Alþýðublaðið - 18.05.1993, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 18.05.1993, Blaðsíða 8
V í K N G___A K I G L#TT# .. iilltaf á núðvikudögmn MÞYÐV6LMB Priöjudagur 18. mal 1993 73 TÖLUBLAÐ - 74. ÁRGANGUR L#TT# .. alltaf á máðvikudögum Hér má sjá hvar Jón Sigurðsson útskýrir fyrir fundarst jóranum, Dieter Rogalla, af hverju íslendingar vilja tryggja sér full yfirráð vfir fiskimiðunum í kringum landið, en fundar- stjórin hafði áður iýst því vfir að hann ætti bágt með að skilja þessa kröfu okkar. Fjær má sjá l)lf Dinkelspiel Evrópuráðherra Svía og forseta EFTA. A-mynd E.ÓI. Ráðstefna Kengúruhóps Evrópuhandalagsins í Reykjavík Viljum sjá breytingar á EB - áður en aðild íslands að bandalaginu verður raunhœfur kostur, sagði Jón Sigurðs- son iðnaðar- og viðskiptaráðherra, í ávarpi sínu á ráðstefnunni í ávarpi Jóns Sigurðssonar kom fram að lítill áhugi væri á EB-aðild meðal íslenskra at- vinnurekenda, en hann væri að aukast vegna fyrirhugaðrar inn- göngu fjögurra EFTA-ríkja í bandalagið. Islendingar myndu hins vegar áfram fylgjast vel með þróuninni í Evrópu, en þeir vildu þá sjá breytingar á Evrópu- handalaginu áður en aðild kæm- ist á dagskrá. Jón taldi að ýmislegt í Evrópu- samvinnunni þyrfti að hugsa upp á nýtt og lagði áherslu á það sjónar- mið íslendinga að innlendar nátt- úruauðlindir verði í höndum þjóð- þinga. í þessu sambandi benti hann á að Island og EB væru tengd mik- ilvægum viðskiptahagsmunum og ísland væri jafnvel meira háð EB heldur en þau EFTA lönd sem þeg- ar hefðu sótt um aðild. Það væri hins vegar alveg á hreinu að Island geti aðeins orðið aðili að Evrópu- bandalaginu ef það verði tryggt að landið hafi full yfirráð yfír sínum náttúruauðlindum. fyrst og fremst fiskimiðunum í kring um landið. Ráðherrann benti á að EB væri á Leikfélag Akureyrar Leðurblakcm fær frábærar móttökur Sýndfyrirfullufrá þvíí mars og senn líður að síðustu sýningum Sýningar Leikfélags Akureyrar á Leðurblökunni eftir Jóhann Strauss hafa hlotið frábærar mót- tökur og verið sýndar fyrir fullu húsi síðan í marslok. Fjöldi að- komumanna helur lagt leið sína til Akureyrar til að sjá sýninguna og hafa veitingahús og hótel þar í bæ boðið leikhúsgestum sérstök vildarkjör. Leðurblaðkan hefur notið mik- illa vinsælda um allan heim frá því að hún var fyrst sýnd fyrir 120 árum í Vínarborg. Úrvals lista- menn voru fengnir til að taka þátt f þessari sýningu leikfélagsins. Jón Þorstcinsson, tenór frá Olafs- firði, var fenginn frá Ríkisóper- unni í Amsterdam til að túlka hlutverk Eisensteins og Ingibjörg Marteinsdóttir, sópran, kom frá Reykjavík til að syngja hlutverk konu hans, Rósalindu. Guðrún Jónsdóttir fer með hlutverk Ad- ele. Leikstjóri Leðurblökunnar er Kolbrún Halldórsdóttir en Roar Kvam annaðist útsetningar og er hljómsveitarstjóri. Karl Aspelund er höfundur leikmyndar og bún- inga, Ingvar Bjömsson lýsti sýn- inguna og Böðvar Guðmundsson gerði nýja þýðingu á Leðurblök- unní. Nú fer að líða að síðustu sýn- ingum á Leðurblökunni scm verður flutt annað kvöld og um helgina. Alls mun sjö sýningar