Alþýðublaðið - 08.10.1993, Blaðsíða 7
Föstudagur 8. október 1993
LEIKLIST & SKILABOÐ
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7
LEIKLIST
Á AÐ GRUFLA
í FORTÍÐINNI?
ELÍN HELENA er sterkt, íslenskt leik-
verk. Það ber að óska Árna Ibsen til ham-
ingju með verk, sem er um margt mjög
vel unnið og hugsað. En eins og um mörg
mannanna verk má fínna á þessu nýja
ieikriti Árna ýmsa agnúa. Oft fínnst mér
að íslensk leikrit mætti skrifa aftur, bæta
góð verk, með ráðleggingar mætra leik-
húsmanna að Ieiðarljósi. Mætustu rithöf-
undar heims leita í smiðju margra
manna áður en þeir sleppa hendi af verk-
um sínum, það ættu íslenskir leikritahöf-
undar líka að gera.
Elín Helena f'jallar um málefni sem ofar-
lega er á baugi í þjóðlífmu í dag, - leitina að
týndum föður í henni Amenku. Ung stúlka,
vel menntuð, falleg og gáfuð, á erfitt með að
finna lífi sínu farveg. Hana skortir tengslin
við bandarískan föður, sem hún minnist að-
eins lítillega ffá æskuárum sínum. „Það er
tóm innan í mér, mamma! Einhver dauður
blettur, eitthvert drep, sem ekkert nema
sannleikurinn getur læknað", segir stúlkan
Elfn Helena. Hún veit fátt um afdrif föður-
ins, en vill finna hann. Það gengur eftir. En
eftir situr spumingin: Til hvers var barist?
Var það þess virði að rifja upp löngu liðnar
ástar- og hörmungarsögur? Hvar stendur El-
ín Helena eftir að hafa hitt föður sinn og
fengið að heyra sögu móður sinnar, móður-
systur og föður? Var leitin að sannleikanum
henni til góðs, eða tjóns?
Persónumar em leiddar fram og látnar
segja söguna. Þetta er vel gert á Litla sviðinu
í Borgarleikhúsinu. Verkið byijar tiltölulega
rólega, unga stúlkan er að undirbúa ferð til
Bandaríkjanna, sem móðir hennar leggst
eindregið á móti. Ferðin er farin undir yfir-
skini vinnuferðar, en undir niðri er leitin að
föðumum og endurfundir við hann aðalat-
riðið. En hvað er það sem ekki má komast
upp á yfirborðið? Leikhúsgestir em leiddir í
sannleika um ógnþmnginn sannleika.
Hér er um að ræða drama í öllu sínu veldi.
Mikinn harmleik, sem lætur engan ósnort-
inn. Á köflum fannst mér textinn dálítið
langsóttur, og jafnvel að atburðarásin virk-
aði stundum nokkuð óeðlileg. Þetta hefði
mátt lagfæra. Engu að síður er leikritið gott
og höfundi sínum til sóma. I verkinu er
spennan að stigmagnast allt til loka. Verkið
fellur hreint ekki, öðm nær, lokamínútumar
em ótrúlega magnaðar.
Litla sviðið í Borgarleikhúsinu er afar
nærgöngult við leikhúsgestinn og því er
hann nánast inni á gafli hjá því ólukkulega
fólki sem kemur við sögu. Og í þessu verki
em möguleikamir til nálgunar við leikhús-
gestinn vel nýttir.
Sigrún Edda Bjömsdóttir fer með hlut-
verk jarðfræðidoktorsins unga, Elínar He-
lenu, sem leitar að rótum sínum í jarðlífinu.
Hún fer vel með þetta hlutverk. Þá lýsir
Margrét Helga Jóhannsdóttir ákaflega vel
vonsvikinni og biturri ntóður Elínar Helenu,
konu sent varla hefur séð glaðan dag í aldar-
ljórðung og bíður nú dauða síns. Helena
móðursystir ungu stúlkunnar er leikin af
ntiklum þokka af Hönnu Maríu Karlsdóttur.
Eina karlhlutverkið er Rikki, hermaðurinn
sem dvalið hafði á Keflavíkurflugvelli, og
síðan gengið gegnum Víetnamstríðið og
lent í miklum sálarháska. Þorsteinn Gunn-
arsson leikur Rikka og gerir það af sínum
mikla krafti.
