Alþýðublaðið - 22.06.1993, Síða 11

Alþýðublaðið - 22.06.1993, Síða 11
Þriðjudagur 22. júní 1993 11 Alþýðuflokkurinn á Vilmundi mikið að þakka Garðar Sverrisson skrifar Glaðværð, traust og einlægni koma mér fyrst í hug þegar ég minnist Vilmundar Gylfasonar. A þeim ára- tug sem liðinn er frá andláti hans hefur minningin um stjórnmálamanninn vikið nokkuð fyrir minning- unni um þann góða dreng sem Vilmundur var, um hvetjandi samstarfsmann og ráðagóðan vin; mann sem vildi láta gott af sér leiða - vildi að öðru fólki liði vel. Stjómmálamaðurinn Vilmundur hafði um margt mikla sérstöðu. Hann fjallaði unt máí sem aðrir vildu helst horfa framhjá og gerði það með svolítið öðrum hætti en venja var. Vilmundur var blátt áfram, vildi korna beint að þeim málum sem hann tókst sér fyrir hendur. Hann var maður augna- bliksins og hafði ekki alltaf tíma til að tefja sjálfan sig og aðra með dip- lómatískum krókaleiðum - lét það bara „gossa“ eins og hann kaliaði það. Vilmundur Gylfason var leiftr- andi stjómmálamaður, hugmynda- ríkur og skapandi. Þegar litið er yfir hans stutta feril er með ólíkindum hvað hann hafði fmmkvæði að mörgum rnálum. Vilmundur lét sér ekki nægja að benda á illgresi í sam- félagi okkar, heldur reyndi hann líka að gera sér og öðrum grein fyrir hvemig það hafði fest rætur og hvers vegna það þreifst. T blaða- greinum og þingræðum lagði hann síðan fram ótal hugmyndir til úr- bóta, nýjar leiðir og lausnir, vel grundaðar og gjaman frumlegar. Fyrir bragðið varð þjóðfélagsgagn- rýni hans jákvæð og uppbyggileg. Alþýðublaðið og Alþýðuflokkur- inn eiga Vilmundi mikið að þakka. Á erfiðleikatíma vann hann launa- laust fyrir blaðið og lagði nótt við dag til að endurreisa flokkinn, gera hann nútímalegri og stefnu hans markvissari. Vilmundur átti sér einnig þann draum að gera Alþýðu- flokkinn að stórum og sterkum jafn- aðarmannaflokki, að fjöldahreyf- ingu sem umfram allt væri opin og lýðræðisleg; þar sem starfsemi öll, umræður og ákvarðanir fæm fram fyrir opnum tjöldum. Framboð Vilmundar vorið 1978 olli straumhvörfum fyrir Alþýðu- flokkinn. Þjóðin þekkti umbóta- stefnu Vilmundar og um allt land flykktu menn sér um Alþýðuflokk- inn. Sjálfur fór Vilmundur vfða um land, hélt ótal fundi { öllum kjör- dæmum og reyndi þannig að styðja við bakið á missterkum frambjóð- endum flokksins. Hvarvetna var húsfyllir. Fólkið kom að hlusta á Vilmund, sem í lokin var fagnað með langvarandi lófataki. Það þurfti ekki mikla athyglisgáfu til að sjá og skilja hvað olli þeim þunga straumi sem lá til Alþýðuflokksins, straumi sem á kjördegi skilaði flokknum einhverjum mesta kosningasigri sem um getur í íslenskri stjómmála- sögu. I nýkjömum þingflokki Alþýðu- flokksins vöktu menn ekki lengi yf- ir tilefni hins mikla sigurs. Mynduð var rfkisstjóm þar sem engar trygg- ingar voru settar fyrir því að um- bótastefnan næði fram. Þvert á móti fékk Framsóknarflokkurinn, sem tapaði ótrúlegu fylgi, að halda sjálfu dómsmálaráðuneytinu og Vilntund- ur var settur út í kuldann. Á meðan Alþýðubandalagið valdi tvo ný- kjöma þingmenn til ríkisstjómar- setu, kom Vilmundur ekki til greina í þriggja manna ráðherralið Alþýðu- flokksins. Hann gaf kost á sér til þingflokksfonnennsku, en var aftur hafnað. Tvívegis gaf hann kost á sér til varaformennsku en var hafnað í bæði skiptin. Allt þetta og ýmislegt fleira olli Vilmundi talsverðum vonbrigðum. Á meðan hann vildi drífa flokkinn áfram, opna hann fyrir nýju fólki og nýjum hugmyndum, fannst honum eins og ýmsir aðrir vildu halda tlokknum litlum og lokuðum ntilli kosninga, ekki síst til að koma sér og sínum í nefndir og ráð á vegum hins opinbera. Engu að síður hélt Vilmundur sínu striki, starfaði af „Allt þetta og ýmis- legt