Alþýðublaðið - 16.04.1993, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 16.04.1993, Blaðsíða 6
6 Föstudagur 16. apríl 1993 tókust þau á við erfiðleikana, saman háðu þau lífsbaráttuna, saman byggðu þau upp heimili sitt og lífsviðurværi. Þau voru ávallt livort öðru styrkur og stoð í hverju sem á gekk. Synimir tveir, þeir Tómas og Albert Valur, nutu ástúðar þeirra og umhyggju. Þeir nutu þess að vaxa upp á góðu heimili í skjóli for- eldra sem miðluðu þeim hollu veganesti út í lífið. Þeir kveðja nú ástkæran föður með þakklæti fyrir allt sem hann veitti þeim. Albert Magnússon var stærstan hluta ævi sinnar í Hafnarfirði. Hann kom þangað 18 ára að aldri og þar átti hann heima til ársins 1962, þegar hann flytur á Sauðárkrók. Á Sauðár- króki eru þau hjónin í 12 ár, en flytja þá til Stokkseyrar. Á Stokkseyri eru fjölskyldan frá 1974 til 1979 að hún flytur í Hafnarfjörð. Og þar áttu þau Albert síðan heima, allt til þess er hann lést. Síðustu áratugina fékkst Albert að mestu við verslun og var vinsæll, duglegur og heiðarlegur kaupmaður, sem ekki mátti í neinu vamm sitt vita. Hann lagði sig fram um að þjóna við- skiptavininum sem best og það kunnu margir að meta. Þess vegna blómgaðist verslunin, hafði á sér gott orð og dró að sér fólk. Valgerður var með manni sínum á þessum vettvangi sem öðrum og átti ekki lítinn hlut að velgengni verslunarinnar og hlýlegu and- rúmsloftinu sem einkenndi búðina. Fá hjón hefi ég þekkt, sem voru svo samofin í hug og hjarta, viðhorfum og verkum, sem þau Albert og Valgerður. Albert Magnússon þekktu margir. Samt voru þeir enn fleiri sem þekktu Alla krata. Það var bara einn Alli krati og hann var þekktur undir því nafni víðs vegar um landið. Slíkur baráttumaður var hann og merkis- beri jafnaðarstefnu og mannúðar. Þar sem annars staðar stóð hann og féll með skoð- unum sínum og lífsviðhorfum. Hann varheill og sannur, hafði ekkert að fela, einarður og ákveðinn jafnaðarmaður, kallaður Alli krati jafnt af skoðanabræðrum sínum sem póli- tískum andstæðingum. Jafnaðarstefnan stóð föstum fótum í huga hans og hjarta, samúðin var ríkjandi með lítilmagnanum, andúðin á ranglætinu og virðingin fyrir réttlætinu. Þetta setti svip sinn á manninn. Þess vegna gáfu samferðamennimir honum viðumefnið krati. Á Vífilsstöðum fór Albert að kynna sér jafnaðarstefnuna. Hann setti sig í sambandi við skrifstofu Alþýðuflokksins í Reykjavík og hitti þar fyrir Vilhelm Ingimundarson. Vilhelm sá gullið í þessum unga manni og þeir bundust ágætum vináttu böndum. Vilhelm sá til þess að Alþýðublaðið var sent til Alberts á Vífilsstaði og eins fékk hann ýmsa bæklinga um jafnaðarstefnuna, úrræði hennar og verkefni. Og Albert fann bráðlega að hann átti heima í Alþýðuflokknum. Þar vildi hann búa í samfélagi við jafnaðarstefn- una. Albert Magnússon var ekki mikið fyrir það að sitja auðum höndum. Hann var eljumaður, sem helst lét aldrei verk úr hendi falla. „Það er ekki eftir, sem búið er”, sagði hann oftsinnis, þegar vinum hans og vandamönnum þótti nóg um vinnusemi hans og iðni. Það leið því ekki á löngu, þar til Albert var kominn á bólakaf í vinnu fyrir hugsjónum jafnaðarstefnunnar og Alþýðuflokkinn. Hann gekk í Félag ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði, var bráðlega kosinn þar í stjóm og falin forusta í ýmsum málum. Hann var formaður félagsins um skeið. Og hann var heiðursfélagi í Félagi ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði. Þá átti hann sæti í stjóm Sambands ungra jafnaðarmanna í fjögur ár, 1952 - 1956. Albert átti sæti í flokkstjóm Alþýðuflokksins, sat fjöldamörg flokksþing, var fulltrúi Alþýðuflokksins í nefndum og ráðum og lét hvergi hlut sinn eftir liggja. Störf sín fyrir flokkinn vann hann ætíð með einlægni og af trúmennsku, missti aldrei sjónar af kjama jafnaðarstefnunnar bar merki hennar hátt og sló hvergi af. Það var ekki út í bláinn, að hann fékk viðumefnið krati í umhverfi sínu, hvar sem hann fór. Það er komið að