Alþýðublaðið - 02.07.1993, Blaðsíða 6
6
Föstudagur 2. júlí 1993
s
Seglbrettaskóli Islensku umboðssölunnar
í Nauthólsvík
Seglbrettaáhuginn
stöðugt að aukast
sigla 2-3 sinnum á
vetri. Til að mæta aukn-
um áhuga tók íslenska
umboðssalan sig til og
tók við rekstri Segl-
brettaskólans í Naut-
hólsvík af Skátabúðinni.
Viðtökurnar hafa verið
frábærar og aðsóknin
hefur verið mjög góð
fram að þessu. Kennsla
hófst í byrjun júní og við
ætlum að vera að þang-
að til í lok júlí. Fimm
manns komast á hvert
námskeið sem tekur
fjögur kvöld og er hvert
tveggja tíma langt.
Námskeiðsgjaldi er stillt
í hóf og allur útbúnaður
er á staðnum, blautbún-
ingar, bretti og annað
slíkt. Hæfilegur aldur til
seglbrettasiglinga er í
raun allur aldur frá
14-15 ára. Við erum
nokkuð háðir veðri og
sérstaklega vindum því
helst þurfa að vera að
minnsta kosti 5 vindstig.
Siglt er síðan í allt að 10
vindstigum," sagði Mar-
inó Njálsson yfirkennari
Seglbrettaskólans í
stuttu spjalli við Alþýðu-
blaðið í gær.
Borgaðu rafmagnsreikningmn
áður en þú ferð í fríið!
Þáverður heimkoman ánægjulegri
Seglbrettasiglingar eru sífellt að verða vinsælari íþrótt á íslandi. Aðallega er siglt á sumrin í 5 til 10 vindstigum en á veturna fara þeir hörðustu í
pflagrímsferðir tfl Kanaríeyja og Hawaii. Meðfylgjandi mynd er einmitt tekin í einni slíkri ferð.
„Seglbrettaáhugi hefur
verið sífellt að aukast
síðustu árin og Segl-
brettasamband íslands
telur nú um 200 manns.
Aðalvertíðin er á sumrin
en þeir hörðustu fara og
Það er ómetanlegt að komast í
gott sumarfrí en það er líka notalegt að
koma heim aftur — ef allt er í lagi. Áður
en við förum göngum við tryggilega frá
öllu. Við greiðum rafmagnsreikninginn
svo að heimilistækin geti sinnt skyldum
sínum í fjarveru okkar og þjónað okkur
strax við heimkomuna.
Dreifikerfi Rafmagnsveitu Reykja-
víkur er eitthvert hið öruggasta í heimi.
Viðskiptavinirnir geta treyst á góða og
ódýra orku, ef þeir aðeins greiða fyrir
hana á eðliiegum tíma. Verði misbrestur
þar á bætast við dráttarvextir — og þá er
líka stutt í hvimleiða lokun.
Rafmagnsreikningar eru sendir út á
tveggja mánaða fresti. Gjalddagi þeirra er 5. dagur
næsta mánaðar eftir útgáfudag. Ef reikningur hefur ekki
verið greiddur á gjalddaga reiknast á hann dagvextir.
Láttu raúnagnsreikninginn hafa
forgang!
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
SUÐURLANDSBRAUT 34
108 REYKJAVÍK SÍMI 60 46 00
„Ég er búinn að vera í þessu í fjögur ár,
síðan ég var 14 ára gamall og það er í
raun kjörinn aldur til að byija. Nei, þetta
er ekki svo dýrt sport að stunda en startið
er nokkuð kostnaðarsamt. Ágætur bún-
aður kostar kannski rúm 100 þúsund en
síðan geta menn farið endalaust upp skal-
ann. Þróunin er svo hröð í búnaðinum að
maður þarf sífellt að vera endumýja. En
það er svo sem eins með tölvur og skíði,
ásamt öllum öðrum græjum sem em í sí-
felldri framþróun.
Þeir sem sigla mest hafa verið að fara
pílagrímsferðir til Kanaríeyja eða jafnvel
Hawaii og þangað stefni ég með fleirum
um næstu jól. Bestu öldumar héma á höf-
uðborgarsvæðinu má fínna við Gróttu á
Seltjamamesi en einnig siglum við nokk-
uð á Leirvogsvatni og Hafravatni. Ef við
förum út fyrir bæinn þá em mjög góðar
öldur við Þorlákshöfn. Þetta sport er ekk-
ert hættulegra en hvað annað ef farið er
að með gát og ég vil bara hvetja alla til að
hafa samband við okkur í síma 26488 og
skrá sig sem fyrst á námskeið. Þetta er
ógleymanleg upplifun," sagði Marinó
Njálsson að lokum.