fleira olli Vil- mundi talsverðum vonbrigðum. A með- an hann vildi drífa flokkinn áfram, opna hannfyrir nýjufólki og nýjum hugmynd- umjannst honum eins og ýmsir aðrir vildu halda flokknum litlum og lokuðum milli kosninga, ekki síst til að koma sér og sínum í nefndir og ráð á vegum hins op- inbera “ krafti fyrir Alþýðublaðið og var einn atkvæðamesti þingmaður flokksins þar til hann loks sagði sig " úr honum til að stofna Bandalag jafnaðannanna. Örlög manna, lífs og liðinna, voru Vilmundi ákaflega hugleikin. Stjómmálin, sagan og skáldskapur- inn voru honum eilíf uppspretta hugleiðinga um stöðu fólks í tilver- unni, hamingju þess og harma. Hann var tilfinningaríkur maður og tók gjaman nærri sér sorgir og sárs- auka annars fólks. Sjálfur mátti hann þó reyna meira en flestir aðrir ungir menn. í líft hans skiptust á skin og skúrir, bjartir dagar og dimmir. Hann átti til að verða dapur í bragði og hafði sig þá minna í frammi en við áttum að venjast af honum. Samt er það svo, að þegar ég lít til baka man ég Vilmund best þegar bjartast var yfir honum, þegar hann kastaði fram nýrri hugmynd eða hló sínum smitandi hlátri; þegar hann var glaður og h'fið virtist bjart framundan. Garðar Sverrisson rithöfundur var samstaifsmaöur Vilmundar Gylfasonar, m.a. á Alþýðuhlaðinu og Nýju landi. Hann er nú við nám í Bandaríkjunum. Hvað varð um arfinn? / / Arni Páll Arnason skrifar Þegar Vilmundar Gylfasonar er minnst vakna eðlilega spumingar um það hver áhrif hann hafði til lengri tíma litið á íslensk stjómmál. Sjást spor hans í einhverju? Flestir muna fyrst eftir gagnrýni Vilmundar á pólitíska spillingu. Ef litið er yfir það svið er ljóst að ýms- ir alvarlegri þættir hennar virðast hafa horfið með nútímalegri vinnu- brögðuin. Sú hlið spillingarinnar sem síst þoldi dagsljósið átti rætur sínar að rekja til neikvæðra vaxta og handaflsstýringar á gengi. Af því leiddi svo aftur skömmtunarkerfi flokkanna á fé og erlendan gjald- miðil. Sá hörmungatími er á enda mnninn og sú spilling sem honum fylgdi hefur horfið og mun halda áfram að hverfa í kjölfar eðlilegri viðskiptahátta. Heljartak varð- hunda valdsins á þjóðlífinu er ekki það sama og var. Skömmtunar- nefndimar og verðlagsráðin heyra sögunni til og þegar útvarpsráð gjammar minnir það helst á gamlan meinlausan hund. Kvótakerfi flokk- anna á opinberar stöður er enn við lýði og því ekki að undra að á því sviði berja atvinnukjaftaskamir hver á öðmm með nafn Vilmundar Gylfasonar að vopni. Ályktana- glaðir og illa lesnir fréttamenn nota svo orðið „spilling" í tíma og ótíma, jafnvel þótt einungis sé verið að ræða um fundaferðir ráðherra eða embættismanna. Þannig hafa þeir sem á eftir komu misst sjónar á að- alatriðunum og valdið því að um- ræða um spillingu er nú orðin venjulegt íslenskt öfundsýkishjal. En segir upptalning af þessu tagi okkur eitthvað unt afraksturinn af starfi Vilmundar Gylfasonar í pólit- ík? Hvað af þessum breytingum urðu íyrir áhrif frá honum og öðmm þeim sem fundu að spillingunni og hvað fyrir óhjákvæmilega þróun til nýs tíma? Skiptir það einhverju hversu oft nafni hans er veifað í deilum unt dægunnálin? Siðvæðingin og hin pólitíska umræða Einn stærsti þátturinn í pólitfk Vilmundar var að siðvæða íslensk stjómmál og íslenskt þjóðh'f. Stjómmálamennimir áttu að bera virðingu fyrir kjósendum sínum og líta á sig sem umbjóðendur þeirra. Embættismenn áttu að hlíta sömu reglum, fjölmiðlamir áttu að segja satt og rétt ffá. Mig langar að taka tvö dæmi, annað af gagnrýni hans á llokksblöðin og hitt þriðja af mann- drápsmálinu í Skaftafelli. Gagnrýni Vilmundar á flokks- blöðin var afar beitt. Kjami hennar var sá að flokksblöðin gætu ekki áunnið sér trúnaðartraust sem fréttamiðlar, þar sem