur, reynslu
sem ekki kemur aftur á næstunni, reynslu
sem við verðum að virkja til framtíðar. Ber
þar hæst þá ómetanlegu þekkingu, sem afl-
að hefur verið á líffræði eldisfisksins. Á ég
þar við þá þekkingu og tækni við að gelda
fisk og þar með að koma f veg fyrir að fisk-
urinn fari í kynþroska ástand á eldisferlin-
um. Þetta skapar öryggi sem þarf til þess að
koma í veg fyrir blöndun eldisfisks við
villta stofna.
Samfara þessari þekkingu hefur skapast
sá möguleiki, og við reyndar náð utan um
þá tækni líka, að hraðala seiði, sem ég tel að
sé einn mikilvægasti áfangi sem nokkru
sinni hefur náðst við eldi lax og silungs. Hér
er um slíkt framfaraspor að ræða að það
jaðrar við byltingu. Þetta felst meðal annars
í því að stytta allan eldisferli í sjó og/eða við
dælingu, samfara gífurlegri hagræðingu og
spamaði við fastan og breytilegan kostnað,
að ekki sé nú talað um minnkun áhættu og
þar með lækkun tryggingagjalda vegna eld-
is í sjó.
Við skulum heldur ekki gleyma því að
við höfum náð góðum árangri í eldi silungs,
bæði bleikju og regnbogasilungs. Bleikju-
eldið hófst síðar hér á landi en laxeldið og af
þeim sökum náðum við að læra af ýmsum
mistökum sem urðu í laxeldinu. Menn hafa
farið hægar í sakimar í bleikjueldinu og
freistað þess að framleiða ekki meira en sá
markaður getur tekið við, sem búið er að
vinna á hverjum tíma.
Nágrannaþjóðimar, einkum Norðmenn,
hafa sömuleiðis byrjað tilraunaeldi á ýms-
um sjávarfiskum sem lofa góðu, bæði á
þorski, lúðu, steinbít og fleiri tegundum. Is-
lendingar þurfa að fylgjast náið með, því
hafbeit á þorski gæti í framtíðinni orðið
mikilvægur stuðningur við náttúrulega
stofna og þar með sjávarútveg okkar Islend-
inga.
Ég tel það mjög jákvætt að hér á landi
hafa menn þegar hafið tilraunir með eldi
sjávarfiska, sem lofa góðu. Ég vil samt vara
við því að of miklar væntingar séu tengdar
því strax. Við eigum að gera okkur grein
fyrir því að það þarf tíniá og þolinmæli áð-
ur en tilraunastigið fer að skila árangri.
íslendingar hafa líka öðlast mikla reynslu
í hafbeit. Raunar hefur engin þjóð eins
mikla þekkingu í dag á hafbeit Altantshafs-
laxins og við. Ég er sannfærður um að á
næstu ámm ntuni hafbeitinni vaxa fiskur
um hrygg og verða vaxandi þáttur í fram-
leiðslu eldisfiskjar hér á landi.
í þessu tel ég jafnframt að verulegur
ávinningur sé nú fóginn; í því að geta mark-
aðssett smærri fisk en áður var, þar sem eld-
iskostnaður smærri fisks er nú mun minni.
Nú þarf að miða eldi við þessar aðferðir og
hefjast handa við öflun nýrra markaða.
Óhætt er að fullyrða að með þessu móti get-
um við nýtt jarðvarma við hraðeldi seið-
anna til styttingar á eldistíma fisksins. Það
er að sjálfsögðu krafa okkar að nú þegar
verði gengið í að ná niður verði á orku, - í
það minnsta þar sem um umframorku er að
ræða.
Við skulum hafa í huga að öll aðföng til
þessarar framleiðslu em innlend, bæði orka
og fóður, og þá stendur eftir sú fullyrðing
að í fiskeldi er um hreina gjaldeyrisöflun að
ræða, þar sem mestur hluti framleiðslunnar
fer til útflutnings.
Það er í raun athyglisverð staðreynd að
samdráttur varð f öllum útflutningsgreinum
á Islandi árið 1992, nema í fiskeldinu, þar
varð aukning.
