Alþýðublaðið - 05.08.1993, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 05.08.1993, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 5. ágúst 1993 FROÐLEIKUR 7 P a 11 b o r ð i ð Að réttu máli fornu eftir Harald Jóhannsson Þeir nefndu goðin hinu gríska orði theoi - skipuleggjendur, því að þeir höfðu skipulagt og raðað öllu í rétta röð og sett hvern hlut á sinn rétta stað. Heródótus Þá gengo regin öll á rökstóla, ginnheilög goð og um það gcettuz nótt og niðiom nöfn um gáfo Völuspá (6. vísa) í Steinkrossi, fjórða bindinu í ritsafni sínu um heiðinn dóm og fom minni ræðir Einar Pálsson um mál og vog að fomu og heimsmynd í Eddukvæðum. Að hvom tveggja verður stuttlega vikið. I. „Samkvæmt kerfi Ptolomæusar var jörðin kúla, og lágu níu lög um- hverfis, öll kúlulaga. Sjö lögin voru kennd við himintungl." (Bls. 106). Fellur það að Snorra Eddu, 100. vísu í nafnaþulum: Níu eru himnar á hœð taldir. Veikt ek inn neðsta, sá er vindbláinn get ek nú vera átta himna upp of talda, skattymir stendr skýjum efri hann er útan allra heima. Á óvart kemur samsvömn þessi ekki. „Hið mikla rit Ptolemæusar, Almagest, var til dæmis kennt við kaþólsk menntasetur á dögum Snorra. Fræg bók um skipulag himnanna nefndist De Sphœra (Um kúluna). Var hún eftir stjömuffæð- inginn Johannes Sacrobosco, rituð um 1240... em himnamir einmitt taldir níu...“ (Bls. 107). Þá segir í Gylfaginningu (k. 51): „...Þór ber banaorð af Miðgarðsormi og stígur þaðan braut 9 fet; þá fellur hann dauður til jarðar fyrir eitri því, er ormurinn blæs á hann“. Þá segir Óðinn í Völuspá (140.v.): Fimbullíóð nío nam ek afenomfrœgia syni Bölþórs, Bestíóföður „Á trénu kveður Óðinn sig hafa numið fimbulljóð NÍU... hugað er að níföldu eðli Asksins. Væntan- lega hefur Óðinn lært eitt fimbul- ljóð fyrir hvert FET Þórs, hvem hinna 9 himna veraldar." (Bls.126). Á meðal annarra orða er lagt út af „- Hveli Satúmusar - Gimi. Þótt þama standi ekki GIMLI... kann að vera um sama stað að ræða... Snorri nefnir staðinn Gimlé...væntanlega .. ..hlé Gimis...“ Bazt er þá að vera á Gimlé á himni..." eftir Ragna- rök.. hafa heiðnir íslendingar átt sér hugmynd um sælustað í SJÖ- UNDA HIMNI“. (Bls. 107). En „vándir menn fara til Heliar og það- an í (Nif)hel. Þat er niðr f enn ní- unda heim,“ (Bls. 111), að segir í Gylfaginningu. Um Valhöll, öðm nafni Bilsk- ími, segir í Grímnismálum (24. vísu): Fimm hundruð gólfa ok umfiórum tögom, svá hygg ek Bilskími með bugom; ranna þeira er ek rept vita, míns veit ek mest magar. Þýski goðfræðingurinn Otto Si- egffied Reuter skýrir vísu þessa svo: „Hin 540 hlið hinnar ger- mönsku goðahallar samsvara ná- kvæmlega hinum 54, þ.e. 2x27 „tunglhúsum" Indveija ... Hin af- brigðilega tídeiling á auðsjáanlega rætur að rekja til sérstakrar nor- rænnar og fomarískrar aðferðar...- Tákni hins vegar hin 540 eða 54 hlið hinnar víðu Valhallar tungl- stöðu hinna 27 dagnátta stjömu- mánaðarins, þá leiðir það nú til skilnings á eðli hinnar víðu Valhall- ar. Valhöll er alheimurinn. Hlið hennar em op dýrahringsins." (Bls. 198). n. Stecchini bendir á, að „mælingar ALLRA helstu menningarheilda fomaldar - þar með taldar mæling- ar Kínveija og Indveija - mynda eitt samstætt, rökrétt kerfi,“ (Bls. 33) og em miðaðar við „að sam- ræma vegalengd og tíma.“ (Bls. 34). Og heitum „mælieininga... svipar mjög saman í semitiskum, indóevrópskum og fmnsk-úgrísk- um málum.