Alþýðublaðið - 01.10.1993, Side 1
Verð í lausasölu kr. 140 m/vsk
Umhverfisráðherrar Norðurlandanna rœða sameiginlega stefnuáœtlun og aðgerðir
LEGGJA TIL SAMNORRÆNA
UMHVERFISSKATTA OG GJÖLD
„Fleiri raunhæf markmið og
meira fjármagn þarf tii samnor-
ræna umhverfissamstarfsins“.
Það er niðurstaða ráðherra
Norðuriandanna við upphaf um-
ræðu um sameiginiega stefnu-
áætlun og aðgerðir Norðurland-
anna á sviði umhverfismála á
næsta ári og 1995. Ráðherrar og
helstu aðstoðarmenn sátu saman
á fundi dagana 27.-28. september
í Kalmar í Svíþjóð. Þeim kom
saman um að mikil vægur þáttur í
framkvæmd slíkrar áætlunar
gæti verið sameiginlegir norræn-
ir umhverfisskattar og gjöld. Það
munu þeir ræða á sameiginlegum
fundi með fjármáiaráðherrum
landanna í tengslum við fund
Norðurlandaráðs í Stokkhólmi á
næsta ári.
í drögum að áætluninni er að
finna tillögur um forgangsröðun að-
gerða á Norðurlöndum og nærliggj-
andi svæðum í þeim tilgangi að
koma af stað sjálfbærri þróun. Þar
er einnig að finna tillögu um áhersl-
ur Norðurlanda í umhverfismálum
á alþjóðavettvangi, sérstaklega með
tilliti til samskipta við Evrópu-
bandalagið.
A fundi ráðherranna var rætt um
þá miklu þörf sem er fyrir ijármagn
til umhverfisvemdar í nágranna-
löndum Norðurlandanna. Norður-
löndin sameiginlega, og hvert fyrir
sig, veita árlega aðstoð, um 10
milljarða íslenskra króna, í efna-
hagsaðstoð í löndum Austur-Evr-
ópu.
Að fmmkvæði íslands sam-
þykktu ráðherramir að senda sam-
eiginlegt bréf til breska umhverfis-
ráðherrans þar sem lýst er yfir
áhyggjum yfir fyrirhugaðri stækk-
un geymslustöðvar fyrir geislavirk-
an úrgang í Thorp við Sellafield.
Farið verður fram á við bresk
stjómvöld að ekki verði veitt leyfi
fyrir stöðinni nema auð undan-
gengnu samráði við ríki Parísar-
samningsins um vemdun Norðaust-
ur-Atlantshafsins.
Magnús Jóhannesson, ráðuneyt-
isstjóri umhverfisráðuneytisins, tók
þátt í fundinum fyrir íslands hönd.
Rœkjuflokkari með tölvuauga, - íslensk smíð og hugvit,
sá fyrsti í heiminum, tekinn í notkun í Tœlandi
KEMUR í STAD ÓTAL
MARGRA STARFSMANNA
Fyrsti rækjuflokkarinn sem
byggist á tölvusjón hefur verið
settur upp í Tælandi. Það er ís-
lenskt fyrirtæki, Marel hf„ sem
annaðist um uppsetninguna,
enda tækið smíð íslenskra hug-
vitsmanna fyrirtækisins.
Rækjan er í dag verðmætasta
sjávar- og eldisafurð heimsins og
rækjuneysla fer vaxandi um heim
allan. Þetta hefúr kallað á ný og
betri vinnubrögð og meiri ná-
kvæmni en áður hefur þekkst í
hefðbundinni rækjuflokkun. Tölvu-
sjónartæknin gerir kleift að ná
þessu markmiði, auk þess að marg-
falda afköst vigtarflokkara. Tækni
þessi gefur kost á að beita sjálf-
virkri litaflokkun við flokkun á
rækju í skel. Marel-rækjuflokkar-
inn flokkar allt að 450 stykki á mfn-
útu með mikilli nákvæmni, frávikin
em plús eða rnínus eitt gramm.
Stærðar og litaflokkun er mikil-
væg til að fá sem best verð fyrir af-
urðina. Verkið er hinsvegar afar
seinlegt og kallar á mikið vinnuafl.
Hefur það verið unnið í handflokk-
un eða með mjög ónákvæmum vél-
búnaði til þessa.
Láms Asgeirsson, markaðsstjóri
Marels hf., segir að Marel telji þetta
nýja tæki eiga umtalsverða mögu-
leika á að gera flokkun á rækju
sjálfvirka, afkastamikla og ná-
kvæma. Hann segir að þróun Mar-
el-rækjuflokkarans sé hvergi nærri
lokið. Haldið verði áfram að
betmmbæta stærðarflokkunina og
fullþróa litaflokkunareininguna,
sem tengist stærðarflokkaranum.