Nýtum ónolaðar f jórfestingar, þær
eru ekki glataðar
Það er stundum talað um að fjárfestingar
í mannvirkjum fiskeldisstöðvanna séu glat-
aðar. En það er rangt. Þær em enn á sínum
stað, en flestar stöðvanna komnar í eigu rík-
isins. Ríkið getur hinsvegar ekkert við
stöðvamar gert og kaupendur hafa hingað
til ekki fundist. Það er því mín skoðun að
hið opinbera eigi að lýsa því yfir, að svo
fremi einkaaðilar geti kornið með nægjan-
legt eigið fé til að hefja rekstur fiskeldis, þá
sé ríkið reiðubúið til að láta þeim stöðvam-
ar í té endurgjaldslaust í tíu ár á meðan ný
fyrirtæki em að ná upp framleiðslu.
Tíminn er réttur, verðið hefur hækkað, og
allt bendir til að uin fyrirsjáanlega framtíð
verði framboð og framleiðsla í bærilegu
jafnvægi. Með þessu móti væri hægt að ná
nýtingu á fjármagnið, sem liggur án ávöxt-
unar í ónotuðum stöðvum, og styðja þannig
hressilega við grein, semþrátt fyrir allt get-
ur skilað umtalsverðum gjaldeyristekjum í
þjóðarbúið. I dag hefur ríkið engin not fyrir
auðar stöðvar. Það hefur því allt að vinna,
engu að tapa.
Við skulum taka höndum saman og sann-
færa þá ráðamenn, sem ekki vita það nú
þegar, að allt eldi í heiminum, hvort heldur
er á laxi, silungi, eða öðmm fisktegundum,
er eina leiðin, sem fær er til að mæta auk-
inni fiskneyslu í heiminum. Ljóst er að ekki
verður lengur gengið á hina náttúrulegu
stofna hafsins.
Við íslendingar, sem emm þrátt fyrir fá-
mennið, ein af 20 mestu fiskveiðiþjóðum
heims, megum ekki koðna niður f ráðaleysi
við minnkandi sjávarafla. Við skulum nýta
okkur þær auðlindir, þekkingu og tækni,
sem við eigum og búum yfir. Með því móti
munum við áfram gegna forystuhlutverki
meðal þjóða og halda áfram að vera ein af
stærslu framleiðsluþjóðum heims á sviði
fiskvinnslu.
36. \a\6m '93
Atburðir dagsins
1842 í fyrsta skipti er eter notaður til svæfinga. Það gerir bandarísk-
ur skurðlæknir, Dr. Crawford Long.
1858 Einkaleyfi fyrir blýantinn gefið út í Bandaríkjunum.
1951 Julius og Ethel Rosenberg em talin sek um að hafa komið
hemaðarleyndarmálum um kjamorkusprengjuna til Sovétríkjanna.
1980 Tuttugu láta lífið þegar útför hins byltingarsinnaða biskups,
Oscar Romero, snýst upp í blóðbað.
1986 James Cagney, amerískur kvikmyndaleikari, er látinn, 87 ára
að aldri.
1989 Leikarinn Kurt Russel ber fram bónorð til Goldie Hawn,
frammi fyrir 1500 milljónum sjónvarpsáhorfenda, sem fylgdust
með parinu útdeila Óskarsverðlaunum.
Afmœlisdagar
Fransesco Goya, 1746, Spænskur listmálari og í hópi stærstu
meistara listsögunnar.
Vincent van Gogh, 1853 Hollenski málarinn sem á sinni tíð seldi
aðeins eina mynda sinna. Hann lést aðeins 37 ára að aldri, frantdi
sjálfsmorð í geðveikikasti.
Sean O’Casey, 1884 írskt leikritaskáld, en þekktasta verk hans var
Júnó og páfuglinn, skrifað fyrir hið þekkta Ábbey-leikhús í Dublin.
Warren Beatty, 1937 Amerískur leikari og leikstjóri, bróðir leik-
konunnar Shirley MacLaine.
Eric Clapton, 1945, Breskur gítarleikari og rokkari, sem allir
munu kannast við.