vera eftir og því ekki seinna vænna fyrir þá sem vilja-sjá Leð- urblökuna að drífa sig á þessa frægu óperettu eftir valsakónginn Jóhann Strauss. miklu breytingaskeiði og ekki væri ljóst hvert stefndi. Ymislegt gæfi þó til kynna að um næstu aldamót yrði bandalagið orðið fýsilegri kostur. Það yrði þá orðið sveigjanlegra, opnara, lýðræðislegra og myndi þá væntanlega hafa raunhæfari mark- mið hvað miðstýringu varðar. Hann vildi eínnig vara við nýlegum hug- myndum bandalagsins um að hin pólitíska samvinna yrði takmörkuð við aðildarlöndin og þau sem hefðu sent inn umsókn. Opnara bandalag muni bera meiri árangur og leiða af sér friðsamlegri samskipti í Evrópu. Ulf Dinkelspiel Evrópumálaráð- herra Svíþjóðar og forseti EFTA gerði EES-samninginn að umtals- el'ni í sinni ræðu og sagði hann vera góða biðstöð fyrir þau lönd sem hygðu á inngöngu í EB og mikil- væga tengingu fyrir þau sem eftir yrðu í EFTA. Hann sagði að aðild- arviðræðum Svía rnyndi Ijúka í lok ársins og á næsta ári myndi Svíar taka virkan þátt í umræðunum um frekari þróun bandalagsins. Það væri því raunhæft að Svíþjóð væri komið inn í EB árið 1995. Dinkelspiel sagði að það væru engin vandamál sem stæðu í vegi fyrir aðild Svía að EB. Hann nefndi þó að þeir væru komnir fram úr EB hvað umhverfismálin snerti, en vonaðist til að Svíar þyrftu ekki að minnka kröfur sínar á þessu sviði við inngönguna í EB. Garðabœr Lengri skóladagur fyrir yngstu börnin -sífelltfleiri sveitaifélög draga ríkið að landi í skólamálum Bæjarstjórn Garðabæjar hef'ur ákveðið að lengja skóladag yngstu barna grunnskólans í Garðabæ frá og með næsta hausti. Verður skóladagur sex til átta ára barna þá lengdur um a.m.k. eina klukkustund á dag. Með samþykktinni er verið að koma til móts við auknar kröfur um lengri skóladag bamanna og jafn- framt verið að undirbúa samfelldan skóladag í einsetnum skóla. Garð- bæingar munu leggja áherslu á að hinn aukni kennslustundafjöldi verði nýttur til kennslu í íslensku, tónlist og íþróttum. Það er æ algengara að sveitarfé- lög bjóði upp á meiri kennslu en rík- ið veitir. Ymis sveitarfélög hafa lengt eitthvað stundaskrá bama í grunnskóla á sinn kostnað. Þannig gerir Garðabær ráð fyrir að kostnað- ur við umrædda viðbótarkennslu verði um 5 milljónir króna en lögum samkvæmt er ríkinu ætlað að greiða kennaralaun í gmnnskólum lands- ins. Þá mun Garðabær, líkt og ýmis önnur sveitarfélög, bjóða upp á gæslu fyrir yngstu bömin utan hefð- bundins skólatíma og greiða þá for- eldrar fyrir það. Það er fyrst og fremst hugsað til að koma til móts við svokölluð lyklaböm sem hafa gengið sjálfala hluta dags meðan foreldrar hafa verið bundnir í vinnu en gæslan stendur öllum til boða sem vilja -greiða fyrir gæslu ungra barna sinna innan skólans. STUTTFRETTIR Eiga fóstrur að heita eitthvað annaö? Framundan er atkvæðagreiðsla um starfsheiti fóstmstéttarinnar. Kjósa á milli tveggja starfsheita, - fóstra eða leikskólakennari. Ef Al- þýðublaðið má segja sitt álit hér, þá telur það að fléstir muni sakna starfsheitisins fóstra, enda virt og fallegt nafn á