skilnaðarstundu. Jafnaðar- menn um land allt kveðja Albert Magnússon með vináttu og þökk. Þeir sakna góðs vinar og félaga og hlýja sér við eld hugsjóna og góðra minninga. Þeir finna, að minningin um Albert Magnússon leggur þeim skyldur á herðar, þær skyldur að rækta réttlætið, að rífa ranglætið upp með rótum og ástunda jafnaðarmennsku af trúmennsku og heiðarleika. Við hafnfirskir kratar. vinir Alberts og samherjar, sendum konu Alberts, sonum hans og tengdadóttur innilegar samúðarkveðjur. Guð ræður skapadægrum en minningin um góðan dreng lifir og lýsir. Guð styrki alla vini og vandamenn Alberts Magnússonar í sorg sinni. Hörður Zóphaníasson R A D A U G I L Ý S I S N G A R RARIK RAFMAGNSVEITUR RÍKISIN5 Útboð 93003 Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboöum í aö byggja aö- véitustöövarhús á Neskaupstað. Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu umdæmisskrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Þverklettum 2, Egilsstöðum og Laugavegi 118, Reykjavík, frá og meö þriöjudeginum 20. apríl 1993, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu. Tilboöum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Egilsstööum fyrir kl. 14.00 miövikudaginn 5. maí 1993 og veröa þau þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda, sem þess óska. Tilboöin séu í lokuðu umslagi merktu: RARIK-93003 Nes- kaupstaöur - aöveitustöö. Rafmagnsveitur ríkisins, Laugavegi 118, Heilbrigðis- og menntamálaráöuneytið Laust lyfsöluleyfi, sem forseti íslands veitir Laust er til umsóknar lyfsöluleyfi Akureyrar Apóteks. Dánar- bú fráfarandi lyfsala óskar eftir því aö viötakandi lyfsali kaupi húseign þá er lyfjabúöin er í, sbr. 11. gr. laga nr. 76/1982, um lyfjadreifingu. Viðtakandi lyfsali skal hefja rekstur frá og meö 1. ágúst 1993. Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um lyfjafræði- menntun og lyfjafræöistörf sendist ráöuneytinu fyrir 10. maí nk. Heilbrigðis- og menntamálaráðuneytið, 4. apríl 1993. EFNAHAGS- & ATVINNUMAL JÓN SIGURÐSSON Á OPNUM FUNDI Starfshópur Alþýöuflokksfélaganna í Reykjavík um efnahags- og atvinnumál heldur opinn fund næstkomandi miðvikudag, 21. apríl. Fundurinn veröur aö venju haldinn í RÓSINNI við Ingólfsstræti og hefst stundvíslega klukkan 17:15. Áætlað er að fundinum Ijúki klukkan 19:00. Gestur fundarins verður Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra. ALLIR VELKOMNIR - KAFFIVEITINGAR Varnarliðið: Tölvunarfræðingur/ Kerfisfræðingur Stofnun verklegra framkvæmda Varnarliösins á Keflavík- urflugvelli, óskar aö ráöa tölvunar- og kerfisfræðing til starfa. Starfiö felst í viöbótaruppsetningu tölvubúnaöar, gera til- lögur um breytingar ásamt því aö annast daglegan rekst- ur þeirra tölvukerfa er undir starfið heyra. Um er aö ræöa Novell-nettengd kerfi. Einnig aö annast kennslu og þjón- ustu viö starfsfólk eftir því sem viö á. Forritun og greining er einnig hluti starfsins. Kröfur: Umsækjandi sé tölvunar- eöa kerfisfræöingur meö sem víðtækasta reynslu á sviöi vél- og hugbúnaðar. Þarf aö geta unnið sjálfstætt og aö eiga gott meö sam- skipti viö annað fólk. Góörar enskukunnáttu er krafist, bæöi á talað mál og skrifaö. Umsóknir skulu berast til ráöningardeildar varnarmála- skrifstofu, Brekkustíg 39, Njarövík, sími: 92-11973, ekki síöar en 29. apríl nk. Umsóknareyðublöð fást á sama stað. SÍÐASTI VETRARDAGUR KVEÐJUM VETUR OG FÖGNUM SUMRI SAMAN! OPIÐ HÚS í RÓSINNI MIÐVIKUDAGINN 21. APRÍL KLUKKAN 21-02 LÉTTAR VEITINGAR ALLIR VELKOMNIR ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG REYKJAVÍKUR HÁDEGISVERÐARFUNDUR Kvenfélag Alþýöuflokksins í Hafnarfiröi heldur hádegisverðarfund í Hafnarborg þann 17. apríl nk. kl. 11.00 árdeg- is. Á fundinn kemur Steinunn Þorsteinsdóttir og ræöir sögu Kvenfélagsins frá stofnun fram á þennan dag. Léttur hádegisveröur veröur á boðstólum, verö kr. 900,- Allir velkomnir - takiö meö ykkur gesti. Stjórnin

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.