Alþýðublaðið - 05.08.1993, Page 3

Alþýðublaðið - 05.08.1993, Page 3
Fimmtudagur 5. ágúst 1993 NUNNA, SKATTAR, FONDA-FRETTIR & GLERBLASTUR 3 Meðaltal alagðra gjalda á einstaklinga í Reykjanesumdœmi Seltimingar hæstir með 360 þúsund krónur „Hér búa dugmiklir ein- staklingar og sam- viskusamir sem finnst eðlilegt að greiða til samfélagsins það sem þeim ber. Álagning út- svars er 7% og hefur verið óbreytt síðustu fjögur eða fimm árin, en vægi aðstöðugjalda hefur verið sáralítið hér,“ sagði Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi í sam- tali við blaðið. Meðaltal álagðra gjalda á einstak- linga er hæst á Seltjamamesi af sveitarfélögum í Reykjanesum- dæmi eða 359.893 krónur. Næst er Garðabær með 345.237 og svo Bessastaðahreppur með 330.821 krónur. Önnur sveitarfélög í unt- dæminu ná ekki 300 þúsundum að meðaltali og langlægsta sveitarfé- lagið er Kjósarhreppur þar sem meðaltalið er 162.977 krónur. Sigurgeir bæjarstjóri sagði að út- svarsháir einstaklingar hefðu jafnan verið í hópi íbúa Seltjamamess. Þó sum önnur sveitarfélög væm með lægri útsvarsprósentu væm fast- eignagjöld á Nesinu með þeim lægstu sem sveitarfélög innheimtu. Aðalverktakar greiða mest Álögð opinber gjöld í Reykjanes- umdæmi námu samtals 16,4 millj- örðum króna. Þar af greiða einstak- lingar liðlega 13,2 milljarða en fé- lög og aðrir lögaðilar tæpa 3,2 millj- arða. íslenskir aðalverktakar sf. greiða langmest í opinber gjöld eða rúmlega 700 milljónir króna. Vam- arliðið greiðir 130 milljónir og Sparisjóður Hafnaríjarðar 65 millj- ónir. Hilmar Rafn Sölvason málara- meistari og athafnamaður í Keflavík er gjaldahæstur einstaklinga með 18 milljónir. Jón Ásbjömsson fískút- flytjandi með meim og Seltimingur greiðir 13,6 milljónir og Sigurjón S. Helgason verktaki í Keflavík er í þriðja sæti með nær 13 milljónir. Skattgreiðendur í skattskrám ein- staklinga em 51.302, þar af em 2.590 böm undir 16 ára aldri, en 2.075 í skattskrám lögaðila eða alls 53.377. Algjör Fonda-frétt Schwarzenegger mætti ekki,- Karl Bretaprins hjá ömmu sinni Hvorki Arnold Schwarzenegger né heldur Karl Breta- prins voru við lax- veiðar í íslenskum ám í gær. Frétt? Varla. Þetta er Fonda-frétt. Hitt er annað mál að Arnold vaxtarræktarmaður og kvikmyndajöfur var væntanlegur til veiða í Norðurá í gær. Líkt og Jane Fonda og eiginmaður hennar, þá birtist kappinn ekki. Hins- vegar er kappann að finna í Stjörnubíói í myndinni Síðasta hasarmyndahetjan. Þá flugu sögur um það í Borg- arfirði í gær að sjálfur Karl Breta- prins væri kominn til veiða í Þverá. Það reyndist bull og slúð- ur hið mesta. 1 veiðihúsinu við Þverá könnuðust menn við orð- róminn, en sögðust ekki hafa orð- ið varir við prinsinn, hann væri auðþekktur. „Eg sá Karl í hádegisfréttunum á Sky News þar sem hann var að heimsækja drottningarmóðurina, ömmu sína, því hún varð 93 ára í dag“, sagði breski konsúllinn í Reykjavík. Sem sagt, eintómar Fonda- fréttir þessa dagana. Eða eigum við að segja gúrkufréttir? ARNOLD - mætti ekki til veiða í Norðurá, en er á hvíta tjaldinu í Stjömu bíói. LÉTTUR SPRETTUR NUNNU VIÐ SKÁLHOLT Alþýöublaösmynd / Einar Ólason Efnafrœðiskor Raunvísindadeildar Háskóla íslands Skemmtileg heimsókn glerblásturssérfræðings Á vegum efnafræðiskorar Raunvísindadeildar Há- skóla íslands er nú staddur hér á landi austurrískur glerblásturssérfræðingur, Heinrich Uffelmann að nafni. Hann hefur undanfarnar vikur unnið að gerð sérstakra tækja úr gleri sem ekki er hægt að kaupa tilbúin, en nauðsynleg eru við rannsóknir og tilraunir í efnafræði. Heinrich hefur unnið við glerblástur í um hálfa öld og lærði listina ungur að árum. Hann er nú yfirkennari við Glerblástursskólann í Austurríki og er sá skóli aðeins einn af fjórum í gjörvallri Evrópu. Að sögn Siguijóns N. Ólafs- sonar hjá Raunvísindastofnun hefur Heinrich ekki aðeins búið til rannsóknatæki fyrir starfs- menn efnafræðiskorar heldur hefur hann einnig búið til fyrir þá ýmsa skrautmuni til að gleðja þá: Þar má nefna listilega smíðuð glös og staup, stíliseruð skip og síðan ýmsar skemmtilegar fígúr- ur, til dæmis hinar vinsælu risa- eðlur. Sigurjón sagði Heinrich hafa aðstöðu í VR-I byggingu Háskóktns þar sem hann situr allan liðlangan daginn og blæs gler. Þess má geta að Heinrich hefur verið að kenna tækjaverði Raunvísindastofnunar, Haraldi Þórðarsyni, að blása gler. Hein- rich hefur enn fremur verið svo vinsamlegur að leyfa hvetjum og einum af liinum 10 stúdentum sem eru í sumarvinnu við efna- fræðiskorina að sitja hjá sér dag- part til að kynnast listinni. Hcinrich Uffelmann er brátt á förum frá iandinu en áður hann kveður ætlar hann að halda svo- litla sýningu á glerblæstri fyrir samstarfsmenn sína og aðra áhugasama.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.