starfsstétt. Verður ekki séð hvaða tilgangi slík nafnbreyting á að þjóna. A aðalfundi Fóstrufé- lags Islands um síðustu helgi var kjörin ný forysta fyrir félagið. I stjórn nú eru: Guðrún Alda Harðardóttir, formaður, Björg Bjarna- dóttir, varaformaður, en aðrir í stjóm eru Dagrún Ársælsdóttir, Ólöf Helga Pálmadóttir, Sigurlaug Einarsdóttir, en varamenn eru Petr- ína Baldursdóttir og Þröstur Brynjarsson. Úr leikritinu Togað á norðurslóðum, leikararnir Neville Hutton, Simeon Truby, Chuck Foley og Gerard McDermott, klæddir samkvæmt tískunni frá því um 1960. Togað á norðurslóðum Leikhópur frá The Remould Theatre í Hull kemur í næstu viku til landsins og flytur hér forvitnilegt leikrit, Togað á norðurslóðum eftir Rupert Creed og Jim Hawkins. Fjórar sýningar verða í Smíðaverk- stæði Þjóðleikhússins en þaðan mun leikhópurinn halda til Akureyrar, Dalvíkur, Húsavíkur og Seyðisfjarðar og sýna verkið. Sagan er um enska togarasjómenn, ófaglærða verkamenn sem höfðu guð sem skip- stjóra, næstum guð sem stýrimann - og slysin voru einfaldlega verk guðs. Taugin við Island og Noreg er slerk og tengist jafnt fylleríum, gleðskap og kvennaförum í landi, sem og svörtustu atburðum útgerð- arsögunnar í Hull, þegar þrír togarar fórust við Noreg og Island, þar á meðal Ross Cleveland, og skipverjinn Harry Eddom komst lífs af eft- ir mikla hrakninga. Athyglisverð sýning sem sjósæknir íslendingar munu hafa áhuga fyrir. Opið hús í Verslunarskólanum Á laugardaginn kemur býður Verslunarskóli íslands upp á opið hús milli kl. 14 og 17. Nýútskrifuðum grunnskólanemum og aðstand- endum þeirra gefst kostur á að skoða húsakynni skólans og ræða við kennara og nemendur um skólalífið í Versló, sem er sem fyrr afar fjöl- breytt. Skoðaðar verða sérkennslustofur, íþróttahús og bókasafn. sem og tækja- og tölvubúnaður skólans. I nútíma þjóðfélagi byggir afkoma fólks og fyrirtækja í öllum atvinnugreinum í vaxandi mæli á verslun og viðskiptum. Verslunarfræðsla er því mikilvægur þáttur í menntun þjóðarinnar. Það er því ástæða til að fólk kynni sér þetta vel þegar hug- að er að framtíðamámi ungs fólks eftir grunnskóla. Stærsta sýning Bjargar Björg Þorsteinsdóttir mynd- listarmaður, sýnir þessa dagana í. Hafnarborg í Hafnarfirði, mál- verk og olíukrítarmyndir, verk sem unnin hafa verið á síðustu þrem árum. Þetta er umfangs- mesta sýning Bjargar til þessa, en einkasýningar hennar eru orðnar á þriðja tuginn. Það er ástæða til að hvetja listunnendur að skoða sýn- ingu Bjargar, sem er frábær li- stakona. Sýningin stendur til 31. maí, opið frá 12- 18 alla daga nema þriðjudaga. Sýninguna til- einkar Björg minningu móður sinnar Guðnýjar Árnadóttur, sem lést á síðasta ári. Vinningstölur laugardaginn: 15- mai 1993 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING J 5 af 5 0 2.300.273 ]£jj +4af 5 5 80.000 E1 4 af 5 99 6.969 iEJaafs 3.306 486 Aöaltölur: (j0)«j6) BÓNUSTALA: Heildampphæð þessa viku; kr. 4.996.920 UPPLÝSINGAR, SIMSVARl 91- 68 15 11 LUKKULlNA 99 10 00 * TEXTAVARP 451

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.