Alþýðublaðið - 13.08.1993, Blaðsíða 4
4
RÖKSTÓLAR & SKILABOÐ
Föstudagur 13. ágúst 1993
SUÐURLANDS-
SKJÁLFTINN!
Vegna mistaka við vinnslu
Alþýðublaðsins í gœr þáféllu út
síðustu línumar í Rökstólum.
Birtum við því greinina aftur í
heild sinni og biðjum lesendur
um leið innilegrar afsökunar.
Ef marka má síður Morgunblaðsins þessa
dagana virðist Ijóst að örlög íslensku þjóðar-
innar ráðast á Suðurlandi um helgina. Þar á
nefnilega kjósa milii manna sem að láta sér
annt um nútímavæðingu í ríkisrekstri, nýjar
leiðir í umhverfismálum, ungar konur,
landsbyggðina, öflugt átak í málefnastarfi
svo eitthvað sé nefnt. Gríðarlega mikilvægt
er að annar þeirra manna sem í boði eru
standi uppi sem sigurvegari ef þjóðin á að
ganga heil til skógar að vígaferlunum lokn-
um.
Hér er semsagt átt við baráttu einhvers
Guðlaugs og einhvers Jónasar sem ku vera
drengir á þrítugsaldri og eiga það báðir sam-
eiginlegt að vilja verða formenn í SUS (Fé-
lag sem í upphafi varð til utanum bráð-
þroska drengi sem vildu verða stórir í hvelli
en virðist um þessar mundir orðið eitthvert
öflugasta stjómmálaafl í íslenskri samtíma-
sögu). Annað hafa þeir Guðlaugur og Jónas
ekki sameiginlegt, enda segir Andri Kára-
son ffá því f Morgunblaðinu að Jónas eigi
miklu meira fylgi að fagna meðal heim-
dellinga en Guðlaugur og að Guðlaugur sé
einhver ruddalegasti skoðanakúgari sem
spurst hefur til innan raða SUS. Ennfremur
bendir Andri á að Guðlaugur haldi uppi
pólitískri sýndarmennsku, rógi og brigsli.
Kjartan nokkur Magnússon tekur undir
með Andra og harmar þær lágkúruiegu
dylgjur og ásakanir sem bomar hafa verið á
stjóm Heimdallar af Guðlaugi og hans
hyski.
Af þessu má öllum vera það ljóst að Guð-
laugur þessi er ekki drengur góður og mikið
þjóðþrifamál að bola honum af formanns-
stóli ef ekki á að fara illa fyrir íslensku sauð-
kindinni og þjóðarbúskapnum í heild sinni.
A hinn bóginn er málið ekki svo einfalt
þv/ Kristín Olafsdóttir segir að Guðlaugur
sé hugmyndaríkur, sér í lagi hvað varðar
umhverfismálin, og svo sé hann líka öflugur
við að fjöiga að minnsta kosti í félögum
sjálfstæðismanna í yngri kantinum, sem að
hlýtur mega telja honum tii nokkurs ágætis.
Sem dæmi um þetta bendir fröken Kristín á
að félögum siíks fólks hafi fjölgað úr 27 í
38. Þessu til viðbótar segir Kristín að Guð-
laugur sé heiðarlegur foringi, opinn íyrir
nýjum hugmyndum og kraftmikill baráttu-
maður.
Um Jónas segir svo sjálfstæður ungur
maður sem vill ekki láta nafns síns getið að
farsælast væri að Jónas léti af formannsam-
bisjónum og gerði sér ferð til Spánar í eitt ár
til að læra á kassagítar. Slíkt myndi göfga
sál hans.
Greinilegt er að hér er um töluverðan
ágreining að ræða og menn ekki á eitt sáttir
um ágæti þeirra Jónasar og Guðlaugs. Því er
ekki að furða að venjulegir íslendingar klóri
sér í hausnum og hugsi með hryllingi til nið-
urstöðunnar af Suðurlandi hver sem hún
verður.
Hér verður ekki gerð tilraun til að gera
upp á milli þeirra Jónasar og Guðlaugs. En
þegar um slík alvörumál er að ræða sem
snerta örlög og framtíð heillar kynslóðar ef
ekki þjóðar er Rökstólum skylt að láta ekki
sitt eftir liggja í umræðunni. Tii að hjálpa
hinum almenna borgara að gera það upp við
sig prívat hvor sé hæfari Guðlaugur eða Jón-
as er ekki úr vegi að benda á greinar þessara
manna í Morgunblaðinu 1 l.ágúst, þar sem
þeir reifa sfn helstu stefnumál.
