Alþýðublaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 Föstudagur 1. október 1993 RÖKSTÓLAR, DHL & STUTT RÖKSTÓLflR TIMAPUNDNAR KALKUNALAPPIR OG ALLABALLAR I TIMAHRAKI Tíminn er afstæður. Tími framsóknarmanna er enn af- stæðari. Sennilega myndi Ein- stein heitinn, höfundur afstæð- iskenningarinnar, ekki botna upp né niður í Tímanum sem gefinn er út á íslandi. Nýleg blaðamannabylting á Tímanum sem fól í sér að allir ffamsóknarmenn voru gerðir persona non grata á ritstjóm sem utan, hefur haft einkenni- legar afleiðingar í för með sér. Þannig upplýsir lögbirtingar- poppblaðið Pressan það í gær, að Steingrímur Hermannsson sé búinn að leigja útgáfuheitið af blaðinu fyrir litlar 3 milljón- ir. Það gerir auðvitað formaður Framsóknar í skjóli þess að ef einhveijir pörupiltar fara að skrifa óæskilegar fréttir á skjön við Framsóknarmadömuna, geti hann fyrirhafnarlítið leyst til sín blaðhausinn og þá eru menn ekki lengur að lesa Tím- ann heldur eitthvað ótímabund- ið. Eða þannig. Þannig hefur Steingrímur stolið Tímanum frá ritstjóminni en aðallega frá lesendum. Þetta er svonefnd af- stæðiskenning framsóknar- manna. En rneðan saklausir lesendur bíða hins nýja Tíma sem kannski verðuralls ekki Tíminn heldur eitthvað tímalaust blað, heldur gamli Tíminn velli undir dyggri forystu Jóns Kristjáns- sonar framsóknarmanns. Framsóknarmennimir skrifa innblaðið og fréttamenn Stein- gríms Hermannssonar skrifa út- síðufréttir. Síðan að skinkuupp- hlaupið og kalkúnalappahrinan dundi yfir þjóðina, hefúr Tím- inn grafið uppi hvem einasta skinkukaupmann og kalkúna- lappaframíeiðanda á landinu og birt flennistórar fréttir með æs- ingafyrirsögnum, þess eðlis að nóg sé til af innlendum kal- ggggjgg! Sala á kalkúnaleggjum i~«ii>ii > in<fc iWinmi. tiorflt. lii. ^ iji iu !■.- [j wfwrw hefur aukist verulega 6»^ g*Stíö«aí raewta ár erw » awa Hvað verður um matarskattinn? m. -« W *n V-I—I'i.xi .^t-M^f »>.»tnw»«lHliliii n l ■»!«>*■( kúnalöppum, skinkufjalli og kengúmlæmm ef því er að skipta. Tíminn er nefnilega ekki hlaupinn enn frá Framsókn. Tíntinn birti til að mynda í gær forsíðufrétt um að sala á kalkúnaleggjum hafi aukist vemlega. Þessu til sönnunar birti blaðið mynd af Pétri nokkmm í einhvetju Kjötbúri Péturs, þar sem eigandinn stendur heimóttalegur og held- ur á silfurfati með nokkmm kal- kúnalöppum. í myndatexta seg- ir að kalkúnaleggimir séu upp- seldir. I inngangi fréttarinnar á feitu letri stendur að „sala á kal- kúnaleggjum hafi aukist mikið hér á landi eftir að kalkúnafarsi ríkisstjómarinnar var settur á svið.“ Tilvitnun lýkur. Þetta er fréttamennska í lagi. Hér em vönduð vinnubrögð á ferðinni. I fréttinni er einnig sagt að ís- lenskir kalkúnaleggir standist verðsamanburð við erlendan innflutning. Þetta er enn snið- ugri fréttamennska, þar sem er- lendur innflutningur hefur verið bannaður eftir ofstopaaðgerðir yfirvalda. Tíminn er því með kalkúnafréttir í véfréttastíl: Ef erlend kalkúnaframleiðsla væri leyfð til innflutnings og ef Jó- hannes í Bónus fengi að selja þær lappir, þá væri að öllunt líkindum erlendu lappimar lítið ódýrari en þær innlendu, vegna þess að hann Pétur í Kjötbúrinu hefur lækkað kalkúnalappirnar sínar tímabundið meðan tekin var af honum forsíðumyndin í Tímanum. Hins vegar mun - þökk sé yfirdýralækni, Halldóri Blöndal og öllum góðum fram- sóknarmönnum í kjötbúri landsins - engin samkeppni fara fram þar sem bann ríkir við innflutningi á kalkúnalöppum, skinku, kjúklingum og þess vegna kengúruleggjum, froska- löppum og