Alþýðublaðið - 18.05.1993, Blaðsíða 1
■
Arsskýrsla OECD um íslensk efnahagsmál
Kreppcm utcm áhrifa-
sviðs stjórnvalda
Umskipii á nœsta ári. Aðstœður fyrir nýit álver að skapast. Gengisfelling óceskilsn
Þróunarsjóður góð leið til að takast á við offjárfestinguna og umframafkastagetuna
Horf'ur eru á að samdráttur í
efnahagslífinu haldi áfram á
þessu ári vegna minni þorskafla
og nauðsynlegs aðhalds að inn-
lendri eftirspurn. Þetta kemur
fram í ársskýrslu Efnahags- og
framfarastofnunarinnar í París,
OECD, sein birt var í gær. í inn-
ganginum um Island segir enn-
fremur að sterkur andbyr setji
áfram svip sinn á íslcnskan þjóð-
arbúskap.
Þrátt fyrir að útlit sé fyrir áfram-
haldandi erfiðleika á þessu ári segir
að samdrátturinn verði þó nokkru
minni en verið hefur. Þá segir enn-
fremur að næsta ár, 1994. kunni að
verða ár umskipta í efnahagslegu
tilliti vegna þróunar á útflutnings-
mörkuðum, sem gæti orðið hag-
stæð, og vegna fyrstu áhrila af efna-
hagssamrunanum í Evrópu. Einnig
er gefið í skyn að nýjar álversfram-
kvæmdir gætu orðið að veruleika
hér á landi, en í skýrslunni segir
orðrétt: „Ef réttar aðstæður skapast
er lfldegt að stóriðjuáform á borð
við Atlantsál, sem mun hafa veru-
leg efnahagsleg áhrif, verði að
veruleika fljótlega í kjölfarið".
OECD lýsir yfir vonbrigðum
með efnahagsframvinduna og horf-
umar framundan á Islandi, því
hvom tveggja megi rekja til ára-
langrar ofveiði á þorski. Þetta eigi
aðallega við um þorskstofninn og
samverkandi áhrif umhverfis og of-
veiði, sem valdi því að enn þurfi að
draga úr sókn.
Ljóst er að OECD er sammála ís-
lensku ríkisstjóminni í því að efna-
hagssamdrátturinn, kreppan, sé að
öðm leyti utan áhrifasviðs stjóm-
valda. Síðan segir: „Það er mjög
mikilvægt fyrir stjómvöld að ekki
verði hrófiað við þeim árangri sem
náðst hefur í baráttunni við verð-
bólguna og í ríkisfjármálum. Slík-
um árangri er ekki auðnáð og hon-
um má alls ekki stefna í hættu að
nauðsynjalausu. Frá sjónarhóli
stjómvalda virðist óbreytt gengis-
stefna eðlileg viðmiðun í komandi
kjaraviðræðum í því skyni að
tryggja litlar launabreytingar svo að
vextir, sem reynst hafa þungir í
skauti, geti smám saman farið
lækkandi".
Sjá einnig bls. 3
Formaður KSI, Eggert Magnússon, Gunnar Sigurðsson, Skagamaður, formað-
ur félags fyrstu deildarliðanna og Sigurður Baldursson, framkvæmdastjóri Is-
lenskra getrauna, skera tertu í gær í tilefni af sanmingi getrauna og 1. deildar-
liðanna. Keppnin hefst 23. inaí og heitir Getraunadeildin. A-mvnd E.ÓI.
Gagnrýni á Þjóðkirkjuna
SJÁLFSMORÐ
Langsótt kenning á
að færa KR sigurinn!
eru syndsamleg
-segir Gunnar Þorsteinsson, predikari, og telur afstöðuleysi þjóðkirkjunnar mögu-
lega eiga þátt í aukinni tíðni sjálfsmorða
Vesturbæjarliðinu er spáð ís-
landsmeistaratigninni í ár, og bak
við það er ákveðin kenning, dálítið
langsótt að vísu. KR hefur ekki
unnið titilinn síðan 1968 og þykir
mörgum KR-ingum nóg um. Þeir
tengja sigra síns félags nýbökuðum
enskum meisturum Manchester
United, sem unnu síðast 1967. Spá-
menn félagsins spáðu á síðasta vori
að KR ntundi sigra sama ár og Un-
ited. Nú eru þeir ensku búnir að ná
titlinum, - og þá er lag fyrir KR! En
hvað um það, fyrirliðar, þjálfarar og
formenn 1. deildarliðanna komu
saman í gær og spáðu í spilin. Spá
þeina er að KR sigri í ár, KR fékk
281 stig, ÍA 259, Fram 230, Valur
201. Þá kemur Þór með 184 stig,
Fylkir með 141 stig, FH með 129
stig, ÍBK 87, Víkingur 73 og ÍBV
65. Það skal tekið fram að slíkar
spár hafa undanfarin tvö ár algjör-
lega farið forgörðum.