Guðlaugur segir að fýlgja verði eftir
stefnu ungra sjálfstæðismanna og að vinna
verði upp fylgi þeirra í tvennum kosningum
sem framundan eru. Að auki þurfi að móta
skýrari reglur um úthlutun þingsæta á SUS
þingum.
Jónas segir afturámóti að auka verði áhrif
ungra sjálfstæðismanna í almennu flokk-
starfi, að strax þurfi að huga að tvennum
kosningum sem brátt gangi í garð og að til
álita komi að breyta fyrirkomulagi kosninga
á SUS þing.
Dœmi nú hverfyrir sig!
Jón Baldvin Hannibalsson, *
formaður Alþýðuflokksins — Jafnaðarmannaflokks íslands, §. J||
veröur meö viötalstíma á skrifstofum Alþýðuflokksins næstkomandi mánudag, 16. ágúst, á milli klukkan 10:00 og 12:00. F X
Vinsamlegast pantið tíma á skrifstofum Alþýðuflokksins. i
Fjársjóðurinn er fjölbreyttur:
Glæsigisting á gfóáu vcrði!
Berleeley Court, 5 stjörnu (rjóðliöfáingjaliótel.
Eitt glæsilegasta kótel Irlands.
Kilkea kastali, með antikliúsgögnum, veislumat, stórfeostlegu
umkverfi og lúxus aðkúnaði.
Burlington og Greskam, vel staðsett 4 stjörnu kótel sem
íslendingar kafa tekið miklu ástfóstri við.
Frákær verslunarkorg. Duklin er Mekka kröfukörðustu neytenda,
kvort sem ákerslan er á lægsta verðið, kestu tískuvöruna eða virtustu
vörumerki keims!
21% vsk endurgfreiclclur, - fyrirkafnarlaust, í reiðufé eða inn á
kankareikning! (Lágt }ijónustugjald.)
Kraesingfar ogj kráarrölt á framúrskarandi veitingastöðum og krám,
lifandi tónlist, söngur og gleði, kvar sem litið er!
Frákærir gfolfvellir - og félagar í Golfferðaklúkki SL
njóta sérkjara á }ieim allra kesta!
Ótrúlegt verð!
Hjólreiðaferáir um fegurstu svæði írlands.
Bílaleigukíll í 3 daga frá 9-500 kr.!
Hótel: 2 nœtur: 3 nœtur: 6 nœtur:
Gresham**** 24.855 kr. 26.565 kr. 31.790 kr.
Burlington**** 25.235 kr. 27.135 kr. 32.930 kr.
Berkeley Court * **** 27.135 kr. 30.080 kr. 38.725 kr.
Kilkea kastali * * * * 29.890 kr. 33.405 kr. 45.565 kr.
\Bal=át m/ Hægt er að velja um 2, 3, 4, 6 eða 7 nætur!
Innifalið: Flug, gisting í tvíLýli með írskum morgunverði, akstur til og frá flugvelli erlenJis
(nema til Kilkea kastala) og íslensk fararstjórn. Einnig er innifalið forfallagjald, innritunargjalíl
og flugvallarskattar, samtals 3.670 kr.
G3ATI
EUROCARD.
Reykjavík: Ausiurstræti 12 • S. 91 - 69 1010 • Innanlandsferðir S. 91 - 69 10 70 • Símbréf 91 - 2 77 96
/ 69 10 95 • Telex 2241 • Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Simbrét 91 - 62 24 60
Hafnarfjörður: Reykjavikurvegur 72 • S. 91 - 5 11 55
Keflavík: Hafnargótu 35 • S. 92 - 13 400 • Símbréf 92-13 490
Akranes: Breiðargötu 1 • S. 93 -1 33 86 • Simbréf 93 -1 11 95
Akureyri: Ráðhústorgi 1 • S. 96 - 27200 • Símbréf 96 -1 10 35
Vestmannaeyjar: Vestmannabraut 38 • S. 98 -1 12 71 • Simbréf 98 -1 27 92
Samviiuiulepúir
Laeúsje
Vcrð
fra
E4.B5^;gialdl,
yneð öuutn s
Safaríkar verslunar- og mennmgarferðir til írlands.
Fyrsta krottför 30. septemLer. Síðasta krottför 9- desemLer.
Við köfum fun dið sannkallaðan fjársjóð í Duklin,
)iar sem ótrúlega kagstæð verslun, fjölkreytt
afjpreyingar- og listalíf og sérstök vildarkjör fyrir
Islendinga tryggja }iér kaustferð sem korgar sig -
og vel f>að!