Alþýðublaðið - 02.07.1993, Side 12

Alþýðublaðið - 02.07.1993, Side 12
12 Helga E. Jónsdóttir, bœjarfulltrúi vill útivistfyrir almenning, ekki örfáa golfara Föstudagur 2. júlí 1993 Golfvöllurinn gleypir útivistarsvæði almennings „Ég hef mikinn áhuga á því að Fossvogsdalur- inn verði að almennum útivistarreit, ekki fyrir fáa útvalda einsog allt stefnir nú í“, sagði Helga E. Jónsdóttir, bæjarfulltrúi Alþýðu- flokksins í Kópavogi. Hún er eindregið á móti því að 9 holu golfvöllur komi í dalinn. „Það verður sáralítið rými eftir í dalnum fyrir allan al- menning til útivistar, því golfvöllurinn sem verður 16 hektarar að stærð og tekur yfir allt að þriðjung svæðisins, verður að- eins fyrir 300 félaga í Golfklúbbi Kópavogs, aðeins þeir sem eru að leika golf hverju sinni mega fara um völlinn“. Helga segir að mikil andstaða sé gegn þessum golfvelli meðal bæjarbúa. Hún segist vonast til að þessi framkvæmd komist hvorki lönd né strönd í ríkiskerf- inu, en næst liggur fyrir að skipulagsyfir- HELGA E. JÓNSDÓTTIR, yfirfóstra við leikskólann í Furugrund ásamt nokkrum barna Helga vill standa dyggan vörð um. sinna, - leikskólinn er reyndar í Fossvogsdalnum, sem (A.mynd-E.Ól.) Kjarrhólma, láta sér detta í hug að setja upp golfvöll í miðju þorpinu. Golfvöllur á þessum stað sé algjör tímaskekkja og á skjön við almennar hugmyndir um vel heppnuð útivistarsvæði. Helga segir líka að framkvæmd þessi muni kosta Kópavogskaupstað stórfé, líklega á bilinu 40-60 milljónir króna. Bærinn hafi ekki efni á slíku bruðli. Allir viti um bága afkomu kaupstaðarins um þessar mundir. Ekki hafi skuldastaðan batnað við gengisfellinguna í vikunni. Þá hækkuðu skuldimar á einu vetfangi um 60 milljónir króna, því kaupstaðurinn er með 700 milljón króna erlent lán. ,,Ég er annars ekkert úrkula vonar um að golfvallarhugmyndin verði stöðvuð, eins og ég minntist á áðan. Skipulags- stjóri ríkisins getur gert það, sem og um- hverfisráðherra. Málið verður afgreitt á fundi Skipulagsstjórnar 27. júlí. Þá á eftir að auglýsa fyrirhugaða breytingu og þá geta íbúar við Fossvogsdal komið fram með mótmæli sín. Málið verður því ekk- ert útkljáð fyrr en í fyrsta lagi í haust, og vonandi með því að golfvöllur verður blásinn burtu af teikniborðinu", sagði Helga E. Jónsdóttir að lokum. völd samþykki þetta nýja mannvirki. ,^Ætli ég líti ekki við hjá Össuri okkar Skarphéðinssyni og reyni að vinna hann á okkar band, þetta heyrir undir umhverf- ismálin“, sagði Helga og segist vonast til að finna skilning hjá ráðherranum. Helga segist sjá Fossvogsdalinn fyrir sér sem hlýlegan og gróðri klæddan vett- vang fyrir allan almenning á svæðinu. Þama segir hún að geti blómgast mikið og gott mannlíf á öllum árstíðum, leik- tæki, grill, íþróttaaðstaða félaganna sem fyrir em í dalnum, HK og Víkings og ýmislegt annað. Golfvelli sé hinsvegar með öllu ofaukið. Talað hafi verið um púttvöll í fyrstu, síðan 3 holu völl, og nú sé hann orðinn 9 holur. „Það er athyglisvert að enginn í bæjar- kerfinu bað um þennan völl. Hann ein- faldlega laumaðist inn gegnum formann Skipulagsnefndar bæjarins, Kristin Krist- insson, byggingameistara, sem var einnig formaður Golfklúbbs Kópavogs. Það er engin furða þótt þessi golfvöllur hafi þótt all gmnsamlegur í öllum flokkum", segir Helga. Hún segir að varla mundu t.d. Hofsós- búar, sem em álíka margir og íbúar við Frá Fræðsluskrifstofu Vestfjarðaumdæmis Laus kennarastaða Staða kennara við grunnskólann í Reykjanesi er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 22. júlí 1993. Upplýsingar veita formaður skólanefndar, Páll Jóhannesson í síma 94-4819 og skólastjóri, Þorkell Ingimarsson í síma 91-20809. Fræðslustjóri Vestfjarðaumdæmis. Ferðafól káNor ðurlandi Fjölbreytt þjónusta vlð hringveginn — og víðar! Útibú Kf. Skagfiröinga í Varmahlíó Bjóöum feröafólki fjölbreytta þjónustu á fögrum stað við þjóöveg nr. 1: • Verslun meö dagvöru og ferðavörur. • Rúmgóð veitingastofa með allar veit- ingar. • Olíur og bensín. • Opið frá kl. 09:00-23:30. Útibú Kf. Skagfirðinga á Hofsósi og Ketilási í Fljótum Dagvöruverslanir, léttar veitingar, olíur og bensfn. • Opið frá 09:00-20:45. Verslun og þjónusta á Sauöárkróki, þar sem athafnalífiö blómstrar! Á Sauðárkróki býöur Kf. Skagfiröinga þjónustu sína: • Skagfirðingabúð, stærsta alhliða vöru- hús á Norðurlandi og ef til vill víðar! • Bifreiðaverkstæði, varahlutir og smur- þjónusta. • Vélsmiðja, rafmagnsverkstæði, afurða- stöðvar o.fl. o.fl., bara að nefna það! velkomin í Kfttlpfcld^ SkU^fÍfðlll^U öKagatjoro. sauðárkróki -varmahlíð - hofsósi - ketilási

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.