Alþýðublaðið - 05.08.1993, Blaðsíða 4
4
Fimmtudagur 5. ágúst 1993
SIGLUFJÖRÐUR
hátíð á Siglufirði
Talið er að um 5-6000
manns hafi sótt síldar-
hátíðina sem nú um
verslunarmannahelg-
ina var haldin í þriðja
sinn á Siglufirði. Hátíð-
in var mun veglegri nú
en undanfarin ár í til-
efni af því að 90 ár eru
liðin frá því að hið
raunverulega síldar-
ævintýri hófst á Siglu-
firði. Einnig á Siglu-
fjarðarkaupstaður 75
ára afmæli á þessu ári.
Fjölbreytt dagskrá var í
boði frá fimmtudegi og
fram á sunnudags-
kvöld. Allt fór mjög vel
fram, en hátíðin á
Siglufirði hefur þá sér-
stöðu, miðað við aðrar
útihátíðir, að heima-
menn sjá sjálfir um öll
skemmtiatriði. Á Siglu-
firði búa nú um 1800
manns. Þrátt fyrir leið-
indaveður á Norður-
landi í sumar, þá var
sól og blíða á Siglufirði
um helgina.
Myndir og texti: STB
Theodór Júlíusson leikari hcfur verið
driffjöðurin í Síldarhátíðunum sem
haldnar hafa verið á Siglufirði. Hér
tekur hann lagið og syngur af mikilli
innlifun.
Siglfirðingar sáu um öfluga dagskrá á Ráðhústorginu á Sfldarhátíðinni. Eins og sjá má þá var mikill mannf jiildi þar sam- Utgerðarmennirnir Olafur Marteinsson og Ragnar Olafsson vildu greinilega ræða ýmis mál tengd sjávarútvegi við ráð-
an komin í blíðskaparveðri. í forgrunni má sjá styttu sem nefnist Sfld og var reist til minningar um sfldarævintýrið sem herrann. Ossur hlustar og teigar (létt)öl. A milli þeirra stendur Kristján L. Möller forseti bæjarstjórnar.
stóð frá 1903 til 1968.
Hér má sjá hvar sfldarstúlkur taka lagið á sviðinu við torgið. Lengst til vinstri má sjá Ómar Hauksson í hlutverki sfldar-
spekúlants og í miðjunni stendur Theodór Júlíusson framkvæmdastjóri Sfldarævintýrsins. Þetta er þriðja árið í röð sem
Theodór gegnir þessu starfi.
Hugsað til sfldaráranna? Gamall Siglfirðingur, Ægir Jóakimsson, hefur hér tyllt sér á tunnu á sfldarplaninu og hugsar
sjálfsagt til gömlu góðu sfldaráranna sem flestir Siglflrðingar minnast með hlýjum hug.
Almar Möller var einn af mörgum Siglfirðingum scm lifði sig inn i Síldarævintýrið. Hér situr hann við stýrið á Sigurvin
SI, sem var á sínum tíma bátur Gústa Guðsmanns. Báturinn er nú í eigu Sfldarminjasafnsins og var komið fyrir á torginu
yfir Síldarhátíðina.
Sögulegur bæjarstjórnari'undur á sfldarplani. Það fréttist af Össuri Skarphéðinssyni á Sfldarhátíðinni og því boðaði bæj-
arstjóm Siglufjarðar til bæjarstjórnarfundar með umhverfisráðherra á Drafnarplani, þar scm sfldarsöltunin fór fram.
Þar snæddu fundarmenn sfld og harðfisk, renndu því niður með öli og ræddu um sorpmál og sjávarútvegsmák Á mynd-
inni em frá vinstri: Ragnar Ólafsson, Bjöm Valdimarsson bæjarstjóri, Ólafur Martcinsson, Bjöm Jónasson, Ólöf Krist-
jánsdóttir, Skarphéðin Guðmundsson, Kristján L. Möller, Össur, Amý Sveinbjörnsdóttir kona hans, Jón Sæmundur Sig-
urjónsson fyrrverandi alþingismaður og Ásgrímur Sigurbjörnsson.