Alþýðublaðið - 02.07.1993, Síða 16

Alþýðublaðið - 02.07.1993, Síða 16
V í K I N G V f K Lmrrm ... alltaf á nriðvikudögum Rannveig Guðmundsdóttir er nýr þingflokksformaður Alþýðuflokksins - og hún er eini s þingmaðurinn úr Kópavogi - ALÞYÐUBLAÐIÐ tók hana tali ígœrdag ÞAD ER ERFITT ÞIN6 FRAMUNDAN RANNVEIG GUÐMUNDS- DÓTTIR er eini þingmaður næststærsta byggðarlags lands- ins, Kópavogs. Þingmaður úr Kópavogi hafði ekki setið á Al- þingi í 11 ár, þegar Rannveig kom inn á þing 1989. Hún hefur verið í fréttunum að undanförnu vegna sviptinga innan Alþýðu- flokksins. Við sóttum Rannveigu heim í Kópavoginn í gærdag og tókum nýja þingflokksformann- inn taii. -Nú ert þú tekin viö nýrri ábyrgð- arstöðu innan Alþýðujlokksins og orðin fortnaður þingflokksins. Hveniig leggst starfið íþig? „Út af fyrir sig leggst það vel í mig að taka við þessu starfi. Þó hefði ég kosið að taka við þessari stöðu við aðrar og skemmtilegri að- stæður. Ég harma það að við búum nú við innanflokksátök, sem ég vona þó sannarlega að við eigum eftir að leiða til lykta áður en þing kemur saman í haust og störf þing- flokksins hefjast fyrir alvöru. Ég vil líka minna á það að ég hef áður sóst eftir einmitt þessu emb- ætti. Það er ljóst að ýmsar breyting- ar verða nú á verkaskiptingu okkar innan þingsins og það mun reyna á þingflokkinn við þær erfiðu að- stæður sem nú blasa við okkur í efnahagslífmu. Og þótt þessi setn- ing hafi oft verið notuð, þá þýðir orðið erfitt í raun og veru erfitt núna“. -Þú talar um nýja verkaskiptingu íþingflokknum. Nánar um það? ,Jú, það er nú svo þegar þrír þaulreyndir þingmenn hverfa af vettvangi í einu, menn sem mikil eftirsjá er í, þá er það mikil breyting á tíu manna þingflokki. Það verður mjög mikilvægt að nýir þingmenn okkar fái góðar móttökur og góðar leiðbeiningar í starfi sínu í byijun. Þeirra bíða strax þung verkefni. Það verða hjá okkur breytingar í mörgum nefndum og nýir formenn í sumum nefndanna. En ég þekkti nýju þingmennina okkar að góðu og hlakka til samstarfsins með þeim. Það er ástæða til að nefna það hér að nú verða þrjár konur í þing- flokki Alþýðuflokksins í stað tveggja áður. I framhaldi af því sem ég sagði áðan vil ég geta þess að ég hef sjálf verið formaður félags- málanefndar og setið í þrem öðrum nefndum auk þess að stýra stórri nefnd í Norðurlandaráði. Það er al- veg sjálfgefið að það verða breyt- ingar á nefndastörfum hjá mér í haust“. -Framundan virðist svartnœttið eitt ef marka má nýjustu tíðindi. Mun efnahagsástandið setja meira mark á starfið íAlþingi en áður? „Kvótasamdrátturinn í 165 þús- und tonn er miklu frekar staðreynd en pólitísk ákvörðun. Þingið á eftir að fjalla nánar um útfærslu ákvarð- ana ríkisstjómarinnar, þar á meðal veiðistjóm varðandi afla smábát- anna og það er mikilvægt hvemig til tekst. Líka á eftir að ræða það hvemig aflaheimildum hagræðing- arsjóðs verður jafnað til að bæta það hvemig skerðing botnfiskteg- undanna þriggja kemur misjafnlega niður á einstökum útgerðum og byggðarlögum. Það er varla nokkur stjómarliði hress með að grípa þarf til þeirra úr- ræða sem nú dynja yfir, gengisfell- ingu, breytingu vegna skuldbind- inga sjóða, erlendra lána og að samt blasi við að skera ríkisútgjöld enn meira niður. Það er