“ (Bls. 34) „Rómverskar arfsagnir telja, að allar mælingar hafi átt sér upphaf í mælingum Egypta." (Bls. 33). Og „Heródótos skýrir frá því, að sam- kvæmt fomum grískum sögnum hafi tvær dúfur flogið frá hofi Am- ons á Egyptalandi til að setja á stofn véfréttimar að Dódóna og Delfí." (Bls. 185). Víst er um það, að til Egypta sóttu Grikkir mælieiningar sínar, enda héldust í þeim „furðu- lega náin tengsl... milli mælinga tíma og rúms...“ (Bls. 189), sem Stecchini tilgreinir svo: f ritsafninu Nordisk Kultur kveð- ur A.W. Brogger vel hugsanlegt „að mál og vog Norðmanna eigi sér keltógermanskan uppruna, þar sem rekja má mælieiningar aftur til hins grísk- litaða tíma fyrir Krists burð.“ (Bls. 173). Getur hann þess „að elstu fomleifar Norðmanna sýni mikla natni við nákvæm mál, ná- kvæman þunga." (Bls. 173). I ann- arri grein í Nordisk Kultur segir As- gaut Steinnes, „að helstu lengdar- kvarðar Norðmanna hafi verið staf- ur og stöng (stikke og stong).“ (Bls. 173). í Skírni 1958 birti Magnús Már Lámsson yfirlit yfir íslenskar mæli- einingar. í því er alvöllur „nefndur „lögvöllur". Ennfremur er sagt, að 4 alvellir em í stakkengi, sem eftir þvf ætti að hafa verið 216.000 fer- faðmar, sé eyrisvöllur 30 faðmar á kant. Hér hefur samt orðaröðin snú- ist við, og væm þá 4 stakkengi í al- velli". (Bls. 172). III. Víða er seilst til fanga, jafnvel í hebreskum kabbala- fræðum. Að lokum verður þó aðeins upp tekin lfásögn af arískri goðafræði Ind- veija, sótt í Ancient Indian Kings- hip from the Religious Point of View eftir J. Gonda (E.J. Brill, Lei- den 1969): „.. .en á öðmm stað seg- ir, að konungar guðanna séu þeir Agni og Soma, og færi tilbiðjand- inn Agni fóm í norðri, Soma í suðri... Soma er mjöður goða. Sem guð verður hann hliðstæða Bakkus- ar eða Díónýsosar, að sögn J. Daw- son (ath. í Classical Dictionary of Hindu Mythology, Routledge & Kegan Paul, London, 1968, undir Soma) ... Er með afbrigðum at- hyglisvert að sjá Soma kvænast 27 dætmm risans Daksha, þær dætur vom 27 tunglhús himinhringsins. Þetta er fyrsta tala raðarinnar 27- 54-108-216-432, fellur nákvæm- lega að efni.“ (Bls. 175-176). Höfundur er hagfræðingur 1000 grískar álttir (cubiís) 86.400 sekúndna dagur 100.000 Mýkene-fet 1440 mínútna dagur lOOgrísk fet 1 sekúnda tíma 86.400.000 grískar álnir 1 mínúta tíma 144.000.000 Mýkene-fet 1 sekúnda af gráðu Guðlaugur Tryggvi Karlsson HVITA HÚSIÐ í WASHINGTON Valgerður Gunnarsdóttir Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur ERTU MEÐ I HVITA HUSIÐ? STÓRKOSTLEGT TÆKIFÆRI! ATHUGfO BREYTTA DAGSETNtNGU OG STÓRLÆKKAÐ VERÐ Sjö daga ferð til Washington fyrir aðeins 43.420.- krónur. 24. september til 30. september. Innifalið í verði er flug, gisting og akstur til og frá flugvelli. Gist verður á Sheraton Baltimore North í Towson-hverfinu í Baltimore á austurströnd Bandaríkjanna. Þaðan er einungis 45 mínútna aksturtil Washington. Hótelið er afbragðsgott og í næsta nágrenni stórrar verslunarmiðstöðvar. í hótelinu er að sjálfsögðu sundlaug, veitingastaður og barir. Bill Clinton Möguleikar eru á að framlengja dvölina og nýta sér ódýr flugfargjöld innanlands í Bandaríkjunum. Að sjálfsögðu verður farið í heimsókn í Hvíta hús- ið og möguleiki á að hitta Bill Clinton. Fararstjórar verða Valgerður Gunnarsdóttir og Guðlaugur Tryggvi Karlsson. Allar nánari upplýsingar gefa fararstjórarnir og skrifstofur Alþýðuflokksins (Sigurður Tómas og Stefán Hrafn) ásamt söluskrifstofu Flugleiða við Laugaveg (Gréta Eiríksdóttir).

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.