Alþýðublaðið - 02.07.1993, Qupperneq 11

Alþýðublaðið - 02.07.1993, Qupperneq 11
Fðstudagur2 júlf 1993 11 Markús Öm í hlutvcrki borgarstjóra þegar hann tók á móti Reykvíkingum, 100 ára og eldri. Katrín Fjeldsted fylgist með. Markúsi hcfur ekki tekist að samcina borgarstjórnarflokkinn eftir slaginn um stólinn fyrir tveimur ámm. Hin leiðin felst í því að kjósendur í prófkjörinu raða ffambjóðendum niður í sæti, til dæmis frá efsta sæti og niður í það áttunda. Alþýðu- flokkurinn í Reykjavík hefur jafnan viðhaft þessa aðferð, en Sjálfstæð- isflokkurinn hefur prófað báðar. Mjög þýðingarmikið er fýrir Markús Om að fyrri leiðin verði Sveinn Andri Sveinsson og Davíð Oddsson á fundi í borgarstjórn. Innan ungliðahreyflngarinnar er megn óánægja með Svein og búist við að framboði annars ungliða verði stefnt gcgn honum. Davíð Oddsson hefur hinsvegar lýst efasemdum um dómgreind og frammistöðu Markúsar, mannsins sem hann valdi sjálfur í borgarstjórastólinn. Reykjavíkurborgar formlegt bréf þarsem þeim var skipað að beina viðskiptum til Hótel Borgar. „Það var ótrúlegt að Markús Öm skyldi senda þetta bréf, í stað þess einfaldlega að tala beint við emb- ættismennina. Hann hefði eins get- að auglýst í blöðunum að Reykja- víkurborg hefði aðeins áhuga á að skipta við eitt veitingahús," sagði borgarfulltrúi flokksins við Al- þýðublaðið. Sárin eru ekki gróin Áðuren Davíð Oddsson varpaði svo óvænt Markúsametinu fyrir tveimur ámm höfðu þeir Ámi Sig- fússon og Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son borgarfulltrúar stigið vand- ræðalega glímu um borgarstjóra- stólinn. Hvomgur þeirra naut stuðnings meirihluta í borgarstjóm- arflokknum (sem telur 20 manns) en þyngra á metunum vó að Davíð treysti hvomgum þeirra. Katrín Fjeldsted hafði líka fullan hug á að blanda sér í baráttuna en naut einskis stuðnings. Sárin úr þessum slag em ekki gróin. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, sem er aldavinur Markúsar Amar, hefur að vísu unnið náið með borg- arstjóranum en framavonir hans innan Sjálfstæðisflokksins em að litlu eða engu orðnar. Sumir ganga hinsvegar svo langt að fullyrða að Vilhjálmur Þ. stjómi því sem hann vilji á bakvið tjöldin, enda situr hann í valdamiklum nefndum og starfar einvörðungu að borgarmál- unum. Staða Árna hefur veikst Staða Áma Sigfússonar er líka miklu veikari en áður. Ámi, sem nú er að vísu aðeins 37 ára, verðurekki hinn ungi borgarstjóri sem margir sáu í honum. Miklu skiptir að mjög margir úr ungliðahreyfingu Sjálfstæðis- flokksins eru orðnir andvígir Áma, en þangað sótti hann mikið af fylgi sínu. Ámi Sigfússon hefúr unnið náið með Sveini Andra Sveinssyni, ung- lambinu sem skipaði tíunda sæti listans, sem gríðarleg fylgisalda Sjálfstæðisflokksins í síðustu kosn- ingum skolaði óvænt alla leið inn í borgarstjóm. Sveinn Andri er mjög umdeildur í ungliðahreyfmgunni en þar berast menn nú á banaspjót vegna for- mannsslags í Sambandi ungra sjálf- stæðismanna. Einn af forystumönn- um ungliða sagði Alþýðublaðinu að ýmsir hugsuðu sér gott til glóð- arinnar í prófkjöri í haust, og víst er um að Sveinn fær harða sam- keppni. í þessu sambandi kemur nafn Birgis Ármannssonar fyrrver- andi formanns Heimdallar ítrekað upp en ekki er unnt að slá neinu föstu um framboð hans. Prófkjör í haust Sjálfstæðismenn í Reykjavík viðhöfðu ekki prófkjör til þess að velja listann í borgarstjómarkosn- ingunum 1990. Það var gert til þess að koma í veg fyrir grimmilegt stríð um arftaka Davíðs Oddssonar, þá- verandi borgarstjóra. Sjálfstæðismenn geta hinsvegar ekki vikist undan því að hafa próf- kjör að þessu sinni. Markús Öm verður að treysta sig í sessi og „- sanna sig“ með því að vinna góðan sigur. Það mun hinsvegar hafa í för með sér að þeir sem urðu undir í borgarstjóraslagnum fyrir tveimur ámm munu reyna að jafna metin. Krossapróf eða uppröðun? Ekki er enn búið að ákveða til- högun prófkjörsins eða hvenær það fer fram. Borgarfulltrúi sem Al- þýðublaðið talaði við sagði að til- högunin hefði úrslitaþýðingu fyrir útkomu Markúsar Amar. Tvær leiðir koma til greina. Ann- arsvegar einfalt „krossapróf' þar- sem kjósendur í prófkjöri velja