Alþýðublaðið - 08.10.1993, Blaðsíða 1
Ritstjóri Heimsmyndar hœtti í skyndingu á miðvikudaginn
NÝTT TÍMARIT Í
BURÐARLIÐNUM
Gunnar Smári Egilsson, nú fyrrum ritstjóri Heimsmyndar, segir ástœðu uppsagnar-
innar léleg starfsskilyrði - Gjörningur Gunnars Smára kom Herdísi Þorgeirsdóttur,
ritstjóra ífríi og aðaleiganda Heimsmyndar, í opna skjöldu
Gunnar Smári Egilsson,
fyrrverandi ritstjóri Heims-
myndar og Pressunnar, hef-
ur stofnað tímarit sem ráð-
gert er að komi út 1. nóvem-
ber næstkomandi. Ekki er
enn búið að ákveða hvað
blaðið mun heita en efni þess
verður fjölbreytt: Viðtöl,
tíska, pólitík, viðskipti og
þjóðmál almennt.
Gunnar sagði í samtali við
Alþýðublaðið að á bak við
blaðið stæði vel valinn hópur
vina og vandamanna. Hlutaféð
samanstendur af nokkrum
smærri hlutum. Enginn stór
karl né kerling stæði á bak við
blaðið.
Léleg starfsskilyrði
Gunnar Smári hætti á
Heimsmynd á miðvikudaginn.
Hann sagði ástæðu þess að
hann sagði upp vera þá að hann
sætti sig ekki við þau starfsskil-
yrði sem honum vom búin.
Gunnar sagði að þrátt fyrir
að skammur tími væri liðinn
frá því hann hætti á Heims-
mynd væri nýtt blað komið vel
á veg. Síðastliðið vor hefði
þessi sami hópur og stendur að
nýja tímaritinu rætt um blaða-
útgáfu og því hefði lítið þurft
til að blása nýju líft í þær hug-
myndir. Gunnar sagði að stór
hluti starfsmanna Heimsmynd-
ar kæmu með honurn á nýja
blaðið.
Aðspurður hvort hann óttað-
ist ekki harða samkeppni milli
tímarita sagðist Gunnar treysta
fólki til að velja bestu vömna.
Herdís Þorgeirsdóttir:
Aðspurð um þennan gjöm-
ing Gunnars Smára segir Her-
dís Þorgeirsdóttir, stofnandi
Heimsmyndar og aðaleigandi:
„Gunnar Smári hafði sam-
band við mig um það leyti þeg-
ar ég var að fara í bamsburðar-
leyfi skömmu eftir að hann
hafði verið rekinn af pressunni.
Ég gaf honum þetta tækifæri
og hann stóð sig ágætlega. Nú
em liðnir tæpir sex mánuðir og
ég er kominn aftur. Um hans
áform veit ég ekkert annað ég
hef heyrt á skotspónum að
hann hafi í hyggju um að
stofna sitt eigið blað. Um það
vil ég segja að það er ekki
heiglum hent.“
Gunnar Smári Egilsson:
Aðspurður um ummæli Her-
dísar sagðist Gunnar Smári lít-
ið vilja segja um þau. Þó væri
rétt að hafa sagnfræðileg atriði
á hreinu. Herdís bauð honum
starf í vor en ekki öfugt og hún
bauð honum bætt kjör og rýmri
skilyrði á mánudaginn til að
freista þess að halda í hann.
265 MILUARÐA
LANGTÍMASKULDIR
„I kosningabaráttunni í Noregi fyrir nokkmm vikum gerð-
ist það að talsmaður Verkamannaflokksins í efnahagsmálum
lýsti yfir með skiljanlegu stolti að á næsta ári yrði Noregur
skuldlaus við útlönd. Auðvitað er Noregur olíuriki en orku-
lindir okkar em ekki enn farnar að mala okkur nægilega gull-
ið. En þegar við skundum á Þingvöll 17. júní 1994 þá er því
miður öðm vísi um að litast í okkar þjóðarbúskap. Þá er því
spáð að erlendar skuldir okkar til langs tfma fari að nálgast
70% af landsframleiðslu okkar og að greiðslubyrðin verði
einhvers staðar á bilinu 30-40%. Því er spáð með öðmm
orðum að langtímaskuldir okkar verði uni 265 milljarðar á
afmælisárinu,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkis-
ráðherra og formaður Alþýðuflokksins, meðal annars í ræðu
sinni í eldhúsdagsumræðum á Alþingi fyrr í þessari viku.
- Sjá rœðu Jóns Baldvins í
heild sinni á blaðsíðu 3.
Er ekki kominn tími til að skreppa til Reykjavíkur og gera eitthvað
fyrir sjálfan sig. Kíkja í búðir, fara í leikhús, koma við á krá, njóta
frábærrar skemmtunar á Hótel íslandi og fullkomna ferðina með
dvöl á fyrsta flokks hót
Gisting, matur og rokkskemmtun:
6.400,- kr. á mann fyrir eina nótt, eða
8.700,- kr. á mann fyrir tvcer nœtur
í tveggja manna herbergi.
Morgunmatur er innifalinn.