risaeðluslátri, því Tíminn myndi grafa upp slíka framleiðendur á Homafirði eða Hælvíkurbjargi ef því væri að skipta. Fólkinu í landinu er gert að éta það sem framsóknar- mennimir vilja. Og það hljóta að vera landslög því ráðamenn- imir í Sjálfstæðisflokknum hafa tekið undir það. En áfram aðeins með Tím- ann: Undir kalkúnalappafyrir- sögninni er enn stærri fýrir- sögn: HVAÐ VERÐUR UM MATARSKATTINN? Svari nú allir framsóknarmenn utan Tímans og innan: Hveijir leggja hinn eiginlega matar- skatt á landsmenn? Þeir sem studdu virðisaukaskatt á mat- væli eða þeir sem halda allri eðlilegri samkeppni í Ijötmm og hefta verðlækkun með markaðslögntálum? Þetta er verðug spuming fyrir tíma- bundna framsóknarmenn jafnt sem ótímabundna. Hins vegar ber að fagna að Steingrímur hafi fengið sér nýj- an haus, það er gamla Tínta- hausinn. Við bíðum hins vegar frétta hvað allaballamir gera jregar þeir taka völdin á nýja Tímanum. Það er greinilegt að komm- amir em að lenda í Tímahraki. Hraði og spenna nútíma viðskipta kallar á hraðari boðskipti en ríkisrekin póstþjónusta getur boðið upp á DHL STÓREYKUR UMFANG SITT Hin opinberu og ævagömlu póstyfirvöld hinna ýmsu ríkja heims hafa á síðari ár- um eignast keppinauta í flutningum. Hraði og spenna nútima viðskipta hafa gert fyrirtækjum eins og DHL- hraðflutningaþjónustunni að vaxa og dafna, - einnig hér á landi. DHL á Islandi hefúr nú starfað í 10 ár og var þess minnst í fyrradag. Af því til- efni komu hingað tii lands Robert M. Kuijpers, aðal- framkvæmdastjóri DHL í Evrópu og Afríku og Jesper Bertel Hansen, stjómarfor- maður DHL á íslandi. Arsvelta DHL er rúmlega 210 miiljarðar íslenskra króna, eða sem svarar tvöföldum íjár- lögum íslenska ríkisins. Fyrir- tækið hefur 1600 skrifstofur í rúmlega 220 löndum. Starfs- menn fýrirtækisins em 35 þús- und talsins. DHL var stofnað 1969 og hefur velta þess vaxið á ári hverju svo um munar. Fé- lagið keypti nýlega alla aðstöðu Federal Express í Bmssel og tvöfaldaði þá umfang sitt. Þá keypti DHL nýlega 5 þotur af gerðinni DC8 af Air Canada og verða þær notaðar til fragtflutn- inga yfir Atlantshaf. Hér á landi hefur DHL ákveðið að tjárfesta enn frekar. Meðal annars í nýjum bifreið- um, tæknibúnaði, húsnæði og starfsfólki. En hvað er unnið með því að senda skjöl eða pakka með DHL? Þjónustan verður mun hraðari en með venjulegum pósti. Sendingin berst með fyrsta mögulega farkosti milli landa eða innanlands, og verður Hjá DHL á íslandi starfa nú 11 manns við að flytja sköl og pakka milli landa á sem allra hraðastan hátt. Reiknað er með fjölgun starfa hjá fyrirtækinu á næstunni. borin umsvifalaust beint í hend- ur viðtakanda. Það getur jafnvel gerst samdægur. Kostnaður við hraðflutning hjá DHL er hinsvegar umtals- vert hærri en hjá keppinautnum, t.d. Pósti og síma. En eins og fýrr greinir, em viðskipti nú- tímans háð miklum hraða í samskiptum. Sem dæmi má nefna varahluti í togara og stór- virkar vinnuvélar. Einnig skjöl sem þurfa að berast til undir- skriftar sem allra fýrst. Tíminn getur í þessum tilvikum og fleirum reynst miklir peningar. Þessi flutningsaðferð hefur reynst mörgum fyrirtækjum og einstaklingum á Islandi vel á síðustu ámm og aukning send- inga DHL aukist um 70% á að- eins tveim ámm STUTTFRKTTIR Harlem Globetrotters til íslands Heimsffægir galdrakallar í körfúbolta, Harlem Globetrotters sýna kúnstir sínar á Islandi eftir hálfa aðra viku. Þeir sýna fyrst í Kaplakrika 12. október, daginn eftir á Akureyri, og þriðji leikurinn er í Laugardalshöll 14. október. Körfuknattleikssamband íslands og brcska fyrirtækið TKO Entertainments standa saman að heimsókninni. Aratugum saman hafa Harlem Globetrotters skemmt fólki með listum sínum og þeir hafa leikið í mörgum kvikmyndum. Með liðinu í for em Washington Generals sern verða mótheijamir. Skcmmúleg heimsókn, cn verð aðgöngumiða þykir fulldýrt. Kolbeinn i’álsson, formadur KKÍ og Steve Louis frá TKO KntertuinmenLs, handsala samkomulug um að stunda samciginlega að heimsókn körfuboltarisanna frægu frá Harl- cm Globctrotters. íslenskir fararstjórar og erlendir Ferdamálaráðstefnan á Mývatni varaði við óhóflegri veitingu atvinnuleyfa til út- lendinga, sem stundað hafa fararstjórastörf hér á landi. Mælir ráðstefnan með því að leitað sé allra ráða sem EES-samningurinn leyfir til að tryggja atvinnumöguleika heimamanna í eigin landi og þar með auka tekjur ríkissjóðs af ferðaþjónustunni. Það virðist hinsvegar oft gleymast að tugir íslenskra fararstjóra starfa á erlendri gmnd og annast þar um íslenska fararstjóra ferðaskrifstofanna. Hugmynd- höggmynd A morgun, laugardag, verður opnuð í Listasafni Sigurjóns Olafssonar sýning sem ber heitið Höggmynd-hiiginyiíd. Úr vinnustofu Sigurjóns Ólafssonar. Úrval verka frá ólíkum rímabilum í list Siguijón hefur verið selt upp, auk þess sem reynt er að lýsa mismunandi vinnslustigum verk- anna í textum og Ijósmyndum. Verkfæri og ýmsir munir úr vinnustofu listamanns- ins em einnig sýnd til að varpa ljósi á ferl- ið frá hugmynd til listaverks. Sýningin er opin á laugardögum og sunnudögum frá kl. 14til 17. Mun sýningin standatil vors. Sígurjón heitinn Ólatsson við vinnu sína. Gítarleikur í Kringlunni Gíutrspil á eftir að hljóma á göngum Kringlunnar alla laugardaga í október og nóv- ernber. Hafa kaupmenn fengið til liðs við sig nokkra þekkta gítarleikara til að kynna gítarinn sem einleikshljóðfæri. Fyrsti gítarleikarinn sem fram kemur er Kristinn H. Arnason og leikur hann íýrir Kringlugesti kl. 13 og aftur kl. 14 á rnorgun, laugardag. Á efnisskrá Kristins em verk eftir Bach og Tarrega og í seinni hlutanum eftir Tarr- ega, Granados og Barrios. Hafnarborg - tónleikar og sýning Tónleikar verða í Hafnarborg í Hafnarfirði á sunnudagskvöldið klukkan 20. Þá verða fýrstu tónleikar starfsársins á vegurn Tríós Reykjavíkur og Hafnarborgar. Gest- ur á tónleikunum er danski fiðluleikarinn Elísabeth Zeuthen Schneider. 1 Hafnar- bttrg er nú að ljúka glerlistasýningu, en þar sýna Inga Elín Kristinsdóttir, Lharne Tóbías Shaw og Svafa Björg Einarsdóttir. Alþjóðlegur stómadagur Á sunnudag er alþjóðlegur stómadagur sem Stómasamtök íslands munu minnast. Stómaþegar svokallaðir em fólk sem gengist hefur undir skurðaðgerðir á neðri hiuta melúngarvegar, úi dæmis vegna krabbameins í ristli, ritilbólgu eða meinsemda í þvagblöðm. Sameiginlegt flestum stómaþegum er að þeir þuifa að nota poka á kvið til að taka á móti úrgangi frá meltingarfærum. Stómaþegar em í öllunt aldurshópum kvenna og karla í öllum stéttum. Fyrsti fundur Stómasamtaka íslands á vetrinum er í kvöld klukkan 8.30 í húsi Krabbameinsfélagsins. Allir em velkomnir á fundinn. Nærri 400 þúsund tonn af loðnu Senn em komin á land 400 þúsund tonn af loðnu, en heildarkvótinn er 702 þúsund tonn. Fer því að síga á seinni hlutann í veiðiskapnum, nema aukakvóú verði gefinn út. Síðustu dagana hafa nærri 10 þúsund tonn borist. Góður veiðiskapur loðnuskipanna hefur reynst sem hin besta vítamínsprauta lýrir bæina fyrir norðan og austan, sem loðnuna fá í bræðslu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.