sennilega brýnna en nokkru sinni að fara að leggja áherslu á verðmæti sjávarafurða, fremur en magn úr sjó, sem hefur lengstum verið landlægt mat hér á landi, - og að aðgerðir og stjómun skapi störf í landi. Mér finnst Ifka mikilvægt að taka á málefnum heimilanna og bind vonir við áform ríkisstjómarinnar. um að bregðast við greiðsluvanda fólks sem misst hefur atvinnu, en stærsta verkefni okkar stjómmála- mannanna núna er að bregðast við atvinnuleysinu. Það er vandamál sem nágrannalönd okkar hafa lengi glímt við, en er nýtt og ógnvænlegt vandamál hjá okkur“. -Hvernig munu þessi átök um ráðherraembœttin og erfiðleikar innanflokksins sem sigldu i kjölfar- ið snúa aðþingstörfunum? „Það er búið að segja svo margt um þessi mál, breytinguna í ríkis- stjóminni og það sem sigldi í kjöl- farið, að við það er engu að bæta. Og ekki er séð fyrir endann á af- leiðingum þess að Jóhanna hefur sagt af sér sem varaformaður flokksins. Það er dapurt fyrir okkur jafnaðarmenn að mannlegum sam- skiptum skuli svo ábótavant í topp- forystunni að mál skuli fari á þenn- an veg. Það að ég skuli ekki gerð að ráðherra er nokkuð sem ég get ágætlega lifað með. En að öðm leyti hef ég þegar tjáð mig um þessi mál og hef engu þar við að bæta. Á hinn bóginn hefði það sannar- lega verið bragur yfir því að Kópa- vogur hefði eignast ráðherra - í fyrsta sinn í sögu kaupstaðarins". Rangfœrslur ígrein Gunnars Smára, fyrrverandi ritstjóra Pressunnar, í nýjustu Heimsmynd? Pressan fékk engin gögn frá Davíðsmönnum - segir Friðrik Þór Guðmundsson, annar höfunda fréttar Pressunnar um einkafjármál Þórðar Olafssonar, forstöðumanns bankaeftirlitsins „Það komu engar upplýsing- ar eða gögn um einkafjármál forstöðumanns bankaeftirlits Seðlabankans til mín eða með- skrifara mtns frá Davíð Odds- syni eða einhverjum stuðnings- manna hans. Þegar við hófum að kanna málið höfðum við ekk- ert annað í höndunum en þá vitneskju að auglýst hefði verið nauðungaruppboð á fasteign forstöðumannsins að kröfu Búnaðarhankans. Slíkar upp- lýsingar birtast opinberlega í Lögbirtingarblaðinu og dag- blöðum. Vegna stöðu þessa embættismanns var þetta ærið tilefni til að kanna málið frek- ar,“ sagði Friðrik Þór Guð- mundsson blaðamaður á Press- unni í samtali við Alþýðublaðið í gærdag. Friðrik Þór er annar höfunda fréttar í Pressunni 3. júní síðastlið- inn um fjármál Þórðar Ólafssonar, forstöðumanns bankaeftirlits Seðlabankans. Eins og fram kom í Alþýðublaðinu í fyrradag er því Friðrik Þór Guðmundsson, blaða- maður á Pressunni: „Það komu eng- ar upplýsingar eða gögn um einka- fjármál forstöðumanns bankaeftirlits Seðlabankans til mín eða meðskrifara míns frá Davíð Oddssyni eða ein- hverjum stuðningsmanna hans.“ haldið fram af Gunnari Smára Eg- ilssyni ritstjóra Heimsmyndar í óútkomnu hefti tímaritsins, en Gunnar Smári er fyrrum ritstjóri Pressunnar, að umíjöllun Press- unnar eigi rætur að rekja til Davíðs Oddssonar forsætisráðherra. Friðrik Þór vildi ítreka að þegar ákveðið var að kanna umrætt mál hefðu höfundar fréttarinnar engin gögn haft í höndum. „Það barst í tal á ritstjómarfundi að Ijármál forstöðumannsins væru með þeim hætti að Búnaðarbankinn hefði krafist nauðungaruppboðs á fast- eign hans. Það var hægur vandi að fá það staðfest