ÍSLANDSBANKI
LÆKKAR VEXTI
- og boðar frekari vaxtalœkkanir
Frá og með 1. október lækka
óverðtryggðir útiáns- og innláns-
vextir Islandsbanka. Overð-
tryggð kjiir á Sparileið 2 og
Sparileið 3 lækka um 3,5%.
Overðtryggðir útlánsvcxtir af-
urðalána, rekstrarlána og reikn-
ingslána lækka um 3,5%. Vextir
yfirdráttarlána lækka um 3,25%.
Vextir óverðtryggðra skulda-
bréfa lækka unt 3%. Víxilvextir
sem í síðasta mánuði lækkuðu unt
2% lækka nú um 1% þannig að
samanlagt hafa þeir þannig lækkað
um 3%. Þá breytast verðtryggðir
skuldabréfavextir lítillega í takt við
þá hækkun sem að undanfömu hef-
ur orðið á skuldabréfunt ífkissjóðs á
Verðbréfaþingi.
í tilkynningu frá íslandsbanka
segir að framundan séu frekari
lækkun vaxta.
Nýjungar hjá Pósti og Síma
VIÐURKENNA SKIPTINGU
FYRRUM JUGÓSLAVIU
Þeir sem þurfa að hringja til ríkja sem áður tilheyrðu fyrrum Júgósiavíu
ættu að merkja það hjá sér að ný landsnúmer taka gildi l.október. Nýju
númerin eru eftirfarandi:
Bosnía-Hersegóvína 387
Júgóslavía 381
Kjróatía 385
rVlakeciónía 389
Slóvenía 386
Einnig verða síðar tekin í notkun ný númer fyrir telex- og gagnaflutn-
ingsþjónustu og má fá nánari uppiýsingar um telexnúmerin í síma 06 og um
gagnanetsnúmerin í síma 636336.
DV gerir athugasemdir við kostnað
vegna ferða fyrirmanna á ársfund
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
og Alþjóðabankans
RÁÐUNEYTIN
SVARA
FYRIRSIG
Ferðin nýtt til að sinna ýmsu öðru
en einungis ársfundum Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans,
segir í tilkynningu iðnaðar-
og viðskiptaráðuneytisins og
fjármálaráðuneytisins
Fjármálaráðuneytið og iðnaðar- og viðskiptaráðu-
neytið sáu sig neydd til að senda frá sér fréttatilkynn-
ingu í kjölfar umfjöllunar sumra tjölmiðla um þátt-
töku fulltrúa íslenskra stjórnvalda á ársfundum Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans. DV
fínnst til dæmis áhugaverðast við þennan fund hvað
það kostar að senda ráðamenn íslenska rfldsins á
hann. Blaðið segir kostnaðinn vegna ferða þriggja
ráðherra, fjögurra bankastjóra og sex embættis-
manna á fundinn nema miUjónum króna.
í tilkynningu ráðuneytanna er eftirfarandi tekið fram:
„1. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Alþjóðabankinn
greiða ferða- og uppihaldskostnað fyrir aðal- og varafull-
trúa hvers lands í stjómum þessara stofnana. Aðalfulltrúi
íslands í bankaráði Alþjóðabankans er Sighvatur Björg-
vinsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra og varafulltrúi er
Friðrik Sophusson, fjánnálaráðherra. Aðalfulltrúi íslands
í sjóðráði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er Jón Sigurðsson,
seðlabankastjóri og varafulltrúi er Finnur Sveinbjöms-
son, skrifstoftistjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti.
2. Þá sótti Friðrik Sophusson ásamt embættismönnum
úr fjármálaráðuneytinu fund norrænna fjármálaráðherra
og fjánnálaráðherra Eystrasaltsríkja um stuðning Norð-
urlanda við Eystrasaltsríkin sem haldinn var í Washing-
ton 27. september.
Einnig skal nefnt að embættismenn tjánnálíiráðuneyt-
isins sitja í dag fundi með sérfræðingum Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins um ýmis atriði tengd hagstjórn og ríkisfjár-
málum.
Loks skal tekið fram að 1. október munu Friðrik
Sophusson og Jón Baldvin Hannibalsson sækja l'und sem
ijármálaráðherra Bandaríkjanna boðaði til þar sem rætt
verður um fjárhagsaðstoð ríkja heims við Palestínumenn
í framhaldi af friðarsamningum þeirra við ísrael.
3. Auk ársfunda Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Al-
þjóðabankans munu Friðrik Sophusson, Sighvatur
Björgvinsson og Jón Sigurðsson sækja ráðstefnu Islensk-
ameríska verslunarfélagsins um viðskipti íslands og
Bandaiikjanna sem haldin verður í Washington 1 .októ-
ber. Þar rnunu þeir flytja ávörp. Auk þeiira ávarpar ráð-
stefnuna Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðhena,
sem er í Bandaríkjunum vegna þings Sameinuðu þjóð-
anna og fundar sem hann átti með utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, Warren Christopher, í gær.
Af þessari upptalningu má Ijóst vera að ferðin er nýtt til
að sinna ýmsu öðru en einungis ársfundum Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans."