Alþýðublaðið - 07.10.1993, Síða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
STJORNMALAVIÐHORFIÐ
Fimmtudagur 7. október 1993
ELDHClSDfiGSCIMRfEÐCIR R fiLÞINGI
Guðmundur Árni Stefánsson
„MÁLEFNALEG UMRÆÐA
ER NAUÐSYNLEG"
„Virðulegi forseti! Gott kvöld góð-
ir Islendingar!
I lýðræðisþjóðfélagi er opin og
hispurslaus umræða nauðsynleg.
Eðli máls samkvæmt eru skiptar
skoðanir um einstakar ákvarðanir
og viðhorf stjórnmálamanna. Víða
erlendis er gert út um slík ágrein-
ingsefni með vopnavaldi. Það hefur
verið að gerast í Rússlandi síðustu
dægrin. Við hér á íslandi förum hin-
ar lýðræðislegu leiðir. Við ræðum
málin jafnvel þótt deila megi um
gagnsemi umræðunnar á stundum.
En þótt skoðanir séu skiptar um einstök
mál eru ákveðin grundvallaratriði sem flest-
ir ef ekki aliir íslendingar eru sammála um.
Ég hygg að landsmenn allir telji það mann-
réttindi að hver vinnufær maður hafi at-
vinnu. A sama hátt bindast fólk tryggðar-
böndum um að gæta náungans, tryggja
ffamfærslu og heilsu hvers einasta Islend-
ings eins og þess er frekast kostur. Þetta
hefur stundum verið nefnt velferðarkerftð -
samhjálp og aðstoð gagnvart bræðrum sín-
um og systrum sem eiga um sárt að binda.
Höfum háð varnarbaráttu
I þeim efnum er málaflokkur heilbrigðis-
og tryggingamála hvað mikilvægastur.
Rúmlega 47 þúsund milljónir króna renna
til að tryggja heilsu og hag landsmanna á
þessum vettvangi. Milli 10-15 þúsund ein-
staklingar veita þessa þjónustu. Langflestir
íslendingar njóta hennar.
Það hefur verið mótstreymi í íslensku
þjóðfélagi á umliðnum misserum og árum.
Þjóðartekjur hafa dregist saman, það hefur
harðnað á dalnum. Um þær staðreyndir þarf
ekki að deila. Þessi efnahagskreppa er ekki
bundin eingöngu við Island. Það hefur einn-
ig verið atvinnu- og efnahagskreppa hjá
öðrum iðnvæddum þjóðum. Hér hefur hún
hins vegar lagst á með tvöföldum þunga
vegna erfiðleikanna í sjávarútvegi. Við höf-
um því háð vamarbaráttu.
Samhjálparþjóðfélagið
Það er óhjákvæmilegt að slíkur samdrátt-
ur leiði til erfiðleika hjá fólki. Hvert einasta
heimili finnur fyrir andstreyminu. En í mót-
vindi er mikilvægt að hrekjast ekki af leið.
Þá reynir á þolgæði og kraft. íslendingar
hafa kraftinn og þolið. Það hafa þeir sýnt
áður og það munu þeir sanna aftur nú. Við
munum komast upp úr öldudalnum með
sameiginlegu átaki.
Því hefur verið haldið fram, að á erfið-
leika- og samdráttartímum sé mikil hætta á
því, að samhjálpin bresti. Að áhugi fólk á
því að rétta náunganum hjálparhönd
minnki. Hver verði sjálfum sér næstur.
Þetta má ekki gerast. Við verðum að
standa vörð um grundvallaratriði - mark-
miðin um atvinnu fyrir alla, að allir geti not-
ið menntunar sem þess kjósa og að við bú-
um vel að öldruðum, sem við eigum svo
margt að þakka, að við hlúum að bömum
okkar, framtíðinni. Og að við gætum að
sjúkum, öryrkjum og öðmm þeim er eiga
um sárt að binda. Samhjálparþjóðfélagið
má ekki bresta, þótt vindar blási.
Grundvöllur velferðarinnar
I starfi mínu sem heilbrigðisráðherra á
umliðnum mánuðum hefi ég reynt að haga
verkum mínum á þann veg, að grundvöllur
velferðarkerfisins raskist ekki. Hinu verður
ekki framhjá horft að þeir fjármunir sem til
þessara málaflokka renna em af skomum
skammti. Krónunum fækkar. Peningamir
em einfaldlega ekki til í þjóðarbuddunni, til
að halda áfram á óbreyttri braut. í því ljósi
mun ég reyna að spara og hagræða á þann
veg, að meginatriði, grandvöllurinn, mátt-
arstólpar velferðar og samhjálpar megi
halda sér.