Pantanasími 688999 ISLAND
ÁRMÚLA 9, 108 REYKJAVlK,
H Ó T E L
Breytingarnar á þingsköpum Alþingis
RANNVEIG
AÐAL ARKITEKT
SAMKOMULAGS
Rannveig Guðmundsdóttir, formað-
ur þingflokks Alþýðuflokksins, hefur
ásamt formönnum annarra þing-
flokka, unnið mikið starf við breyt-
ingu á þingsköpum. Hér er um að
ræða stórmál sem unnið hefur verið í
kyrrþey. Það er mál manna sem til
þekkja að þar hafi Rannveig reynst
vel, hún hafi manna mest og best
brætt saman hin ýmsu sjónarmið sem
fram komu. Sannarlega glæsilegt
upphaf á ferli Rannveigar sem þing-
flokksformanns. Nú reynir á þing-
heim allan hvernig tekst til því í raun
mun Alþingi fá nýja ásýnd og nýtt
yfirbragð. Rannveig Guðmundsdóttir
mælti fyrir breytingum á þingsköp-
um Alþingis í fyrradag. Alþingi sam-
þykkti nýju þingskapalögin sam-
hljóða. Ræða Rannveigar fer hér á
eftir:
„Alþingi sem stofnun nýtur mikillar
virðingar meðal þjóðarinnar. Það heyr-
um við í umræðum fólks um Alþingi,
það finnum við í viðmóti fólks sem
kemur í þetta hús að það finnur sá er
kjörinn er til setu á Alþingi. Við alþing-
ismenn finnum einnig þessa sterku til-
finningu, ekki síst á þeirri hátíðlegu
stundu sem setning Alþingis er og í
væntingum okkar þann dag varðandi
störfm framundan.
Hins vegar er það svo að í umræðunni
um störf okkar alþingismanna kveður
stundum við annan tón. Við heyrum þær
gagnrýnisraddir að umræður sem fara
fram í þessari virðulegu stofnun séu ekki
ávallt með þeim brag og virðuleikablæ
sem fólk ætlast til.
Þessi sjónarmið höfum við alþingis-
menn oft rætt í okkar hópi og haft skoð-
anir á hvað sé til ráða. 1 þeirri umræðu
hefur það einmitt oft verið nefnt hve
málum sé á annan veg háttað í þjóðþing-
um nágrannaþjóðanna, hvemig þar hef-
ur í tímans rás verð breytt starfsháttum
og hvað af því mætti læra og taka til eft-
irbreytni. Hvað okkur sjálfum finnst að
mætti betur fara.
Það fmmvarp sem hér er til umræðu
er afrakstur umljöllunar þingflokksfor-
manna um þessi mál og vilji þeirra til að
gera breytingar á starfsramma þeim er
við störfum eftir. Settar em skorður við
ræðutíma í fyrstu umræðu auk annarra
breytinga sem þegar hafa verið til-
greindar. Skiptir þar máli að brotin er
upp hin hefðbundna þingskapaumræða
sem fengið hefur á sig fremur neikvæð-
an blæ ekki si'st út í frá.
Samkomulag er um að taka ákveðið
skref í breyttri verkaskiptingu stjómar
og stjómarandstöðu með því að færðir
verða til stjómarandstöðunnar mikil-
vægir þættir stjómunarstarfa í þinginu,
það er formennska og varaformennska í
nefndum.
Þingílokksformenn standa allir að
baki þeim breytingum sem felast í þessu
fmmvarpi og það er afar mikilvægt hve
víðtæk sátt hefur náðst um þetta mál,
sem nefnt er tímamótasamkomulag og
það tel ég einmitt þetta frumvarp vera.
Alþýðuflokkurinn stendur einhuga að
þessu samkomulagi og hefur viljað
leggja vemlega af mörkum til að efla þá
nýju ásýnd sem Alþingi fær með því að
stjómarandstaðan tekst á hendur ný
RANNVEIG GUÐMUNDSDOTTIR
stjómunar- og virðingarembætti og með
breyttum þingsköpum. Þannig lætur Al-
þýðuflokkurinn af hendi formennsku í
iðnaðamefnd og umhverfisnefnd sem
stjómarandstaðan mun fara með og jafn-
framt lætur Alþýðuflokkurinn stjómar-
andstöðunni eftir varaformennsku í sjáv-
arútvegsnefnd og utanríkismálanefnd.
Með þessu vill flokkurinn undirstrika
vilja sinn til að bæta starfshætti á hinu
háa Alþingi.
Hér emm við vissulega að fjalla um
starfsramma, sjálf þingsköpin og verka-
skiptingu okkar í milli. Það sem ræður
þó úrslitum um hvemig til tekst emm
við sjálf. Ramminn um starfsdag okkar
er eitt, orð okkar og athafnir, samviska
okkar og vinnulag annað.
Það mun reyna á okkur sjálf á því ári
sem fer í hönd hvemig við fömm með
það sem við hér sættumst á. Það mun
reyna á hvort sá tmnaður skapast í sam-
skiptum og vinnulagi, að við, að loknu
því tilraunaári sem framundan er, óskum
að halda áfram og vonandi gera enn bet-
ur í að efla ábyrgð, bæta vinnubrögð og
þar með efla virðingu fyrir störfum okk-
ar.
Við höfum sameinast um veigamikið
skref sem ég trúi að reynist til góðs.“
Rússneskir Lödu-sjómenn dytta að dallinum.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason