Alþýðublaðið - 27.08.1993, Síða 7

Alþýðublaðið - 27.08.1993, Síða 7
Föstudagur 27. ágúst 1993 SELFOSS Svceðisskrifstofa Suðurlands um málefni fatlaðra ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 Fjölbreytt þjónusta fyrir á annað hundrað fatlaða Rætt við Nínu Eddu þroskaþjálfa um starfssemi skrifstofunnar,, Við á Svæðisskrifstofu Suð- urlands um málefni fatlaðra vinnum samkvæmt lögum sem sett voru um málefni fatlaðra og önnumst rekstur á þeirri þjónustu sem fatlað- ir eiga rétt á. Má þar nefna sambýli, vistheimili, vernd- aða vinnustaði, meðferðar- heimili, þjónustuíbúðir og leikfangasafn. Þjónusta skrifstofunnar nær yfir Ár- nessýslu, Rangárvallasýslu, Vestur- Skaftafellssýslu og Vestmannaeyjar. Stöðugildi við þessa starfssemi eru samtals 57,5, en við ráð- gjafadeild er ekki skipað í stöður sálfræðings eða fé- lagsfræðings sem er baga- legt,“ sagði Nína Edda Skúladóttir þroskaþjálfi á Svæðisskrifstofunni í sam- tali við blaðið. „I hverju sambýli búa fímm til sex fatlað- ir einstaklingar og á svæðinu eru sex slík sambýli. Þar er viðvera starfsfólks allan sól- arhringinn. í þjónustuíbúðunum sem eru íjórar eru fjórir einstaklingar í hveiri en þar eru stöðugildi færri og reynir meira á sjálf- stæði íbúanna og viðvera starfsfólks skemmri. Samtals eru það um 40 einstak- lingar sem búa í sambýli og í þjónustuíbúð- um,“ sagði Nína Edda. Vistheimili í nóvember „Fyrirhugað er að opna í nóvember vist- heimli fyrir fötluð börn. Þetta nýja heimili er í byggingu í íbúðahverfi hér á Selfossi og þar verða íjögur til fimm böm. Jóna Ing- varsdóttir mun veita því forstöðu. Þá erum við með tvö meðferðarheimili á svæðinu. Annað er í Vestmannaeyjum en hitt hér á Selfossi. A þessum heimilum er veitt dagþjónusta ásamt skammtímavistun. Á Selfossi og í Eyjum eru einnig leikfanga- söfn sem þjóna forskólaaldrinum og auk þess rekur safnið á Selfossi farþjónustu fyr- ir böm sem em búsett annars staðar á svæð- Verndaðir vinnustaðir Nína Edda sagði að vemdaðir vinnustað- ir væm reknir í Vestmannaeyjum og á Sel- fossi: „Það þekkja margir kertaframleiðsluna sem vinnustaðurinn í Vestmanneyjum stendur að auk annarra verkefna. Á Selfossi er hins vegar unnið við körfugerð, vefnað, leirvinna fer þar fram og unnið við að útbúa pakkningar fyrir jógúrtdósir á vegum Mjólkurbús Flóamanna. Auk þess má nefna saumaskap og vinnu fyrir biaðið Þjóðólf. Fatlaðir starfsmenn á Selfossi em 18 en ekki allirí fullu starfi. í Vestmanneyjum em fatlaðir starfsmenn 20 og þar er einnig um hlutastörf að ræða. Samtals em fatlaðir skjólstæðingar okkar á öllu svæðinu tals- vert á annað hundrað." Gefandi starf á lágum launum Sem fyrr segir er Nína Edda þroskaþjálfi og hún var spurð hvort það væri ekki gef- andi starf að vinna með fötluðu fólki. „Auðvitað er þetta gefandi starf og það er það sem heldur okkur í starfinu því ekki er- um við í því vegna launanna. Þetta dýpkar persónuleikann því rnaður kynnist mörgu, bæði gleði og sorg. Þegar launaumslagið berst er maður oft að spyrja sjálfan sig hvers vegna maður er í þessu slarfi því vinna með Guðmundur Búason aðstoðarkaupfélagsstjóri við stórhýsi KA á Sclfossi. Alþýðublaðsmynd Ein- ar Olason / Kaupfélag Arnesinga er stærsti vinnuveitandinn á Selfossi Stöðugildi er nær 300 -segir Guðmundur Búason aðstoðarkaupfélags- s stjóri en KA