Ýmsar þær tillögur sem ég hefi kynnt
með þessi markmið að leiðarljósi hafa hlot-
ið hörð viðbrögð. Tillögur um að sveitarfé-
lögin taki að sér rekstur leikskóla sjúkra-
húsanna á næsta ári, sem lögum samkvæmt
er þeirra verkefni, hafa verið gagnrýndar.
Ég hef af þeim sökum verið sakaður um að
vera óvinur bama það er fjarstæða. Tillögur
um tilfærslur og hagræðingu í kerfi áfengis-
meðferðar, það er flutningur vistmanna á
Gunnarsholti yfir í önnur jafnvirk en ódýr-
ari úrræði, hefur kallað fram viðbrögð, þar
sem mér er núið því um nasir að ýta fólki út
á götu - í eymdina og óöryggið, það er af og
ffá. Hugmyndir mínar um að marka heil-
brigðis- og velferðarkerfinu nýjan tekju-
stofn, heilsukort, nýja peninga sem skatt-
greiðendur borga, ekki aðeins þeir sem
mest þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda,
hefur verið kallað það, að bijóta niður
gmndvöll heilbrigðiskerfisins, búa til tvö-
falt kerfi fyrir ríka og fátæka. Það er út í
hött. Það má samkvæmt þessu hvorki spara
né afla fjár. Það er ekki trúverðugur mál-
flutningur.
Hagur fólks tryggður
Málefnaleg umræða um þessar tillögur
og aðra þætti heilbrigðis- og tryggingamála
er nauðsynleg. Ég ffábið mér hins vegar
stóryrði og fráleitar staðhæfingar á borð við
þær sem ég rakti hér á undan. Ég mun láta
einskis ófreistað til að tryggja hag þeirra
barna sem hafa verið vistuð á leikskólunt
sjúkrahúsanna. Og það sama gildir um
starfsfólk Ieikskólanna. Hver einasti vist-
maður á Gunnarsholti sem og hefur þörf
fyrir áframhaldandi heilbrigðisþjónustu að
dómi okkar fæmstu sérfræðinga fær slíka
þjónustu. Heilsukort munu ekki leiða til
gmndvallarbreytinga á velferðarkerfinu.
Þau munu hins vegar verða til þess að nýir
fjármunir munu koma inn í heilbrigðis- og
tryggingakerfið til að styrkja það. Framlag
hvers einstaklings til þess er ætlað tvö þús-
und krónur á ári eða 5 krónur og 48 aura á
dag.
Það er nefnilega alvarlegt mál, þegar því
er skrökvað að tilfærslur og hagræðing og
tekjuöflun til velferðarþjónustu þýði ekkert
minna en eyðileggingu velferðarkerfisins.
Það er auðvitað fráleitt, ekki síst í ljósi þess
að útgjöld til þessara mikilvægu málaflokka
em upp á 47 þúsund milljónir króna og ríf-
lega það. Hækka raunar að krónutölu milli
ára, frá því að vera 46,1 milljarður í fjárlög-
um á þessu ári í 47,6 milljarða á næsta ári.
Það er með öðmm orðum aðeins reynt að
stemma stigu við útgjaldaaukningu. Treysta
gmndvöll velferðar.
Kostnaði náð niður
Hér má ætla af ræðum stjómarandstæð-
inga og fjölmiðlaumræðu á umliðnum vik-
um, að ég hafi það eitt að markmiði og það
er að rústa velferðarkerfinu. Það em algjör
öfúgmæli. Sumir sjá ekki skóginn fyrir
trjánum. Allt mitt starf miðar þvert á móti
að því að tryggja áfram þau viðhorf sam-
hjálpar og aðstoðar sem heilbrigðis- og
tryggingakerfið okkar byggir á. Ég vil forða
því að við stöndum frammi fyrir því eftir
einhver misseri eða ár, að þetta mikilvæga
samhjálparkerfi sé orðið okkur fjárhagslega
ofviða og að það hrynji til gmnna. Við
verðum að finna því fjárhagslega traustan
grundvöll. Ég bið um samvinnu um þau
markmið.