og menn voru sam- mála um að slík staða væri erfið og viðkvæm fyrir mann í þessari stöðu. I kjölfarið öfluðum við okk- ur veðbökarvottorðs vegna fast- eignarinnar og þá komu í ljós þær upplýsingar sem fréttin grundvall- ast á. Annarra gagna var ekki aflað um fjármál forstöðumannsins, en rætt við ýmsa aðila um þessa óneitanlega viðkvæmu stöðu sem forstöðumaður bankaeftirlitsins var í gagnvart tveimur viðskipta- bönkum. Sjálfur sagði forstöðu- maðurinn í fréttinni að slík staða Hinn umdeildi Þórður Ólafsson á forsíðu Pressunnar 3. júní síðastlið- inn. væri auðvitað óæskileg, sem hann hefði lent í. Við höfundar fréttar- innar lögðum mikla áherslu á að nálgast málið hlutlægt og óper- sónulega. Hvernig málið var kynnt á forsíðu Pressunnar var ekki á ábyrgð höfundanna," sagði Friðrik Þór að lokum. Ashkenazy æfir sig á flygiiinn í íslensku óperunni snemma í gærmorgun. Vladimir og Þórunn Ashkenazy á íslandi Eyða sumarfríinu i hringferð um landið „Mér finnst ísland vera afar velmegandi og auðugt land að sjá“, sagði Vladimir Ashkenazy, píanósnillingurinn góðkunni, 56 ára að aldri, ís- lenskur ríkisborgari sem nú býr í Sviss. „Auðvit- að veit ég að þið eigið í einhverjum erfiðleikum núna, en þeir geta varla verið miklir“, sagði hann. Alþýðublaðið hitti píanóleikarann heims- fræga að máli í gærdag. í eina tíð var hann kall- aður „tengdasonur íslands11. Hann sagði að nú væru liðin þrjú ár frá því að hann kom síðast til íslands, breytingarnar væru miklar á ekki lengri tíma, ekki síst hvað varðar lífsstíl íslendinga, sem honum fannst bera vott um ótrúlegan glæsileika. ,JNei, ég held enga tónleika að þessu sinni“, sagði Ashkenazy að- spurður. „Við Þórunn erum í sumarffíi og erum að leggja upp í ferð umhverfis Island. Þetta er í fyrsta sinn sem ég fer í slíka ferð og hlakka mikið til“, sagði Ashkenazy. Ashkenazy er íslenskur ríkisborgari frá árinu 1972, en fæddur í Sovétríkjunum og yfirgaf „dýrð og dásemd" kommúnismans í heima- landi sínu. Þau Þórunn og Vladimir áttu heimili við Brekkugerði í Reykjavík á árunum 1968 lil 1978. Þá fluttu þau til Sviss. Vladimir Ashkenazy sagðist ferðast enn mikið um heiminn vegna tónleikahalds. Hann leikur tveim skjöldum á tónlistarsviðinu, hann er eftirsóttur einleikari sem píanisti, en ekki síður sem stjómandi sinfón- íuhljómsveita. Frægðarsól hans skín enn skært og er hann í hópi stærstu stjamanna á himni klassískra hljómlistarmanna. „Ég hef komið nokkmm sinnum til Rússlands eftir að landið varð frjálst. Því miður er ástandið þar engu betra en verið er að lýsa í íjöl- miðlum. Það er ófremdarástand í landinu, algjört kaos“, sagði Ashk- enazy. Þau Ashkenazy-hjónin búa í Sviss. Vladimir Ashkenazy sagði að þar væri sannarlega gott að búa, og breiddist breitt bros yfir andlitið þegar minnst var á það land. Að svo mæltu snaraði þessi frægi ntaður sér inn í Islensku ópemna. Hann sagði að þau í Óperunni hefðu verið svo elskuleg að leyfa sér að komast í flygil hússins til að æfa sig. Vladimir Ashkenazy: „Nú eru liðin þrjú árfrá því ég kom síðast til íslands. Breytingarnar eru miklar á ekki lengri tíma, ekki síst hvað varðar lífsstíl ís- lendinga sem ber vott um ótrálegan glœsileika.“

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.