teygir anga sína allt til Vestmannaeyja Þroskaþjálfarnir Jóna Ingvarsdóttir til vinstri og Nína Edda Skúladóttir sitjandi. Alþýðublaðs- mynd Einar Ólason fólk er ekki metin að verðleikum hér á landi. En sökum þess hvað þetta er gefandi starf þá heldur maður áfram,“ sagði Nína Edda og við þökkum henni fyrir að hlaupa í skarðið í fjarvem Eggerts Jóhannessonar framkvæmdastjóra sem var í sumarfríi. “Eignalega er staða Kaupfélags Árnes- inga mjög góð en hins vegar hefur verið lítilsháttar tap á rekstrinuin síðustu tvö árin. Samkcppni í verslun er hörð og iðn- aður á undir högg að sækja en við höfum keppst við að sinna þessum þáttum í rekstrinum sem best eins og á öðrum sviðum. Auk starfseminnar hér á Selfossi erum við með vcrslanir í Vestmannaeyj- urn og Kirkjubæjarklaustri og verslun og trésmíðaverkstæði í Vík,“ sagði Guð- mundur Búason aðstoðarkaupfélags- stjóri Kaupfélags Árnesinga í samtali við blaðið. Kaupfélagið er gamalgróið fyrirtæki en það var stofnað árið 1930. Stöðugildi em nær 300 hjá kaupfélaginu auk hlutastarfa og að sögn Guðmundar vom um 380 manns á launaskrá í fyrna. Kaupfélagið er því stærsti atvinnuveitandinn á Selfossi. Þróa nýjar hugmyndir „Reksturinn gengur þokkalega urn þessar mundir en auðvitað er bamingur í öllum rekstri eins og er. Þó er alltaf aukning í ferðaþjónustu á þessu svæði og við byggj- um mikið á henni. Veðrið í sumar hefur ekki spillt fyrir hvað það varðar. I trésmiðjunni emm við alltaf að þróa nýjar hugmyndir. Nú síðast erum við komn- ir með nýja línu í húsgögnum sem heitir Flétta. Sömuleiðis höfunt við verið ntikið í~ framleiðslu á eldhúsinnréttingum og inn- réttingum í baðherbergi og þar er alltaf þró- un í gangi. En það eru ekki bjartar hoifiur í þessum iðnaði eins og fram hefur kornið í fréttum. Framleiðslan fer fyrst og ffiemst á maikað á höfuðborgarsvæðinu en einnig er hún seld út um allt land. í kjötvinnslunni eru framleiddar allar algengar kjötvömr og selj- um þær mest á heimamarkaði en einnig lil Reykjavíkur og víðar,“ sagði Guðmundur. Sjóða bita í Kúðafljótsbrú „í jámsmiðjunni framleiðum við ýrnsa hluti svo sem til landbúnaðar, vagna, kemtr og áburðardreifara. Þar vom líka soðnir saman bitamir í nýju brúna yfir Kúðafljót^ sem er mikið mannvirki. Svo má nefna bif- reiðaverkstæði sem er gamalgróið fyrirtæki og sinnir almennum bflaviðgerðum og þar er rekin varahlutaverslun sem er mikið sótt af Sunnlendingum. Einnig er þar smurstöð, hjólbarðaverkstæði og rafmagnsverkstæði. Vömhús KÁ er aðalverslun okkar á Sel- fossi og jafnffiamt eina matvömverslunin sem við rekum hér,“ sagði Guðmundur Búasön. -SG MTTC Vinningstölur miðvikudaginn: 25. ágúst 1993 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING a 6 af 6 0 76.840.000 m 5 af 6 +bónus 1 1.074.707 a 5 af 6 4 130.462 El 4 af 6 445 1.865 m 3 af 6 +bónus 1.461 243 Aðaltölur: (39)(46)(47) BÓNUSTÖLUR ©é® Heildarupphæð þessa vjku 79.621.503 á Isl.: 2.781.503 UPPLVSINGAR, SfMSVARI B1-6815 11 LUKKULÍNA 9910 00 • TEXTAVARP 451 BIRT MEO fyfllRVARA UM PRENTVII.LUR E LANDSVIRKJUN BURFELLSSTOÐ - BLONDUSTOÐ OPIÐ HÚS Næstkomandi laugardag, 28. ágúst, verður opið hús í Búrfellsstöð og Blöndustöð milli kl. 13 og 17. Gestum gefst kostur á að skoða stöðvarnar og fræðast um þá starfssemi sem þar fer fram.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.