þau væm of upptekin við að vemda og verja Flokkinn og þegja yfir þeim tíðind- um sem kæmu honum illa. Þetta hefur blessunarlega breyst nokkuð, að hluta til vegna þess að flokkamir ráða ekki fjölmiðlunum eins og þeir gerðu fyrir rúmum áratug og munar þar mestu um Ríkisútvarpið og ein- ungis að hluta til vegna þess að flokksblöðin hafa orðið hlutlægari. í vetur varð mikið havarí á Ríkisút- varpinu vegna mannabreytinga. Fjölmiðlar landsins fjölluðu ítar- lega um þetta ntál, að undanskildu Morgunblaðinu, sem birti svo und- arlegar fréttir af málinu að helst minnti á skrif Prövdu á óvissutím- um í gamla daga. Þama birtist hin gamla regla flokksblaðsins; að betra er að standa af sér ófriðinn og bíða þess að rofi til, frekar en að skýra lesendum frá atburðum. I gagnrýni sinni á meðferð mann- drápsmálsins í Skaftafelli deildi Vilmundur hart á íslenska embætt- ismenn og þá sérstaklega þá lög- lærðu. Inntakið í gagnrýninni var að þá skorti yfirsýn og hlutlægni og þeir leyfðu sér subbuskap og sveita- mennsku þegar erlendir aðilar ættu í hlut. Hefur þetta breyst til batnað- ar? Líklega má gera ráð fyrir að á þessu sviði hafi orðið umtalsverð framför. Breytingar undanfarinna ára á réttarfarslöggjöf hafa haft mikil áhrif til að tryggja réttarör- yggi og margvísleg lög hafa verið sett á sviði einkamálaréttar sem kveða skýrar en áður á um réttindi borgaranna. En það breytir ekki því að sveitamannalögfræðin vann einn sinn stærsta sigur nú nýverið í dómi meirihluta Hæstaréttar í svokölluðu bamsránsmáli. Arfurinn til lengri tíma litið Arfur Vilmundar Gylfasonar í stjómmálum er líklega af tvennum toga. Annars vegar hafði hann gíf- urleg áhrif á álit almennings á hvers konar misnotkun stjómmálamanna og embættismanna á aðstöðu sinni og á almannafé. Hins vegar má ætla að honum hafi tekist að breyta nokkuð hinu pólitíska landslagi, því eftir Viðreisnina mátti sjá ákveðin merki þess að Alþýðuflokkinn langaði að teygja sig til vinstri, í keppni urn fylgi við Alþýðubanda- lagið. Hin andlausa vinstri stefna áttunda áratugarins, kröfugerðar- sósíalismi og kerfishyggja ásamt álitlegum skammti af efnahagslegu óraunsæi, var þess konar að Al- þýðuílokkurinn hefði aldrei komist lifandi frá þeirri Bjarmalandsför. Vilmundur gat hins vegar að miklu leyti komið í veg fyrir þessa þróun með því að koma fram með vinsæla stefnu, byggða á gömlum grunn- hugmyndum jafnaðarstefnunnar og hefðbundnu frjálslyndi Alþýðu- flokksins. Það er síðan athyglisvert að sjá að ferskasti hluti hugmynda- þróunar meðal vestrænna jafnaðar- og miðjumanna á níunda áratugn- um á mikinn samhljóm með hug- myndurn Vilmundar; nægir þar að nefna hugmyndir Lafontaine í Þýskalandi, Haarder í Danmörku, hópsins í kringum Tony Blair í Bretlandi og ýmsa þætti stefnu Felipe Gonzales á Spáni. Vilmundur hafði mikil áhrif á nú- verandi víglínur íslenskra stjóm- mála. Annars vegar eru þeir sem kjósa einfaldari, tnírri og sam- kvæmari stjómmál og um leið valdaminni, hinum megin em full- tníar kraftapólitíkurinnar sem allt vill hafa á sínu borði. Á sama hátt stendur deilan um meiri eða niinni umbúðir um opinbera þjónustu. Löggjöf um grundvallaratriði og al- mennara frelsi eða smásmyglina og hina flokkspólitísku stjóm. Um margt hefur þeim sem komu í kjöl- farið tekist að halda merkinu á lofti og þoka málum áfram, þó þessar víglínur geti verið dálítið á reiki. Eða hvað er orðið um gagnrýnina á ósnertanlegt stofnanaveldi verka- lýðshreyfingar og atvinnugreina? Má ekki líka halda því fram að þró- unin hafi orði sú að frjálslyndið þoki nokkuð fyrir stjómlyndinu í hita leiksins? Árni Páll Arnason er lögfiœðing- ur og staifar í utanríkisráðuneyt- inu.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.