Alþýðublaðið - 02.07.1993, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 02.07.1993, Qupperneq 7
Föstudagur 2. júlí 1993 7 BLEIKT & BLÁTT er komið út, meðal ejhis er umfjöllun um Curiosa Sexualis og raðfullnæging karla BLEIKT & BLATT er kom- ið út. Að vanda má finna í þessu sérstæða (hérlend- is) tímariti fróðlega hluti ættaða úr hinum og þess- um greinum kynlífsgeirans. Lærðir sem leikmenn leggja til efnið, ritstjóri BLEIKT & BLÁTT er Þór- arinn Jón Magnússon. Tímaritið er rúmar 50 síð- ur, troðfullt af litmyndum og kostar í smásölu 458 krón- ur. Útgefandi er Sam- út- gáfan Korpus hf. Meðal efnis í þessu tölublaði: Líkami þinn, umfjöllun um hvaða mat fólk leggur á líkama sinn; Curiosa Sexualis, fróðleik- smolar um kynlíf; Kvalalosti, Óttar Guð- mundsson skrifar; Ögrandi og óbugandi, fjallað um Camillu Paglia; Raðfullnœging karla, Þorsteinn Erlingsson skrifar; Spuri um kynlíf, sex spurningar og svör um kyn- líf. Einnig er þama að fínna fleiri athyglis- verðar greinar: Þátttaka kvenna í kvenna- kúgun, Þórdís Bachman skrifar; Kynsvall Grikkja, Ingólfur V. Gíslason skrifar. Sið- ferðiskemtd, Pjetur Þ. Maack skrifar; Sjálfsskoðun og skortur á kynlífslöngun, Sigtryggur Jónsson skrifar; Konur, kynlíf og stjömumerki, skýrir sig sjálít. Forsíða nýjasta tölublaðs BLEIKT & BLÁTT. SAMBAND UNGRA JAFNAÐARMANNA ÞÓRSMERKURFERÐ HELGINA 9.-11. JÚLÍ Nú eru öll pláss að fyllast í Þórsmerkurferð ungra jafnaðarmanna. Enn eru örfá sæti laus, en það verður ekki lengi. Þessi helgi er ein af stærstu ferðahelgum ársins og vitað er að þúsundir manna munu leggja leið sína í Þórsmörk um þessa helgi. Fjörið verður magnþrungið! Haldið verður af stað frá Alþýðuhúsinu í Reykjavík á föstudeginum klukkan 18:15. Mæting klukkan 18:00. Verðið er ótrúlega lágt vegna afar hagstæðra samninga við Austurleið hf., aðeins krónur 3.300.-. Gist verður í skála Austurleiðar í Húsadal. Þessi staður er eins og margir vita ótrúlega fallegur enda Þórsmerkursvæðið ein af perlum íslenskrar náttúru. Hvað þarf að taka með sér: Sængurfatnað, mat, veigar og góða skapið. Æ, þið vitið, allt þetta dæmigerða sem fylgir útilegum. Lysthafendur eru hvattir til að panta hér og nú (og ekki seinna en í gær) hjá Stefáni Hrafni Hagalín, framkvæmdastjóra SUJ, vs. 625566/29244, hs. 616061, fax. 629244. Clinton eignast nýjan hálfbróður Maður að nafni Ritzenthaler segist vera samfeðra Bandaríkjaforsetanum og hefurfært trúverðugar sannanir fyrir því. Ættingjar Clinton draga þærsamt í efa. Hinir rneintu hálfbrœður spjölluðu í kortér um daginn og œtla að hittast. Líkt og flestir aðrir sá Ciinton Bandaríkjaforseti mann að nafni Henry Leon Ritzenthaler í fyrsta skipti í sjónvarpsþáttunum „CBS í dag“ og „Góðan daginn Bandaríkin". Örugglega horfði hann með mikilli athygli á skjáinn þennan dag því Ritzenthaler er, eins og gjörvöll heimsbyggð ætti að vita núna, mað- urinn sem segir að faðir sinn og fað- ir Clinton séu einn og sami maður- inn, W.J. Blythe. Henry Leon Ritz- enthaler er annars 55 ára eigandi húsvörslu-fyrirtækis en mun nú vera sestur í helgan stein í smábænum Paradís í Kalifornfu. Washington Post skúbbar Fréttin um að Bill Clinton ætti óafvit- andi eldri hálfbróður birtist fyrst í stór- blaðinu Washington Post í tengslum við Feðradaginn sem þeir Bandaríkjamenn halda hátíðlegan ár hvert. Þess ber að geta að W.J. Blythe var fyrsti eiginmaður