I því sambandi mun ég freista þess með
aðgerðum í lyfjamálum að lækka álagningu
lyfja, lækka lyf í verði. Kostnaður velferð-
arkerfisins vegna rannsókna og röntgen
mun lækka, fyrirkomulag á störfum lækna
innan sjúkrahúsa og utan er til skoðunar hjá
Ríkisendurskoðun og mun væntanlega
leiða til spamaðar. Þetta em örfá dæmi um
það, að útgjöld í kerfinu verða minnkuð, án
þess að það muni hafa nokkur áhrif á þjón-
ustu við fólk.
Traust og góð þjónusta
Við höfum byggt upp trausta og góða
þjónustu í heilsugæslustöðvum um land
allt. Við eigum fullkomin sjúkrahús í öllum
landshomum. Við eigum á að skipa vel
menntuðu og hæfu fólki f heiibrigðismál-
um. Við eigum gott almannatryggingakerfi.
Við eigum þjóð sem er heilsuhraust - þjóð
sem stendur saman - þjóð sem byggir á
þeim gmnni að samfélagið lætur sig varða
um afkomu hvers einasta þjóðfélagsþegns.
Og um leið og við hagræðum heldur upp-
bygging áfram þar sem þörfin er hvað brýn-
ust. Nú deild fyrir 25-30 aldraða opnar hjá
Eir næstkomandi föstudag. Stofnun fyrir
fjölfatlaða er að hefja rekstur á Reykjalundi
þessa dagana. Við réttum sámm og þjáðum
í stríðandi Bosnfu hjálparhönd. Nýir mögu-
leikar svo sem eins og í Bláa lóninu, vekja
vonir um gjaldeyrisskapandi starfsemi í
heilbrigðismálunum. Og þannig má áfram
telja.
Grundvallaratriðin
Við skulum ekki gleyma gmndvallarat-
riðum heilbrigðismála, nefnilega þeim að
stuðla að almennu heilbrigði með breyttum
og bættum lífsháttum. Enginn veit hvað átt
hefur fyrr en misst hefur þegar heilsan er
annars vegar. Að því er unnið með vaxandi
fyrirbyggjandi staríi ýmis konar. Og síðan
því að ffeista þess að lækna sjúka og lina
þrautir þeirra. Heilbrigðiskerfið er til fyrir
fólkið, en ekki fólkið til fyrir keríið. Það er
meginatriði. Við megum ekki missa sjónar
af aðalatriðum í hávaða um aukaatriði.
Margar fjölskyldur eiga erfitt með að láta
enda ná saman. Það þarf að lækka vexti. Að
því er unnið.
Það þarf að lækka matarverð. Það gerist
meðal annars með auknu frelsi varðandi
innflutning landbúnaðarafurða.
Það þarf að ná sátt um raunvemlega hag-
ræðingu í sjávarútvegi. Þar mun þróunar-
sjóður gegna mikilvægu hlutverki.
Það þarf markaðssókn fyrir afurðir okk-
ar. EES-samningurinn opnar nýjar leiðir í
þessum efnum.
Styrkja þarf stoðir atvinnuveganna og
vinna gegn atvinnuleysi. Við munum nýta
auðlindir okkar á næstu ámm. Við munum
halda áfram að virkja og selja rafmagn í
auknum mæli til stór- og smáiðnaðar víða
um landið.
Ferskvatnið okkar góða mun skila okkur
gjaldeyristekjum í næstu framtíð. Hugvit og
nýsköpun opnar okkur nýjar leiðir.
Við Islendingar munum vinna okkur út
úr hinum stóm vandamálum.
En þar gagnast ekki yfirboð og langir
óraunhæfir. loforðalistar stjómarandstöðu,
heldur traust og ábyrg landsstjórn núver-
andi ríkisstjómar.
Stefnum til nýrrar sóknar
Góðir Islendingar!
Nú er ekki tíminn til að missa móðinn.
Nú er tíminn til að þétta raðirnar og standa
saman úl nýrrar sóknar. Við íslendingar
eigum góða möguleika fyrir stafni. Við eig-
um að sníða okkur staldc efúr vexti - og
byggja á hinum góða gmnni, vinnusemi og
þolgæði með trú á getu okkar og kraft.
Stöndum saman að þeim markmiðum. Þá
þurfum við ekki að kvíða framtíðinni."
Fyrirsögn og millifyrirsagnir: Alþýðublaðið