Alþýðublaðið - 27.08.1993, Síða 8

Alþýðublaðið - 27.08.1993, Síða 8
8 ALÞÝÐUBLAÐIÐ SELFOSS Föstudagur 27. ágúst 1993 safnið og dýrasafnið verða áfram hér á Sel- fossi,“ sagði Lýður safnvörður. Spjallað við Lýð Pálsson safnvörð Listaverk og fornir munir -eru meðalþess sem er til sýnis í Byggða- og Listasafni Arnesinga á Selfossi. 200 tréskurðarmunir ,J listasafninu er einn salur þar sem nær eingöngu eru til sýnis myndir úr gjöf Bjam- veigar. Við emm einnig með sal sem kenndur er við Halldór Einarsson tréskurð- armeistara frá Brandshúsum. I haust stend- ur til að setja þar upp tréskurðarsafn hans sem hann gaf sýslunni fyrir um 20 ámm, en Halldór hefði orðið 100 ára á þessu ári. Samtals er hér um að ræða 200 muni. Safnið er vel staðsett hér við Tryggva- götu, rétt við sundlaugina og gagnfræðskól- ann. Hins vegar hefur gengið heldur illa að ná til hins hefðbundna ferðamanns á sumr- in. Okkur vantar Skógafoss eða eitthvað slíkt,“ sagði Lýður. Nú stendur yfir sýning 11 myndlistarmanna úr Árnes- sýslu í Byggða- og Lista- safni Árnesinga á Selfossi. Þar er einnig sýning á mál- ^verkum eftir ýmsa þjóð- kunna listmálara auk þess sem í Byggðasafninu má sjá ýmsa muni frá fyrri tíð. „Safnið var opnað árið 1964 og í dag er því þrískipt. Auk byggðasafns er þar lista- safn en stofninn að því er gjöf Bjamveigar Bjamadóttur sem er um 75 máíverk eftir ýmsa þekktustu listmálara þjóðarinnar en einkum þó verk eftir Ásgrím Jónsson. I þriðja lagi er þetta dýrasafn en þar er um að ræða safnið sem var til húsa í Breiðfirðinga- búð áður og síðan keypt á uppboði og flutt hingað,“ sagði Lýður Pálsson safnvörður í samtali við Alþýðublaðið. Landbúnaðarmunir og brennivíns- áma I byggðasafninu em ýmsir munir sem tengjast Ámessýslu og þá einkum munir tengdir landbúnaði sem skiljanlegt er í þessu ntikla landbúnaðarhéraði. En Lýður Lýður Pálsson safnvörður með drykkjarkönnu við brennivínsámuna. Alþýðublaðsmynd Einar Ólason AUGLÝSING UM INNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00 1984- 2.fl. 1985- 2.fl.A 1985-2.fl.B 1988-2.fl.D 5 ár 10.09.93-10.03.94 10.09.93-10.03.94 10.09.93-10.03.94 01.09.93 kr. 72.355,30 kr. 46.178,80 kr. 26.876,50** kr. 21.620,00 *) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur. **) Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, ágúst 1993. SEÐLABANKIÍSLANDS benti á að þar væri fleira að finna: „Við emm einnig með muni sem tengjast verslun og þá einkum Eyrarbakkaverslun sem var eina verslunin hér Sunnanlands um aldaraðir. Einnig eigum við muni sem tengjast heimili verslunarstjórans sem bjó í Húsinu. Þar má til dæmis nefna píanó. Auk þess er hér mjög stór ullarvog sem notuð var við verslunina og heljarmikil brenni- vínsáma. Það stendur til að flytja hluta safnsins niður á Eyrarbakka en ríkið keypti Húsið í fyrra og er ætlunin að opna það sem Byggðasafn Ámesinga næsta sumar. Lista- Myndlistarsýning heimamanna „Safnið er opið daglega í sumar frá klukkan tvö til limm síðdegis. Ut þennan mánuð er hér sýning Myndlistarfélags Ár- nessýslu. Þar sýna 11 frístundamálarar verk sín og er þar um að ræða mjög athyglis- verða sýningu sem opin til klukkan 21 um helgar. Á vetrum er safnið opið á fimmtudögum á þeim tíma sem ég gat um áðan. Auk þess er safnið opnað lýrir hópa og skólafólk á öðmm tímum eltir samkomulagi við mig,“ sagði Lýður Pálsson. -SG Plastiðjan hfá Selfossi hefur starfað í 20 ár Framleiðir 10 milljónir gosflaskna á ári Spjallað við Ægi Magnússon í Plastiðjunni en þar eru framleiddar flöskur fyrir gosdrykki og vatn til útflutnings „Okkar framleiðsla er að mestu leyti plastflöskur fyrir gosdrykki og undir vatn til útflutnings. Einnig erum við með framleiðslu á umbúðum fyrir mjólkur- iðnað, það er að segja pakkningar. Starfssemin gengur vel og hér starfa 15 manns,“ sagði Ægir Magnússon í Plastiðjunni á Selfossi í spjalli við blaðið. Fyrirtækið var stofnað íyrir 20 ámm eða árið 1973. Sala á gosdrykkjum í plastflöksum hófst hér á landi árið 1986 og hefur Plastiðjan framleidd slíkar um- búðir svo til ífá byrjun. „Við framleiðum þessar gosdrykkja- flöskur fyrir gosdrykkjaverksmiðjur aðr- ar en Vífílfell og Sól sem em með eigin framleiðslu á flöskum. Það er mikill markaður fyrir plastflöskumar undir gos sem sést best á því að við framleiðum um 10 milljónir flaskna á ári. Síðan emm við með framleiðslu á plastbökkum sem notaðir em undir mjólkurvömr og sú framleiðsla er seld nánast út um allt land,“ sagði Ægir. Vatn til Bandaríkjanna Sem fyrr segir framleiðir Plastiðjan plastflöskur undir vatn til útflutnings og þar gæti verið um góðan vaxtarbrodd að ræða. „Við ffamleiðum vatnsflöskumar fýr- ir fýrirtækið AKVA á Akureyri sem flyt- ur út vatn á Bandaríkjamarkað. Fyrir- tækið notaði áður pappaumbúðir en skipti síðan yfir í plastflöskur sem við framleiðum. Það má því segja að við sé- um líka í útflutningi með þeirri ffam- Jóhannes Kagnarsson annar af eigendum Plasiðjunnar ásamt starfsmannni við sýnis- hom af gosflöskunum sem framleiddar eru í milljónatali. Alþýðublaðsmynd Einar Óla- son leiðslu. Hins vegar er ekki gmndvöllur fyrir því að flytja út tómar flöskur ffekar en að flytja inn tómar flöskur og fylla á þær hér. Vatnsútflutningurinn fer alltaf vaxandi og margir bjartsýnir á að hægt verði að nýta þessa auðlind mun betur í framtíðinni," sagði Ægir Magnússon. Hann neitaði því ekki að einhveijar nýjungar væm á döfinni í ffamleiðslu Plastiðjunnar. Sagði hins vegar óvitur- legt að greina ffá slíku fyrirfram því margir vildu fá þennan markað. -SG

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.