Elín Helena á ömgglega eftir að vekja
mikla athygli, ekki síst kvenna, sem eiga án
efa auðveldara að átta sig á því mikla tilfinn-
ingaróti, sem leikritið lýsir. Leikritinu og
aðstandendum þess var gífurlega vel fagnað
á frumsýningunni. Það var að vonum, enda
hafa höfundur, leikarar, leikstjóri, Ingunn
Ásdísardóttir, ásamt fjölda annarra, unnið
ágætt verk með þessari sýningu. Að lokum
skal minnst á tvennt sem gaf sýningunni
mikið gildi; tónlist Hilmars Arnar Hilmars-
sonar, hann er sannkallaður galdrakall í að
skreyta kvikmyndir og leikrit með hárrétt-
urn tónum; og lýsing Lárusar Bjömssonar.
Báðir þessir þættir skipta sköpum, og gefa
verkinu hið rétta yfirbragð.
- Jón Birgir Pélursson
Félag ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði
AÐALFUNDUR
Aöalfundur félagsins veröur haldinn föstudaginn 8.
október kiukkan 18.30 í Alþýðuhúsinu við Strandgötu
í Hafnarfirði.
DAGSKRÁ
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Formaður.
HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Laust lyfsöluleyfi,
sem forseti íslands veitir
Laust er til umsóknar lyfsöluleyfi á Akranesi (Akraness Apó-
tek). Fráfarandi lyfsali gerir kröfu til þess, í samræmi við 11. gr.
laga nr. 76/1982, um lyfjadreifingu að viðtakandi lyfsöluleyfishafi
kaupi allan búnað apóteksins og innréttingar þess. Ennfremur
kaupi viðtakandi leyfishafi fasteign apóteksins, ásamt íbúð lyfsal-
ans að Suðurgötu 32, Akranesi.
Viðtakandi lyfsali skal hefja rekstur frá og með 1. janúar 1994.
Umsóknirásamt ítarlegum upplýsingum um lyfjafræðimenntun
og lyfjafræðistörf, sendist ráðuneytinu fyrir 1. nóvember 1993.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
5. október 1993.
Ertþú
að tapa réttindum?
Eftirtaldir lífeyrissjóðir hafa sent sjóðfélögum yfirlit um iðgjaldagreiðslur
á árinu 1992 og 1993:
Lífeyrissjóður Austurlands
Lífeyrissjóður bókagerðannanna
Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar
Lífeyrissjóðurinn Hlíf
Lífeyrissjóður Iðju
Lífeyrissjóður Norðurlands
Lífeyrissjóður sjómanna
Lífeyrissjóður staifsfólks í veitingahúsum
Lífeyrissjóður Suðurnesja
Lífeyrissjóður verkafólks í Grindavík
Lífeyrissjóður verkamanna á Hvammstanga
Lífeyrissjóður verkstjóra
Lífeyrissjóður Vestmannaeyinga
Sameinaði lífeyrissjóðurinn
Lífeyrissjóðurinn Björg
Lífeyrissjóður Bolungarvíkur
Lífeyrissjóðurframreiðslumanna
Lífeyrissjóður Hlífar og Framtíðarinnar
Lífeyrissjóður matreiðslumanna
Lífeyrissjóðurinn Sameining
Lífeyrissjóður Sóknar
Lífeyrissjóður stéttarfélaga í Skagafirði
Lífeyrissjóður trésmiða á Akureyri
Lífeyrissjóður verksmiðjufólks
Lsj. verkalýðsfélaga á Suðurlandi
Lífeyrissjóður Vesífirðinga
Lífeyrissjóður Vesturlands
FÁIR ÞÚ EKKIYFIRLIT,
er dregið hefur verið af launum þínum í einn eða fleiri af ofangreindum lífeyrissjóðum, eða ef
launaseðlum ber ekki saman við yfirlitið, skalt þú hafa samband við viðkomandi lífeyrissjóð hið
allra fyrsta og eigi síðar en 1. nóvember nk.
Við vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissjóð er hætta á að dýrmæt réttindi tapist.
ELLILÍFEYRI MAKALÍFEYRI BARNALÍFEYRI
Þar á meðal má nefna:
ÖRORKULÍFEYRI
Gættu réttar þíns
✓
I lögum um ábyrgðasjóð launa segir meðal annars:
Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðasjóðs launa vegna gjaldþrota, skulu launþegar
innan 60 daga frá dagsetningu yfírlits ganga úr skugga um skil vinnuveitenda til viðkomandi lífeyr-
issjóðs. Séu vanskil á iðgjöldum skal launþegi innan sömu tímamarka leggja lífeyrissjóði til afrit
launaseðla fyrir það tímabil, sem er í vanskilum. Komi athugasemd ekki fram frá launþega er við-
komandi lífeyrissjóður einungis ábyrgur fyrir réttindum á grundvelli iðgjalda þessara að því marki
sem þau fást greidd, enda hafi lífeyrissjóðnum ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna.