Alþýðublaðið - 22.06.1993, Síða 15

Alþýðublaðið - 22.06.1993, Síða 15
Þriðjudagur 22. júní 1993 15 Minning Magdalena Schram Ætli hún hafi ekki verið tíu ára telpuhnokki, jörp á hár með lipran fót, þegar ég man hana fyrst. Hún var sú fimmta í röðinni í systkina- hópi Bryndísar. Og strax einhvem veginn öðru vísi. Þau eldri voru áberandi frek til ijörsins, fyrirferð- armikil og gott ef ekki rúmífek. Malla var öðru vísi. Hún sýndist vera meira út af fyrir sig; stundum eins og í eigin heimi þangað sem lætin í kringum hana náðu ekki. Hún var bókaormurinn í fjölskyld- unni. Malla átti góða daga og góða fé- laga í EMMERR á sjöunda ára- tugnum. Hún varð stúdent 1968. Það hefur auðvitað alveg sérstaka merkingu. Það þýddi að vera ein- hvem veginn öðm vísi - með áhersiu á einhvem veginn. Það var alltaf mátulega óljóst. En við hin létum hana auðvitað ekki komast upp með annað en að svara til saka fyrir þessa „glötuðu kynslóð" blómabama og bítlavina. Að loknu stúdentsprófi las Malla sögu í enskum stíl j úreltum textflbæ á norður Englandi. Lanc- aster heitir þar. Hún lærði meðal annars það að sú saga er ekki ffá- sagnarinnar virði, sem ekki er vel sögð - færð í stflinn. Og Malla féll vel inn í lífsmynstur enska há- skólabæjarins á bítlaskeiðinu: morgunsvæf, skrafhreifm og fé- lagslynd. Bréftn til stóm systur vom mörg löng og lipurlega stfluð. Að loknu prófi dvaldist henni enn um nokkur ár á Englandi þar sem hún drakk í sig andrúmsloftið. Eftir að hún sneri heim bytjaði hún að vinna fyrir sér sem sögu- kennari við Menntaskólann á Isa- ftrði. Hún lagði út af samtímasögu Barracloughs um hlekki hugar- farsins forðum daga og endalok hugmyndaffæðinnar. Henni lá talsvert á hjarta enda búin að upp- götva ný sannindi að hún hélt. Og vottaði þá þegar fyrir svolitlum femínisma. Þegar ég spurði hana nánar út úr um þessar kellingar sagði hún gjaman: Lestu þær bara sjálfúr - og lánaði mér ,Jcvengeld- inginn" eða ,Jcvennaklósettið“ með vorkunnlátu brosi í kaupbæti. Eg held ég haft skilað þessum kell- ingum aftur. Gömlum marxista þótti þetta þunnur þrettándi. En við létum kyrrt liggja. Eftir að þau Malla og Hörður stofnuðu með sér samvist esseff hófst þýska tímabilið í lífí hennar. í ffamhaldi af Virginiu Woolf komu endurminningar allra þess- ara þýsku stríðsekkna - miklar tragedíur úr veröld sem var. Mér kom að vissu leyti á óvart hversu auðveldlega norðurenski öreiga- kúltúrinn vék fyrir borgaralegum dyggðum þýskættuðum, góðu skipulagi og umhirðu á Múnchen- ámnum og æ síðan. Kannski bættu þau hvort annað upp, enska efa- semdin og bæverska búsældin? Rétt eins og Malla og Hörður bættu hvort annað upp. Með þessa heimanfylgju í far- angrinum stofnuðu þau ferðaskrif- stofu sem var svo vel rekin að manni fannst einhvem veginn eins og hún gengi af sjálfu sér. Svona var hún vel skipulögð. Ferðalangar Möllu og Harðar voru ekki að leita að gleym-mér-ei diskóteksins, heldur friðnum í sjálfum sér. Þetta vom íjallagarpar, jöklafarar og fuglavinir - fólk með augu fýrir því smáa sem gerir undur lífsins svo stórt. Einkum þýskir prófess- or-doktorar, sem fundu hugsjón í Norðrinu og ítalskir lífskúnstnerar á flótta undan Suðrinu. Og oft glatt á hjalla. En alltaf vel skipulagt. Smám saman var þetta orðið forstandsheimili - fyrst við fjöruna í Sörlaskjólinu, seinna í stríðs- gróðahverfi á Melunum. Og ævin- lega jaín gaman að líta við: Heilsa ’ h'eimasætunum Höllu, Kötu og Guðrúnu með kossi á kinn; stelast í eina pípuna hans Harðar með Lö- wenbránum; fá stuttan útdrátt úr Spígel um tilvistarvanda Vestur- landa og hina þýsku sektarkennd; finna fyrir sitt leyti kurteislega að vemleikafirringu ’68 kynslóðar- innar (og jafnvel Kvennalistans, ef maður dirfðist) gagnvart vandan- um og valdinu - einkum á sunnu- dagsmorgnum eftir sund. En undir værðarlegu yfirborð- inu vakti alvara lífsins, eins og í leikriti eftir Ibsen. Möllu var dauð- ans alvara í pólitík. Hún var ekkert upp á punt. Hún var femínisti til orðs og æðis, þótt hún léti mig í friði sem vonlaust tilfelli. En hún var komin langleiðina að snúa dætmm mínum til femínisma sumum hvetjum, og þótti mér þá fokið í Sörlaskjólið. Malla var vakin og sofin í sinni pólitík: Að sjá um Vem, að undirbúa borgar- stjómarfundi, að flytja pistla í út- varpið, að ráðgast við stöllur sínar um stefnumál og kosningar. Aldrei í fremstu röð - en alltaf af fullri einurð. Ég gat þess í upphafi að mér hefði þótt hún vera öðm vísi frá fyrstu tíð og hún hélt því áfram til hinstu stundar. Fyrir fáum ámm fékk hún viðvömn um að lífið lifir á veiku skari eins og blaktandi kertaljós sem getur slokknað fyrir- varalaust. Það er á slflcum stundum sem fyrst reynir í alvöm á mann- eskjuna - hvort hún er bara veil og hálf eða úr ósviknum málmi heil og ekta? Hetjan er sú sem tekur því sem að höndum ber án þess að kveinka sér; sú sem ber harm sinn í hljóði. Þannig var Magdalena til hinstu stundar. Að vísu reiðubúin að opna hug sinn um okkar stopulu stund og afmarkaða tíma. I lífinu var hún okkur sem hana þekktum ljúfur ferðafélagi. I dauðanum varð hún okkur sú fyrirmynd sem fæst okkar munum fá undir risið þegar þar að kemur. Æðrist eigi „þvf að mitt ok er Ijúft og byrði mín er létt“, sagði sá sem vildi bera byrðar annarra. Orðlaust fór hún að hans dæmi. Slflcur efniviður glæðir söguna lífi, eins og hún vissi kvenna best. Minning hennar lifir - þótt hún deyi, í þakklátum huga okkar allra, sem hana þekkt- um. Jón Baldvin I I - — 1 i R A 2 AUG L y S 1 1 N 1 G A R 1 Listaskóli í Laugarnesi Tilboð óskast í hluta frágangs jarðhæðar hússins að Laug- arnesvegi 91 í Reykjavík. Um er að ræða ýmis verk til þess að unnt verði að taka hluta hússins í notkun til bráðabirgða, alls um 2.600 m2. Verktími er til 1. september 1993. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Innkaupastofnunar rík- isins, Borgartúni 7, Reykjavík, frá og með mánudeginum 21. júní 1993. Verð útboðsgagna er kr. 12.450,00 m/vsk. Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 30. júní kl. 11.00. ll\ll\IKAUPAST0FI\IUI\l RÍKISINS BOHGAR TUNI ’ 10‘. HE r Fjárhús að Hesti, Andakíls- hreppi, Borgarfirði Framkvæmdadeild Innkaupastofnunar ríkisins f.h. Rann- sóknarstofnunar landbúnaðarins, óskar eftir tilboðum í byggingu fjárhúss að Hesti, Andakílshreppi, Borgarfirði. Verkið tekur til vinnu við gröft, lagnir, uppsteypu og frágang hússins að utan sem innan. Stærð hússins er um 900m2. Verktími ertil 1. nóvember 1993. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Innkaupastofnunar rík- isins að Borgartúni 7, Reykjavík, til og með þriðjudeginum 29. júní 1993. Verð útboðsgagna er kr. 12.450 m/vsk. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BOHC.AR TUNI 7 10S HE YKjAvlK Síldar- og fiskimjölsverk- smiðja til sölu Fiskveiðasjóður íslands auglýsir til sölu síldar- og fiskimjöls- verksmiðju austan Grundarstígs (Þuríðarbraut 15), Bolung- arvík (áður eign Hóla hf.). Eignin selst með öllum mannvirkjum, tækjum og búnaði, sem henni tilheyra, þ.e. með öllu því fylgifé sem sjóðurinn eignaðist með kaupsamningi við þrotabú Hóla hf. Um er að ræða verksmiðjuhús, byggt 1963, um 11.250 rúmmetra, hráefnisþrær (1963) um 4.830 rúmmetra, meltu- vinnslu (1985) um 1.970 rúmmetra, meltugeymi (1985) um 170 rúmmetra, mjölgeymslu (1977) um 5.300 rúmmetra, lýsistanka (1963) um 1.040 rúmmetra, lýsistank (1978) um 1.190 rúmmetra, beinaþró (1963) um 340 rúmmetra, auk dæluhúss o.fl. Einnig fylgir Grundarstígur 13, (baðhús), byggt 1956, 52 fermetrareða um 161 rúmmetri. Frestur til að skila tilboðum rennur út 12. júlí 1993 kl. 15.00. Tilboð skulu send skrifstofu sjóðsins í lokuðu umslagi merkt „fiskimjölsverksmiðja í Bolungarvík". Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu F.Í., Suður- landsbraut 4, Reykjavík (sími 679100). Áskilin er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Fiskveiðasjóður íslands. SUMARFERÐ - SUMARFERÐ Dagsferð 3. júlf Syðri Fjallabaksleið Sumarferð Alþýðuflokksins verður 3. júlf. Farið verður frá Alþýðuhúsinu í Reykjavík kl. 9.00 stundvíslega. Ekið verður austur í Fljótshlíð og þaðan upp á hálendið. Áð verður á fjöllum í Hvanngili og nesti snætt. Síðan verð- ur farið heim í Gunnarsholt þar sem starfsemi Landgræðslu ríkisins verð- ur skoðuð. Þar verður grillveisla um kvöldið. Verð: fullorðnir 2500 krónur. Börn innan 12 ára 1200 kr. Miðapantanir og nánari upplýsingar á skrifstofu Alþýðuflokksins sími 29244. Einnig hjá Valgerði sími 29878 og Jóhannesi sími 17488 eftir kl. 17 á daginn. Frá Alþýðuflokknum Skrifstofa Alþýðuflokksins, Hverfisgötu 8-10, verður lokuð frá 21. júní til 31. júlí vegna sumarleyfa. Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur Islands Frystihús til sölu Fiskveiðasjóður íslands auglýsir til sölu fiskvinnslu- og frysti- hús að Brimbrjótsgötu 10, Bolungarvík (áður eign Einars Guðfinnssonar hf.). Húsið selst með öllum tækjum og búnaði sem í því er, þ.e. með öllu því fylgifé sem sjóðurinn eignaðist með kaupsamn- ingi við þrotabú Einars Guðfinnssonar hf. Um er að ræða u.þ.b. 30.000 rúmmetra hús með frystivél- um, frystiklefum, fiskvinnslutækjum og öðrum búnaði, þ.á m. tækjum til rækjuvinnslu. Frestur til að skila tilboðum rennur út 12. júlí 1993, kl. 15.00. Tilboð skulu send á skrifstofu sjóðsins í lokuðu umslagi merkt „frystihús í Bolungarvík". Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu F.Í., Suður- landsbraut 4, Reykjavík, (sími 679100). Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Fiskveiðasjóður íslands. MIÐSTOÐ FÓLKS í ATVINNULEIT Opið mánudag til föstudags frá kl. 14 til 17 Vikuna 20. - 26. júní Á DAGSKRÁ: Miðvikudaginn 23. júní kl. 15 Fulltrúi frá Krabbameinsfélaginu kemur og ræðir um reykingar og leiðir til þess að hætta

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.