Virginia Kelly, móður forsetans, og dó áður en Clinton fæddist. Trúverðugar sannanir I greininni í Washington Post var birt giftingarvottorð sem sýndi að Blythe hafði leynilega gifst konu að nafni Adele Gash árið 1935. Þau skildu skiptum ári seinna en héldu góðum vinskap. Þrettán mánuðum eftir skilnaðinn ól fyrrverandi eiginkonan sveinbam, Ritzenthaler. Líkt og Clinton tók hann síðar upp ættamafn stjúpföðurs síns. A fæðingarvottorði Ritz- enthaler kemur fram að Virginia Kelly gefur upp W.J. Blythe sem föður sonar síns. Skyldleiki uppgötvaður Það var ekki fyrr en um það leyti þegar kosningabarátta Clinton síðasta sumar stóð sem hæst að Ritzenthaler fann út að forsetinn tilvonandi væri einnig sonur W.J. Blythe. Ritzenthaler skrifaði forseta- efninu en fékk aldrei svar. „Sennilega héldu aðstoðarmenn hans að við væmm einhveijir mgludallar, rétt nýkomin niður úr trjánum," segir Judith, eiginkona Ritz- enthaler. Gósentíð fjölmiðlanna Stóm sjónvarpsstöðvanetin í New York skipulögðu endalaus viðtöl og Ritzenthal- er-hjónin fóm sem hvirfilbylur um borg- ina en héldu sig við jörðina í yfirlýsing- um. „Það er ósköp indælt að vera í stöðug- um fjölmiðlaviðtölum og hvað þá að vera keyrður um í glæsivögnum," sagði hinn meinti hálfbróðir forsetans. „Eg hef aldrei upplifað annað eins á ævinni og mun aldrei upplifa slíkt aftur.“ Ritzenthaler er flokksbundinn repúblikani en að sjálf- sögðu kaus hann Clinton í forsetakosning- unum. Hálfbræður spjalla Á föstudegi, eftir nokkurra daga til- raunir, náði forsetinn í manninn sem segir þá samfeðra. Þeir spjölluðu í kortér og ákváðu að hittast einhvem tímann í náinni framtíð. En sumir af ættingjum Clinton úr föðurætt em þess fullvissir að Ritzenthal- er sé alls óskyldur þeim. „Blythe-fjöl- skyldan hefur ekki poka undir augunum. Clinton erfði þá úr móðurættinni," segir Vera Blythe Ramey, frænka forsetans. „Ég veit hveijum ég er skyld og hveijum ekki.“ Henry Leon Ritzenthaler: „Það er ósköp in dœlt að vera í stöðugum fjölmiðlaviðtölum og hyað þá að vera keyrður um í gUesivögnum. Ég hef aldrei upplifað annað eins á œvinni og mun aldrei upplifa slíkt aftur.“ Læknastöður á Siglufirði Auglýstar eru stöður tveggja heilsugæslulækna við heilsugæslustöð og sjúkrahús Siglufjarðar. Önnur staðan er laus frá 1. september 1993 eða um áramót. Hin staðan losnar sumarið 1994. Æskilegt er að umsækjandi hafi sérfræðimenntun í heimilislækning- um. Vegna starfa við sjúkrahúsið er reynsla annars læknisins í svæf- ingum (6 mán.) æskileg. Umsóknir berist til stjórnar fyrir 1. ágúst 1993. Nánari upplýsingar veita framkvæmdastjóri eða yfirlæknar í síma 96-71166. Stjórn heilsugæslustöðvar og sjúkrahúss Sigtufjarðar. miövikudaginn: | VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHŒÐ Á HVERN VINNING m6afe 2 (á ísl. 0) 12.499.000 n 5 af 6 ILS+bónus 0 733.952 IRl 5 af 6 7 40.834 IFl 4 af 6 286 1.590 "jra 3 af 6 jCfl+bónus 845 231 Aðaltölur: BÓNUSTÖLUR (28)(4o)(45) Heildarupphæð þessa viku 26.667.725 á Isl.: 1.669.725 UPPLÝSINGAR, SÍMSVARI91- 68 1S11 LUKKULÍNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451 BIRT MEO FYRIRVARA UM PRENTVILLUR Hamraborg 7 - sími 42265 FATAHREINSUN K0PAV0GS ATH! Gengiö inn að noröanveröu Opiö alla virka daga írá kl. 8:00 til 18:00 - Opið til kl. 19:00 á föstudögum - Opið til hádegis á laugardögum

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.