Alþýðublaðið - 02.07.1993, Síða 10
10
Föstudagur 2. júlí 1993
Óeining hjá sjálfstœðismönnum og hvert klúðrið rekur annað:
Davíð er óánægður með Markús Orn
Prófkjör í haust þarsem Markús Öm Antonsson þarfaðfesta sig í sessi borgarstjóra.
Grimmileg barátta borgarfulltrúanna í aðsigi
Fyrir skömmu boðaði
Markús Örn Antonsson
borgarstjóri um það bil
sjötíu manns til fundar
í Húsi verslunarinnar.
Markús Örn leit á fund-
inn sem einskonar liðs-
könnun fyrir prófkjör
sjálfstæðismanna í
Reykjavík sem fram fer
_ í haust. Um það bil 45
mættu til fundarins og
var ekki síst rætt opin-
skátt um stöðu Mark-
úsar Arnar og mögu-
leika Sjálfstæðisflokks-
ins fyrir borgarstjórnar-
kosningarnar á næsta
ári. Markús Örn mun
hafa litið svo á að flest-
ir fundarmanna væru
einarðir bandamenn
“hans. Það er þó tals-
vert málum blandið.
„Flestir mættu ein-
göngu til þessa fundar
fyrir forvitni sakir,“
sagði borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins
.
Þrjú fyrrum borgarstjóraefni í gættinni. Sagt cr að Vilhjálmur ráði því sem hann vill bakvið tjöldin; staða Katrínar hef-
ur veikst og flcstir búast við að Magnús L. Sveinsson dragi sig í hlé - ella verður hann undir í prófkjörinu í haust.
sem Alþýðublaðið
ræddi við. „Þarna voru
meðal annars harðir
stuðningsmenn þeirra
borgarfulltrúa sem alls
ekki eru sáttir við störf
Markúsar Arnar.“
Markús Öm Antonsson hefur nú
verið borgarstjóri Reykvíkinga í
tvö ár. Þegar Davíð Oddsson lét af
embættinu tókst ekki eining innan
borgarstjórnarflokksins um eftir-
mann, og raunar leit Davíð svo á, að
enginn af borgarfulltrúunum væri
nógu öflugur til þess að verða odd-
viti sjálfstæðismanna í Reykjavík.
Þessvegna sótti Davíð hinn
gamla forseta borgarstjómar upp í
Efstaleiti þarsem Markús Öm hafði
gegnt embætti útvarpsstjóra við
góðan orðstír síðan 1985.
Davíð óánægður með afleiki
Markúsar
Samkvæmt mjög traustum heim-
ildum Alþýðublaðsins er Davíð
Oddsson hinsvegar um margt ósátt-
Ámi Sigfússon. Borgarstjóradraumurinn fyrir bí og hann sækir heldur ckki
mikið fylgi til ungliðahreyfingarinnar lengur.
ur við störf Markúsar Amar. Davíð
hefur þannig í einkasamtölum lýst
áhyggjum sínum yfir hversu
óhönduglega sjálfstæðismenn í
Reykjavík hafa rekið mál SVR. Þá
mun Davíð hafa þótt Markús Öm
hafa sýnt mikið dómgreindarleysi
þegar hann sendi embættismönnum
SUMARFERÐ - SUMARFERÐ
Dagsferð 3. júlí - Suðurland
Sumarferð Alþýðuflokksins verður laugardaginn 3. júlí.
Farið verður frá Alþýðuhúsinu í Reykjavík stundvíslega klukkan 09.00.
Ekið um Þorlákshöfn, Eyrarbakka og Stokkseyri.
Áð verður við Seljalandsfoss og nesti snætt.
Síðan verða Landeyjar skoðaðar og endað í Gunnarsholti þar sem starfsemi Landgræðslu ríkisins verður skoðuð.
Þar verður grillveisla um kvöldið.
Verð: fullorðnir - 2.500 krónur, börn innan 12 ára -1.200 krónur.
Miðapantanir og nánari upplýsingar á skrifstofum Aiþýðuflokksins, sími 91-29244.
Einnig er hægt að hafa samband við Valgerði Gunnarsdóttur sími 29878 og Jóhannes Guðmundsson sími 17488, eftir klukkan 17 á daginn.
í