Arsskýrsla OECD um há útgjöld til heilhrigðismála
Hátt lyf javerð er
helsti sölcudólgurinn
-samkvœmt skýrslu OECD, en árangurinn hér á landi langt umfram það sem gerist og
gengur hjá öðrum þjóðum
„Það hefur verið skýlaus túlk-
un allt frani ú síðari ár að það sé
synd gagnvart guði að taka eigið
líf“, sagði Gunnar Þorsteinsson,
forstöðumaður Krossins í Kópa-
vogi í samtali við Alþýðublaðið í
gær. í sunnudagspredikun á út-
varpsrásinni Stjörnunni, sem
Kristileg fjölmiðlun er eigandi
að, gagnrýndi Gunnar Þjóðkirkj-
una harkalega fyrir að líta frain-
hjá því sem hin helga bók segir
Þjónar KGB
í nýju gervi
Launmoriingjar
í vellystingum
sjá bls. 5.
um sjálfsmorð. Þar sé það skýrt
að það sé synd að myrða mann
sem og að taka eigið líf.
Gunnar benti á að öldum saman
hefði fóki sent framdi sjálfsmorð
verið huslað utan kirkjugarða, í
fjörum og á víðavangi. Á honum
var ög að heyra að slíku fólki biði
fátt annað en helvíti að lokinni jarð-
vist. Menn styttu sér semsé ekki
leið inn í himnaríki.
Gunnar Þorsteinsson sagði að
þessi tvískinnungur kirkjunnar Væri
til baga. „Orsök tíðra sjálfsvíga í
dag er ef til vill einmitt sú að kirkj-
an bendir fólki ekki á sannleikann,
að það er syndsamlegt að taka eigið
líf. Kirkjan bendir fremur á að slík
breytni stafi að slysi eða sjúkdómi.
Staðreyndin er hinsvegar að þetta er
fyrst og fremst heigulsháttur",
sagði Gunnar Þorsteinsson. ,
Ekki náðist í biskup eða hans
nánasta samstarfsmann í gær til að
fá þeirra sjónamtið á þessum mál-
um.
„Hátt verðlag á þjónustu og á
lyfjum sérstaklega er meginorsök
hárra heilbrigðisútgjalda“, segir
í ársskýrslu OECD um íslenska
heilbrigðiskerfið. Þar er lagt til
að leggja niður núverandi lyfja-
verðlagskerfi og taka upp frjálsa
verðlagningu en sérstök úttekt er
gerð á heilbrigöismálum á Is-
landi í úttekt OECD.
Um þann árangur sem náðst hef-
ur í heilbrigðismálum á síðustu ár-
um segir í skýrslunni m.á: „Árang-
ur í heilbrigðismálum á íslandi er
langt umfram það sem gerist og
gengur hjá flestum öðrum þjóð-
um.“ Útgjöld hafi hins vegar á síð-
asta áratug aukist um 4% að raun-
gildi á ári sem hafi verið um helm-
ingi meira en meðaltal annarra
OECD-ríkja.
Það er hins vegar mat OECD að
íslenska heilbrigðiskerfið veiti
þjónustu sem er yfir meðallagi að
gæðum og fyrir meðalkostnað sem
er aðeins umfram það sem gerist
hjá öðrum OECD-ríkjum. Eitt af
því sem OECD bendir á til frekari
úrbóta í heilbrigðismálum á Islandi
er að auka heimahjúkrun og draga
þannig úr hratt vaxandi útgjöldum
vegna öldrunarþjónustu á dvalar-
heimilum. Þar kemur í ljós að hlut-
fallslega fieiri aldraðir á íslandi
dvelja á stofnunum á Islandi en á
öðrum Norðurlöndum.
-.1 I l ;
5 ''lifRÍR
Síöasti pöntunardagur Macintosh-
tölvubunabar meb verulegum afslætti er
2^. Tnmí tuf
Innkaupastofnun ríkisins
Borgartúni 7, Rvk. Sími: 91-26844