ákveðinn fjölda frambjóðenda. Efa- lítið kæmi Markús Öm Antonsson bærilega útúr slíkum kosningum. Hvað gerir Aibert? Hann vill að sér verði boðið annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksifts en það kemur tæpast til greina. Hefur falast óformlega eftir þátttöku borg- arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í sérframboði. fyrir valinu. Ella munu aðrir þátt- takendur í prófkjörinu keppa að því að fá sem flest atkvæði í fýrsta sæt- ið. Þetta á sérstaklega við um Árna, Katrínu, Vilhjálm og Júlíus Haf- stein. Fyrir vikið yrði erfitt fyrir Mark- ús Öm að ná sannfærandi kosningu í efsta sætið og fá þarmeð óskorað umboð sjálfstæðismanna í Reykja- vík. Hversu mikið verður tapið? Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú tíu borgarfulltrúa í Reykjavík. Flestir innanbúðarmenn í flokknum gera ráð fyrir að tveir fulltrúar tapist í kosningunum. Baráttan verður þessvegna mjög hörð í prófkjörinu. Ekki er vitað hvort Magnús L. Sveinsson hyggst halda áffarn, en gefi hann kost á sér verður erfitt fyrir hann að halda öðm sætinu. Magnús varð varaborgarfulltrúi 1966 og hefur setið í borgarstjóm óslitið frá 1974. Flestir hafa búist við að Páll Gíslason drægi sig í hlé og Alþýðu- blaðið hefur heimildir fyrir því að Davíð Oddsson hafi beðið hann um að hætta fyrir síðustu kosningar. Þá neitaði Páll að verða við því. Nú mun Markús Öm hinsvegar hafa beðið Pál um að gefa kost á sér áfram. Einn borgarfulltrúi sem Al- þýðublaðið talaði við sagði að þetta væri táknrænt fýrir muninn á Davíð og Markúsi Emi: „Páll er atkvæða- lítill í borgarstjóm og hefur til dæmis ekki helgað sér einhvem ákveðinn málaflokk einsog aðrir borgarfulltrúar. Það er óskiljanlegt að Markús Öm skuli beinlínis fara þess á leit við hann að halda áfram.“ Staða Guðrúnar og Önnu Erfítt er að meta stöðu Guðrúnar Zoega og Önnu K. Jónsdóttur. Uppstillingamefnd Sjálfstæðis- flokksins gerði þær að borgarfull- trúum með því að fá þeim góð sæú síðast. Guðrún var þá ný í borgar- pólitík, en Anna var varaborgarfull- trúi, enda náði hún rétt þokkalegum árangri í prófkjörinu fyrir kosning- amar 1986. Að öllu samanlögðu má gera ráð fyrir að þær geú náð bærilegum ár- angri í haust enda taka þær ekki þátt í kapphlaupi Ama, Vilhjálms, Katr- ínar og Júlíusar og geta notið góðs af því. Albert vill annað sætið Sundurlyndi borgarfulltrúanna og tæp staða Markúsar Amar er ekki eina áhyggjuefni sjálfstæðis- manna í Reykjavík. Ekki er að vita hvað Albert Guðmundsson, enfant terrible Sjálfstæðisflokksins, gerir þegar hann snýr frá París í haust. Hann hefur komið þeim skilaboð- um til æðstu manna flokksins að hann vilji að sér verði boðið annað sæúð á listanum. Ella vofir sú hætta yfir Sjálfstæðisflokknum að Albert bjóði fram eigin lista. Alþýðublaðið hefur heimildir fyrir því að Albert hefur nefnt óformlega við menn úr borgar- stjórnarflokki sjálfstæðismanna að þeir taki þátt í framboði með hon- um. Mjög ólíklegt er hinsvegar tal- ið að einhveijir úr þeim hópi fari í framboð með Alberti, enda væri það tæpast vænlegt þegar til lengri tíma er litið einsog örlög allra pólit- íkusa Borgaraflokksins (nema Inga Bjamar Albertssonar) sanna. ...ella getur Albert fellt meiri- hlutann Albert Guðmundsson sóttist eftir efsta sæú á lista sjálfstæðismanna í Reykjavík fyrir borgarstjómar- kosningamar 1982. Davíð Oddsson sigraði í hörðu prófkjöri en Albert varð þriðji: Markús Öm Antonsson skaust nokkuð óvænt upp í annað sæúð. Ekki er að efa að Albert getur gert mikinn og afdrifaríkan usla ef hann býður ffarn eigin lista. Þá fyrst færi veldi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík að riða til falls. Albert tapaði fyrir Davíð og Markúsi Emi fyrir tólf ámm. Nú hefur hann í raun öll ráð Markúsar Amar í hendi sér: enda vandséð framhald á pólit- ískum ferii Markúsar, tapi hann borginni. Og það væri líka mikið persónulegt áfall fýrir Davíð Odds- son ef bjargvætturinn sem hann sótti uppí Efstaleiti yrði maðurinn sem tapaði Reykjavfkurborg aftur. Það var nú einu sinni Davíð Oddsson sem vann Reykjavík úr höndum vinstrimanna árið 1982.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.